Morgunblaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 43
setningin „Já, sko gamla brýnið.“
Ekki minna stoltur var pabbi af
uppruna sínum og heimahögum.
Hann var mikill Garðmaður og vildi
aldrei fara þaðan. Hann kom því
þannig fyrir að þurfa aldrei að yfir-
gefa heimahagana, hann lést í túninu
heima og verður jarðsunginn ofan við
bernskuheimili sitt, Garðhús.
Hafðu þökk fyrir allt og allt pabbi
minn.
Svanhildur.
Eiríkur Guðmundsson, tengdafaðir
minn, dó eins og hann lifði. Hann var
ekkert að tala of mikið um hlutina,
hann var framkvæmdamaður. Hann
lifði og dó í Garðinum, þar sem hvergi
er hvassara þegar rokið bylur á mel-
um en sólarlagið er hvergi fegurra
þegar það sígur í móðu á fallegum
sumarkvöldum.
Eiríkur fæddist í Garðinum, bjó
þar alla sína ævi, vann þar lengst af
og þar vildi hann vera. Þegar Svan-
hildur mín kynnti mig í fyrsta skipti
fyrir foreldrum sínum, Lillu og Eiríki,
þá komst ég að því að Eiríkur Guð-
mundsson talaði enga tæpitungu og
ætlaðist ekki til þess af öðrum að svo
væri talað til sín. Hann hafði sterkar
skoðanir á næstum öllu, var víðlesinn
og fróður um ólíklegustu mál. Hann
hafði mikla unun af að ferðast jafnt
innanlands sem utan og var náttúru-
barn. Síðsumars þegar berin fóru að
þroskast mátti oft og iðulega sjá app-
elsínugula vörubílnum lagt við vegar-
brún á Reykjanesbrautinni og þá var
ljóst að nú væri sá gamli kominn í
berjamó.
Eiríkur var greiðvikinn og vildi allt
fyrir alla gera. Smáar sem stórar við-
gerðir á bílum og tækjum vöfðust
ekki fyrir honum. Oft smíðaði hann
hlutina frekar en að kaupa, hann vissi
sem var að þeir yrðu síður en svo
verri fyrir vikið. Hann var sannkall-
aður völundur á málm og tré. Þær
voru ófáar kerrurnar sem frá honum
komu og voru eftirsóttar. Eftir að
hann hætti störfum í fyrirtæki þeirra
bræðra, Hólmsteini hf., fann hann sér
alltaf eitthvað til dundurs; útskurð og
smíði smáhluta sem minjasafnið á
Flösinni fékk síðan að njóta. Ólokið
líkan af skútunni Pourquoi-Pas? ber
handbragði hans glöggt vitni.
Á Heiðarbrautinni, þar sem hann
og Lilla bjuggu, var oft fjölmennt og
mikið fjör enda fjölskyldan stór, sex
börn með tilheyrandi barnabarna-
fjöld. Það var oft fjör þegar allir komu
saman og ekki allir lágværir. En hann
naut sín vel og vildi hafa fólkið sitt í
kringum sig og oft þurfti að stilla
barnabörnunum upp og taka myndir.
Þeim sem ekki þekktu hann náið
fannst hann kannski hrjúfur við
fyrstu kynni. En það var ekki hans
rétta hlið. Hann var umhyggjusamur
og vildi öllum vel. Blikið í augum hans
yfir barnahópnum sínum var ósvikið
og gott var að eiga afa Eirík til að
koma að málunum.
Eiríkur dó heima. Það varð brátt
um hann eins sagt er og þrátt fyrir að
andlát hans hafi orðið snöggt og án
fyrirboða þá er ég forsjóninni þakk-
látur fyrir hvernig það bar að. Hann
vildi ekki láta hafa neitt fyrir sér og
vildi ekki eiga neitt inni hjá neinum.
Að fólk stæði í einhverju tilstandi fyr-
ir hann var ekki hans stíll. Ég kveð
tengdaföður minn með virktum og er
þakklátur og lánsamur að hafa fengið
að kynnast honum. Hann skilur eftir
sig stóran hóp sem allur er stoltur af
föður sínum og afa. Ég sendi Lillu
tengdamóður minni, börnum hans og
fjölskyldum þeirra og systkinum hans
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Eiríks Guð-
mundssonar.
Kristján Jóhannsson.
Minning um tengdaföður minn,
Hann var léttlyndur
og glaður
en þold’ekki
óþarfa blaður.
Hann kunni sögur að segja
ef þú vildir ljá
honum eyra,
við hlógum oft
svo mikið,
því mörg gerð’ann
prakkarastrikin.
Á unga aldri hann
veiktist í eyra,
fékk heyrnartæki
til að heyra meira
en ef frið hann
vildi fá,
hann bara slökkti
tækinu á.
Ég þakka Guði
hann fyrir,
krossa yfir
og bið,
hann hvíli
í friði.
Í Jesú nafni, amen.
(BG)
Það fyrsta sem kom upp í huga
barna okkar við fréttirnar um að afi
þeirra væri dáinn var: „Hann afi sem
var svo góður.“ Það er góð minning að
ylja sér á. Þau hafa áhyggjur af elsku
ömmu sinni en samstaða barna henn-
ar síðustu daga fullvissar mann um að
það verður vel hlúð að henni. Við biðj-
um elsku Jesú að bera ömmu á örm-
um sér uns fætur hennar verða styrk-
ir á ný. Við erum lánsöm að nafn
Eiríks tengdapabba hljómar hér dag-
lega því frumburður okkar er alnafni
hans.
Elsku tengdamamma og allir að-
standendur, Guð blessi okkur öll og
styrki, í Jesú nafni, amen.
Brynja, Guðmundur og fjölskylda.
Ég man eftir þeim stundum þegar
ég var lítill strákur og kom í heim-
sókn. Ég fékk það mikilvæga hlut-
verk að fá að brjóta sykurmolana fyr-
ir þig sem þú settir út í kaffið þitt og
fannst mér ég vera að gera mjög mik-
ið gagn að geta hjálpað afa mínum
svona í kaffinu. Ég var mjög oft heima
hjá þér og ömmu og fannst mér ég
vera svo heppinn að eiga ekki eitt
heimili heldur tvö, hjá mömmu og
pabba og svo hjá ykkur.
Á milli stundanna þegar ég var
ekki að spila við ömmu fékk ég að
koma með þér í vinnuna og sitja með
þér í vörubílnum og fylgjast með þér.
Þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa
mér og aðstoða mig en þó vildir þú
sjaldan láta aðstoða þig með verk sem
þú taldir þig geta gert sjálfur. Þú
varst mjög sjálfstæður maður sem ég
dáðist mjög að. Að kveðja þig situr
þungt í mínu hjarta. Ég hugga mig
við það að þú verður alltaf hjá mér og
vakir yfir okkur öllum sem nú kveðja
þig með söknuði.
Ég hugsa ávallt til þín elsku afi og
megi guð geyma þig líkt og við geym-
um þig í hjarta okkar.
Eiríkur Arnar Björgvinsson.
Afi minn var góður afi og hann var
líka mjög góður faðir. Þessi afi minn
var góður í öllu, öllum heimsins verk-
um, en svo fór hann frá mér. Mér
finnst það svo leiðinlegt en svona er
það, við fæðumst og við deyjum. En
mig langar að skrifa þetta fyrir hann
afa minn og ég bið guð að varðveita
hann þarna uppi í himnaríki. Ég á eft-
ir að hitta hann einhvern tímann þar
en þangað til ætla ég að biðja fyrir
honum á hverjum degi og gefa honum
heilög og blessuð jól. Ég ætla að varð-
veita afa minn í hjarta mínu, þess
vegna gef ég honum þessa bæn:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Salka Björt.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 43
Elsku afi er farinn frá okkur.
Hann var alltaf svo góður.
Hér er bæn fyrir afa.
Kristur minn ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gjörðu svo vel og geymdu mig,
Guð, í skjóli þínu.
(Höf. ók.)
Inga Jódís og litla systir.
Eitt lítið andartak.
Eitt andartak, hve miklu
eitt andartak getur öllu
breytt.
Ein slæm frétt sem til
manns berst, á andartaki hve
allt er breytt.
Erfitt er að hugsa og erfitt
er að sjá, á andartaki hve
söknuðurinn er sár.
Komdu til mín aftur, ég
vera vil hjá þér, á einu litlu
andartaki horfinn varstu
mér.
Daniella Holm Gísladóttir.
HINSTA KVEÐJA
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORSTEINN KRISTINSSON
endurskoðandi,
sem lést miðvikudaginn 12. desember, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtu-
daginn 20. desember kl. 13.00.
Dagbjört Torfadóttir,
Helga Björk Þorsteinsdóttir, Kristinn Arnar Guðjónsson,
Hörður Þorsteinsson, Sigrún Sæmundsdóttir,
Kristinn Þorsteinsson, María Sverrisdóttir,
barnabörn og langafabarn.
✝
Hjartans þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og
vinsemd vegna veikinda, andláts og útfarar okkar
ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
DÓRU GUÐLAUGSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja.
Guð blessi ykkur öll.
Bjarni Sighvatsson,
Sigurlaug Bjarnadóttir, Páll Sveinsson,
Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, Viðar Elíasson,
Sighvatur Bjarnason, Ragnhildur S. Gottskálksdóttir,
Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir, Halldór Arnarsson,
Hinrik Örn Bjarnason, Anna Jónína Sævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
VALDEMARS SVEINSSONAR
Ólafsgeisla 111,
Reykjavík.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Ingunn Stella Björnsdóttir,
Elísabet Heiða Valdemarsdóttir,
Sveinn Hólm Valdemarsson,
Karen Rós Valdemarsdóttir,
Íris Björk Ingadóttir, Ingvar Hafbergsson,
Jóhanna Eiríka Ingadóttir, Þórður Þrastarson,
Lilja Karen, Aldís Dröfn og Darri Freyr.
✝
Innilegar þakkir til allra er sýndu samhug og hlýju
vegna veikinda og andláts ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa, sonar, tengdasonar og
bróður,
NÍELSAR RAFNS NÍELSSONAR
bifvélavirkjameistara,
Funalind 15.
Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrun Karítas,
læknum og hjúkrunarfólki á krabbameinsdeild og
líknardeild Landspítalans.
Guðbjörg Elsa Sigurjónsdóttir,
Ómar Níelsson,
Anna Björg Níelsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Níels Birgir Níelsson, Svanborg Gísladóttir,
Arnar Bjarki, Glódís Rún, Védís Huld,
Hrefna Skagfjörð, Hulda Sigurbjörnsdóttir,
Hermann Níelsson, Björn Níelsson, Hanna Níelsdóttir,
Halldóra Þórðardóttir, Pálmi Þórðarson.
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT GARÐARSDÓTTIR
Ægisíðu 88,
Reykjavík,
verður jarðsungin í Dómkirkjunni föstudaginn 21.
desember kl. 15.00.
Garðar Halldórsson, Birna Geirsdóttir,
Jón Halldórsson, Ingigerður Jónsdóttir,
Halldór Þór Halldórsson, Margrét Pálsdóttir,
Margrét Birna, Helga María, Margrét,
Áslaug Þóra, Halldór Haukur, Jón Gunnar
og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HJALTI RAGNARSSON
vélfræðingur,
Ársölum 1,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 19. desember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
Sigríður E. Konráðsdóttir,
Konný R. Hjaltadóttir, Óskar Guðjónsson,
Hjalti Heiðar Hjaltason, Margrét Jónsdóttir,
Sigurður Ingvar Hjaltason, Magnea Helga Magnúsdóttir,
Aðalheiður Íris Hjaltadóttir, Árni Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR
frá Skriðufelli í Þjórsárdal,
Þangbakka 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn
20. desember kl. 13.00.
Sigurður J. Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson, Lilja Sörladóttir,
Þórdís Sigurðardóttir, Gunnar Pétursson,
Ólafur J. Sigurðsson, Ólöf Ragnarsdóttir,
Þuríður R. Sigurðardóttir, Kristján A. Ólason,
Margrét Sigurðardóttir, Guðmundur Arason,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Barclay T. Anderson,
Berglind Sigurðardóttir, Ólafur Sigurðsson
og ömmubörn.