Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is VEÐMÆTI sem einkaaðilar og sveitarfélög eiga í orkufyrirtækjum rýrna ef frumvarp iðnaðarráðherra um auðlindir og orkumál verður að lögum. Þetta kemur fram í umsögn- um Viðskiptaráðs Íslands og Sam- orku um frumvarpið en margir um- sagnaraðilar leggjast gegn því að eignarhald á orkuauðlindum verði einskorðað við opinbera aðila, þ.e. ríki og sveitarfélög. Samkvæmt frumvarpinu á að að- skilja sérleyfisþætti frá samkeppn- isþáttum til að tryggja að allir raf- orkuframleiðendur sitji við sama borð þegar kemur að samskiptum við fyrirtæki sem dreifa raforku. Í greinargerð með frumvarpinu er bent á að vel sé hægt að koma á samkeppni í vinnslu og sölu á raf- orku en að hins vegar búi dreifi- kerfið við „náttúrulega einokun“. Dreifiveitur, sem eru t.d. Orkuveita Reykjavíkur, RARIK og Hitaveita Suðurnesja, eiga því skv. frumvarp- inu að vera að lágmarki 2⁄3 hlutum í eigu opinberra aðila og þeim er ætl- að að flytja og dreifa rafmagni óháð því hver framleiðir það. Þessi fyr- irtæki munu þá ekki geta sinnt samkeppnisstarfsemi, þ.e. fram- leiðslu á rafmagni, og færa þarf slíka þætti inn í sjálfstæð fyrirtæki. Þetta nær þó ekki til lítilla orkufyr- irtækja sem eru með árlegar rekstrartekjur innan við 2 milljarða króna. Vilja ekki opinbert eignarhald Samkeppniseftirlitið fagnar í um- sögn sinni þessum aðskilnaði á sam- keppnis- og sérleyfisþáttum. Það gera jafnframt Samtök iðnaðarins en Samorka og Viðskiptaráð hafa áhyggjur af því að þetta feli í sér óhagræði og RARIK heldur því fram að aðskilnaðurinn sé flókinn og að undanþágur flæki málið. Allir þessir umsagnaraðilar, auk Landssamtaka raforkubænda, eru lítt hrifnir af ákvæðum um opinbert eignarhald. „Í stað þess að setja niður skýrar lögboðnar leikreglur á orkumarkaði með hagkvæma og sjálfbæra nýtingu, hámörkun arð- semi, virkt eftirlit og vernd orku- kaupenda að leiðarljósi er leitað í smiðju þeirrar kenningar (hverrar ágæti hefur verið hrakið af biturri reynslu) að opinbert eignarhald og forræði sé nauðsynlegt til verndar almannahagsmuna og frekari framþróunar,“ segir í umsögn Við- skiptaráðs en þar kemur einnig fram að með frumvarpinu sé verið að treysta eignarrétt hins opinbera yfir orkuauðlindum. Einkennilegt sé að álykta að það sé grundvall- arforsenda áframhaldandi mark- aðsvæðingar raforkugeirans. Í umsögn Samorku kemur jafn- framt fram að erfitt sé að réttlæta slíka skerðingu á verðmætum sveit- arfélaganna enda minnki virði dreifiveitnanna mjög verði frum- varpið að lögum. 100 ár fremur en 65 Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ríki og sveitarfélög megi ekki framselja eignarrétt á vatni sem hefur að geyma virkjanlegt afl um- fram 7MW. Upphaflega var ætlun iðnaðarráðherra að hafa mörkin við eitt megavatt og lágmarkið hefur því hækkað talsvert. Margir um- sagnaraðilar leggjast alfarið gegn þessu ákvæði og vilja að hægt sé að framselja eignarréttindin varan- lega. Norðurorka telur mörkin of lág og er jafnframt meðal þeirra sem gagnrýna harðlega að afnota- rétturinn eigi aðeins að ná til 65 ára. Hundrað ár eru nefnd sem æskilegra viðmiðunartímabil, ef á annað borð eigi að takmarka fram- salsrétt á þennan hátt. Frestur til að skila inn umsögn- um um frumvarpið til iðnaðarnefnd- ar Alþingis er runninn út en hugs- anlega eiga einhverjar umsagnir eftir að berast, t.d. frá Hitaveitu Suðurnesja, sem ljóst er að þarf að skipta upp verði lögin samþykkt. Verðmæti rýrna Umsagnaraðilar um orkufrumvarp iðnaðarráðherra ósáttir við fyrirætlun um opinbert eignarhald á auðlindum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Opinber orka Dreifiveitur, s.s. Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suð- urnesja, munu þurfa að vera að 2⁄3 hlutum í eigu opinberra aðila. Í HNOTSKURN » „Með umræddum ákvæðumer verið að festa í sessi um- fangsmikla aðkomu opinberra aðila að raforkumarkaði. Það samrýmist ekki þeirri þróun sem hefur átt sér stað í þátttöku opinberra aðila að atvinnulífinu þar sem afl einkageirans hefur verið nýtt í þágu upbyggingar atvinnulífsins,“ segja Samtök at- vinnulífsins. » „Landssamtök raf-orkubænda telja lagasetn- ingu í þá veru að tryggja rík- isvaldinu yfirráð orkuauðlinda með öllu óþarfa og einungis undirstrika stöðu sterks rík- isvalds, þar sem reynt er að tryggja stöðu hins opinbera gagnvart einstaklingsréttinum.“ » „Verði frumvarpið að lög-um er ljóst að ríkið situr í öllum sætum við orkuborðið, sem valdhafi til reglusetninga, eftirlitsaðili og eigandi,“ segir Viðskiptaráð. » „Samkeppniseftirlitið telurað frá sjónarmiði samkeppn- islaga hnígi engin sérstök rök að opinberu eignarhaldi á fé- lögum sem stunda sérleyf- isstarfsemi. Frá almennu sjón- armiði má segja að heppilegast sé að eignarhald þeirra sé sem dreifðast þannig að sem flestir aðilar komi að raforkumark- aðinum.“ FRÉTTIR EINAR Kristinn Guðfinnsson, sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, greindi frá því á aðalfundi Lands- sambands kúabænda á Selfossi í gær að kjarnfóðurstollar yrðu felld- ir niður á öllum fóðurblöndum frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins frá og með 1. maí nk. en áfram yrði innheimt óbreytt gjald af fóður- blöndum frá öðrum löndum. Toll- urinn er 3,90 kr/kg af blönduðu fóðri. Þessi breyting verður tíma- bundin til næstu áramóta og ræðst framhaldið af því hvernig samning- ar um gagnkvæmar tollaívilnanir á landbúnaðarvörum þróast á milli Ís- lands og Evrópusambandsins. Í ræðu sinni við setningu fund- arins fjallaði ráðherra um rekstr- arumhverfi landbúnaðarins, vakti athygli á áhrifum alþjóðasamninga og hvernig Svisslendingar hafa brugðist við. „[N]ýverið hafa sviss- nesk stjórnvöld samþykkt að taka upp viðræður við Evrópusambandið um aukið frelsi í viðskiptum með landbúnaðarafurðir. Líklegt má telja að Sviss og Evrópusambandið semji um afnám tolla í viðskiptum sínum á næstu 3-5 árum og verði þannig á undan þeirri aðlögun sem fyrirhuguð er á vettvangi WTO. Þessi staða hefði ekki þótt líkleg fyrir aðeins örfáum árum enda Svisslendingar kunnir fyrir aðgætni þegar kemur að lækkun tolla og opnun markaða í viðskiptum með landbúnaðarvörur. Sviss hefur verið í broddi fylkingar þeirra þjóða sem meðal annarra Íslendingar og Norð- menn skipa og vilja sjá hægfara þróun opnari viðskipta með land- búnaðarvörur á vettvangi WTO og reyndar eru þeir talsmenn þess hóps, svokallaðs G-10 hóps, sem stendur vörð um hægfara þróun í þessum viðskiptum. Þessi stefnu- breyting Svisslendinga gagnvart ESB er því um- hugsunarefni fyrir okkur Ís- lendinga og sterk vísbending um að viðskiptaum- hverfi okkar geti tekið hraðari breytingum á næstunni en við höfðum reiknað með.“ Ráðherra áréttaði að ekki mætti bíða hugsunarlaust eftir því sem verða vildi eða láta alþjóðasamninga þvinga Íslendinga óundirbúið til að- gerða. „Við höfum verk að vinna við að búa okkur undir breytta framtíð. Í þeirri vinnu skulum við byggja á styrkleikum íslensks landbúnaðar og vera vakandi yfir þeim tækifær- um sem framtíðin hefur upp á að bjóða.“ Möguleikar í stöðunni Ráðherra sagði að margt benti til að ýmiss konar möguleikar fælust í þeim hræringum sem orðið hefðu á alþjóðlegum matvælamarkaði. Þær kynnu að styrkja hlutfallslega sam- keppnisstöðu íslensks landbúnaðar auk þess sem lægra gengi íslensku krónunnar yki útflutningsmöguleik- ana og bætti almennt samkeppn- isstöðu íslenskrar framleiðslu. „Gleymum því ekki að við erum út- flutningsþjóð og þegar við gerum viðskiptasamninga við önnur ríki eða ríkjasambönd hljótum við ekki síður að hafa þá hagsmuni í huga, en hagsmuni innflutningsins. Þess vegna hef ég lagt á það ofuráherslu að við semjum ekki um einhliða tollalækkanir heldur gagnkvæmar svo að útflutningsgreinar okkar njóti ávinningsins einnig,“ sagði Einar Kristinn Guðfinnsson á aðal- fundi Landssambands kúabænda. Kjarnfóðurstoll- ar felldir niður tímabundið Einar K. Guðfinnsson LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA kynnti á fundi Landssambands kúa- bænda niðurfellingu tolls á kjarnfóð- urblöndu frá Evrópusambandinu. Tollurinn, sem nemur 3,90 kr. fyr- ir hvert kílógramm, verður felldur niður tímabundið, til næstu áramóta. Baldur Benjamínsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúa- bænda, segir muna um þessa lækk- un, þó að verðhækkanir á fóðri dragi úr jákvæðum áhrifum tolla- lækkunarinnar: Verð á blöndunni er nú um 55 kr. fyrir hvert kíló en var um 30 kr. fyrir tveimur árum, að sögn Baldurs, en meðalstórt kúabú kaupir í dag kjarnfóðurblöndu fyrir 2-3 milljónir á ári. Baldur segir lækkuninni m.a. ætl- að að liðka fyrir viðræðum við EES um niðurfellingar tolla á íslenskri landbúnaðarvöru. Munar um þessa lækkun Eflaust væri fulldramatískt að talaum uppreisn en það er ekki laustvið að Alþingi sé farið að standafastar í lappirnar gagnvart framkvæmdavaldinu en það hefur gert und- anfarin ár. Þannig minna þingmenn reglulega á að valdið sé löggjafans og ráðherrarnir verði að gjöra svo vel að hlíta því. Hugmyndir dómsmálaráðherra um að skipta upp lög- reglustjóraembættinu á Suðurnesjum hafa t.a.m. mætt andstöðu þingmanna úr stjórn- arliðinu. Þrír Samfylkingarmenn lýstu miklum efasemdum í vikunni og innan Sjálfstæð- isflokks ríkir heldur ekki eining um málið. Þess vegna verður áhugavert að fylgjast með því hvort lagabreytingar, sem þyrfti að gera, gangi í gegn. Eldveggur eða eldvaldur? Utanríkismálanefnd hefur sýnt hvað mesta sjálfstæðistilburði gagnvart framkvæmda- valdinu í vetur en utanríkisráðherra hefur jafnframt tekið af skarið og boðað stóraukið samráð í málaflokknum. Engu að síður var ekki haldinn sameiginlegur fundur áður en ráðamenn héldu utan á fund Atlantshafs- bandalagsins nú í vikunni. Miðað við við- brögð nefndarmanna má ætla að í framtíð- inni komi ráðherra alltaf fyrir nefndina áður en hann fer á stóra fundi sem þennan. Utanríkismálanefnd leggur til grundvall- arbreytingar á varnarmálafrumvarpinu en hún skilaði áliti sínu á því í vikunni. Frum- varpið sjálft ber vott um þá togstreitu sem hefur verið milli dómsmálaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins. Þannig er hugtakið „varnarmál“ ráðandi í frumvarpinu en minna fjallað um „öryggis- og varnarmál“ enda myndi hið síðarnefnda ná mjög inn á svið dómsmálaráðuneytisins. Ætlunin er að reisa „lagalegan eldvegg“ milli borgaralegra og hernaðarlegra verk- efna. Varnarmálastofnun á að sinna öllu hernaðarlegu samstarfi og verkefnum því tengdum, s.s. samskiptum við NATO og skipulagningu heræfinga hér á landi. Í áliti sínu tekur utanríkismálanefnd undir gagnrýni, sem hefur m.a. komið frá Ríkislög- reglustjóra, um að erfitt sé að draga svo skýr mörk milli borgaralegra og hernaðarlegra verkefna. Borgaralegar stofnanir verði að geta komið að hættumati og utanrík- isráðherra eigi ekki að fara einn með stefnu- mótun í varnarmálum heldur þurfi ávallt að hafa samráð við nefndina. Álit nefndarinnar skerpir á fyrirhugaðri lagasetningu en enn er fjölda spurninga ósvarað. Hvernig geta farið fram heræfingar við landið án þess að borgaralegar stofnanir á borð við Flugstoðir komi eitthvað að þeim, þó ekki sé nema til að tryggja öryggi borg- aralegs flugs? Hvaða stjórn hafa íslensk yf- irvöld á heræfingum hér á landi? Setti NATO fram kröfu um að ratsjárkerfið yrði áfram virkt hér á landi? Rekstrarkostnaður við stofnunina er áætl- aður tæplega 1,4 milljarðar í fjárlögum fyrir 2008 og verður ekki minni á næstu árum. Þetta eru umtalsverðar fjárhæðir og starf- semin verður því að vera vel úthugsuð. Kóngur myndlíkinga Yfir í aðeins léttara hjal. Eins og gengur og gerist með fólk almennt eru þingmenn misgóðir ræðumenn. Sumir hafa auðvitað menntun eða starfsreynslu sem hefur þjálfað þá í ræðulistinni en aðrir koma óreyndir inn og fá sína skólun á þingi. Björn Bjarnason er kannski ekki líflegasti ræðumaður þingsins en sýndi ótrúlega takta á dögunum þegar hann í miðri ræðu tók upp penna og leiðrétti eitthvað á pappírunum sem hann var að lesa af, án þess að fipast í flutningnum. Kolbrún Halldórsdóttir býr að sinni leikhúsreynslu og kann sannarlega að flytja góðar ræður og flokksbróðir hennar Steingrímur J. Sigfússon á mjög góða spretti í ræðustóli, enda maður mikils orðaforða. Guðni Ágústsson er hins vegar ókrýndur kóngur myndlíkinga á Alþingi og ræður hans bera sveitaupprunanum glöggt merki. Og í sveitum er talað um veðrið. „Óveðursský hrannast upp í íslenskum efnahagsmálum. Sá himinn sem til skamms tíma var heiður er nú þungbúinn og dimmur,“ sagði Guðni í um- ræðum um efnahagsmál. Hann talaði um krappa lægð í banka- og peningamálum, líkti lánsfé við súrefni fyrir fyrirtækin og gerði sjómannamálið að sínu þegar hann lýsti því hvernig þjóðarskútan velktist um í ólgusjó og ölduróti. Skemmtilegar og vel smíðaðar ræður lífga sannarlega upp á þingið. En innihaldið er auðvitað alltaf aðalatriðið. Veðurlýsingar og deilur um eldvegg ÞINGBRÉF Halla Gunnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.