Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Ómar
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu var kölluð á vettvang í lyfjaversl-
un á Smáratorgi síðdegis í gær eftir
að maður kom þar hlaupandi inn með
annan á hælunum og virtist ósætti
með þeim. Talið er að sá fyrrnefndi
hafi verið að flýja hinn síðarnefnda,
en sá greip dúkahníf í versluninni og
ógnaði hinum.
Ekki var um ránstilraun að ræða.
Báðir mennirnir voru handteknir, og
einnig kona sem talin er tengjast
málinu, samkvæmt upplýsingum
lögreglu.
Ógnaði
manni
Greip til hnífs á
Smáratorgi
2 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
STURLU Jónssyni, talsmanni vöru-
bílstjóra, og Kristjáni Möller sam-
gönguráðherra ber engan veginn
saman um gagnsemi fundar sem að-
ilar áttu í gær. Sturla segir fundinn
hafa verið gagnslausan, en Kristján
er því ósammála.
Fimm vörubílstjórar og atvinnu-
rekendur funduðu með ráðherra í
gær vegna laga um hvíldartíma bíl-
stjóra sem þeir sætta sig ekki við.
Fyrir brot á hvíldartíma hafa bíl-
stjórarnir verið sektaðir, allt upp í
hálfa milljón króna, að sögn Sturlu.
Hann segir að sektirnar snúi að rík-
issaksóknara og samgönguráðherra
hafi sagt að hann ætlaði að mælast
til þess að menn yrðu ekki sektaðir
á meðan málið væri í vinnslu. Krist-
ján segir þetta ekki rétt skilið hjá
Sturlu. „Við tókum það skýrt fram
að við gætum ekki gert svona hluti
og þetta eru geggjaðar kröfur,“ seg-
ir Kristján. „Það er ekki hægt að
taka af öll sektarákvæði en hins
vegar sagði ég þeim að það væri
ekkert keppikefli okkar að fá fullt af
sektum inn í ríkissjóð.“
Bílstjórarnir hafa gagnrýnt að
þeir þurfi að endurnýja ökuskírtein-
ið á fimm ára fresti og síðan 2006
hafi þeir auk þess þurft að fara á 35
stunda námskeið sem kosti nú 70
þúsund krónur. Sturla segir að á
fundinum hafi þeir líka bent á að
þeim þætti ekki gáfuleg sú ákvörð-
un að nú væri hægt að fá meira-
prófið 18 ára og hefðu lagt til að
miða ætti við 21 árs aldur. „Hann
tók vel í það,“ segir Sturla um við-
brögð ráðherra.
Kristján segist hafa skýrt bíl-
stjórum frá því sem ráðuneytið
hefði unnið að vegna undanþágna á
reglum fyrir bílstjóra hérlendis.
„Ég hef fengið tillögur frá ASÍ og
SA að undanþágum fyrir breyting-
um í reglugerð um akstur og hvíld-
artíma. Í þessu höfum við verið að
vinna nokkuð lengi og munum skila
inn til Eftirlitsstofnunar EFTA um
miðjan þennan mánuð. Ég afhenti
bílstjórunum þessar tillögur og bauð
þeim upp á að þeir myndu senda
ráðuneytinu athugasemdir.“
Kristján segir að kallað verði í
Vegagerðina til að kanna hvernig
reglum um akstur og hvíldartíma er
framfylgt og hvort fara þurfi betur
yfir þau mál. „Þetta voru hrein-
skiptnar og góðar umræður,“ segir
Kristján.
Fjallaði um undanþágur
við atvinnubílstjórana
Gagnslaus
fundur, segir
Sturla Jónsson
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Akstursmál Ragnhildur Hjaltadóttur ráðuneytisstjóri, Kristján Möller
samgönguráðherra og Sturla Jónsson atvinnubílstjóri funduðu í gær.
ALGJÖRT vetrarríki hefur ríkt á Eskifirði undanfarið,
líkt og víðar fyrir austan, og er það mjög frábrugðið
ástandinu síðustu vetur. Hin síðari ár hefur stundum
reynst erfitt að halda opnu skíðasvæðinu í Oddskarði
vegna snjóleysis en nú þykir mörgum að snjórinn sé
jafnvel orðinn of mikill.
Óvænlegt veður fyrir austan
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Atvinnubílstjórar tepptu umferð um
Ölfusárbrú á Selfossi í gær með því
að aka hægt yfir hana, fram og aft-
ur. Þegar mótmælendur ætluðu að
fara þriðju ferðina greip lögreglan í
taumana og beindi þeim annað.
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
Beðið á
brúnni
LÝSI hf. hefur
þurft að fjar-
lægja glúkósam-
ín úr vörum sín-
um eftir að efnið
var skilgreint
sem lyf hér á
landi. Má nú að-
eins selja vörur
sem innihalda
glúkósamín í apótekum, en ekki í
matvöruverslunum eða heilsuvöru-
búðum.
Glúkósamín hefur verið hluti af
vörutegundinni Lýsi og liðamín sem
innihélt einnig lýsi, ómega-3 fitusýr-
ur, kondróitín og C-vítamín.
Glúkósamín hefur bein áhrif á
uppbyggingu á brjóski, en nú þegar
efnið er skilgreint sem lyf má ekki
selja glúkosamín með öðrum efnum.
Áfram sömu eiginleikar
Hjördís Ingimundardóttir er
vöruþróunarstjóri Lýsis hf.: „Við
höfum breytt vörunni í samræmi við
nýjar kröfur, og inniheldur vöruteg-
undin lýsi og liðamín nú hýalúron-
sýru í stað glúkósamíns,“ segir hún.
„Viðbrögð við nýju samsetningunni
hafa verið mjög jákvæð. Við völdum
gaumgæfilega saman efni svo varan
gæti áfram nýst þeim sem hafa not-
ið eiginleika hennar til þessa. Miklu
virðist skipta að innihaldsefnin
verki saman og veiti þannig bæði
betri og fljótari virkni.“
Með breyttri samsetningu má nú
selja vöruna Lýsi og liðamín í venju-
legum verslunum á ný. Ekkert
glúkósamín er í venjulegu lýsi.
Lýsi fjar-
lægir efni
úr vörum
Glúkósamín skil-
greint sem lyf
BJÖRGUNARSVEITIR frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu komu
karli og konu til bjargar í Esjunni í
gær, en göngufólkið hafði komist í
sjálfheldu á hinni hefðbundnu
gönguleið í Þverfellshorni. Fólkinu
tókst að hringja eftir hjálp þegar það
lenti í vandræðum vegna óviðráðan-
legra aðstæðna á fjallinu og hélt
kyrru fyrir í tvær klukkustundir áð-
ur en hjálpin barst.
Kuldi sótti nokkuð að fólkinu á
meðan það beið en ekkert amaði að
því þegar hjálpin barst.
Fólki hjálp-
að á Esju
♦♦♦