Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 19
MENNING
MIÐVIKUDAGINN 12. desember
var opnuð í Today Art Museum í
Beijing sýning á verkum Errós úr
einkasafni listamannsins. Sýningin
ber yfirskriftina Dolls and Molls, en
flest verkanna byggjast á ann-
aðhvort brúðum eða vígbúnum val-
kyrjum. Today Art Museum er eitt
virtasta safn í Beijing og hefur verið
í örum vexti undanfarin ár. Safnið
er í einkaeigu en sýningar þar eru
þó háðar leyfi stjórnvalda. Aðdrag-
andi sýningar var því langur og
þurfti tvisvar að fresta opnun.
Erró hafði sjálfur umsjón með
upphengingu mynda sinna og lét
svo ummælt við opnunina að ást-
arsamband sitt við Kína væri orðið
lengra en nokkurt hjónaband. Það
væri því langþráð stund að standa í
þeim sporum að opna sýningu í
Beijing. Í veglegri sýningarskrá eru
litmyndir myndanna á sýningunni
auk yfirlits eldri verka. Einnig eru
textar listfræðinga frá Evrópu og
Kína.
Erró er vel þekktur í Kína meðal
listamanna en þetta er í fyrsta skipti
sem einkasýning er haldin á verkum
hans á meginlandi Kína. Sýning á
verkum hans frá áttunda áratugn-
um, sem byggðust á kínversku
myndefni, vakti hins vegar mikla at-
hygli í Hong Kong fyrir um áratug.
Viðtal við Erró mun birtast á CCTV
6 á næstunni og aðrir fjölmiðlar
hafa gert sýningunni góð skil.
Auk listamannsins sjálfs lætur
nærri að um 200 manns hafi mætt
við opnun sýningarinnar en Gunnar
Snorri Gunnarsson, sendiherra Ís-
lands, bauð jafnframt til móttöku af
þessu tilefni.
Í opnunarávarpi sýningarinnar
rakti sendiherra feril listamannsins
og gerði grein fyrir samsetningu
sýningarinnar. Hafliði Sævarsson
frá Glitnir Bank í Sjanghæ flutti
einnig stutt ávarp, en Glitnir Bank
er helsti stuðningsaðili sýning-
arinnar. Hafliði upplýsti að Glitnir
Bank hefði sett á laggirnar sér-
stakan sjóð til að styðja við verðug
verkefni í Kína á sviði menningar-
og mannúðarmála.
Auk Glitnis studdu utanríkisráðu-
neytið, menntamálaráðuneytið,
Listasafn Reykjavíkur og Anthony
Hardy, ræðismaður Íslands í Hong
Kong, sýninguna.
Lengsta
hjónabandið
Erró sýnir í Beijing
Erró Dolls and Molls sýnt í Kína.
SÖNGKVARTETTINN Kolka
heldur í kvöld jólatónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Kvartettinn hefur á að skipa
óperusöngkonunum Önnu
Margrétar Óskarsdóttur, Láru
Hrönn Pétursdóttur, Maríu
Jónsdóttur og Ragnheiði Söru
Grímsdóttur.
Tónleikarnir verða án undir-
leiks utan einsöngslaga, en í
þeim leika söngkonurnar sjálf-
ar undir hver fyrir aðra. Bæði verða sungnir jóla-
sálmar og hress og skemmtileg jólalög.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og fer miðasala
fram á staðnum. Miðaverð er 1.500 kr. en 1.000 kr.
fyrir nema og ellilífeyrisþega.
Tónlist
Kolka syngur
jólasálma og -lög
Lára Hrönn
Pétursdóttir
DIDDÚ, Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir, og „drengirnir“ svokölluðu
verða með aðventutónleika í
Mosfellskirkju í kvöld kl. 20.30.
Drengirnir eru þeir sömu og
haldið hafa tónleika með Diddú
undanfarin tíu ár, þeir Sig-
urður I. Snorrason og Kjartan
Óskarsson sem leika á klarín-
ett, Emil Friðfinnsson og Þor-
kell Jóelsson sem leika á horn
og Brjánn Ingason og Björn
Th. Árnason á fagott. Búast má við hátíðlegri og
fallegri jólastemningu á tónleikunum. Mörg þekkt
lög verða flutt tengd aðventu og jólum, m.a. „Ó,
helga nótt“ og „Jólin alls staðar“. Miðasala fer
fram á staðnum og í þjónustuveri Mosfellsbæjar.
Tónlist
Tónleikar Diddúar
og „drengjanna“
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
TANYA Lind Pollock og Rósa
Birgitta Ísfeld munu í kvöld
halda sk. rafmessu á Barnum,
Laugavegi 22, kl. 21.
Rafmessa þessi er raftónlist-
arkvöld og er nefnd messa þar
sem jólin eru á næsta leiti,
messa fyrir unnendur raf-
tónlistar.
Þeir sem messa munu yfir
áheyrendum með raftónlist eru
Biogen, Star Kidz, Frank
Murder og Stereo Hypnosis.
Á neðri hæð mun Gauti þeyta skífum og halda
uppi stemningu. Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir, sérfræðingar í raftónlist jafnt sem leik-
og áhugamenn.
Tónlist
Messa fyrir unn-
endur raftónlistar
Sigurbjörn Þor-
grímsson, Biogen.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„VIÐ gefum út fjórar hljóðbækur
fyrir þessi jól, þrjár bækur í sam-
vinnu við aðra og eina prentaða bók
sem heitir Kröftug bæn megnar
mikið,“ segir Gísli Helgason hjá út-
gáfufyrirtækinu Hljóðbók.is sem
hefur aðallega gefið út hljóðbækur
síðan árið 2004.
Titlarnir sem Hljóðbók.is gefur út
í ár eru: Sumarljós og svo kemur
nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson,
Aldingarðurinn eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson, útvarpsleikritin Skugga-
sveinn eftir Matthías Jochumsson
og barnaleikritið Maja spæja eftir
sögu Herdísar Egilsdóttur í leikgerð
Sigrúnar Eddu Björnsdóttur. „Síðan
gefum við út í samvinnu við höfund-
inn barnabók eftir Ingibjörgu Reyn-
isdóttur sem heitir Strákarnir með
strípurnar, sjálfshjálparbókina Þú
ert það sem þú hugsar, í samvinnu
við Guðjón Bergmann, og svo unn-
um við að útgáfu bókar sem heitir
Lesblinda: Hagnýt ráð í samvinnu
við Félag lesblindra á Íslandi,“ segir
Gísli og bætir við að þetta sé svipað
magn af bókum og undanfarin ár.
Í stað síbyljunnar
Spurður hvað þau hafi að leið-
arljósi við útgáfuna segir Gísli að
þau leggi áherslu á að gefa út vand-
aðar og góðar hljóðbækur sem selj-
ist. „Við höfum einbeitt okkur nokk-
uð að barnabókmenntum síðastliðin
ár. En þetta árið höfum við verið
mest í fullorðinnabókum.“
Gísli segir alltaf umtalsverða
aukningu í sölu hljóðbóka og salan í
gegnum heimasíðu fyrirtækisins
hafi aukist ár frá ári. „Ég hef hrærst
í þessum hljóðbókum í rúma þrjá
áratugi og þetta er alltaf að verða
skemmtilegra og skemmtilegra. Mér
finnst fólk vera að uppgötva þægindi
hljóðbóka og sé fyrir mér að salan á
þeim fari vaxandi í framtíðinni. Eftir
því sem fjölmiðlar verða einhæfari
og meiri síbylja er það hvíld að geta
valið sér sitt efni sjálfur.“
Grafarþögn vinsæl
Misjafnt er hvað Hljóðbók.is gef-
ur hvern titil út í stóru upplagi en
Gísli segir það yfirleitt vera frá tvö
hundruð eintökum og upp úr. „Við
fjölföldum sjálf og eigum því auðvelt
með að ráða magninu, en þetta borg-
ar sig ekki fyrir minna en 200 til 300
eintök.“ Fyrirtækið rekur einnig sitt
eigið hljóðver, Hljóðvinnsluna EHF.
„Allt sem við gefum út er hljóðritað
þar, nema útvarpsleikritin sem
koma frá Ríkisútvarpinu.“
Að sögn Gísla eru það hljóðbæk-
urnar Grafarþögn eftir Arnald
Indriðason og Brennu-Njálssaga
sem hafa selst hvað best frá stofnun
fyrirtækisins. „Skuggasveinn er líka
mjög vinsæll núna og svo hafa leik-
ritin hennar Guðrúnar Helgadóttur,
Sitji guðs englar og Saman í hring,
selst afar vel, auk barnahljóðbók-
anna.“
Gefa út sjö titla á hljóðbókum
Vinsældir hljóðbóka aukast ár frá ári að sögn Gísla Helgasonar Útgáfu-
fyrirtækið Hljóðbók.is gefur út Sumarljós og svo kemur nóttin og Aldingarðinn
Morgunblaðið/Kristinn
Uppskeran Gísli Helgason hjá Hljóðbók.is með hljóðbækur sem koma út í
ár og má þar finna skáldsögur, barnabækur, leikrit og sjálfshjálparbækur.
Í HNOTSKURN
» Hljóðbók.is hefur veriðstarfrækt síðan 2004 auk
hljóðversins Hljóðvinnslunnar.
» Útgáfan er rekin af hjón-unum Gísla Helgasyni og
Herdísi Hallvarðsdóttur.
» Þau gefa út sjö titla fyrirþessi jól auk einnar prent-
aðrar bókar.
www.hljodbok.is
Gallerí Fold · KringlunniRau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is
Íslensk list
er góð gjöf
Erró
Opið er í Gallerí Fold Kringlunni
frá kl. 10 – 22 föstudag, laugardag og sunnudag
Gallerí Fold Kringlunni býður úrval gjafavöru
Handa þeim sem þér þykir vænst um Inga Elín
Áslaug Höskuldsdóttir