Morgunblaðið - 19.12.2007, Síða 29
börn
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 29
Skyrgámur kemur þann 19. desember. Ef hannfinnur ílát með skyri heima hjá þér, þá brýtur
hann lokið af því með berum hnefanum. Svo mikið
liggur honum á! Já, og það er sjaldan mikið eftir í
ílátinu. Átvaglið treður í sig með hávaða og látum.
Svo vælir hann og stynur: „Æi, æi, æi … óbú-
húhúú … mér er svo illt í maganum.“ Þá vill Skyr-
gámur víst að allir vorkenni honum!
Kertasníkir leysir frá skjóðunni - Anja og Markus Kislich
Skyrgámur – 19. desember
Hin tíu ára gamla LailaRodriquez er líkt og svomargir jafnaldrar henn-ar hrifin af tuskudýrum.
En þegar hún biður foreldra sína
um ákveðna tuskukú, -kött, eða
-hund þá er það ekki bara löngunin í
tuskudýrið sem býr að baki. Dýr-
unum fylgir nefnilega lykilorð að
netleik sem gerir henni kleift að
annast sýndargæludýrin, gefa þeim
að borða og útbúa herbergi fyrir
þau.
„Mig langar að eiga tíu gæludýr,
af því að þegar maður á orðið tíu þá
getur maður eignast lúxusrúm,“ hef-
ur New York Times eftir Lailu um
netleikinn Webkinz. Lúxusrúmið er
einungis til á vefnum líkt og gælu-
dýrin, þó að Laila eigi líka fjögur
tuskudýr sem hún fékk fyrir þær
3.600 kr. sem foreldrar hennar hafa
borgað fyrir leikinn. Og Laila er bú-
in að uppgötva nýjan vef, Subeta-
.org, sem rukkar 1.200 kr. fyrir
engladrykk og aðra „sýndarhluti.“
Mörgæsir með aukabúnað
Bróðir hennar, hinn sjö ára gamli
Jared, þráir að vera meðlimur í vef-
heiminum Club Penguin.com. Fyrir
það myndu foreldrar hans þurfa að
greiða 360 kr. á mánuði svo að Jared
gæti safnað sýndarhlutum í snjó-
húsið sem mörgæsin hans býr í. Ja-
red er ekki einn um þessa ósk því
fjöldi barna um heim allan iðkar
leikinn, þar á meðal á Íslandi þar
sem hann nýtur mikilla vinsælda
meðal 8-10 ára barna.
Þó að flestir leikir ætlaðir börnum
undir tólf ára aldri séu ókeypis þá
færist það, að sögn New York Tim-
es, sífellt í vöxt að rukkað sé fyrir
vefleiki fyrir þennan hóp og segir
blaðið þetta valda foreldrum sem og
neytendasamtökum þó nokkrum
áhyggjum. Það bætast enda millj-
ónir nýrra notenda við vefleiki á
borð við Club Penguin í viku hverri.
Mörg vefsvæði bjóða gjarnan upp
á takmarkaða útgáfu af leiknum
ókeypis á vefsvæði sínu og svo þeg-
ar börnin eru orðin virkilega áhuga-
söm um leikinn þá þarf að greiða
fyrir heildarútgáfuna. Í öðrum til-
fellum er leikurinn ókeypis en svo
þarf að greiða fyrir „aukabúnað“
eins og fatnað og dót fyrir mörgæs-
ina í Club Penguin.
„Hver einasti snertiflötur er að
verða að tækifæri til að selja börn-
um eitthvað, hvort sem það felst í að
gera þau meðvituð um ákveðin vöru-
merki eða þá að selja þeim raun-
verulega hluti,“ er haft eftir Liz
Perle, ritstjóra Common Sense
Media. „Það er lokatakmarkið.“
Hjá samtökunum Heimili og skóla
könnuðust menn ekki við þennan
leik. „Það er hins vegar alltaf
áhyggjuefni þegar verið er að gera
börn að neytendum, og það er nokk-
uð sem við lítum alvarlegum aug-
um,“ segir Hlíf Böðvarsdóttir.
Framleiðendur vefleikjanna telja
hins vegar ekkert slæmt við leiki á
borð við Club Penguin. „Við erum að
kenna krökkum að taka ákvarðanir
sem þau eiga seinna meir eftir að
þurfa að taka úti í hinum stóra
heimi,“ segir Karen Mason, tals-
maður Club Penguin.
Vefleikföng fyrir krakka
Netleikir á borð við Club Penguin valda áhyggjum
Mörgæsir Þær eru óneitanlega krúttlegar mörgæsirnar í Club Penguin, en
til að börnin geti tekið fullan þátt í leiknum þarf að greiða mánaðaráskrift.