Morgunblaðið - 19.12.2007, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2007 57
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
ÞESSI síðasta vika fyrir jól hefur
byrjað vel fyrir íslenska kvikmynda-
gerðarmenn. Á síðu 50 er fjallað um
för Raquelu drottningar til Berlínar
þar sem hún keppir í Panorama, þar
sem frumsýndar verða 18 myndir
sem talið er að gætu átt erindi á
„arthouse“-markaðinn.
Aðalhátíð þess markaðar er ein-
mitt Sundance-hátíðin í Park City í
Utah og þar verða tvær íslenskar
stuttmyndir sýndar; „Bræðrabylta“
eftir Grím Hákonarson og „Hund-
ur“ eftir Hermann Karlsson, en há-
tíðin fer fram í janúar.
Misskilja Ítalar Erlend?
Loks heldur velgengni Mýr-
arinnar áfram, en Ingvar E. Sig-
urðsson vann Napapijri-verðlaunin
fyrir túlkun sína á Erlendi á ítölsku
hátíðinni Courmayeur Noir Festival.
Þema hátíðarinnar er spenna, njósn-
ir og „film noir“-myndir og leiðir
hún saman fólk úr heimi kvik-
mynda, bókaútgáfu og sjónvarps-
framleiðslu sem vinnur með þessi
þemu.
Á vef hátíðarinnar (noirfest.com)
má finna viðtal við Ingvar þar sem
hann ræðir um sköpun Erlends fyrir
hvíta tjaldið. Hann segir þar mel-
ankólíu og stillingu vera mikilvæg-
ustu karaktereinkenni Íslendinga
og að þetta séu einnig einkenni á
persónu Erlends. Þá segist hann
hafa getað nálgast mikinn fjársjóð í
sagnaflokk Arnaldar Indriðasonar
um Erlend.
Hann er þó alveg ósammála
ítölskum blaðamanni um að sam-
band Erlends við Evu Lind, dóttur
sína, sé kaldranalegt og segir það
fullt af ást og hlýju, en getur sér til
um að ástæða misskilningsins sé
menningarlegur, Ítalir séu jú upp til
hópa mun opnari og málglaðari en
Íslendingar.
Morgunblaðið/Eyþór
Sólardans Grímur Hákonarson er á leiðinni til Sundance með Bræðra-
byltu, en hún var nýlega gefin út á dvd ásamt fleiri myndum Gríms.
Morgunblaðið/Eggert
Sigursæll Ingvar E. vann á dögunum til Napapijri-verðlaunanna fyrir túlk-
un sína á Erlendi á Courmayeur Noir-kvikmyndahátíðinni á Ítalíu.
Frá Ítalíu til Sundance
BRESKA leikkonan Gemma Arter-
ton verður ein af Bond-stúlkunum í
22. ævintýri njósnarans snjalla –
en sögur eru uppi um að myndin
sjálf muni einfaldlega heita 007.
Lítið er enn vitað um hæfileika Ar-
terton þessarar, enda hennar
fyrsta mynd ekki komin í bíó enn,
en það er stúlknaskóladramað St.
Trinian.
Fregnir á Bretlandseyjum
herma að unglingspiltar þarlendir,
já og jafnvel nokkrir eldri, bíði
fárra mynda með meiri óþreyju –
og eru meðfylgjandi myndir hugs-
anleg skýring á því, þótt vissulega
hljóti uppreisn ungmeyjanna gagn-
vart gerspilltu valdakerfi gagn-
fræðaskólans að vera aðalástæðan.
Ný Bond-
stúlka
St. Trinian’s Gemma Arterton,
Caterina Murino og Talulah Riley
smella fingurkossi á ljósmyndara.
Gemma Arterton Ekki er enn víst
hvort hún verði aðal-Bondstúlkan,
enda sjaldnast ein báran stök þar.
/ AKUREYRI/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„BEOWULF ER
EINFALDLEGA
GULLFALLEG...“
ENTERTAINMENT WEEKLY
2 VIKUR Á TOPPNUM Á ÍSLANDI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Leiðinlegu
skóla stelpurnar
- sæta stelpan
og 7 lúðar!
Amanda Bynes úr She‘s The Man er
komin aftur í bráðskemmtilegri mynd
eeee
„American gangster er
vönduð og tilþrifamikil“
- S.V., MBL
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd
í anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
„Óskarsakademían mun standa á
öndinni... toppmynd í alla staði.“
Dóri DNA - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
JÓLAMYNDIN Í ÁR
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
HITMAN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA
JÓLAMYNDIN 2007
SÝND Í ÁLFABAKKA
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR
SLÁ Í GEGN SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
FRED CLAUS kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 8 LEYFÐ
DAN IN REAL LIFE kl. 10 LEYFÐ
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
FRED CLAUS kl. 3:30D - 8D - 10:30D LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 3:30D - 6D LEYFÐ DIGITAL
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 8:30 LEYFÐ DIGITAL
BEOWULF kl. 5:303D - 83D - 10:303D B.i. 12 ára 3D-DIGITAL
AMERICAN GANGSTER kl. 10:30 B.i. 16 ára
FRED CLAUS kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
BEE MOVIE m/ensku tali kl. 10 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SIDNEY WHITE kl. 8 LEYFÐ
eee
GÓÐ SKEMMTUN
FYRIR YNGSTU BÖRNIN
- S.V. MBL
Móhella 1 - Hafnarfirði
10.665 fm byggingarlóð
Til sölu er lóðinni númer 1 við Móhellu í Hafnarfirði sem 10.665 m2 að stærð. Lóðin er tilbúin til
uppbyggingar og hefur aðkomu bæði frá Móhellu og Íshellu auk þess að vera vel sýnileg frá
Reykjanesbrautinni.
• Inneign í gatnagerðargjöldum er 4.000 fm.
• Nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,7.
• Leifilegt er að byggja 7.465 m2 hús á lóðinni.
• Ógreidd eru gatnagerðargjöld af 3.466 m²
• Nýr eigandi fær ógreiddu gjöldin á gamla verðinu frá Hafnarfjarðarbæ á kr. 8.813 í stað kr.
17.626.
Hér er á ferðinni framtíðarbyggingarstaður fyrir hverskonar atvinnurekstur. Þetta er
eign sem getur hentað vel sem höfuðstöðvar fyrir stórt fyrirtæki og eða hýst mörg
smærri fyrirtæki. Óskað er eftir tilboði í lóðina.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson
framkvæmdastjóri Húsakaupa í síma 617-1800.
Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali
Jón Gretar Jónsson
Sölumaður
GSM. 617-1800