Morgunblaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
237 9471 17969 25973 32895 42349 49535 57233 63868 71975
584 9530 18197 26127 33280 42749 49779 57507 64133 72034
954 9664 18316 26678 33804 42852 49785 57574 64211 72221
1056 9827 18392 26735 33876 43139 50013 57610 64663 72341
1170 10270 18481 26768 34176 43314 50041 57751 64933 72833
1178 10311 18592 26829 34626 43423 50114 58078 65196 72892
1218 10425 18792 26899 35795 43576 50140 58189 65923 73026
1763 10687 18859 27058 36046 43928 50553 58303 66578 73239
1809 11128 18878 27078 36456 43942 51017 58570 66684 73665
2198 11151 18888 27162 36616 43976 51586 58824 66939 73935
2659 11551 19155 27217 36854 43995 51680 58899 67034 74107
2665 12093 19325 27241 36994 44249 51868 58944 67605 74359
2686 12742 19362 27483 37005 44323 52081 58996 67792 74376
2780 12810 19981 27536 37198 44384 52108 59421 67955 74415
3112 12890 20031 28195 37355 44596 52124 59438 68017 74479
3164 13060 20445 28212 37440 44621 52198 59480 68126 74560
3610 13152 20567 28244 37461 45296 52628 59596 68274 74699
3767 13186 20690 28766 37674 45802 52828 59646 68463 75485
4218 13240 20739 29044 37690 46354 52835 59682 68571 75568
4738 13405 20877 29123 37758 46369 53471 59761 68745 75570
4965 13416 21709 29176 37763 46402 53625 59969 69054 75842
5288 13520 21733 29413 38159 46757 53796 60195 69055 76220
5670 13752 21909 29576 38399 46767 54062 60789 69263 76310
5857 13778 22305 29726 38512 46798 54522 60827 69360 76407
6185 13860 22345 29995 38936 46871 54589 61102 69549 77512
6275 14104 22402 30088 39287 46918 55007 61132 69695 77628
6676 14302 22604 30497 39777 47033 55069 61663 69893 77635
6906 14303 22805 30565 40169 47454 55148 61753 70566 77640
6915 14312 22840 30719 40304 47598 55201 61797 70636 78612
7076 14856 23269 30736 40414 47825 55298 62125 70822 78631
7313 15040 23500 31222 40834 47918 55457 62173 70858 78712
7338 15202 23546 31398 40926 47966 55636 62234 71033 78978
7552 15921 23947 31576 41329 47992 55640 62363 71145 78982
7872 16028 24122 31646 41457 48351 55802 62444 71358 79008
8011 16200 24243 31674 41742 48424 55822 62951 71377 79205
8081 16379 25496 31683 42027 48801 55949 63199 71382 79302
8419 16436 25857 32140 42119 48862 56107 63301 71387 79462
8440 16454 25870 32373 42160 48931 56142 63318 71482 79714
8659 17135 25919 32684 42314 48969 56588 63362 71664 79793
9440 17740 25934 32812 42336 49422 56604 63375 71810 79944
Næstu útdrættir fara fram 6.des. 13.des. 20.des. 27.des. 2007 & 3. jan. 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Það verður tómlegt í
næsta saumaklúbbi, nú
þegar hún Gillí okkar
er fallin frá. Við vinkonur hennar
minnumst hennar helst fyrir það
hversu heilbrigð manneskja hún var,
hrein og bein, með ákveðnar skoðanir
á fólki, tilverunni og hinum ýmsu
málefnum. Hún var heiðarleg og
hreinskilin fram í fingurgóma. Gillí
Gíslína Erlendsdóttir
✝ Gíslína Erlends-dóttir fæddist í
Norðurfirði í Árnes-
hreppi 12. janúar
1961. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 8. nóv-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Hallgríms-
kirkju 14. nóv-
ember.
var einstaklega vel
máli farin og oft bein-
skeytt. Það var því allt-
af gaman að lesa
bloggin hennar. Hún
sagði svo skemmtilega
frá. Hún var með góð-
an og stundum beittan
húmor, pínulítið ör og
stressuð á köflum.
Hún hafði stundum
áhyggjur af öllu og öll-
um í kringum sig en
gleymdi yfirleitt sjálfri
sér.
Ef halda átti sauma-
klúbb var vandlega séð til þess að
hann væri á þeim tíma sem Gillí
kæmist. Hún var ómissandi í okkar
hópi en hún vildi samt ekki láta hafa
fyrir sér né að hluturnir snerust í
kringum hana. En Gillí var með slíka
útgeislun að það var óhugsandi að
hún væri ekki með, hvort sem það var
í saumaklúbbnum, GGT-mótum, jóla-
brunchi eða á öðrum samkomum þar
sem vinahópurinn okkar kom saman.
Gillí var ein af upphafsmanneskjum
að þremur félögum innan vinahóps-
ins; Veiðifélaginu Friðuðum fuglum,
Golfklúbbnum Guttormi tudda og svo
saumaklúbbnum Móðum og masandi.
Í saumaklúbbnum var Gillí aðalskv-
ísan í hópnum, veraldarvanur ferða-
langur, eiginkona, móðir, amma,
systir og dóttir. Yndisleg manneskja
sem gott var að leita til ef maður vildi
fá góð ráð eða hreinskilnislegt álit á
hlutunum. Hún hafði alltaf svör við
öllu og var endalaus uppspretta af
góðum ráðum, hugmyndum og lausn-
um. Gillí var stolt af sínu fólki og sinni
sveit. Það var aðdáunarvert hversu
dugleg Gillí var að rækta vina- og fjöl-
skylduböndin. Skemmtilegt var að
heyra Gillí segja sögur af sínu fólki,
drengjunum og barnabörnunum sín-
um, sem og skemmtilegar ferðasög-
ur. Það var skemmtiatriði út af fyrir
sig að fylgjast með henni taka í nefið,
helgiathöfn með servíettur og allt eft-
ir kúnstarinnar reglum.
Gillí hafði þetta töfrandi bros, var
alltaf svo glaðvær, dugleg í öllu sem
hún tók sér fyrir hendur og kom hlut-
unum í verk. Hún var mikill kven-
skörungur og þótti aldrei mikið mál
að redda hlutunum. Oftast var það
hún sem sá um skipulagningu ef eitt-
hvað stóð til hjá hópnum. Hún sá
meðal annars um að rukka inn fé-
lagsgjöld, pening fyrir ýmsum gjöf-
um eins og afmælis-, innflutnings- og
brúðargjöfum. Það var auðvelt að
smitast af þeirri orku og þeim mikla
krafti sem í Gillí bjó. Þrátt fyrir veik-
indin sá hún áfram um að skipuleggja
gjafakaup fyrir hópinn, nú síðast
tveimur mánuðum fyrir andlát sitt.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Það eru forréttindi að hafa fengið
að kynnast Gillí. Blessuð sé minning
hennar.
Elsku Palli, Kári, Ásgeir og fjöl-
skylda. Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð gefi ykkur styrk á þess-
um erfiðu tímum.
Saumaklúbburinn; Addý,
Dagný, Guðrún, Guðlaug, Lára,
Lilja, Lísa, Emilía, Ragna og Sif.
Elsku Gillí, hetjan mín, örlagadísin
okkar.
Þegar ég lít aftur í tímann og minn-
ist þess dags sem við settumst saman
á skólabekk hvarflaði ekki að mér
hversu stóran sess þú áttir eftir að
skipa í lífi mínu. Við urðum ekki að-
eins góðar vinkonur, heldur varðstu
með tímanum „tengdamamma“ mín
og amma barnanna minna.
Með hlýju, hreinskilni og ákveðni
varstu til staðar í gegnum bestu og
verstu stundir lífs míns, fæðingar
Heru Sifjar og Freyju Ránar, sam-
bandsslit okkar Kára og jafnvel í
veikindum þínum varst þú hetjan
með óbilandi bjartsýni og orku sem
kenndi mér að endurmeta lífið og
hamingjuna.
En hlutverki þínu hérna niðri er
víst lokið og ekki var það lítið hlut-
verk. Þú snertir líf svo margra, þú
varst drifkrafturinn í öllu sem þú
tókst þér fyrir hendur, hafðir sterkar
skoðanir á flestum málefnum og lést
þær óspart í ljós, hvort sem maður
vildi heyra þær eða ekki. Þú afrekaðir
meira á þínum fáu árum en flestum
tekst að gera á langri ævileið.
Ég er stolt af þeirri arfleifð sem þú
skilur eftir handa barnabörnunum
þínum sem sterk, sjálfstæð, gáfuð,
falleg og virkilega góð kona. Sann-
kölluð hvunndagshetja.
Ég er þér þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þinni yndislegu og
samrýndu fjölskyldu úr Dal – hlýj-
unni, væntumþykjunni og gleðinni
sem umlykur allt þegar þið komið
saman verður aldrei hægt að lýsa
með orðum.
Hera Sif sagði við mig um daginn:
„Veistu mamma, ég sé ömmu Gillí
þegar ég loka augunum og hún er fal-
legasti engillinn á himninum. Hún er í
hvítum kjól og með hvíta stóra vængi
uppi hjá Guði.“
Svona sé ég þig líka, engillinn okk-
ar, og ég veit að þú átt eftir að fylgj-
ast með barnabörnunum þínum og
leiðbeina þeim þegar lífið blasir við
þeim í öllum sínum styrkleika.
Elsku Gillí, það var mér heiður og
forréttindi að fá að kynnast þér og ég
hlakka virkilega til að geta sagt dætr-
um mínum sögur af þér án þess að
tárast í tregablandinni gleði. Þín er
og verður sárt saknað.
Elsku Kári minn, Palli afi, Ásgeir
frændi, langamma Gerða og langafi
Elli, Halldór, Rósa, Egill og fjöl-
skyldur, Guð hefur gefið ykkur þann
styrk að geta sameinast í sorg ykkar,
minning Gillíar á alltaf eftir að skína
skært í hjörtum þeirra sem hana hafa
þekkt og elskað.
Hvíldu í friði, fallegi ömmuengill.
Þóra Gunnur og Hera Sif
og Freyja Rán.
Síðsumars 2006 hóf Gíslína Er-
lendsdóttir störf hjá Actavis. Örlögin
höguðu því á þann veg að einungis
nokkrum mánuðum síðar þurfti hún
að hverfa frá vinnu vegna veikinda. Á
þessum fáu mánuðum náði Gíslína að
marka spor í sálu okkar allra sem
hana umgengumst.
Hún hafði til að bera einstakan
persónuleika sem lýsti af glaðlyndi og
jákvæðni. Auk þess að vera skarpgáf-
uð og með öflugt skopskyn sem ein-
kenndist oftar en ekki af hnyttnum
tilsvörum, varð hún strax hnitmiðja
daglegs amsturs þróunareiningar
Actavis. Inn á borð hennar dreif fyrr
en varði verkefni, flestum öðrum of-
vaxin, sem hún leysti þannig af hendi
að hún varð okkur ómissandi.
Það er sjaldgæft að svo stutt kynni
hafi jafn djúp áhrif á samferðafólk og
skilji eftir sig gímald tómarúms sem
minningar einar fá fyllt. Starfsfólk
Actavis vottar aðstandendum Gíslínu
sína dýpstu samúð.
Við þökkum samfylgdina.
Starfsfólk Actavis.
Gleðji þig guðsstjörnur,
sem gladdi bezt mig,
og mörgu sinni,
vegstjarnan fagra
vizku þinnar,
ástjarðar ljúfasta ljós!
(Jónas Hallgrímsson)
Gillí mín er farin. Mér finnst það
svo óraunverulegt og óskiljanlegt!
Hún var mér ómetanlega góð vinkona
í 18 ár. Þegar ég kom til starfa hjá Ís-
lensku auglýsingastofunni hafði Gillí
nýlega hafið störf þar og urðum við
strax nánar og góðar vinkonur.
Upp í hugann koma ótal minning-
ar; Við Gillí á ferðalagi í Þórsmörk, á
Snæfellsnesi, á Akureyri, á Mallorca
með Kára og Tinnu, í Amsterdam, í
Barcelona í spænskunámi, í Dan-
mörku og víðar. Síðasta ferðin okkar
saman var til Lanzarote í fyrrasum-
ar.
Þar áttum við saman ógleyman-
lega viku á glæsilegu hóteli í dásam-
legu veðri og nutum lífsins í botn.
Aldrei varð okkur sundurorða þó svo
að báðar séum við skapheitar og
ákveðnar höfðum mjög svipaða lífs-
sýn.
Tinna mín var 8 ára þegar við Gillí
kynntumst og varð Kára og Tinnu
nokkuð vel til vina. Þau eru jafnaldr-
ar. Ásgeir var þá aðeins 2ja ára og
tóku Tinna og hann miklu ástfóstri
hvort við annað og sótti hún fast að fá
að passa hann við hvert tækifæri.
Gillí hafði mjög mikinn áhuga á ferða-
lögum og framandi slóðum og nýtti
hvert tækifæri til að ferðast og fræð-
ast. Hún hafði áhuga á ótalmörgu og
aldrei kom maður að tómum kofanum
þegar málin voru rædd, hún hafði
skoðanir á öllu og ekki feimin við að
tjá þær.
Hún var ákaflega trygglynd og
góður vinur, hún var blátt áfram,
jarðbundin og víðsýn. Hún var ein-
staklega skapgóð og ljúf í umgengni,
mikill húmoristi og manna hressust
fram á síðasta dag! Hún átti við
heilsuleysi að stríða í mörg ár en ekki
lét hún það stoppa sig í því sem hún
ætlaði sér og sjaldan heyrði maður
hana kvarta. Hún elskaði strákana
sína mikið og gladdist ákaflega þegar
barnabörnin komu og nutu þau elsku
hennar ekki síður! Hún var frábær
mamma og amma.
Hún var óspör á hrós og hól og á ég
mörg falleg afmælis- og jólakort þar
sem hún skrifar fallegar kveðjur til
mín sem vott um vináttu okkar.
Hún kynntist Palla sínum fyrir 13
árum og hefur hann staðið sem klett-
ur við hlið hennar í gegnum þessi erf-
iðu veikindi.
Mikill er missir ástvina hennar og
bið ég þess að við fáum styrk til að
takast á við sorgina og söknuðinn.
Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin.
Hann er brauð þitt og arineldur.
Þú kemur til hans svangur og í leit að friði.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú skilur við
vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst
um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjar-
veru hans, eins og fjallgöngumaður sér
fjallið bezt af sléttunni.
(Kahlil Gibran.)
Við vottum ástvinum hennar okkar
dýpstu samúð! Minningin um yndis-
lega konu lifir í hjörtum okkar allra
sem elskum hana, því hún á ást okkar
enn þó hún sé horfin úr þessu jarðlífi.
Hún gaf okkur svo margt sem enginn
getur tekið frá okkur og við munum
varðveita og njóta lífið á enda.
Far þú í friði, elsku vinkona, og
takk fyrir allt og allt!
Geirlaug og Tinna María.
MINNINGAR
Okkur langar með
nokkrum orðum að
kveðja ástkæran föðurbróður okkar
hann Sigga. Við minnumst heimsókn-
anna í Hafnarfjörðinn, þar sem alltaf
var tekið vel á móti okkur og alltaf
voru góðar veitingar á borðum. Mjög
gaman var að vera líka úti og leika sér
í hrauninu sem var víst nóg af í kring-
um húsið. Það sem er efst í minning-
unni er hversu einstakt ljúfmenni
Siggi var og munum við ekki til þess
að hafa nokkurn tímann heyrt hann
hækka róminn, ofsalega ljúfur maður
þar á ferð. Við systkinin viljum þakka
innilega fyrir allar samverustundirn-
Sigurður Kristján
Alexandersson
✝ Sigurður Krist-ján Alexand-
ersson fæddist 25.
nóvember 1920 á
Suðureyri við Súg-
andafjörð og lést 23.
október 2007 á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Útför Sigurðar
fór fram frá Víði-
staðakirkju 2. nóv-
ember sl.
ar í gegnum tíðina.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm
stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta
blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Pabbi, Jói, Jóhannes, Eyjólf-
ur og Hilmar, Guð veri með ykkur og
styrki í sorg ykkar.
Sandra, Jóhann og Anna
Rós Björgvinsbörn.
V i n n i n g a s k r á
31. útdráttur 29. nóvember 2007
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
3 0 2 5 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
9 2 8 1 1 3 6 8 1 3 3 6 4 5 3 5 4 3 5
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2319 21068 27082 51382 62796 78568
2733 22735 36939 52067 62833 79092
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 1 7 1 0 8 6 9 2 0 7 3 4 3 0 9 0 4 4 1 7 5 2 5 0 8 8 3 6 0 3 5 5 7 1 5 5 4
5 1 5 1 3 3 7 2 2 1 6 5 7 3 1 8 1 4 4 2 0 2 3 5 1 7 0 5 6 2 3 4 0 7 1 7 2 6
5 5 7 1 4 0 8 2 2 2 3 7 0 3 2 4 8 7 4 2 7 4 0 5 3 8 1 6 6 3 2 4 0 7 2 3 5 9
1 7 3 2 1 5 0 9 1 2 2 6 6 0 3 2 7 8 7 4 3 3 9 9 5 4 7 6 4 6 3 5 6 2 7 2 7 3 8
1 9 9 3 1 5 4 3 6 2 5 3 8 3 3 5 1 3 4 4 3 5 5 7 5 7 0 1 7 6 4 3 2 0 7 3 6 7 2
2 6 4 3 1 7 6 3 2 2 7 8 0 6 3 5 2 0 2 4 3 8 0 1 5 7 3 4 0 6 4 3 9 7 7 3 9 6 8
4 1 7 7 1 8 5 7 9 2 7 8 5 2 3 5 4 0 4 4 4 8 1 3 5 7 6 2 3 6 5 7 5 2 7 5 5 4 9
6 2 6 0 1 8 5 9 4 2 8 4 8 1 3 6 0 6 3 4 5 1 3 8 5 7 7 6 7 6 6 6 8 0 7 9 0 6 9
8 1 7 6 1 9 0 9 8 2 8 6 0 3 3 6 2 5 3 4 5 3 3 3 5 8 0 2 1 6 7 1 3 2 7 9 6 5 1
8 3 9 4 1 9 1 5 2 2 9 1 4 6 3 6 7 3 9 4 5 7 7 7 5 9 4 4 7 6 7 5 8 7
9 0 5 9 2 0 2 2 1 2 9 8 7 4 3 6 8 1 1 4 6 4 8 3 5 9 6 3 5 6 7 6 5 9
9 5 7 2 2 0 3 0 5 3 0 1 1 5 3 7 0 4 2 4 7 3 7 4 5 9 8 7 4 7 0 2 8 7
1 0 6 7 7 2 0 5 3 2 3 0 5 6 7 3 8 6 5 1 4 7 3 7 7 6 0 2 0 7 7 0 3 4 2