Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is FERÐAÞJÓNUSTAN á Íslandi heldur stöðugt áfram að vaxa. Jón Karl Ólafsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að viðun- andi arðsemi í greininni sjáist ekki vegna gífurlegra sveiflna í efnahags- lífinu og sérstaklega í gengi krónunn- ar. Samtökin verði að móta stefnu í umræðunni um stöðu krónunnar. Aðalfundur SAF fór fram á Rad- isson SAS Hótel Sögu á fimmtudag. Aðalumræðuefnin tengdust ímynd Íslands og hvert stefndi í því efni, áhrifum af gengi krónunnar á ferða- þjónustu á Íslandi og þeirri spurn- ingu hvort íslensk ferðaþjónusta stæðist gæðakröfur ferðamanna. Ímyndin aðalatriðið Jón Karl segir að viðhorf til krón- unnar verði kannað meðal fé- lagsmanna. Vegna vandamála í efna- hagsmálunum hafi ímynd Íslands veikst og sú staða hafi áhrif á ferða- þjónustuna, því hún selji fyrst og fremst ímynd. Ímyndarnefnd for- sætisráðherra hafi skilað af sér og eftir helgi verði greint frá niðurstöð- um hennar, en þar verði lagðar til ákveðnar áherslubreytingar, einföld- un á skipulagi og fleira sem hjálpi ferðaþjónustunni. Ferðamönnum á Íslandi fjölgaði um 15% frá 2006 til 2007 og á ald- arfjórðungi hefur ferðamönnum fjölgað nánast úr engu í um 485.000 manns 2007, að sögn Jóns Karls. Hann bendir á að ferðaþjónustan sé ein af fjórum meginstoðum efnahags- lífsins með um 12% af útflutnings- tekjunum og áfram megi gera ráð fyrir fjölgun, þó hún verði sennilega ekki nema 3-5% á líðandi ári. Það skýrist meðal annars af því að margir útlendingar hafi komið til landsins undanfarin misseri til að vinna en þeir séu taldir með ferðamönnum sem komi til landsins. Samkeppni við aðrar þjóðir aukist líka og því þurfi ferðaþjónustan að vera á tánum, en tækifærin séu mörg. Veiking krón- unnar geri landið samkeppnishæfara þar sem verðið lækki. Því megi gera ráð fyrir að fjöldi ferðamanna fari yf- ir hálfa milljón á árinu og þeir verði orðnir milljón fyrir árið 2015. Ferðaþjónustan móti stefnu um stöðu krónunnar Morgunblaðið/Arnór Margt að sjá Ferðamenn skoða drangann Karl skammt frá Reykjanesvita. Í HNOTSKURN »Aðalfundur SAF skorar áríkisstjórnina að halda áfram starfi við mótun og eflingu ímyndar Íslands og að það starf verði nýtt til aukinnar landkynn- ingar og stóraukinnar fjárfest- ingar í markaðssókn. »Skorað á stjórnvöld að grípatil aðgerða, annaðhvort í formi eftirgjafar af hlut ríkisins í olíuverði eða með sértækum að- gerðum til handa fyrirtækjum í ferðaþjónustu. UMHVERFISSTEFNA Árvakurs fær sérstaka umfjöllun í Focus, sér- riti um umhverfismál sem fylgir apr- ílhefti tímarits IFRA, alþjóða- samtaka dagblaðaútgefenda og dagblaðaprentiðnaðarins. Samtökin standa m.a. fyrir viðamiklum fagsýn- ingum, rannsóknum og veita iðn- aðinum ýmsa faglega þjónustu. Hægt er að lesa tímaritið á vefslóðinni www.ifram- agazine.com/green. Ólafur Brynjólfsson, umhverfis- og gæða- stjóri Árvakurs, prýðir forsíðu Focus en að- algrein blaðsins fjallar um hvernig sætta má rekstrarleg sjónarmið og umhverfissjónarmið. Þar er bent á að í frétt- um sé mikið fjallað um loftslagsbreytingar og hvernig sé hægt að sporna við þeim. Spurt er hvað dagblöðin sjálf geri í þeim efnum. Út- gefendur dagblaða hvarvetna í heiminum megi eiga von á strangari löggjöf um umhverfismál og dagblöðin finni sig knúin til að draga úr umhverfisáhrifum sem fylgi útgáfunni. Í greininni kemur fram að um- hverfisstefna sé oft nátengd gæða- stjórnun og heilsufarsstefnu fyr- irtækja. Því sé umhverfisstefna oft hluti samþættrar stjórnunarstefnu. Morgunblaðið er nefnt sem dæmi um fyrirtæki sem hafi slíka stefnu og fylgir sérstakt rammaviðtal við Ólaf Brynjólfsson um umhverfisstefnu Morgunblaðsins. Þar kemur m.a. fram að árið 2002 hafi Morgunblaðið fengið ISO 14001- vottun sem varðar strangar kröfur um umhverfismál. Ólafur kveðst telja að ISO 14001 sé ekki síður gæðastað- all en umhverfisstaðall. Hann segir að Morgunblaðið hafi fylgt þessum áfanga eftir með því að setja sér ný markmið í umhverfismálum á hverju ári síðan. M.a. að draga úr magni úr- gangs, hætta notkun skaðlegra efna við framleiðslu og vinna að því að fá vottun norræna Svansins og að geta skartað Svansmerkinu á fram- leiðsluvörum fyrirtækisins. Bygging nýrrar prentsmiðju og kaup á nýrri prentvél fyrir fjórum ár- um auðvelduðu Morgunblaðinu að laga sig að hertum umhverfiskröfum. Nýja prentsmiðjan er mun fullkomn- ari og umhverfisvænni en sú fyrri. Prentvél prentsmiðj- unnar, sem nú er rekin undir merki Lands- prents ehf., hefur sjálf- virkan þvottabúnað sem dregur mikið úr notkun hreinsiefna og bætir mjög starfs- aðstöðu prentaranna. Andrúmsloftið í prent- smiðjunni er betra en var í gömlu prentsmiðj- unni og líkamlegt vinnuálag minna, að sögn Ólafs. Hann segir einnig að ISO 14001- vottunin sé góður grunnur að frekari sókn í umhverfis- og gæða- málum. Þannig hafi Morgunblaðið átt gott samstarf við umhverfisráðu- neytið og umhverfissvið Reykjavík- urborgar hvað varðar umhverfis- og öryggismál og að hafa til reiðu rétta verkferla og verkfæri ef óhöpp kynnu að verða. Ólafur segir einnig að aðrir prent- smiðjueigendur og útgefendur hér á landi, sem hafa áhuga á að byrja með umhverfisstjórnunarkerfi, hafi haft samband við sig. Þeir spyrji allir sömu spurninga: Hvað þetta kosti mikið, hve langan tíma það taki og hver ávinningurinn sé. Ólafur segir að í stuttu máli megi segja að þessar aðgerðir skili sér í lækkun kostnaðar, meiri gæðum og betri vinnuaðstöðu. Hann segir að undirbúningur vott- unar Morgunblaðsins hafi tekið rúm- lega tvö ár sem hafi verið of langur tími að hans mati. Ólafur var beðinn um ráð til þeirra sem ætla að fara út í slíkt umhverf- isverkefni hjá sér. Hann hvetur menn til að fara yfir efnisnotkun og losa sig við það sem er óþarft. Þá er mik- ilvægt að skrá alla ferla. Skoða þurfi meðferð prentpappírs, farfa og prentplatna. Í leiðinni eigi að afla sér öryggisleiðbeininga og útbúa örygg- isgátlista. Síðan þurfi menn að setja sér markmið. Hann segir að gott sé að hafa ráðgjafa sérhæfða í innleið- ingu ISO 9001-vottunar með í ráðum við þessa vinnu. Græn dagblaðaútgáfa Morgunblaðið/Júlíus Í HNOTSKURN »Morgunblaðið fékk ISO14001-umhverfisvottun árið 2002. Fyrirtækið hefur síðan byggt á þeim grunni við frekari þróun umhverfisstefnu fyrirtæk- isins. »Umhverfis- og gæðastjóri Ár-vakurs, Ólafur Brynjólfsson, segir að fyrirtækið keppi nú að því að fá norræna umhverf- isvottun Svans-merkisins og að því að geta sett það á allar fram- leiðsluvörur fyrirtækisins. »Umhverfisstefna Árvakurshefur leitt til sparnaðar á ýmsum sviðum, minni sóunar og minni losunar hættulegra efna. Þá hafa breytingarnar sem fylgdu orðið til þess að bæta vinnuaðstöðu starfsmanna til mikilla muna. Ólafur Brynjólfsson Umhverfisstefna Morgunblaðsins nefnd sem dæmi um fyrir- mynd í fagriti alþjóðasamtaka dagblaðaprentiðnaðarins SAMBAND ungra sjálfstæðismanna afhenti á fimmtu- dag Frelsisverðlaun SUS sem gefin eru til heiðurs Kjartani Gunnarssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins. Að þessu sinni hlutu verðlaunin þau Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmda- stjóri Hjallastefnunnar, og viðskiptaráð Íslands. Að mati SUS hefur Margrét Pála með störfum sínum verið framúrskarandi fyrirmynd öllum þeim sem í krafti eigin hugmyndaauðgi og dugnaðar skapa nýja valmöguleika fyrir meðborgara sína og stuðla þannig að bættu samfélagi. Það er afrek Margrétar Pálu að bjóða upp á raunverulegan valkost í menntakerfinu, segir meðal annars í umsögn SUS. Viðskiptaráð Íslands fagnaði á síðasta ári því að 90 ár eru liðin frá stofnun samtakanna. „Samtökin hafa frá stofnun verið vettvangur þar sem ríkt hefur trú á mark- aðsbúskap og athafnafrelsi. Á síðustu árum hefur við- skiptaráð verið mikill aflvaki nýrra hugmynda um hvernig unnt sé að auka hag íslensku þjóðarinnar. Metnaðarfullar tillögur ráðsins hafa vakið verðskuld- aða athygli og verið kveikja málefnalegrar umræðu um nýjar og frumlegar hugmyndir,“ segir m.a. í umsögn. Frelsisverðlaun SUS voru afhent í fyrsta skipti árið 2007. Stjórn SUS ákvað þá að nefna þau eftir Kjartani Gunnarssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæð- isflokksins, til að heiðra það mikla starf sem hann hefur skilað til þess að auka frelsi og bera út hugmyndir frjálshyggjunnar. Margrét Pála og viðskiptaráð fengu viðurkenningu SUS Frelsi Þórlindur Kjartansson, formaður SUS, Erlendur Hjaltason, formaður viðskiptaráðs, Margrét Pála Ólafs- dóttir, stofnandi Hjallastefnunnar, og Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. ENN DREGUR saman með kynj- unum hvað ævilengd snertir og lifa konur nú að meðaltali 3,6 árum leng- ur en karlar, samanborið við sex ár á sjöunda og áttunda áratugnum. Ís- lenskir karlar verða nú karla elstir í heiminum, á sama tíma og nokkrar þjóðir eru nú komnar fram úr Íslandi í meðalævilengd kvenna, s.s. Japan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands, en þar segir að íslenskir karlar geti nú vænst þess að verða 79,4 ára gamlir, konur 82,9 ára. Segir þar einnig að á undanförn- um áratugum hafi dregið nokkuð saman með kynjunum í meðalævi- lengd, þróun sem einnig megi greina annars staðar í Evrópu, einkum á Norðurlöndunum. Að Íslandi frá- töldu sé munurinn á Norðurlöndun- um minnstur í Svíþjóð, eða 4,4 ár. Á vefsíðu hagstofunnar kemur einnig fram að lengi vel hafi lífslíkur íslenskra kvenna verið hærri en ann- ars staðar í heiminum, en að nú lifi konur nokkurra þjóða lengur en kynsystur þeirra á Íslandi. Þetta eigi einkum við um Japan, þar sem meðalævilengd kvenna sé nú 86 ár. Árið 2007 dóu 1.942 einstaklingar með lögheimili á Íslandi, 1.002 karlar og 940 konur. Dánartíðni var 6,2 á hverja 1.000 íbúa, en til samanburð- ar fæddust 4.560 börn á Íslandi í fyrra, 2.359 drengir og 2.201 stúlka. Það voru fleiri börn en ári áður, en þá fæddust hér 4.415 börn. Íslenskir karlar lifa lengst STARFSEMI og afrakstur voru Ríkisendurskoð- un hagfelld á árinu 2007,“ segir Sigurður Þórðar- son ríkisendur- skoðandi í for- mála ársskýrslu Ríkisendurskoð- unar fyrir 2007. Í lok seinasta árs sýndi höfuðstóll 45,8 milljóna kr. af- gang, sem er 11% af fjárheimild ársins. Tekjuafgangur á árinu var sjö milljónir. „Ástæða þessarar uppsöfnunar er sú að ekki hefur verið ráðið í öll störf sem losnað hafa eða gert var ráð fyrir vegna fyrirhugaðra viðbót- arverkefna. Minna vinnuframlagi hefur verið mætt með aukinni skil- virkni starfsmanna. Miðað við fjár- lagagrunn 2008 munu uppsafnaðar fjárheimildir ekki vera nýttar og mun ég óska eftir því við Alþingi að ónýttar fjárheimildir fyrri ára lækki um 30 [milljónir kr.]. Að teknu tilliti til þess verða þær innan þeirra 4% marka sem reglugerð um fram- kvæmd fjárlaga kveður á um,“ segir Sigurður. Hagfelld starfsemi Uppsafnaðar fjárheimildir ekki nýttar Sigurður Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.