Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 21
ÞAÐ eru ekki nema 160 ár síðan Ís-
lendingum fæddist sitt fyrsta tón-
skáld, Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
Vitanlega hefði mátt koma verkum
hans í varanlega hljómandi mynd
löngu fyrr, en nú hefur þó verið
stigið markverkt skref í rétta átt
með nýútgefnum geisladiski frá
Naxos.
Diskurinn geymir Kammertónlist
og tónlist fyrir píanó – að vísu ekki
sagt „complete“, en væntanlega
drjúgan part af a.m.k. helztu kamm-
erverkunum. Að ekki sé minnzt á
líklega fyrstu alþjóðlegu plötuút-
gáfu með hljóðfæratónlist eingöngu
eftir Sveinbjörn. Hefur höfundur
þjóðsöngsins því loks komizt á
heimskortið, ef svo má segja. Auk
alkunnra smærri píanóstykkja eins
og Idyll og Vikivaka eru bæði
Píanótríóin, í e- og a-moll, og Lyr-
iske stykker (1-4) heimsfrumbirt
ásamt Barcarolle í F-dúr. Allt ljúf
og hlustvæn tónlist sem stundum
leynir á sér undir þokkafulla dag-
stofuyfirborðinu.
Hljóðupptaka Naxosmanna er
mjög góð, skýr og samvæg, og túlk-
un ofangreindra hljómlistarmanna
dregur fram höfundareinkennin á
látlaust slyngan hátt með eðlilegu
flæði sem leyfir tónlistinni að
„anda“ á hárréttum stöðum. Mynd-
arleg fjöður í hatti aðstandenda,
ekki sízt Nínu Margrétar Gríms-
dóttur, en óhætt má segja að hún
hafi þegar hælana þar sem aðrir
klassískir hljómlistarmenn okkar
hafa enn varla tærnar á alþjóðleg-
um plötumarkaði.
Þjóðsöngshöfundur á heimskortið
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Geisladiskur
Kammer- og píanóverk eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. Nína Margrét Gríms-
dóttir píanó, Auður Hafsteinsdóttir fiðla,
Sigurgeir Agnarsson / Sigurður Bjarki
Gunnarsson selló. Stúdíóupptaka úr
Salnum: Fabian Frank. Lengd: 72:45.
Naxos 8.570460, 2007.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson bbbbn
JÓLATÓNLEIKAR Kammersveit-
ar Reykjavíkur fóru fram á Laugar-
ásnum fyrir fullu húsi og umferðar-
öngþveiti á sunnudag. Að vísu ekki
undir því nafni, því fyrirsögnin var
Vinningshafinn frá Leipzig og átti
við sólista kvöldsins, lárviðarþega úr
alþjóðlegri fiðlusamkeppni þar í
borg kenndri við engan lakari en
Johann Sebastian Bach.
Viðfangsefnin voru víðfræg og
vinsæl strengjaverk ofangreindra
samtímahöfunda af því glaðværa
tagi sem tengist orðið það mikið jól-
um að tala mætti um „piparköku-
barokk“ – án nokkurrar lítillækk-
unar á óvefengjanlegu meistara-
verkunum. Hvað Händel varðar 13
þættir úr tveimur af þremur Vatna-
svítum hans fyrir skemmtisiglingu
Jörunds I Bretakonungs af Hann-
over á Tems 1717, þ.e. í F- og D-dúr,
er römmuðu inn Bachverkin í byrjun
og enda. Ýmist bráðhress eða blæð-
andi fögur skemmtistykki og dável
fallin til að koma ungu fólki á gæða-
bragðið. Auk strengja komu stund-
um við sögu tvö glæst valdhorn, tvö
leiftrandi hátíðnitrompet og blað-
skellandi nákvæmt „concertino“–tríó
óbóa og fagotts.
Innan upphafs og enda Händels
myndaði Bach samhverft bogaform
með tveimur fiðlukonsertum í g
BWV 1056R og d BWV 1032 um 3.
Brandenborgarkonsertinn í miðju.
Hvorugur var meðal hinna þekkt-
ustu enda nú kunnari í seinni
sembalkonsertsumritunum kantors-
ins fyrir laugardagskonserta hans
með stúdentasveitinni Collegium
Musicum í Kaffihúsi Zimmermanns.
Í sérkennilega raddskiptum
Brandenborgarkonsertinum brá
helzt til tíðinda utan dagskrár að
byrja þurfti I. þátt upp á nýtt vegna
gleymds nótnablaðs, og fer það að
óbreyttu að verða fastur liður hjá
KSÍ enda gerðist annað eins ekki
alls fyrir löngu. Samt var leikurinn
eldhress, og jafnvel ívið meiri eftir
smáslysið, líkt og vinna skyldi upp
glataðan tíma.
Unga stórtalentið Elfa Rún Krist-
insdóttir var í forgrunni sitt hvorum
megin við Brandenborgarann og lék
af hrífandi kappi, ekki sízt í loka-
þætti d-mollsins sem hlýtur að telj-
ast meðal mest úthaldskrefjandi
fiðlukonserta barokktímans enda
fátt um hvíldir frá linnulausa sex-
tándupartastreyminu – að ógleymdri
níðerfiðri og háttlægri kadenzu í I.
En þó að spilamennskan væri ekki
alveg jafnlygilega örðulaus og við
debútframkomuna í Salnum sl. febr-
úar var margt bráðvel gert.
Að lokum athugasemd um full-
daufan strengjahljómburð Áskirkju.
Hann stenzt engan veginn sam-
jöfnuð við stórsal Listasafns Íslands
– en mætti líklega bæta til muna við
að fjarlægja rauða gólfteppið og
auka þannig alltof stuttan ómtíma.
Restin er svo spurning um vægi hins
sýnilega gagnvart hinu ósýnilega.
Eldhresst
piparkökubarokk
TÓNLIST
Áskirkja
Verk eftir Händel og Bach. Kammersveit
Reykjavíkur. Einleikari: Elfa Rún Kristins-
dóttir fiðla. Sunnudaginn 9. desember kl.
17.
Kammersveitartónleikar bbbmn
Ríkarður Ö. Pálsson