Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
SÍMINN hefur tekið þriðju kyn-
slóðar farsímakerfi (3G) í notkun á
Akureyri og býðst öllum við-
skiptavinum fyrirtækisins sem eiga
3G-farsíma að nýta sér þjónustuna.
Meðal helstu nýjunga eru mynd-
símtöl, þar sem viðmælendur sjá
hver annan meðan á samtali stend-
ur, móttaka sjónvarpsútsendinga,
msn-netspjall og streymi myndefnis
og tónlistar í farsímann. 3G-
þjónustuna má jafnframt nota til að
nettengja fartölvur með meiri
gagnahraða en áður hefur verið í
boði, skv. frétt frá fyrirtækinu.
Það var Sævar Freyr Þráinsson,
forstjóri Símans, sem tók 3G kerfið
formlega í notkun. Hann afhenti við
það tækifæri Sigrúnu Jak-
obsdóttur, bæjarstjóra Akureyr-
arbæjar, 3G netkort í fartölvu.
Forstjóri Símans sagði það sér
mikið ánægjuefni að opna fyrir 3G
þjónustu Símans á Akureyri. „Það
var alltaf markmiðið að 3G netvæða
Akureyri sem allra fyrst á eftir
höfðuborgarsvæðinu og með opn-
uninni í dag höfum við náð því tak-
marki, fyrr en áætlað var,“ sagði
Sævar Freyr.
Síminn mun fyrst um sinn bjóða
upp á útsendingar frá 8 íslenskum
og erlendum sjónvarpsstöðvum í
gegnum 3G og verður þjónustan
gjaldfrjáls til 1. febrúar.
Síminn tekur
3G í notkun
3G Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri og Sævar Freyr Þráinsson.
FRAMLÖG ríkisins til Háskólans á
Akureyri (HA) verða hækkuð um
alls 275 milljónir króna á næstu
þremur árum frá því sem verið hef-
ur; um 75 milljónir á næsta ári, um
100 milljónir króna árið 2009 og aft-
ur 2010. Þá hefur Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna ákveðið að
leggja fram 45 milljónir króna á
þremur árum til skólans, til þess að
styrkja menntun og rannsóknir í
sjávarútvegsfræðum.
Ársfundur HA fór fram í gær og
þá var skrifað undir samningana en
það gerðu rektor HA, menntamála-
ráðherra og formaður LÍÚ.
Samningur HA við ríkisvaldið er
til þriggja ára. Ráðherra sagðist við
það tækifæri telja mikilvægast að
samningurinn væri árangurstengd-
ur, það væru nýmæli í samningsgerð
við háskóla og ætti eflaust eftir að
efla starf HA til muna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segir að með
undirritun þessa samnings sé mik-
ilvægi Háskólans á Akureyri í ís-
lensku háskólaumhverfi undirstrik-
að. „Háskólinn á Akureyri hefur
vaxið hratt og dafnað vel á síðustu
árum og hefur stundum verið ævin-
týri líkast að fylgjast með þróun
hans. Með þeim samningi sem nú
hefur verið undirritaður er lagður
grunnur að enn frekari eflingu skól-
ans í framtíðinni sem mun nýtast ís-
lenska fræða- og vísindasamfélaginu
öllu.“
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
HA, fagnaði niðurstöðum þessa
samnings og telur að hér sé um merk
tímamót að ræða fyrir uppbyggingu
HA. „Samningurinn er mikilvægt
tæki til að efla starfsemi HA enn
frekar,“ segir Þorsteinn og hann er
„viðurkenning á þeirri miklu þýð-
ingu sem fræðastarfsemi HA hefur
fyrir íslenskt samfélag.“
Björgólfur Jóhannsson, formaður
LÍU, sagði landssambandið telja
menntun í sjávarútvegsfræðum af-
skaplega mikilvæga. „Það er alveg
ljóst að við höfum farið halloka á
þessu sviði á undanförnum árum. Við
viljum vera fremstir í sjávarútvegi á
heimsvísu og það er mitt mat að það
verðum við ekki að óbreyttu,“ sagði
Björgólfur í gær. Hann sagði að þeg-
ar leitað var eftir stuðningi úr Há-
skólanum hefði LÍÚ talið það skyldu
sína að koma að málum með mynd-
arlegum hætti „þannig að þetta nám
gæti eflst og dafnað.“
Meginmarkmið samningsins er að
styrkja forystuhlutverk HA á sviði
menntunar og rannsókna í sjávarút-
vegi. Lögð verður áhersla á að fjölga
nemendum sem leggja stund á nám í
sjávarútvegsfræði m.a. með því að
endurskoða samsetningu námsins og
styrkja ímynd þess. Sérstaklega
verður horft til viðhorfs og þarfa at-
vinnugreinarinnar.
Greiðslur ríkis hækka
og LÍÚ leggur fram fé
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægja Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, faðmar Þorgerði Katrínu Gunn-
arsdóttur ráðherra. Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, situr við borðið.
Í HNOTSKURN
»Landssamband íslenskra út-vegsmanna leggur fram 45
milljónir króna til HA á næstu
þremur árum til þess að efla
menntun og rannsóknir í sjávar-
útvegi. Ríkisvaldið leggur fram
jafnháa upphæð í sama tilgangi.
TIL að ná því markmiði að HA öðlist
viðurkenningu sem háskóli á heims-
mælikvarða á skilgreindum fræða-
sviðum ætla ráðuneytið og skólinn
að vinna saman að margvíslegum
áherslum. Nefna má þessar:
Að HA byggi upp öflugt og sveigj-
anlegt meistaranám í lifandi
tengslum við annað nám í skólanum.
Að HA efni til samstarfs við valda
erlenda háskóla í tengslum við upp-
byggingu náms, rannsóknir, rekstur
og stjórnun.
Að HA hafi forystu um að byggja
upp alþjóðlegt framhaldsnám og
rannsóknir á sviði endurnýjanlegra
orkugjafa í samstarfi við öflug orku-
og fjármálafyrirtæki og erlenda há-
skóla.
Að HA leiði þróun fjarnáms á Ís-
landi í samstarfi við símennt-
unarmiðstöðvar og háskólasetur á
landsbyggðinni. Markmiðið er að
fjarnám við HA verði aðgengilegt
sem flestum landsmönnum með til-
skilinn undirbúning.
Að HA verði alþjóðleg miðstöð
norðurslóðasamstarfs og taki for-
ystu í þessum málaflokki á alþjóð-
legum vettvangi. Í því samhengi rek-
ur HA Rannsóknaþing norðursins
og tekur þátt í nemendaskiptaáætl-
unum Háskóla norðurslóða.
Að HA leggi áherslu á yfirfærslu
þekkingar milli skóla og atvinnulífs.
Þannig hafi HA forgöngu m.a. með
tilstuðlan þróunarfélagsins Þekk-
ingarvarðar um að komið verði á fót
vísindagörðum á lóð háskólans fyrir
fyrirtæki í þekkingaruppbyggingu
sem starfi í náinni samvinnu við
deildir háskólans.
Að HA leggi áherslu á kennslu og
rannsóknir í greinum sem hafa sér-
staka þýðingu fyrir íslenskt atvinnu-
líf, m.a. sjávarútvegsfræði og auð-
lindanýtingu. Í þessu verkefni mun
HA hafa náið samstarf við hags-
munaaðila í sjávarútvegi.
Vilja vera í
fremstu röð
VILJAYFIRLÝSING um samstarf
menntasviðs Reykjavíkurborgar og ný-
stofnaðrar Rannsóknarstofu um þroska,
mál og læsi hefur verið undirrituð. Sam-
starfið miðar að því að efla málþroska og
læsi í grunnskólum borgarinnar. Oddný
Sturludóttir, formaður menntaráðs, og
Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri undir-
rituðu samstarfsyfirlýsinguna fyrir hönd
Reykjavíkurborgar. Í þjónustusamningi
verða skilgreind nánar samstarfsverkefni,
ráðgjöf, þróunarstarf, mat og önnur verk-
efni sem gagnast gætu grunnskólum borg-
arinnar í þeirri viðleitni að efla læsi, mál-
þroska og lesskilning.
Menntaráð leggur áherslu á eftirfarandi
þætti í samstarfi við rannsóknarsetur KHÍ
með það að markmiði að efla málþroska og
læsi: Ráðgjöf vegna þróunarverkefna í
grunnskólum; mat á þróunarverkefnum;
fræðslufundi fyrir foreldra í því hvernig
þeir geta stutt börn sín á þessu sviði; nám-
skeið fyrir grunnskólakennara.
Ráðgjöf og fræðsla til skóla vegna barna
með lestrarerfiðleika, við mat á lestrarerf-
iðleikum og hvernig er æskilegt að vinna
með niðurstöður greininganna.
Samstarf Ólafur Proppé, Hrafnhildur
Ragnarsdóttir, Oddný Sturludóttir og
Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri.
Samstarf
um að efla
málþroska
Á FUNDI skipulagsráðs Reykja-
víkurborgar fyrir skömmu var lögð
fram ný tillaga Kristins Ragnars-
sonar arkitekts að skipulagi við
Keilugranda 1 í Reykjavík. Fyrri
tillaga Kristins var auglýst frá 13.
júlí til og með 10. september sl.
Mjög margar athugasemdir bárust
við þá tillögu og er hin nýja tillaga
Kristins gerð til að koma á móts við
athugasemdirnar.
Að sögn Margrétar Þormar,
arkitekts hjá skipulagsstjóra, hefur
tillagan enn ekki verið samþykkt og
engin afstaða verið tekin til hennar.
Tillagan verður tekin fyrir á fundi
skipulagsráðs hinn 9. janúar nk.
Forsaga málsins er sú að skipu-
lagsráð Reykjavíkur samþykkti sl.
haust breytingu á aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001-2024 vegna
Keilugranda 1. Breytingin fólst í
því að skilgreindur yrði nýr þétt-
ingarreitur við Keilugranda þar
sem gert var ráð fyrir allt að 130
íbúðum.
Fjöldi íbúa á svæðinu mótmælti
og meðal athugasemda sem gerðar
voru var að byggingarnar sam-
ræmdust ekki ríkjandi stefnu á
svæðinu. Fjölgun íbúða væri of
mikil og fjölgun væri ekki nægilega
vel rökstudd. Þá var byggingamagn
sagt of mikið og nýtingarhlutfall of
hátt. Gerðar voru athugasemdir um
að húsin væru of há, þess vegna
væri hætta á sviptivindum og
skuggavarp væri mikið. Áhrif á um-
ferð og bílastæði væru neikvæð og
því aukin hætta fyrir skólabörn.
Minnt var á grunnvatnsstöðu,
mýrlendi og jarðsig. Loks var gerð
athugasemd við að hagsmunir ann-
arra en íbúa væru látnir ganga fyrir
yrði tillagan samþykkt.
Í nýrri tillögu er komið á móts við
athugasemdirnar m.a. með úrbót-
um í umferðarmálum; lokað fyrir
gegnumakstur frá aðkomu norðan
lóðar að Fjörugranda.
Sá hluti hússins sem er 9 hæðir
er lækkaður í 8 hæðir og 8 hæða
hluti er lækkaður í 6 hæðir. Nýting-
arhlutfall lækkar sem því svarar og
hámarksfjöldi íbúða lækkaður í 103
[úr 130].
Leikvöllur milli Boðagranda 2 og
Fjörugranda verður lagfærður.
Varðandi athugasemdir um land-
sig er sagt að ástæða fyrir sigi sé
líklega sú að búið er að loka á nátt-
úrulegt innflæði í mýrina með því
að allt grunnvatn er leitt í burtu í
lögnum. Jafnframt er það sagt
vandamál að lagnir eru á staurum.
Sagt er að varðandi grunninn á
Keilugranda 1 sé best að reita niður
útgröftinn og taka fyrir afmörkuð
svæði.
Hæstu húsin lækkuð
Nýjar tillögur
vegna reits á
Keilugranda 1
Í HNOTSKURN
»Keilugrandi 1 var skil-greindur sem nýr þétting-
arreitur sl. haust.
»Nýju tillögurnar verðateknar fyrir á fundi skipu-
lagsráðs 9. janúar nk.
»Komið er á móts við at-hugasemdir íbúa með hin-
um nýju tillögum.
»Hámarksfjöldi íbúða hefurverið lækkaður úr 130 í 103.
Fyrri tillaga Hugmyndin var allt að 12 hæða stórhýsi. Gert var ráð fyr-
ir 4, 7, 9, 10 og 12 hæða byggingu auk kjallara.
Ný tillaga Byggingamagn er minnkað um 47 íbúðir. 9 hæða hús lækkað
í 8 hæðir og 8 hæða hús í sex hæðir.
AKUREYRI