Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 36
Vonsvikinn Forsætisráðherra Makedóníu, Nikola Gruevski, var
vonsvikinn með niðurstöðu leiðtogafundar Atlantshafsbandalag
ÁGREININGUR um nafnið Make-
dónía varð til þess að Makedónía
fékk ekki aðild að Atlantshafs-
bandalaginu á fundi þess í Búk-
arest. Fulltrúar landsins á fund-
inum gátu ekki leynt vonbrigðum
sínum og fullyrða að þessi ákvörð-
un auki ekki öryggi á Balk-
anskaga.
Hvernig getur ágreiningur um
nafn komið í veg fyrir að sjálfstætt
og fullvalda ríki fái aðild að al-
þjóðastofnunum? Til að skilja
þetta þarf að skoða sögu landsins.
Alexander mikli, sem var uppi á
árunum 356-323 f.Kr., var fæddur
í Makedóníu þar sem faðir hans
var konungur. Svæðið sem til
forna var kallað Makedónía nær í
dag yfir þrjú ríki, Grikkland (um
51%), Fyrrum Júgóslavíu lýðveldi
Makedóníu (um 38%) og Búlgaríu
(um 9%). Innan landsins Makedón-
íu líta sumir á héraðið Makedóníu,
sem tilheyrir Grikklandi, sem her-
setið svæði sem eigi í reynd ekki
að tilheyra Grikklandi. Þetta er þó
ekki hin opinbera stefna stjórn-
valda í Makedóníu.
Margir Grikkir telja engu að
síður að íbúar Makedóníu, sem eru
um 2 milljónir talsins, séu haldnir
stórveldisdraumum. Nýleg
ákvörðun stjórnvalda í Makedóníu
að breyta nafni flugvallarins í
Skopje í Flugvöllur Alexanders
mikla hefur ekki orðið til þess að
kæta stjórnvöld í Aþenu.
Makedónía hefur í níu ár átt að-
ild að umsóknarferli Atlantshafs-
bandalagsins og stjórnvöld lands-
ins töldu að á leiðtogafundi
bandalagsins í Búkarest fengju
þeir loks fulla aðild. Grikkir náðu
hins vegar að koma í veg fyrir það.
Fulltrúar Makedóníu gagnrýndu
þessa ákvörðun harðlega og utan-
ríkisráðherra landsins gekk út af
leiðtogafundinum þegar nið-
urstaðan lá fyrir. Makedóníumenn
benda á að friður á Balkanskaga
sé ótryggur. Þessi ákvörðun Nató
bæti ekki ástandið.
Hefur pólitískar
afleiðingar í Makedóníu
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði miður að ekki skyldi hafa
tekist að leysa ágreining Grikkja
Hvers vegna má Makedóní
ekki heita Makedónía?
og Makedóníu um nafn lan
„Þetta gæti haft heilmikla
tískar afleiðingar í för me
Það er líklegt að ríkisstjór
ins, sem var búin að veðja
inngöngu, verði að víkja. Þ
einnig hugsanlegt að Alba
Makedóníu, sem eru mjög
og hafa átt aðild að ríkisst
fari út úr henni.“
Geir sagðist ekki trúa ö
að það væri hægt að leysa
mál. Hann sagði að Tékka
bent á að búið væri að bre
á landi þeirra fjórum sinnu
ustu 15 árum.
36 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FORVARNARDAGURINN
Tilgangur forvarnardags gegnáfengis- og vímuefnaneysluungmenna er að fá fram sjón-
armið unglinganna sjálfra og hlusta
á skoðanir þeirra og reynslu. Upp-
lýsingum er safnað með verkefna-
vinnu og umræðuhópum í ráðstefn-
ustíl, að því er fram kemur í
Morgunblaðinu í gær. Forvarnadag-
urinn var haldinn í fyrradag, þar sem
niðurstöður hans fyrir árið í ár voru
kynntar, að afloknu setningarávarpi
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildar-
forseti kernnslufræði- og lýðheislu-
deildar Háskólans í Reykjavík,
kynnti niðurstöðurnar. Í máli hennar
kom fram að greinilegt er að ung-
lingar vilja verja meiri tíma með for-
eldrum sínum en þeir gera. „Nokkur
samhljómur var um það á ráðstefn-
unni að viðhorf unglinga væri alls
ekki lengur að það sé „hallærislegt
að hafa mömmu og pabba með“ enda
fái ungmenni í dag líklega fæst nóg
af foreldrum sínum. Þeim finnst for-
eldrarnir skemmtilegir og vilja verja
tíma með þeim,“ segir orðrétt í frá-
sögn Morgunblaðsins í gær af For-
varnardeginum.
Þetta eru vissulega jákvæð og
mikilvæg skilaboð frá ungmennun-
um, sem eru nemendur 9. bekkjar
grunnskóla landsins. Það liggur í
augum uppi, að þeim mun betri tíma
sem foreldrar gefa sér til samvista
við börn sín, þeim mun minni hætta
er á því að börnin leiðist út á villi-
götur, ekki síst börn á unglingsárum.
Það ánægjulega í þessum efnum er
hins vegar það, að óskir um auknar
samverustundir skuli koma frá ung-
lingunum sjálfum. Margir hefðu
sennilega getað látið sér detta í hug,
að áhuginn á samverustundunum
væri meiri af hálfu foreldranna en
barnanna. En nú liggur fyrir stað-
festing á því að börnin sjálf vilja
aukna samveru með foreldrum sínum
og fjölskyldu.
Helstu svör unglinganna virðast
gefa tilefni til bjartsýni og að með
sameinuðu átaki fjölskyldna, skóla
og íþrótta- og tómstundaráða verði
hægt að efla forvarnir enn frekar:
Unglingarnir vilja að fjölskyldan
borði oftar saman; þeir vilja njóta
skipulegra samvinnustunda í faðmi
fjölskyldunnar, þar sem er spjallað,
spilað, farið í ferðir, eldað, bakað eða
bara slappað af, samkvæmt því sem
unglingarnir svöruðu þeim spurning-
um sem lagðar voru fyrir þá á liðnu
hausti. Þeir telja einnig að aukin
samvera stuðli að sterkari tengslum
og meiri virðingu milli meðlima
hennar.
Unglingarnir sýndu því einnig
áhuga að foreldrar fengjust til þess
að draga úr vinnu og að skilja vinn-
una eftir þegar heim væri komið.
Nú er það foreldranna að leggja
við hlustir og forgangsraða þannig í
lífi sínu, að samverustundir með
börnunum sitji ekki á hakanum,
heldur njóti forgangs. Slíkar breyt-
ingar, sem fela ekki í sér neinar fórn-
ir, heldur breyttar áherslur og
örugglega aukna ánægju, gætu án
vafa skipt sköpum fyrir ákveðinn hóp
unglinga.
HÆTTULEGAR SKOÐANIR
Það getur verið hættulegt að hafaskoðanir. Reyndar ekki alls
staðar, en í sumum löndum getur
verið afdrifaríkt að segja skoðun
sína. Í fyrradag dæmdi dómstóll í
Peking Hu Jia í þriggja og hálfs árs
fangelsi á þeirri forsendu að hann
skrif hans og ummæli hefðu verið
hvatning til niðurrifs.
Dómurinn er greinilega til þess
ætlaður að þagga niður í Hu, sem
hefur verið ötull talsmaður mann-
réttinda í Kína. Hann hefur hjálpað
alnæmissjúklingum og tekið þátt í
gróðursetningu trjáa til að verjast
uppblæstri.
Hann var handtekinn í desember
vegna sex greina sem hann skrifaði
og viðtala þar sem hann gagnrýndi
kínversk stjórnvöld. Meðal annars
lýsti hann því hvernig lögreglan
pyntaði tvo einstaklinga sem mót-
mæltu þegar heimili þeirra voru gerð
upptæk með ólöglegum hætti í Pek-
ing. Þessar greinar og viðtöl voru
notuð gegn honum í réttarhöldunum.
Kínverjar sögðu þegar þeir sóttu
um að halda Ólympíuleikana á þessu
ári að það myndi stuðla að því að
opna landið og efla mannréttindi. At-
burðir undanfarnar vikur benda ekki
til þess að kínversk stjórnvöld ætli
að standa við þessi fyrirheit. Mót-
mæli eru barin niður af harðfylgi í
Tíbet. Reynt er að þagga niður radd-
ir sem hafa óþægilegan boðskap
fram að færa. Meðferðin á Hu er ef
til vill hálfkák miðað við fyrri tíma en
sýnir engu að síður hversu óviss kín-
versk stjórnvöld eru í sinni sök.
Við undirbúning Ólympíuleikanna,
sem hefjast í ágúst, var ráðist í mikl-
ar framkvæmdir í Peking. Í þessum
framkvæmdum hefur verið gengið
nærri gömlum og rótgrónum húsum
og hverfum í borginni og mikil menn-
ingarverðmæti hafa horfið. Þessar
framkvæmdir hafa iðulega verið í
óþökk íbúanna sem margir hafa verið
þvingaðir til að flytja í úthverfi borg-
arinnar og oft í mun lakari híbýli en
þeir áttu fyrir. Andóf gegn þessum
framkvæmdum hafa stjórnvöld reynt
að kveða niður með ýmsum ráðum.
Nú nálgast Ólympíuleikarnir og
stjórnvöld vilja ekki að blettur falli á
glansmyndina. Það hefur hins vegar
þveröfug áhrif þegar mótmæli eru
kæfð og gagnrýnendum varpað í
fangelsi.
Kínversk stjórnvöld sóttust eftir
að Kína kæmist í sviðsljósið þegar
þau föluðust eftir að fá að halda Ól-
ympíuleikana, en þau geta ekki ráðið
því hvert því er beint. Nú beinist það
að Hu Jia og Zeng Jinyan, konu
hans, sem hefur einnig gagnrýnt
stjórnvöld og situr í stofufangelsi.
Hafa leiðtogar kommúnistaflokksins
hugrekki til að standa við fyrirheitin
um aukin mannréttindi og opnara
samfélag?
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Geir H. Haarde forsætis-ráðherra sagði í um-ræðum á leiðtogafundiNató í Búkarest í gær að
Íslendingar væru nokkuð undrandi
á áherslu Rússa á flug orustuþotna
við Ísland. „Okkur finnst skrýtið að
Rússar skuli
vera senda þess-
ar flugvélar inn
á okkar yfir-
ráðasvæði og
engin skýring
hefur fengist á
þessu.“
Geir sagði að
Bretar og fleiri
hafi verið að
senda þotur á
móti rússnesku flugvélunum og til
að stugga þeim frá. „Þetta minnir
dálítið á gamla daga þegar vélarn-
ar frá Keflavíkurflugvelli voru í
þessu hlutverki. Við getum hins
vegar ekki sagt að þetta sé stór-
kostlegt vandamál og þeir eru ekki
að brjóta nein lög. En okkur þykir
þetta skrýtið og það hefur engin
skýring fengist á þessu.“
Rússum stafar
ekki ógn af Nató
„Ég held að samskipti Rússlands
og Nató séu þokkalega góð. Rúss-
arnir telja að Nató sé á vissan hátt
að þrengja að þeim. Við forystu-
menn Nató teljum hins vegar að
þetta sé alrangt mat. Það stafar
engin ógnun af Atlantshafsbanda-
laginu. Innganga nýrra ríkja í
bandalagið beinst ekki gegn Rúss-
um eða öðrum löndum. Þessi lönd
vilja einfaldlega komast í samfélag
lýðræðisþjóðanna og friðelskandi
landa og telja að þeir séu með því
að tryggja sitt framtíð
Rússar eru hins vegar vi
gagnvart þessu. Ég átti
von á miklu harðari við
Ræddi flug rús
við Ísland á Na
Geir H. Haarde telur að þrátt fyrir ýmis ágreiningsmál
Hófsamur Vladímír Pútín, forseti Rússlands, ræddi við leiðtoga
eníu. Sumir áttu von á að hann myndi nota tækifærið og skamma
Geir H. Haarde