Morgunblaðið - 19.12.2007, Síða 50

Morgunblaðið - 19.12.2007, Síða 50
Í bland við uppreisnar- hug, sérlyndi, drykkju- skap, trúarofstæki og geðveiki … 53 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ fóru svona 85 þungir steinar úr hjartanu við þetta,“ segir Ólaf- ur de Fleur Jó- hannesson leik- stjóri, en kvikmynd hans The Amazing Truth About Queen Raquela, hefur verið valin til þátttöku á kvik- myndahátíðinni í Berlín sem fram fer í febrúar. „Þetta hefur verið mikil barátta, að koma myndinni áfram. Þetta er hins vegar ein af þremur stærstu hátíðunum í Evrópu þannig að það tryggir að hún muni eiga gott líf. Mér er alveg sama þótt ég drulli upp á bak sjálfur, en þetta skiptir máli fyrir þessar stelpur, og þessa sögu sem er mjög mikilvæg,“ segir leikstjórinn, en myndin fjallar um dramatískt líf svokallaðra stelpu- stráka á Filippseyjum. „Raquela er aðalpersónan, en hún er að segja sögu hundraða svona stúlkna og er eiginlega fulltrúi þeirra.“ Mörg járn í eldinum The Amazing Truth About Queen Raquela verður frumsýnd í kvik- myndahúsum hér á landi í lok febr- úar, en hún var um það bil tvö ár í framleiðslu. „Þetta er leikin mynd, þrátt fyrir að þetta hafi átt að vera heimildarmynd í upphafi. Í rauninni er þetta sambland af heimildarmynd og leiknu efni, og ég held að þetta hafi ekki verið gert með þessum hætti áð- ur,“ segir Ólafur. Myndin tekur þátt í aðaldagskrá Panorama-hlutans svo- kallaða í Berlín, en 18 myndir eru í þeirri keppni. „Þetta er ekki að- alkeppnin, heldur meira svona „best of art-house“ keppni,“ segir Ólafur. Margt fleira er á dagskrá hjá Ólafi næstu mánuðina, en næsta kvikmynd hans, Stóra planið, verður frumsýnd í mars. Þá er hann farinn að huga að sínu næsta verkefni, kvikmynd sem hlotið hefur nafnið Diary of a Circle- drawer. „Það er mynd sem ég ætla að gera hér heima og í New York eftir ár. Ég fer hins vegar til New York í janúar þar sem ég ætla að skjóta litla stuttmynd um það sama efni líka. Það er mynd til þess að prófa vatnið, áður en farið er út í stóru myndina.“ Queen Raquela á kvikmyndahátíðinni í Berlín Stelpustrákar Úr hinni átakanlegu kvikmynd um Raquelu. Ólafur de Fleur Jóhannesson www.queenraquelathemovie.com www.poppoli.com  Egill Helgason þáttastjórnandi vandar Skífunni ekki kveðjurnar í netpistli á Eyj- unni.is. Tilefni reiðilestursins er frétt, sem birtist í 24 stundum í gær, þar sem fram kemur að Bjarni Kristinsson, framkvæmdastjóri Skífunnar, hyggist laða Starbucks- kaffikeðjuna til landsins. Að mati Egils er það óðs manns æði þegar Kaffitár og Te og kaffi njóta enn mikillar velvildar Reykvíkinga og beinir hann þeim tilmælum til Skífumanna að þeir komi Skífunni á réttan kjöl áður en þeir hella sér út í kaffibisnessinn. Egill minnist þeirra tíma þegar Skífan bauð upp á myndarlegt úrval af klassískri tónlist og djassi en nú sé aðeins í boði reytingur af titlum. Segir hann að það hafi ekki einu sinni verið al- mennilegt úrval af jólaplötum þeg- ar hann kom þar við um daginn. Ættu að einbeita sér að tónlist, ekki kaffi!  Gamansýningin Laddi 6-tugur var sýnd í 80. skiptið í Borgarleik- húsinu á sunnudaginn. Af því tilefni ákváðu vinir Ladda að hrekkja kappann svolítið, og það í miðri sýningunni. Í einu atriðinu, þar sem Laddi er í hlutverki hins óborg- anlega Magnúsar bónda, kom Karl Ágúst Úlfsson eins og skrattinn úr sauðarleggnum í gervi Eyjólfs, bróður Magnúsar. Hvorki Laddi né Steinn Ármann, sem var með hon- um á sviðinu, vissu hvað stóð til og brá þeim því nokkuð. Þeir létu þessa uppákomu þó lítið á sig fá og tókst þeim að spinna bráðfyndið at- riði með Karli, án þess að áhorf- endur tækju eftir nokkru óeðlilegu. Hrekktu Ladda Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „STEMNINGIN í kórnum er mjög góð, það fylgir gospelinu, það er ekki hægt að vera í slæmu skapi þegar maður syngur það,“ segir Matt- hildur Bjarnadóttir, formaður Gospelkórs Jóns Vídalíns. Kórinn er samstarfsverkefni Fjöl- brautaskólans í Garðabæ og Vídalínskirkju og er skipaður um 40 ungmennum á aldrinum 16 til 25 ára. „Þetta er annar starfsvetur kórsins, en ég byrjaði í honum nú í vetur eftir að hafa dvalið sem skiptinemi í Bandaríkjunum,“ segir Matt- hildur, sem er nemi í Kvennaskólanum. „Kórinn er auðvitað að mestu skipaður krökkum úr Fjöl- braut í Garðabæ og úr bæjarfélaginu, en svo slæðast einhverjir aðrir með, svona eins og ég.“ Matthildur segir gospel vera kærleikstónlist sem nái yfir vítt svið. „Við erum að syngja róleg íslensk trúarleg lög, negrasálma og bandarískt gospelrokk. Þannig að það er eitthvað fyrir alla. Kórastarfið er ekki eins formfast og í hefðbundnum kórum og það er mikið af tækifærum fyrir fólk sem vill láta ljós sitt skína og syngja einsöng.“ Kórinn syngur einu sinni í mánuði í kvöld- messu í Vídalínskirkju og segir Matthildur það fá unga fólkið í messu. „Eldra fólk hefur líka gaman að þessu, kraftinum í tónlistinni og gleðina hjá okkur unga fólkinu. Mér finnst að það megi vera fleiri tegundir af tónlist í kirkjum á Íslandi, sálmar eru ekki eina trúarlega tónlist- in sem til er þó mér þyki vænt um þá og njóti þess að syngja þá.“ Auk þess að syngja í kvöldmessum er kórinn með tvenna tónleika í FG á ári, um jól og að vori. Nú er einmitt komið að jólatónleikum kórsins sem fara fram í sal Fjölbrautaskóla Garðabæjar á morgun kl. 20 undir stjórn Þóru Gísladóttur. Smáskammtur af hipp hoppi Tómas Oddur Eiríksson byrjaði í kórnum nú í vetur, eftir að hafa verið skiptinemi í Suður- Ameríku á seinasta ári. „Ég hef alltaf haft mik- inn áhuga á söng og þótti því upplagt að ganga í kórinn sem hefur bara gert mér gott. Ég labba út fullur af orku og gleði eftir hverja æfingu,“ segir Tómas sem er 19 ára nemi við FG. Efnisskráin á tónleikunum annað kvöld verður blönduð að sögn Tómasar. „Við syngjum sálma, jólalög og gospellög. Svo erum við líka með smá nútíma gospeltónlist með smá skammt af hipp hoppi.“ Borgardætur mæta einnig og syngja með kórnum tvö jólalög. „Þær báðu um að fá að koma fram með okkur, sem er mikill heiður. Ein Borgardætra á son í kórnum, hún mætti í messu þar sem við sungum og vildi endilega syngja með okkur á tónleikum,“ segir Tómas. Það kostar 1.000 kr. inn á jólatónleikana og mun allur ágóði renna til fræðslustarfs Freyju Haraldsdóttur. „Kórinn ákvað að ágóðinn myndi renna til góðgerðarstarfs og völdum við að hafa það innan bæjarfélagsins. Þar sem við erum með svona mikla kjarnakonu í bænum er upplagt að styrkja hana. Freyja var líka nemi í FG og það er frábært að geta lagt henni lið í fræðslustarfinu.“ Orka og gleði í gospelinu Gospelkór Jóns Vídalíns heldur jólatónleika í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ Morgunblaðið/Golli Umkringt jólatré Gospelkór Jóns Vídalíns er skipaður ungmennum á aldrinum 16 til 25 ára og eru flestir nemar við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.