Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 23
LANDIÐ
Blönduós | Fyrsta íbúðarhúsið sem
byggt er á Blönduósi á tuttugustu
og fyrstu öldinni hefur verið selt og
kaupendurnir eru fluttir inn.
Líflegt hefur verið á fast-
eignamarkaðnum á Blönduósi að
undanförnu, að því er fram kemur
á Húnahorninu, fréttavef Húnvetn-
inga. Domus fasteignasala er þar
með útibú og annaðist söluna.
Þótt ekki hafi verið byggð íbúð-
arhús í þorpinu á Blönduósi síðustu
ár hafa verið byggð hús í dreifbýl-
inu. Fleiri hús eru í byggingu á
Blönduósi og er sala annars húss í
undirbúningi, segir á vefnum.
Fyrsta íbúðarhúsið sem
byggt er á öldinni selt
ljóst á þessari
stundu hverjar
þær verði. Hún
reiknar þó frekar
með því að starf
þjóðgarðsvarðar í
Skaftafelli verði í
grundvallaratrið-
um svipað og nú.
„Mikill metnaður
er lagður í að
gera vel og gam-
an verður að taka þátt í mótun
starfsins í hinum nýja þjóðgarði,“
segir hún.
Rólegt er yfir starfinu í þjóðgörð-
unum að vetrinum. Regína segir að
tíminn sé notaður til að ganga frá
eftir sumarið, gera nýjar áætlanir
og skipuleggja starfið. Svo þurfi hún
líka tíma til að setja sig inn í starfið.
Næstu vikurnar fari í það.
Komin hálfa leið heim
Regína er landfræðingur og hefur
starfað hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands undanfarin sjö ár. Þar hefur
hún unnið við gróðurkortagerð og
skýrslugerð sem því fylgir. Áður
hefur hún meðal annars starfað sem
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Skaftafell | „Þetta eru miklir um-
brotatímar. Þeim fylgja breytingar
og tækifæri,“ segir Regína Hreins-
dóttir landfræðingur sem ráðin hef-
ur verið þjóðgarðsvörður í Skafta-
felli.
„Ég skrifaði undir ráðningar-
samning í gær, er að pakka niður og
flyt austur í vikunni,“ sagði Regína
þegar rætt var við hana í gær. Hún
flytur í íbúðarhúsið Hæðir í Skafta-
felli og stjórnar Skaftafellsþjóð-
garði. Regína tekur við starfinu af
Ragnari Frank Kristjánssyni sem
því hefur gegnt frá árinu 1999.
Breytingar framundan
Fyrirhugað er að Skaftafellsþjóð-
garður falli undir nýjan Vatnajök-
ulsþjóðgarð. Segir Regína ljóst að
því fylgi breytingar þótt ekki sé
landvörður og skálavörður í Land-
mannalaugum, Herðubreiðarlindum
og Öskju. „Ég tók líka kennslufræði
og ætlaði að fara í kennslu en ekki
varð úr því,“ segir hún.
„Ég hef verið að svipast um eftir
starfi úti á landi. Foreldrar mínir
búa í Nesjum í Hornafirði og mér
fannst skemmtilegra að fara þangað
heldur en vestur á land,“ segir Reg-
ína þegar hún er spurð að því hvern-
ig áhugi hennar á starfi þjóðgarðs-
varðar hafi vaknað. Með flutningi í
Skaftafell er hún komin langleiðina
til heimahaganna í Hornafirði.
Hún bætir því við að starfið sé
áhugavert og umhverfið spennandi.
„Fjölbreytni verkefnanna heillar
mig mest,“ segir Regína og nefnir
að útivera og umhverfi geri starf
landvarðar áhugavert.
Regína kemur með ýmsar hug-
myndir inn í nýja starfið. Hún segir
þó að framtíðin verði að leiða það í
ljós hvernig gangi að koma þeim
fram. Verið sé að vinna að stefnu
fyrir hinn nýja Vatnajökulsþjóðgarð
sem laga þurfi starfið í Skaftafelli
að. Vill hún því bíða með frekari yf-
irlýsingar um framtíðina.
Fjölbreytni verkefnanna heillar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Náttúra Í Skaftafelli er eitt vinsælasta tjaldsvæði landsins.
Regína Hreinsdóttir
tekur við starfi
þjóðgarðsvarðar
Regína
Hreinsdóttir
Í HNOTSKURN
»Þjóðgarðurinn í Skaftafellivar stofnaður 1967 og stækk-
aður verulega 1984. Flatarmál
hans er um 1600 ferkílómetrar.
»Skaftafellsþjóðgarður næryfir tvo þriðju hluta Vatna-
jökuls. Hann skiptist í þrjú svæði,
Lakagíga, Skaftafell með undir-
lendi og jökulhettuna.
SIGRÚN Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri og Skúli Árnason, formað-
ur björgunarsveitarinnar Súlna,
skrifuðu í vikunni undir samning
um stuðning bæjarins við björg-
unarsveitina til næstu fjögurra ára.
Styrkurinn felst í árlegu framlagi
og til viðbótar leggur Akureyr-
arbær fé til nauðsynlegra end-
urbóta og viðbyggingar á núver-
andi húsnæði Súlna.
Í fréttatilkynningu frá Akureyr-
arbæ og Súlum segir: „Björgunar-
sveitirnar hafa um árabil verið
styrktar af Akureyrarbæ og mark-
ar þessi samningur áframhald af
því góða samstarfi. Sveitirnar hafa
skipt hinn almenna borgara [miklu]
í gegnum tíðina og íbúar á Ak-
ureyri leggja björgunarsveitunum
gott lið á hverju ári með kaupum á
flugeldum.“
Tekið er fram að hin árlega flug-
eldasala, ein aðaltekjuöflun björg-
unarsveitanna, hefst 27. desember
nk. og stendur fram yfir gaml-
ársdag. Flugeldar verða einnig
seldir á þrettándanum.
Akureyrarbær styður
björgunarsveitina Súlur
FYRIRTÆKIÐ Norðlenska hefur
sama háttinn á nú og síðustu ár, að í
stað þess að senda jólakort til við-
skiptavina styrkir það eitt líknarfélag. Að þessu sinni styrkir Norðlenska
Neistann – styrktarfélag hjartveikra barna á Norðurlandi, um eitt hundrað
þúsund krónur. Að sögn Ingvars Más Gíslasonar, markaðsstjóra Norðlenska,
er þetta þriðja árið í röð sem fyrirtækið hefur þennan háttinn á.
Norðlenska hefur styrkt félagasamtök á þeim stöðum þar sem fyrirtækið
hefur starfsemi. Árið 2005 var styrkurinn afhentur á Húsavík, í fyrra á Höfn
í Hornafirði og nú er félag á Akureyri styrkt. „Félag eins og Neistinn hefur
mikilvægu hlutverki að gegna og vinnur afar gott starf. Vonandi munu þess-
ir fjármunir nýtast félaginu vel,“ segir Ingvar Már í fréttatilkynningu. Á
myndinni eru og tveir fjögurra ára drengir, Aðalbjörn Leifsson og Júlíus
Freyr Gunnarsson, sem veittu styrknum viðtöku fyrir hönd Neistans.
Norðlenska
styrkir
Neistann
SÍÐASTI Súpufundur Þórs, Greif-
ans og Vífilfells á þessu ári verð-
ur haldinn í félagsheimilinu
Hamri í dag kl. 12.00-13.00.
Fundirnir eru venjulega á
fimmtudegi en breyting er á því
nú. Gestur fundarins er Kristinn
Svanbergsson íþróttafulltrúi Ak-
ureyrar og fundarefnið Íþróttir á
Akureyri á árinu 2007. Hvernig
er staðan? Hvert stefnum við?
Allir eru velkomnir á fundinn. Að
vanda er súpa, brauð og drykkir
til sölu á 500 kr.
Síðasti súpufundur ársins