Morgunblaðið - 19.12.2007, Side 54
54 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
BÓKIN The Chalet Girl eftir Kate Lace til-
heyrir Little Black Dress-bókunum, en það
er bókaklúbbur í Bret-
landi sem gefur út róm-
antískar bækur ætlaðar
konum í yngri kantinum.
The Chalet Girl er ást-
ar- og örlagasaga ungrar
konu, eins og flestar
bækurnar sem koma út
hjá Little Black Dress.
Þar segir frá hinni ungu
Millie Braythorpe sem
fær sér vinnu á skíða-
gistiheimili í Frakklandi til að forða sér frá
fjölskyldunni og slæmum minningum. Þar
ber að garði gest nokkurn, hinn mynd-
arlega Luke, og laðast þau strax hvort að
öðru. Sú hrifning leiðir þó til allskonar
vandræða og Millie leggur aftur á flótta.
Luke hefur þó uppi á henni og eftir að alls
kyns misskilningur er leiðréttur ná þau
saman. Millie á þá eftir að sættast við fjöl-
skylduna sem er ekki jafnauðvelt.
Bókin byrjar ágætlega, virðist ætla að
fara í áttina að skemmtilegum breskum
konubókum í kaldhæðna stílnum, í anda
höfunda eins og Sophie Kinsella og Marian
Keyes, en síðan lætur höfundurinn drama-
tíkina taka yfir og undir lokin er bókin orð-
in svo útþynnt af ástarsöguklisjum að hún
er varla lesandi lengur. Kom því ekki á
óvart þegar í ljós kom að Kate Lace heitir í
raun Catherine Jones, og hefur skrifar und-
ir því nafni rauðar ástarsögur um nokkurt
skeið.
The Chalet Girl er ekki nægilega heil-
steypt bók og raunveruleikann vantar. Lík-
lega eiga fæstar ungar konur eftir að geta
samsamað sig lífi aðalsögupersónunnar,
sem er ókostur er kemur að slíkum bók-
menntum. Bókin var samt ágætis afþreying
í flugi til og frá Bandaríkjunum og krafðist
sem betur fer ekki meiri lestrartíma en
flugferðirnar tóku.
Fín í flugið
The Chalet Girl eftir Kate Lace. Little Black
Dress gefur út. 312 síður.
Ingveldur Geirsdóttir
ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. T is for Trespass – Sue Grafton
2. The Darkest Evening of the Ye-
ar – Dean Koontz
3. For One More Day – Mitch Al-
bom
4. Double Cross – James Patterson
5. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
6. World Without End – Ken Fol-
lett
7. Stone Cold – David Baldacci
8. The Choice – Nicholas Sparks
9. Playing for Pizza – John Gris-
ham
10. Home to Holly Springs – Jan
Karon
New York Times
1. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
2. The Kite Runner – Khaled Hos-
seini
3. The Uncommon Reader – Alan
Bennett
4. On Chesil Beach – Ian McEwan
5. Sepulchre – Kate Mosse
6. Cranford – Elizabeth Gaskell
7. The Ghost – Robert Harris
8. A Spot of Bother – Mark Had-
don
9. Half of a Yellow Sun – Chimam-
anda Ngozi Adichie
10. Atonement – Ian McEwan
Waterstone’s
1. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
2. Wintersmith – Terry Pratchett
3. Divine Evil – Nora Roberts
4. Shopaholic & Baby – Sophie
Kinsella
5. Cross – James Patterson
6. Borat: Touristic Guidings to
Glorious N – Borat Sagdiyev
7. Anybody Out There? – Marian
Keyes
8. Ultimate Hitch Hiker’s Guide –
Douglas Adams
9. 501 Must–See Destinations –
Bounty Books
10. The Moomin Book 2 – Tove
Jansson
Eymundsson
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
FÁAR bækur hafa vakið annað
eins umtal á síðustu árum og
barnabókin The Invention of
Hugo Cabret, sem margir hafa
tjáð sig um á netinu. Bókin sú, ríf-
lega 530 síður, er líka nánast lista-
verk sem nær að sameina mynda-
sögu og ævintýri í texta.
Ýmsir hafa glímt við að steypa
þessum tveimur hefðum saman,
myndasögu og sögu sem sögð er
með orðum, en engum tekist eins
vel upp og Brian Selznick í barna-
sögunni The Invention of Hugo
Cabret. Í henni eru myndir og
texti í jafnvægi – hver mynd hefur
hlutverki að gegna, þokar sögunni
áfram, og textinn kemur til sög-
unnar þegar ekki er nóg að hafa
myndir. Gott dæmi um þetta er
myndaröð sem hefst á fyrstu síðu
og spannar 21 opnu þar sem sjón-
arhorninu er beitt á meist-
aralegan hátt og nærmyndum
ekki síður (Þessa myndaröð má
sjá á vefsetri bókarinnar, thein-
ventionofhugocabret.com).
Sagan segir frá drengnum
Hugo Cabart sem býr í starfs-
mannaaðstöðu á brautarstöð í
París. Frá því að faðir hans fórst í
eldsvoða hefur hann búið hjá
drykkfelldum frænda sínum, en
þar er komið í sögunni að frænd-
inn er horfinn, hefur ekki skilað
sér heim í talsverðan tíma, og
Hugo litli verður því að bjarga sér
upp á eigin spýtur, lifa á smá-
þjófnaði og snapi. Klukkurnar á
lestarstöðinni voru í umsjá frænd-
ans og Hugo heldur þeim gang-
andi til að koma í veg fyrir að upp
komist að hann sé einn, enda kýs
hann frekar öryggið á stöðinni en
að vera hugsanlega settur í fóstur.
Fleira kemur þó til – Hugo hef-
ur nefnilega í hyggju að end-
urbyggja upptrekkt vélmenni sem
faðir hans var að sýsla við áður en
hann fórst. Illa fer þegar hann
stelur varahlutum í vémennið frá
gömlum manni sem rekur búð-
arholu á stöðinni, en sá gamli er
ekki allur þar sem hann er séður.
Ekki bara saga af mun-
aðarlausum pilti
Selznick er ekki bara að segja
sögu af munaðarlausum pilti,
heldur er hann að segja sögu af
brautryðjendum í kvikmyndalist
sem veittu töfrum inn í kvikmynd-
ir, sem beittu sjónhverfingum til
að skapa ævintýraheim á hvíta
tjaldinu, brautryðjendum í brell-
um eins og Georges Méliès, en
honum bregður einmitt fyrir í
myndinni. Méliès var upphafs-
maður margra af helstu tækni-
brellum árdaga kvikmyndalist-
arinnar og þekktur frumherji í
gerð ævintýramynda, hryllings-
mynda og vísindaskáldsagna.
Hans frægasta mynd var Ferðin
til tunglsins (Le voyage dans la
Lune, 1902), en í þeirri mynd er
hið fræga skot er eldflaug stingst
í auga karlsins í tunglinu. Méliès
varð gjaldþrota og starfaði við
það síðustu æviárin að selja leik-
föng á lestarstöðinni í Montp-
arnasse, en stærstur hluti filmu-
safns hans var bræddur í skóhæla
fyrir franska hermenn í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Forvitnilegar bækur: Saga í myndum og orðum
Töfrar fyrri tíma
Afreksmaður Brian Selznick tekst það sem svo mörgum hefur mistek-
ist í bókinni The Invention of Hugo Cabret.
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr
Die Hard 4.0 í fantaformi.
Sími 564 0000Sími 462 3500
Sími 551 9000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Run fat boy run kl. 5:50 - 8 - 10:10
Saw IV kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Butterfly on a Wheel kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 14 ára
Dan in real life kl. 5:45
La vie en Rose kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 4 - 6 - 8
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 -10
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 -10 LÚXUS
Bee Movie m/ísl. tali kl. 4 - 6
Duggholufólkið kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Hitman kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Dan in real life kl. 10
MYND SEM ENGIN
ÆTTI AÐ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
ÚR BÝFLUGNABÚINU
Í BULLANDI VANDRÆÐI
NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI ER SENDUR
Á AFSKEKKTAN SVEITABÆ TIL AÐ EYÐA JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM ÞAR SEM HANN VILLIST, LENDIR Í SNJÓBYL
OG HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN OG DULARFULLAR VERUR OFL!
JÓLAMYNDIN
2007
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
Þetta er frumleg, úthugsuð,
vönduð og spennandi barna-
og fjölskyldumynd, besta
íslenska myndin af sínu tagi.
eee
- S.V., MBL
„Duggholufólkið bætir
úr brýnni þörf fyrir
barnaefni”
eeee
- B.S., FBL
„...ein besta fjölskyldu-
afþreyingin sem í boði
er á aðventunni”
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM OG HÁSKÓLABÍÓI
Hvað myndir þú gera til að
vernda fjölskyldu þína?
Pierce Brosnan heldur
hjónunum
Gerard Butler (úr 300)
og Mariu Bello í heljar-
greipum!
En ekki er allt sem sýnist
í þessari mögnuðu
spennumynd!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eee
- H.J. MBL
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíó, Smárabíó og Regnboganum ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 6
Duggholufólkið kl. 6
Run fatboy run kl. 8 - 10
Saw IV kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
eee
GÓÐ SKEMMTUN
FYRIR YNGSTU BÖRNIN
- S.V. MBL