Morgunblaðið - 30.11.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2007 37
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Faxabraut 30, fnr. 208-7443, Keflavík, þingl. eig. Viktor Agnar
Guðmundsson, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf og
Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 5. desember 2007 kl.
10:00.
Hafnargata 6, fnr. 227-5937, Vogum, þingl. eig. Ólafur Ragnar
Guðbjörnsson, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Vogar, miðvikudaginn
5. desember 2007 kl. 11:50.
Hellubraut 4, fnr. 209-1922, Grindavík, þingl. eig. Katrín G. Kristbjörns-
dóttir, gerðarbeiðendur Avant hf, Grindavíkurkaupstaður, Íbúðalána-
sjóður, Tryggingamiðstöðin hf og Valitor hf, miðvikudaginn 5. desem-
ber 2007 kl. 11:05.
Hólagata 35, fnr. 209-3590, Njarðvík, þingl. eig. Auður Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv.,
og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 5. desember 2007 kl. 10:15.
Kirkjubraut 7, fnr. 209-3774, Njarðvík, þingl. eig. Þórlína Jóna Ólafs-
dóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 5. desember
2007 kl. 10:35.
Silfurtún 20, fnr. 209-5691, Garði, þingl. eig. Hulda Björk Pálsdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóðurinn í Keflavík,
miðvikudaginn 5. desember 2007 kl. 09:30.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
29. nóvember 2007.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Bjarkarbraut 3, 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-4688), þingl. eig. Dóra
Rut Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
5. desember 2007 kl. 13:30.
Bjarkarbraut 5, íb. 01-0301, Dalvíkurbyggð (215-4691), þingl. eig. LMS
ehf, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 5. desember
2007 kl. 14:00.
Hríseyjargata 5, 01-0101, Akureyri (214-7894), þingl. eig. Hafdís
Sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, miðvikudaginn
5. desember 2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
29. nóvember 2007.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri þriðjudaginn 4. desember 2007 kl. 11:00.
Kirkjuvegur 14, Ólafsfirði, fn. 215-4181, þingl. eig. Böðvarr ehf.,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Íbúðalánasjóður
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
27. nóvember 2007,
Ásdís Ármannsdóttir.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hraunbær 158, 204-5205, Reykjavík, þingl. eig. Sigrún Jónsdóttir,
gerðarbeiðendur Háskóli Íslands og Landsbanki Íslands hf, aðal-
stöðv., þriðjudaginn 4. desember 2007 kl. 11:30.
Reyrengi 4, 221-3740, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Hafdís Benedikts-
dóttir og Halldór Jónsson, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf, Íbúða-
lánasjóður, Tryggingamiðstöðin hf og Vátryggingafélag Íslands hf,
þriðjudaginn 4. desember 2007 kl. 10:00.
Seljavegur 7, 200-0690, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Steinunn Guð-
mundsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 4. des-
ember 2007 kl. 15:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
29. nóvember 2007.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur Bjarni
Sveinbjörnsson erindi sem hann
nefnir “Upphafsár Paramahansa
Yogananda í Bandaríkjunum” í
húsi félagsins Ingólfsstræti
22. Einnig sýnt stutt myndband.
Á laugardag 1. desember kl.
15-17 er opið hús. Kl. 15.30
verður sýnd rússnesk kvikmynd:
“Hver ert þú, Madame Blavat-
sky?” eftir Karine Dilanyan.
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin svo
og bókasafn félagsins m. miklu
úrvali andlegra bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 188113081/2 E. T.
2.
I.O.O.F. 1 18811308 M.A.*
Guðspekifélagið
Í kvöld föstudaginn
30. nóvember kl.
20.30 í húsi félagsins
Ingólfsstræti 22.
Bjarni Sveinbjörnsson
flytur erindi og sýnir
stutt myndband um
upphafsár Parama-
hansa Yogananda í
Bandaríkjunum.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
Á ÞESSU ári eru 75 ár liðin frá gild-
istöku fyrstu barnaverndarlaganna
á Íslandi. Af því tilefni efnir Barna-
verndarstofa til afmælishátíðar í
samstarfi við Barnavernd Reykja-
víkur. Verður afmælishátíð fyrir
boðsgesti í dag, föstudaginn 30.
nóvember, kl. 14–18 í hátíðarsal Há-
skóla Íslands.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra flytur ávarp og síðan
flytur Bragi Guðbrandsson, for-
stjóri Barnaverndarstofu, erindi um
þætti úr sögu barnaverndar á Ís-
landi. Þá verður þessara tímamóta
minnst með því að heiðra nokkra
einstaklinga sem hafa markað djúp
spor í þróun barnaverndar á Ís-
landi. Að lokum verður sýnd mynd-
in „Úr dagbók lífsins“ sem er leikin
heimildarmynd um barnavernd frá
árinu 1963.
Á morgun, laugardaginn 1. des-
ember, verður opin dagskrá í Há-
skólabíói kl. 14–17 þar sem kvik-
myndin „Syndir feðranna“ verður
sýnd og umræður í lok mynd-
arinnar.
Þátttakendur verða fulltrúar
Breiðavíkursamtakanna, aðstand-
enda myndarinnar, Barnavernd-
arstofu og fyrrverandi starfsmenn
Breiðavíkurheimilisins auk þess
sem áhorfendum mun gefast kostur
á að beina fyrirspurnum til þeirra.
Á laugardag er öllum frjáls aðgang-
ur á meðan húsrúm leyfir.
75 ár frá setn-
ingu barna-
verndarlaga
EFNT verður til hátíðarsamkomu
undir yfirskriftinni „Bessastaða-
skóli – vagga íslenskrar menning-
ar“ í íþróttahúsi Álftaness laug-
ardaginn 1. desember næstkom-
andi og stendur hún frá kl. 14 til
16. Skipuleggjendur samkom-
unnar eru SÁUM, Samtök áhuga-
fólks um menningarhús á Álfta-
nesi, sem vilja með þessum hætti
minna á Bessastaðaskóla og vekja
athygli á hve stóran þátt skólinn
átti í þróun og eflingu íslenskrar
menningar.
Á samkomunni verður blandað
saman fræðum og listflutningi
sem tengist umfjöllunarefninu.
Anna Ólafsdóttir Björnsson fjallar
um áhrif skólans á mannlíf á
Álftanesi, Hjalti Hugason um
prestsmenntunina sem þar fór
fram og Sveinn Yngvi Egilsson
um skólaár Jónasar Hallgríms-
sonar og Fjölnismanna. Enn frem-
ur flytja þau Bára Grímsdóttir og
Chris Forster tvísöngsstemmu og
kynna leik skólapilta. Þá syngur
Skólakór Álftaness, nemendur úr
Álftanesskóla flytja ljóð og Ingi-
björg Guðjónsdóttir og Tinna Þor-
steinsdóttir frumflytja lag eftir
Karólínu Eiríksdóttur við ljóð
Björns Gunnlaugssonar.
Boðið verður upp á kaffiveit-
ingar og safnað skráningum í
áhugahóp um Bessastaðaskóla, en
í framtíðinni er ætlunin að minn-
ast skólahaldsins ár hvert á hefð-
bundnum skólasetningardegi
hans, 1. október og safna saman
til útgáfu efni sem tengist honum,
segir í fréttatilkynningu.
Hátíðardagskrá um Bessastaðaskóla VínsmökkunÍ frétt Morgunblaðsins í gær um vín-
smökkun og tónleika í Neskirkju var
ranglega sagt að tónleikarnir hefðu
verið sl. miðvikudagskvöld. Hið
rétta er að þeir verða haldnir í kvöld,
föstudaginn 30. nóvember, kl. 20.
Beðist er velvirðingar á misherminu.
Rangt nafn
Í frétt um nýjan formann Golfklúbbs
Reykjavíkur á íþróttasíðum Morg-
unblaðsins í gær var rangt farið með
föðurnafn Gests Jónssonar, fyrrver-
andi formanns klúbbsins. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
HIN árlega jólatrjáasala Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar hefst
sunnudaginn 2. desember. Salan fer
fram í höfuðstöðvum félagsins,
Þöll, við Kaldárselsveginn skammt
frá Íshestum. Á boðstólum er barr-
heldin, nýhöggvin stafafura, furu-
greinar og íslenskir könglar af
ýmsum tegundum. Viðskiptavinum
er boðið upp á heitt súkkulaði og
kökur á staðnum.
Opið sunnudaginn 2. desember
kl. 10–16, laugardagana 8. og 15.
desember og sunnudagana 9. og 16.
desember kl. 10–18.
Jólatrjáasala
Skógræktar-
félags Hafn-
arfjarðar
STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands
heldur að venju upp á 1. desember,
hátíðisdag stúdenta. Þetta árið er
dagurinn sérstaklega merkilegur
þar sem tvær nýjar háskólabygg-
ingar verða vígðar.
Dagskráin hefst með messu guð-
fræðinema í kapellunni í aðalbygg-
ingu. Klukkan 13:00-14:00 fer fram
málþingið „Háskólatorg – skiptir
bætt aðstaða máli?“ í hátíðarsal.
Framsögumenn verða Ingjaldur
Hannibalsson, formaður bygging-
arnefndar Háskólatorgs, Ragnar
Ingimarsson, prófessor emeritus,
Rannveig Traustadóttir, prófessor í
félagsvísindadeild, og Dagný Ósk
Aradóttir, formaður stúdentaráðs.
Fundarstjóri er Arnaldur Sölvi
Kristjánsson.
Eftir fundinn ganga stúdentar
saman að leiði Jóns Sigurðssonar
og leggja blómsveig við það.
Stúdentar
halda upp á full-
veldisdaginn
SÍÐASTI opni hláturjógatíminn fyr-
ir jól verður í Maður lifandi laug-
ardaginn 1. desember klukkan 10.30
til 11.30. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Hláturleiðbeinendurnir Ásta Valdi-
marsdóttir og Kristján Helgason
stjórna tímanum. Hláturjógatímar
eru fyrsta laugardag hvers mánaðar
í vetur í Maður lifandi, Borgartúni
24. Nánar tiltekið eru þetta laug-
ardagarnir 5. janúar, 2. febrúar, 1.
mars, 5. apríl og 3. maí.
Hlegið
í Maður lifandi
LJÓSIN á jólatrénu á Garðatorgi
verða tendruð laugardaginn 1.
desember. Jólatréð er gjöf frá
Asker, vinabæ Garðabæjar í Nor-
egi, og er þetta í 38. sinn sem
Garðbæingar fá þessa vinasend-
ingu þaðan.
Athöfnin hefst rétt fyrir kl. 16
fyrir framan turninn á torginu og
stendur í u.þ.b. klukkustund.
Blásarasveit Tónlistarskóla
Garðabæjar leikur og Gunnar
Pálmason, formaður Norræna fé-
lagsins í Garðabæ, býður gesti
velkomna. Ole Jacob Johansen,
varabæjarstjóri Asker, afhendir
tréð fyrir hönd Asker og Páll
Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar
Garðabæjar, veitir trénu viðtöku.
Kórskóli Flataskóla syngur og að
lokum má gera ráð fyrir því að
jólasveinarnir komi.
Stoppleikhúsið sýnir leikritið
„Jólin hennar Jóru“ í bókasafni
Garðabæjar kl. 13.30.
Ljósin tendruð
á jólatrénu á
Garðatorgi
LANDSBÓKASAFN Íslands –
Háskólabókasafn annars vegar og
Reykjavíkurakademían hins vegar
gerðu nýlega samninga við ORG
Ættfræðiþjónustuna.
Í ORG Ættfræðiþjónustunni er
að finna í ættfræðigrunninum Unni
upplýsingar um 660 þúsund
manns, núlifandi, forfeður og af-
komendur hérlendis og erlendis.
Þar er jafnframt mikið af ætt-
fræðibókum og ættartölum Íslend-
inga.
Samningurinn við Landsbóka-
safn kveður á um aðgang starfs-
manna safnsins að grunninum til
að bæta skráningu á íslensku efni
og björgun heimilda sem tengjast
ættfræðirannsóknum og íslenskri
sögu.
„Með samningnum við Reykja-
víkurakademíuna vonast báðir að-
ilar eftir að hin svokölluðu neftób-
aksfræði, þ.e. ættfræði, þjóðfræði
og sagnaritun, öðlist sess í þekk-
ingarsamfélagi nútímans og að um
þau verði fjallað á vettvangi menn-
ingarfræða,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Saman áforma þessir aðilar að
standa fyrir málþingi og sýningu á
vordögum 2008.
Samstarfssamningar undirritaðir Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri
Reykjavíkurakademíunnar, Oddur Helgason ættfræðingur og Ingibjörg
Sverrisdóttir landsbókavörður.
Samstarfssamningar
um ættfræðigrunn