Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Ómar
Setustofan Sófasettið var keypt í Öndvegi. Fyrir ofan sófann er málverk eftir Tolla og hitt verkið er eftir Dagmar Agnarsdóttur.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Við keyptum húsið tæplegatíu ára gamalt árið 1994 ogokkur fannst það bara æð-islegt þá með fulninga-
innréttingu í eldhúsi, pílviðar-
handriði og teppi upp stigann og
hlandgulum panel upp um alla veggi.
Fyrir tveimur árum fluttum við út,
gerðum húsið nánast fokhelt að und-
anskilinni veggjaskipan og hönn-
uðum það gjörsamlega upp á nýtt
með aðstoð arkitektsins Rutar Kára-
dóttur. Og nú erum við öll alsæl með
afraksturinn og myndum hvergi vilja
breyta,“ segir húsmóðirin á bænum
þar sem búa nú hjón með börnin sín
tvö, strák og stelpu á unglingsaldri.
Húsið sem um er talað er í Ása-
hverfinu í Garðabæ. Gólfflötur íbúð-
arhúsnæðisins taldi 220 fermetra
auk frístandandi bílskúrs þegar
kaupin voru gerð, en síðan hafa hús-
ráðendur bætt við 15 fermetra sér-
lega notalegri sólstofu.
Húsið er á tveimur hæðum. Neðri
hæðin hýsir stofu, borðstofu, eldhús,
gestasnyrtingu, forstofu og það sem
húsmóðirin kallar draumaþvottahús
en sú efri hýsir fjögur rúmgóð svefn-
herbergi, ekkert undir 15 fermetr-
um, auk rúmgóðrar sjónvarpsstofu,
sem rúmað hefur allt að tíu vinkonur
heimasætunnar í gistingu.
Heimili eru fyrir fólk
Fjölskyldan festi kaup á íbúð í Sjá-
landshverfinu í Garðabæ á meðan á
breytingunum stóð sem síðan var
seld að afloknum framkvæmdum.
„Við lögðum upp með það að hafa
„nýja“ húsið eins tímalaust og frek-
ast væri unnt og allt ætti að vera lok-
að inni í skápum án halda. Ég pakk-
aði flestum gömlu styttunum í kassa
ásamt fötum og fór með í Góða hirð-
inn, auglýsti svo eftir áhugasömum
kaupendum, sem kærðu sig um inn-
réttingar, heimilistæki, ljós og sér-
saumuð þung gluggatjöld í metravís.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa því
hingað kom fólk vopnað tólum og
tækjum sem skrúfaði niður góssið í
heilu vörubílana, sem stóðu hér úti á
hlaði. Það var virkilega gott að losna
við þetta allt á einu bretti fyrir lítinn
pening enda þurfti ég ekkert að hafa
fyrir þessu. Ég vildi reyndar halda í
ákveðna persónulega muni, sem mér
finnst fallegir og hafa tilfinningalegt
gildi því í þessu húsi býr fólk. Heimili
mega auðvitað ekki vera alltof litlaus
og bera þess merki að vera keypt út
úr katalógum,“ segir húsmóðirin og
bendir meðal annars á bókasafnið í
skotinu við stigaopið og eldgamla
mömmu-veggteppið, sem fær að
njóta sín á góðum stað á móti upp-
göngunni. Það fer svo ekki framhjá
glöggum gestum að myndlistaráhugi
hlýtur að blunda í húsráðendum því
á veggjum má sjá verk bæði eftir
Tolla og Línu Rut auk nokkurra
verka eftir myndlistarkonuna Dag-
mar Agnarsdóttur, sem er í miklu
uppáhaldi hjá húsbónda og frú.
Gólfin eru aldrei skúruð
Húsgögn fjölskyldunnar smell-
pössuðu inn í nýja mynstrið, en allt
er við kemur innréttingum hússins
er nýtt. Gráhvíttuð eik og grábrúnar
flísar kallast á í gólfefnum. Hvít há-
glansandi eldhúsinnrétting og dökk-
bæsuð hnota kallast svo á í öðrum
innréttingum í stofu og svefn-
herbergjum. „Mér fannst þessi gólf-
efni gjörsamlega út úr kú í fyrstu, en
eftir að Rut sýndi mér þetta í sam-
hengi sneri hún mér á augabragði.
Ég þori varla að segja það, en ég hef
barasta aldrei skúrað síðan ég flutti
inn. Það er bara moppað yfir annan
hvern dag og allt er fínt.“
Allar innréttingar voru smíðaðar
hjá Smíðaþjónustunni, en auk her-
bergjaskápa, eldhús- og baðinnrétt-
inga hannaði Rut klassískan stofu-
skáp á einn vegginn sem nær fyrir
horn svo og eldhúsborð og viðeigandiGarðstofan Uppáhaldshorn húsmóðurinnar er í garðstofunni, sem byggð var við húsið eftir að fjölskyldan flutti inn.
Eldhúsið Háglanshvít eldhúsinnrétting kallast á við dökkbæsað eldhúsborð og setubekk í stíl.
Viðbrögðin létu ekki á sér
standa því hingað kom
fólk sem skrúfaði niður
góssið í heilu vörubílana,
sem stóðu hér úti á hlaði.
Ánægð með afraksturinn
lifun
26 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ