Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Brussel. AFP. | Dómstóll Evrópusam-
bandsins úrskurðaði í gær að sænskt
stéttarfélag hefði ekki haft heimild
til að stöðva starfsemi lettnesks fyr-
irtækis er útvegaði verkamenn til
byggingarstarfa. Markmið stéttar-
félagsins var að þvinga fyrirtækið,
Laval un Partneri, til að greiða
verkamönnunum hærri laun og svo
fór að það varð gjaldþrota.
Dómstóllinn sagði að stundum
gæti verið brýnt að grípa til aðgerða
til að koma í veg fyrir undirboð á at-
vinnumarkaði en ekki í þessu tilfelli.
„Aðgerðir eins og þær að meina að-
gang að vinnustað fela í sér skerð-
ingu á frelsi til að veita þjónustu,
skerðingu sem í þessu tilfelli er ekki
hægt að réttlæta með því að það
varði almannaheill að vernda rétt-
indi verkamanna,“ segir í úrskurð-
inum.
Dótturfélag Laval, Log P Baltic
Bygg, sá um sjálfar framkvæmdirn-
ar sem einkum voru stækkun skóla í
borginni Vaxholm árið 2004. Málið
vakti mikla athygli í Svíþjóð enda
var litið á það sem beina afleiðingu af
stækkun ESB til austurs þar sem
vinnuafl er mun ódýrara en gerist í
Svíþjóð.
Aðgerð
dæmd
ólögleg
Sænskt stéttarfélag
mátti ekki stöðva
starfsemi lettnesks
fyrirtækis
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
THABO Mbeki, forseti Suður-Afr-
íku, beið niðurlægjandi ósigur í leið-
togakjöri Afríska þjóðarráðsins
(ANC) fyrir erkifjanda sínum, Jacob
Zuma, sem hann vék úr embætti
varaforseta fyrir tveimur árum
vegna ásakana um spillingu.
Zuma á ákæru yfir höfði sér og
segist ætla að víkja, verði hann
dæmdur sekur um spillingu. Verði
hann ekki sakfelldur er líklegt að
hann verði næsti forseti S-Afríku.
Zuma fékk 2.329 atkvæði í leið-
togakjörinu og Mbeki aðeins 1.505.
Munurinn er svo mikill að vafi leikur
á því hvort Mbeki geti gegnt forseta-
embættinu út kjörtímabilið. Niður-
læging hans á flokksþingi ANC er
svo mikil að hún hlýtur að grafa und-
an völdum forsetans. Segi Mbeki
ekki af sér er viðbúið að næstu tvö
árin einkennist af mikilli valdabar-
áttu milli hans og Zuma sem leiðtoga
langöflugasta stjórnmálaflokks
landsins.
Getur sjálfum sér um kennt
Næstu forsetakosningar eiga að
fara fram árið 2009 og samkvæmt
stjórnarskránni má Mbeki ekki gefa
kost á sér aftur þar sem enginn má
gegna forsetaembættinu lengur en í
tvö kjörtímabil.
Stjórnmálaskýrendur segja að
Mbeki hafi orðið sjálfum sér að falli
með því að fá öfluga menn á móti sér
og láta hjá líða að velja eftirmann
sem hefði átt möguleika á því að
sigra Zuma í leiðtogakjörinu.
„Mbeki urðu á mikil mistök þegar
hann hélt að hann einn gæti sigrað
Zuma,“ sagði Steven Friedman,
stjórnmálaskýrandi við Lýðræðis-
stofnun Suður-Afríku. „Í ljós kom að
hann var sá eini sem gat ekki sigrað
Zuma.“
Fleiri stjórnmálaskýrendur sögð-
ust telja að margir fulltrúanna á
flokksþingi ANC hefðu kosið Zuma
vegna óánægju með Mbeki, fremur
en vegna velþóknunar á Zuma. For-
setinn hefur verið sakaður um að
stjórna úr fílabeinsturni, vera kald-
lyndur og ráðríkur.
Alger andstæða forsetans
Mbeki getur státað af stöðugum
hagvexti á síðustu árum en hefur
sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki gert
nóg til að bæta kjör milljóna manna
sem lifa í sárri fátækt. Áætlað er að
um 40% vinnufærra landsmanna séu
án atvinnu.
Mbeki var kjörinn forseti Suður-
Afríku 1999 og honum veittist erfitt
að komast út úr skugga Nelsons
Mandela, fyrsta forseta S-Afríku eft-
ir afnám aðskilnaðarstefnunnar.
Zuma er að mörgu leyti alger and-
stæða Mbeki. Zuma er súlúi, sonur
heimilishjúa og átti ekki kost á að
ganga í skóla, ólíkt Mbeki sem tók
meistarapróf í hagfræði í Bretlandi.
Zuma er 65 ára, eins og Mbeki, og
gekk í ANC 1958. Fimm árum síðar
var hann dæmdur í tíu ára fangelsi
fyrir að reyna að steypa stjórn hvíta
minnihlutans. Hann afplánaði dóm-
inn á Robben-eyju eins og Mandela.
Zuma þykir gæddur miklum per-
sónutöfrum. Nóbelsverðlaunahafinn
Desmond Tutu hefur t.a.m. viður-
kennt að Zuma sé „viðkunnanlegur“
maður en sagt að ferill hans sé með
slíkum endemum að það væri þjóð-
inni til hneisu að kjósa hann sem for-
seta.
Mbeki forseti tapaði illa
fyrir erkifjanda sínum
Zuma kjörinn leiðtogi ANC þótt hann eigi yfir höfði sér ákæru fyrir spillingu
AP
Andstæður Mbeki (t.v.) óskar Jacob Zuma til hamingju með sigurinn.
Í HNOTSKURN
» Bandamaður Jacobs Zuma,fyrrverandi verkalýðs-
leiðtogi, var kjörinn varafor-
maður ANC og verður að öllum
líkindum formaður flokksins ef
Zuma neyðist til að segja af sér.
» Zuma nýtur mikils stuðningsinnan verkalýðshreyfing-
arinnar og meðal kommúnista.
Hann hefur þó ekki boðað rót-
tækar breytingar á stefnu stjórn-
arinnar.
Markmið sjóðsins er að veita styrki til náms-
manna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla,
stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Styrkveit-
ingar sjóðsins miða að því að gera fjárframlög
Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og
sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir sem
sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu
Landsvirkjunar.
Styrkveitingar sjóðsins falla í þrjá flokka:
Almennar virkjunarrannsóknir, rannsóknir á
sviði umhverfis- og orkumála og styrki til
nemenda í meistara- eða doktorsnámi.
Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í
eftirfarandi flokkum:
Rannsóknir á sviði umhverfis- og
orkumála
Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis-
og orkumála. Styrkir eru veittir til hluta þess
kostnaðar sem hlýst af vinnu sérfræðinga,
þátttöku meistara- og doktorsnema, og öðrum
útgjöldum.
Styrkir til nemenda í meistara- eða
doktorsnámi
Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða
stunda meistara- eða doktorsnám á sviði
umhverfis- eða orkumála.
Í þessari úthlutun eru í heild allt að 50 m.kr. til
ráðstöfunar, allt að 40 m.kr. til rannsóknar-
verkefna á sviði umhverfis- og orkumála, og
allt að 10 m.kr. til styrkja fyrir 10–20 nemendur
í meistara- og doktorsnámi.
Umsækjendur þurfa að leggja fram lýsingu á
rannsóknarverkefni sínu, og rökstuðning fyrir
því að verkefnið tengist markmiðum sjóðsins.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um
þau gögn sem fylgja eiga umsókn er að finna á
vefsíðu Landsvirkjunar, www.lv.is.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað
rafrænt á netfang sjóðsins; orkurannsokna-
sjodur@lv.is eða í pósti til Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, merktum
„Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar
2007“.
Fyrirspurnir má senda á netfangið
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 21. desember 2007.
Öllum umsóknum verður svarað og farið
með þær sem trúnaðarmál.
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir styrki til umsóknar
Landsvirkjun er orkufyrirtæki sem leggur grunn
að nútíma lífsgæðum. Fyrirtækið stefnir að því
að verða öflugt á alþjóðavettvangi og starfar af
ábyrgð í anda sjálfbærrar þróunar. Landsvirkjun
er helsti raforkuframleiðandi landsins og í
forystu fyrir byggingu orkuvera sem hafa verið
meðal stærstu framkvæmda á landinu.
Landsvirkjun styðst við fjölbreytt rannsóknar-
starf á sviði náttúruvísinda, verkfræði og
orkumála og rekur umfangsmikla fjármálastarf-
semi á alþjóðamarkaði.
Hjá Landsvirkjun starfa rúmlega 200 manns með
fjölbreytta menntun. Landsvirkjun vill vera í
fararbroddi í framsækinni stjórnun og leggur
áherslu á jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar.
P
I P
A
R
•
S
ÍA
•
7
25
79
Styrkir til að efla
rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála
Umsóknarfrestur
er til 21. desembe
r 2007