Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 25
Síðastliðið haust var opnuð mótor-
krossbraut fyrir vélhjól á svæði aust-
an við Hellu, nánar tiltekið í Grafar-
nesi við Hróarslæk. Þarna hafa verið
haldnar torfærukeppnir á vegum
Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu í
34 ár samfleytt. Svæðið sem mótor-
krossbrautin er á er í eigu ríkisins og
hefur Landgræðslan umráð yfir því.
Sveitarfélagið hefur landið á leigu og
björgunarsveitin sér um rekstur þess.
Mikil ánægja hefur verið með braut-
ina af hálfu vélhjólamanna og hún ver-
ið óspart notuð í vetur. Greiða not-
endur ákveðið gjald fyrir dagsnotkun.
Nú eru komin upp vandamál á svæð-
inu, þar sem landeigandi á nálægum
bæ sem á hluta þess lands þar sem
torfærukeppnin er haldin, hefur ekki
gefið leyfi fyrir næstu keppni sem átti
að fara fram núna í maí. Krefst hann
þess að mótorkrossbrautinni verði
lokað og hefur björgunarsveitin nú
orðið við því. Máli sínu til stuðnings
segir hann að ekkert sé farið eftir
reglum á svæðinu, vélhjól og fjórhjól
keyri um allt svæðið utan brautar-
innar og spilli landi, ásamt því að girð-
ingar séu teknar niður og hávaða-
mengun sé gríðarleg. Að auki skorti
allt eftirlit með því að farið sé eftir
reglunum og laga þurfi land sem hafi
orðið fyrir skemmdum. Eina vopnið
sem hann hafi til að ná fram endur-
bótum sé að semja um það í tengslum
við leyfi fyrir torfærukeppninni. Svo
er að sjá í framhaldinu hvort 34 ára
saga torfærukeppni á Hellu er á enda.
Talandi um Flugbjörgunarsveitina á
Hellu er nú í bígerð að almannavarna-
nefnd Rangárvalla- og V-Skaftafells-
sýslu byggi upp öfluga aðgerða-
stjórnstöð almannavarna í húsnæði
sveitarinnar á Hellu og vettvangs-
stöðvar verði hafðar að auki á Hvols-
velli, Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjar-
klaustri. Þetta er auðvitað skyn-
samlegt með tilliti til Kötlugoss eða
annarra hamfara, t.d. í Eyjafjallajökli
eða hver veit hvar á þessu eldfjalla-
og jarðskjálftasvæði. Hella stendur
lengra frá hugsanlegum flóðum
vegna þess háttar hamfara en flóð
vestur úr jöklunum eftir farvegi
Markarfljóts og Þverár geta hamlað
samgöngum mikið í austurhluta
Rangárvallasýslu. Stefnt er að undir-
ritun samnings um málið milli björg-
unarsveitanna og almannavarna-
nefndarinnar innan skamms.
Fyrir skömmu var haldin hátíð í
Laugalandsskóla í Holtum. Tilefnið
var tvenns konar, árshátíð og 50 ára
afmæli skólans. Hátíðin hófst á því að
nemendur sýndu fjölbreytt skemmti-
atriði, svo sem frumsamið leikrit um
50 árin, sýndu ólíka dansa sem hafa
verið kenndir í skólanum og fluttu
söngleik. Haft var uppi á þeim nem-
endum sem voru í skólanum fyrsta
skólaárið og þeir boðaðir á hátíðina.
Hluti hópsins sá sér fært að mæta og
allir nutu endurfundanna. Nokkrir
veislugesta komu í ræðustól, ávörp-
uðu hátíðargesti og gáfu skólanum
gjafir. Auk kaffiveitinga sem fram
voru bornar var gestunum boðið að
ganga um skólann og skoða skóla-
bygginguna og ýmis verk nemenda.
Einnig voru til sýnis gamlar myndir
allt frá árinu 1957.
Félag eldri borgara í Rangárvalla-
sýslu heldur uppi öflugu starfi á
þessu ári eins og reyndar undanfarin
ár. Samkvæmt fréttabréfi og tilkynn-
ingum frá stjórninni er aðalfundur á
næsta leiti, tveggja daga sæluferð til
Vestmannaeyja, tölvunámskeið,
messuferðir og kórstarf, að ógleymd-
um spiladögum, útskurði og öðru
föndri sem eru fastir liðir í starfinu. Í
júní verður farið með sjávarsíðunni til
Grindavíkur, stóra ferðin svokallaða
verður í júlí að Gauksmýri, á Vatns-
nesið og síðan á Strandirnar. Í ágúst
verður farið í haustlitaferð og síðar
verður ákveðið hvaða réttir verða
heimsóttar í haust. Eitthvað er ótalið.
Í þessu félagi hlýtur að vera ánægju-
legt að starfa og njóta meðan heilsan
leyfir.
HELLA
Óli Már Aronsson fréttaritari
Morgunblaðið/Óli Már
Flugbjörgunarsveitarhúsið á Hellu Ef að líkum lætur, verður aðgerða-
stjórnstöð almannavarna komið fyrir þar innan skamms.
Rafn Árnason sendir Vísna-horninu „smáhugleiðingu“:
Útigangsmennirnir allir nú frjósa í hel,
ýmsir þó væli og gráti krókódílstári,
síður en svo ég ástandið alvarlegt tel,
aðdáun mína fá ungfrúin Jenný og Kári.
Lögreglustjórinn í hundrað og einum er
hissa,
hefur þó ekki mikið um málið að segja,
þegar útigangsfólkið er alltaf að kúka og
pissa
og afurðum dagsins til nágranna sinna
fleygja.
Hreiðar Karlsson heyrði úrskurð
umhverfisráðherra:
Ráðherrar þola örlög ill,
ótrúlegt hvað þeir fá að bera.
Einmitt það sem hún ekki vill,
aumingja Tóta þarf að gera.
Jón Arnljótsson yrkir um eftir-
lætisumræðuefni landans, krónuna:
Ef þú krónur kaupir
og kastar út í sjá,
þær koma allar aftur,
ætla ég að spá.
Ef þú krónur kaupir
og kastar upp í loft,
þá koma krónur niður,
þú kastað getur oft.
Ef þú krónur kaupir
og kveður síðan prest,
áttu að rekast á hann
aftur fyrir rest.
Arnþór Helgason orti til Birgis
Þórs Árnasonar, sem er „3 ára afa-
ljós, eins og Freysteinn Jóhannsson
orðar það, stórt og bjart og hefur
hlotnast þetta rím“:
Birgir Þór er býsna stór.
Beint hann fór til mömmu sinnar.
Vegna nauðar vildi brauð,
var með rauðar eplakinnar.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af krónu
og afaljósi
BÓTOX-MEÐFERÐ hefur notið vin-
sælda hjá þeim sem telja sig þurfa að
losna við hrukkur en nýleg rann-
sókn sýnir fram á að taugaeitrið í
efninu getur borist til heilans. Vef-
miðillinn forskning.no sagði frá
þessum uppgötvunum í gær og hef-
ur þær eftir tímaritinu Nature.
Bótox inniheldur hið kröftuga
taugaeitur botulinum en eiturefnið
getur lamað vöðva á 4-6 mánuðum.
Með því að sprauta efninu á hrukku-
svæði sléttist úr hrukkunum því
vöðvarnir geta ekki lengur dregist
saman.
Mönnum var þegar kunnugt um
að botulinum getur breiðst út frá
svæðinu þar sem sprautað er en ekki
að það gæti fundið sér leið til heil-
ans. Hins vegar vöruðu heilbrigðis-
yfirvöld í Bandaríkjunum við því í
febrúar sl. að taugaeitur gæti dreifst
út frá sprautusvæðinu.
Breytti ekki hegðun
Rannsóknin var gerð á rottum á
vegum taugasérfræðinga í Písa á
Ítalíu. Taugaeitri A, botulinum, var
sprautað í kinn en eiturefnið er það
sama og notað er í bótoxi. Vís-
indamennirnir undirstrika að rott-
urnar sýndu ekki breytta hegðun í
kjölfar sprautunnar og þeir telja að
lítill skammtur af bótoxi í mönnum
auki ekki hættuna á að skaða heila
að neinu marki.
Botulinum brýtur niður próteinið
SNAP-25 en þremur dögum eftir að
rotturnar höfðu fengið efnið í sig
sáust einmitt merki þess í heilastofni
þeirra sem benti til að hluti taugaeit-
ursins hefði breiðst út.
Botulinum hefur áhrif á tauga-
kerfið og það útskýrir m.a. hvernig
það nær til heilans en rannsakendur
telja að örlítill hluti eiturefnisins
komist til heilans í gegnum tauga-
kerfið. Menn álíta á hinn bóginn að
sú vitneskja geti einnig reynst gagn-
leg. Efnið er notað við meðhöndlun
spastískra hreyfinga og eru leiddar
að því líkur að það geti nýst floga-
veikum því með þessu móti sé hægt
að ná til heilans og draga þannig úr
þeirri auknu virkni einstakra hluta
heilans sem verður við flogaveiki.
Morgunblaðið/Golli
Eftirsóknarvert? Hrukkubaninn bótox nær til heilans í gegnum taugakerfið.
Bótox er talið geta
borist til heilans
Meistaranám í haf- og
strandsvæðastjórnun
Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun
býr nemendur undir að takast á við eitt af mest
knýjandi viðfangsefnum framtíðarinnar, nýtingu
og stjórnun auðlinda.
Kennsla fer fram á Ísafirði við Háskólasetur
Vestfjarða en námsleiðin er í samstarfi við
Háskólann á Akureyri.
Nánari upplýsingar: www.hsvest.is
Umsóknarfrestur: 5. júní 2008
Í samstarfi við:
Lj
ós
m
yn
d:
A
gn
es
G
ei
rd
al
GPS námskeið fyrir göngufólk
Ferðafélag Íslands stendur fyrir gps námskeiði fyrir
göngufólk fimmtudaginn 17. apríl.
Námskeiðið er haldið í FÍ salnum Mörkinni 6 og
hefst kl. 19.
Haraldur Örn Ólafsson fer yfir öll helstu atriði í
notkun gps tækja.
Námskeiðið kostar kr. 2000 fyrir félagsmenn en
kr. 4000 fyrir aðra.
Skráning á skrifstofu FÍ
í síma 568-2533 www.fi.is, fi@fi.is
sími: 568-2533
mb
l
98
96
04