Morgunblaðið - 30.11.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 23
Kveikt á perunum
Á sunnudag verða ljósin tendruð á jólatrénu
við Austurvöll en í rúma hálfa öld hafa Norð-
menn fært Íslendingum grenitré að gjöf í til-
efni jóla. Dagskráin hefst kl. 15.30 með lúðra-
blæstri og að loknum kórsöng kl. 16 mun hinn
10 ára gamli norsk-íslenski Árni Óttar Hall-
dórsson kveikja ljósin á trénu. Að því loknu
verður húllumhæ á sviðinu við Austurvöll og
frést hefur af rauðklæddum kónum sem ætla
sér að taka forskot á sæluna og kíkja í bæinn.
Metri á alla kanta
Menn þurfa ekkert að vera ferkantaðir í
hugsun til að sækja samsýningu 22 listamanna
og hönnuða sem verður opnuð á laugardag á
Korpúlfsstöðum, þótt öll verk sýningarinnar
séu metri á hvern veg. Ýmsar uppákomur
verða í tengslum við sýninguna s.s. upplestur
rithöfunda úr nýútgefnum bókum, tónlist,
kaffisala og meðlæti og vinnustofur verða opn-
ar.
Þreföld fluga á Suðurnesjum
Um helgina og á næstunni gefst tækifæri til
að slá þrjár flugur í einu höggi með því að
sækja sölusýningu myndlistarmanna á Suð-
urnesjum sem verður opnuð í kaffihúsi Kaffi-
stárs á Stapabraut í Reykjanesbæ í dag. Allur
ágóðinn af sölu málverka þar rennur til að-
stoðar Afríkubúum sem misst hafa útlimi
vegna styrjalda, pyntinga eða sjúkdóma. Kjör-
ið að njóta góðra kaffiveitinga, kaupa listmun í
jólagjöf og styrkja gott málefni um leið.
Lifandi dagatal
Fyrsti glugginn í lifandi jóladagatali Nor-
ræna hússins verður opnaður á morgun kl.
12.34 en á bak við hann leynist landsþekktur
listamaður. Á sunnudag og næstu tvær helgar
verður einnig barnadagskrá í húsinu sem og
handverksmarkaður og allar helgarnar fram
að jólum verður boðið upp á norrænt jólahlað-
borð í hádeginu.
Fyrsta kertið tendrað
Á laugardag eru síðustu forvöð að útvega
aðventukrans, hvort sem rykið er dustað af
þeim gamla eða nýr föndraður í rólegheitum á
laugardag. Róleg jólatónlist, heitt kakó og lif-
andi ljós er að sjálfsögðu nauðsynlegt meðlæti
við slík tækifæri sem og spariskapið sem auð-
vitað á að vera allsráðandi alla aðventuna. Á
sunnudag tendrar lýðurinn ljós á spámanns-
kertinu en næstu sunnudaga á eftir fylgja
Betlehemskertið, hirðakertið og englakertið.
mælt með
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Eyþór
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Víða um heim er það taliðmerki um að jólin nálgistþegar jólabjórinn kemur á
markað. Sú hefð er og rík hér á
landi, bæði er danskur jólabjór vin-
sæll hér og svo hafa íslenskir brugg-
meistarar búið til íslenskan jólabjór
sem stendur þeim erlenda síst að
baki að margra mati.
Jólabjórinn kemur á markað hér
á landi þriðja fimmtudag í nóvember
og má selja hann til 6. janúar.
Helstu tegundir eru Tuborg-
jólabjórinn og Egils-jólabjór, ljós og
dökkur, sem koma frá Ölgerðinni,
og svo Viking-jólabjórinn frá Vífi-
felli.
Alltaf einhver
munur á milli ára
Hreiðar Þór Jónsson, sölu- og
markaðsstjóri hjá Vífilfelli, segir að
Viking-jólabjórinn sé ekki frábrugð-
inn bjór síðustu ára þótt alltaf sé
einhver munur á milli ára, enda
bjórinn lifandi drykkur. „Það er líka
smávægileg eftirgerjun í flöskunum
fyrst eftir að honum er tappað á og
þá nær hann fyrri blæbrigðum,“
segir Hreiðar, en bruggmeistarinn
er Baldur Kárason.
Hreiðar segir að Viking-bjórinn
hafi sótt í sig veðrið á undanförnum
árum og skammturinn aukist jafnt
og þétt, en það sé hörð samkeppni á
markaðnum, aðallega við Tuborg-
jólabjórinn sem hefur verið vinsæll
undanfarin ár. „Á síðasta ári fór
Viking-jólabjórinn þó fram úr Tu-
borg í heildarmagni.“
Bruggmeistari jólabjórs Ölgerð-
arinnar er Guðmundur Már Magn-
ússon. Hann segir að það sé alltaf
eitthvert smá „aukakrydd“ ef svo
megi að orði komast, „en í grunninn
er alltaf notuð sama uppskriftin, að-
eins fínpússuð og stillt milli ára“.
Góð hefð fyrir jólabjór
Halldór Gunnlaugsson, vöru-
merkjastjóri hjá Ölgerðinni, segir að
vel hafi gengið með jólabjórinn, fólk
sé alltaf forvitið að smakka Egils- og
Tuborg-jólabjórinn því það sé yf-
irleitt einhver smábreyting ár frá
ári. „Því hefur skapast góð hefð fyr-
ir þessum tegundum, en einnig er
gaman að segja frá því að Egils-
maltjólabjórinn byrjar vel í ár og
greinileg aukning milli ára, sem
kallar á aukið magn,“ segir hann og
bætir við að Tuborg hafi átt vinsæl-
asta jólabjórinn seinustu árin. „Það
hefur skapast mikil hefð fyrir Tu-
borg-jólabjórnum hér á landi, við
finnum fyrir mikilli eftirvæntingu
eftir honum og hann selst alltaf
upp.“
Jólabjórinn ávallt vinsæll
Morgunblaðið/Ómar
Þeim fjölgar stöðugt konunum sem
kjósa svonefndar ævintýraferðir í
fríum sínum, velja t.d. að ganga á
fjöll eða fara í hjólaferðir, að því að
greint var frá á vefmiðli danska
dagblaðsins Politiken.
„Áður var hinn dæmigerði ferða-
langur karlmaður,“ hefur blaðið
eftir Jens Ole Aaris frá ferðaskrif-
stofunni Ruby Rejser sem hefur
skipulagt ævintýraferðir í rúm 30
ár. Þetta voru yfirleitt leiðangrar
milli skála þar sem gengið var með
farangur og gist í skálum eða mað-
ur jafnvel gróf sig í fönn í verstu
tilfellum. Ferðirnar voru oftast
vikulangar og voru farnar um þjóð-
garða í Noregi. Fyrir 25-30 árum
voru engar konur með í þessum
ferðum.“
Í dag eru konur hins vegar um
50-80% ferðalanganna, en að sögn
Aaris eru um fimm ár frá því að
kynjahlutfallið breyttist verulega
konum í vil.
Konur velja
ævintýra-
ferðir í rík-
ari mæli
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA
OG FATLAÐRA
H R I N G U R
!
" #
$ %"
" &
'$ (
#)"
$ " " %"
" * "
"
+"
'"
"
,
! " - (
""
- %
" ./
- (
#)"
- 0 "
!" # - +"
"
$ - 1
" %
"# - "# "
&
' &( ) * +, -