Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 14

Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa nam 62,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 samanbor- ið við 58,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 4 milljörðum króna eða 6,9% milli ára. Aflaverð- mæti septembermánaðar var 4,3 milljarðar og lækkar um 1,6 millj- arða frá september í fyrra, sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 46,7 milljarðar mið- að við 43,6 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 7,1% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 23 milljarðar og jókst um 14%. Afla- verðmæti ýsu nam 10,4 milljörðum, sem er 21,1% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 12,1%, var 3,1 milljarður króna. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17,1%, nam 3,5 milljörðum króna. Aukin verðmæti í loðnu Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 16,8% og nam 11,2 milljörðum. Munar þar mest um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra, kolmunna að verðmæti 3 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006 og síld að verð- mæti 2,4 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innan- lands var 26,5 milljarðar króna, sem er auking um 4,4 milljarða eða 19,9%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 12,9%, var 10,2 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 17,7 milljarðar og dróst saman um 8,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,4 millj- örðum sem er 4,3% aukning. Hærra fiskverð Aukningu aflaverðmæta má fyrst og fremst skýra með hækkandi fisk- verði, því í mörgum tilfellum er um aflasamdrátt að ræða, til dæmis í þorski. Ljóst er að aukningin á seinnihluta ársins mun verða minni en á þeim fyrri. Afli hefur verið mun minni en á sama tíma í fyrra, bæði vegna mjög slæmra gæfta og hins mikla niðurskurðar á þorskkvótan- um. Þannig er kominn samdráttur í aflaverðmætum í september. Mest verðmæti á Suðurnesjum Þegar litið er á fyrstu níu mánuði ársins kemur í ljós að mest verðmæti skila sér á land á Suðurnesjum, ríf- lega 12,2 milljarðar króna. Höfuð- uborgarsvæðið kemur næst með 11,2 milljarða og Norðurland eystra er í þriðja sætinu með 8,4 milljarð króna. Aflaverðmæti á Austurlandi var 8,1 milljarður, 5,8 á Suðurlandi 3,8 á Norðurlandi vestra og 3 milljarðar á Vestfjörðum. Langmest aukning á tímabilinu varð á Vesturlandi, 50% og næstmest á Suðurnesjum, 25%. Á Norðurlandi vestra varð hins vegar mestur samdráttur eða 11,5%. Sé aðeins litið á septembermánuð voru mestu aflaverðmætin á höfuð- borgarsvæðinu, um 877 milljónir króna. Um verulegan samdrátt eru að ræða því í september í fyrra var aflaverðmætið 1,2 milljarðar króna. Suðurnesin koma næst með 871 milljón og þar er einnig um nokkurn samdrátt að ræða. Þá kemur Norð- urland eystra með 510milljónir króna, sem er mikill samdráttur frá árinu áður. Minnst verðmæti bárust á land á Vesturlandi í september, 200 milljónir króna, en þar er samdrátt- urinn jafnframt minnstur, aðeins 4 milljónir króna. Samdráttinn má eins og áður skýra að miklu leyti með kvótanið- urskurði og slæmum gæftum. Aflaverðmæti eykst um 7% Töluverður samdráttur varð þó í sept- ember vegna kvótaniðurskurðar og slæmra gæfta nær allan mánuðinn Í HNOTSKURN »Aflaverðmæti botnfisks var ílok september orðið 46,7 milljarðar miðað við 43,6 millj- arða á sama tíma árið 2006 og er um 7,1% aukningu að ræða. »Aukningu aflaverðmæta máfyrst og fremst skýra með hækkandi fiskverði því í mörgum tilfellum er um aflasamdrátt að ræða, til dæmis í þorski. »Langmest aukning á tíma-bilinu varð á Vesturlandi, 50% og næstmest á Suðurnesjum, 25% en 11,5% samdráttur á Norðurlandi vestra.                   !  " #  " $    %  &&'( )   * + ,,-+, . *,+/ -+. +                   01    * /,+/ , 2.+ .. -+ /-+* .+2     , + -+* *2+, 2*+/ +   *, 2+ * *+/ - 2-,+ /**+, +-          AFLI erlendra ríkja við Ísland minnkaði úr 114 þúsund tonnum ár- ið 2005 í rúmlega 54 þúsund tonn 2006. Uppistaða aflans var sem fyrr loðna. Færeyingar veiddu mest er- lendra þjóða hér við land 2006 en Norðmenn árið 2005. Þetta kemur fram hjá Hagstofu Íslands. Afli skipa erlendra ríkja sem veitt hafa við Ísland hefur sveiflast tals- vert á undanförnum árum. Minnstur var hann árið 1993, um 9 þúsund tonn, og mestur árið 2002, ríflega 148 þúsund tonn. Aflinn dróst veru- lega saman árið 2006 og nam rúm- um 54 þúsund tonnum á móti 114 þúsund tonnum árið 2005. Á veiðisvæði Va, sem nær yfir megnið af íslensku landhelginni, veiddu erlend skip um 5,4% heildar- aflans 2006, samanborið við 7,8% ár- ið 2005 og 4,7% árið 2004. Íslend- ingar veiddu því á þessum árum á bilinu 92-95% af þeim afla sem dreg- inn var úr sjó við Ísland. Frá árinu 1998 hafa færeysk skip aflað mest erlendra skipa á svæðinu, ef undan eru skilin árin 2001 og 2005 er Norðmenn veiddu mest erlendra ríkja. Uppistaðan í afla erlendra skipa í gegnum árin hefur verið loðna en árið 1998 fór talsvert að bera á kol- munnaveiði. Kolmunnaaflinn hefur þó sveiflast töluvert og fór hæst í rúm 43 þúsund tonn árið 2002. Árið 2001 var metár í loðnuveiðum er er- lendu skipin öfluðu 123 þúsund tonna af loðnu. Frá árinu 1998 hefur hlutfall loðnuaflans af heildarafl- anum dregist saman en á móti hafa kolmunnaveiðar aukist. Lægst var hlutfallið árið 1998 eða 50% en hæst árið 2000 eða 92%. Að sama skapi hefur hlutfall kolmunna af heildar- afla verið á bilinu 3-42% á árunum 1998 til 2005. Þetta er breyting frá fyrri árum þegar loðna var allt upp í 97% af heildarafla erlendra skipa við Ísland. Á árinu 2006 var hlutfall loðnuaflans 62%. Á síðustu tveimur árum hafa erlend skip stundað síld- veiðar á ný og nam síldaraflinn 11% á árinu 2006 á móti 1% 2005. Mun minni fiskafli útlendinga við landið                               !! !! !! !! !!     Uppistaðan loðna og Færeyjar og Noregur veiða langmest Við erum leiðandi í framleiðslu stjórn- og gæslubúnaðar fyrir kæli- og frystikerfi Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Háskólatorgi Sæmundargötu 4 101 Reykjavík Sími 570 0777 boksala@boksala.is www.boksala.is - Ný og glæsileg bókaverslun á nýju Háskólatorgi - Óvænt tilboð á hverjum degi til jóla - Upplestur úr nýjum bókum - , nýr veitingastaður á næstu grösum, með kaffi og meðlæti P L Á N E T A N 2 0 0 7 „Að skrifa um virðingu og umburðarlyndi á okkar dögum er jafn nauðsynlegt og vatn er þyrstum manni.” Eva María Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður. „Margslungið rit.” Leifur Hauksson/Samfélagið í nærmynd. „Bók sem er mikilvæg við stefnumótun í menntamálum,” Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. „…[Á]skorun á samtíð og framtíð sem er hafin yfir karp um kaup og kjör eða framleiðslu og gæðamat einkunna.” Þóroddur Bjarnason á stjornmalogstjornsysla.is 35% afsláttur Söluhæsta bókin hjá Bóksölu stúdenta Virðing og umhyggja - Ákall 21. aldar eftir Dr. Sigrúnu Aðalbjarnardóttur, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Tilboð: 3.244 kr. Alm. verð: 4.990 kr. Afgreiðslutími til jóla: Virkir dagar 9–18 Laugardagur 22. des. 11–18 Þorláksmessa 11–18 Vefverslun opin allan sólarhringinn www.boksala.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.