Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 37
Reuters afar sins. ía ndsins. ar póli- eð sér. rn lands- á þessa Það er ananir í g margir, tjóninni ðru en a þetta ar hefðu yta nafni um á síð- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 37 aröryggi. iðkvæmir reyndar ðbrögðum frá Pútín, forseta Rússlands. Mér fannst hann á vissan hátt sýna þessu ákveðinn skilning. Hann benti hins vegar á að það er fjöld- inn allur af Rússum sem býr í Úkraínu. Þeir hafa áhyggjur af þeim.“ Geir sagði að Rússar hefðu hald- ið því fram að það væri óþægilegt fyrir þá að vera með Atlantshafs- bandalagið á þröskuldinum hjá sér. Hann benti á að Norðmenn, sem hafa átt aðild að Nató frá stofnun bandalagsins, ættu landamæri að Rússlandi og þeir hefðu ekki ógnað Rússum á neinn hátt. Viljum eiga góð samskipti við Rússa „Þetta eru breyttir tímar. Rúss- ar eru stoltir, en þeir skynja breytta stöðu. Það er mikilvægt að vera ekki að ögra þeim að óþörfu. Öll ríkin í Nató, Ísland þar með tal- ið, vilja og eiga mjög góð samskipti við Rússa og viðskipti milli land- anna eru mikil, m.a. með olíu, gas og fleira.“ Það mætti kannski draga þá ályktun af stirðum samskiptum Rússa og Nató að samstarf Nató og Rússa væri lítið eða ekki neitt. Geir sagði þetta ekki rétt og benti á að Pútín hefði mætt á leiðtoga- fund Nató í Búkarest og tekið þátt í umræðum í gær. Pútín hefði einn- ig í gær skrifað undir samning við Frakkland og Þýskaland sem felur í sér að Rússar heimila flutning frá Afganistan til þessara landa, bæði í lofti og á landi. „Það má segja að í því felist stuðningur Rússa við það sem er í gangi í Afganistan af hálfu þessara landa,“ sagði Geir og benti á að Rússar hefðu getað hætt við að gera þennan samning ef þeir hefðu verið óánægðir með þær ákvarðanir sem teknar voru á leið- togafundinum. Þeir hefðu hins veg- ar ákveðið að gera það ekki. Rússar eru óánægðir með samn- ing sem Natóríkin hafa gert um hefðbundin vopn í Evrópu og þeir hafa sömuleiðis mótmælt uppsetn- ingu eldflugakerfis í Póllandi og Tékklandi. „Það eru auðvitað ýmis deilumál, en ég held samt að þetta samband við Nató hafi smám sam- an verið að styrkjast. Auðvitað vita Rússar að þeim stafar engin hern- aðarleg ógn af Nató þó að margt fólk í því landi hafi verið alið upp við þá hugsun að Nató beinist gegn þeim.“ Merkilegur fundur Þetta er annar leiðtogafundur Nató sem Geir situr, en hann sótti líka fundinn í Riga. Geir sagðist telja fundinn í Búkarest merkilegri vegna þess að á honum hefðu verið teknar fleiri stefnumarkandi ákvarðanir. Þetta er síðasti leið- togafundur Bush forseta Banda- ríkjanna, en hann var sá þjóðar- leiðtogi sem sótti fundinn í Búkarest sem setið hefur flesta Nató-fundi. Geir sagði að leiðtogafundurinn væri mikilvægur að því að leyti að á honum hefði nást samkomulag um stækkun Nató á Balkanskaga þar sem hefði verið mikil ókyrrð. „Það er ljóst að eftir því sem fyrr- um Júgóslavíu-lýðveldum í banda- laginu fjölgar þeim mun betra er það fyrir þetta svæði. Albanía, sem var á síðari hluta 20. aldar eins konar Norður-Kórea í Evrópu, er núna búin að uppfylla öll skilyrði til að komast í þetta bandalag og það er mjög gott.“ ssneskra flugvéla ató-fundinum Nató og Rússa sé samband landsins við bandalagið að styrkjast Reuters Nató-ríkja sem fundað hafa í Búkarest í Rúm- a þá, en hann var hófsamur í orðum. Búkarest. AP, AFP. | Vladímír Pútín, fráfarandi Rússlandsforseti, ítrek- aði í gær andstöðu Rússa við stækkun Atlantshafsbandalagsins, NATO, og við áætlanir Banda- ríkjamanna um uppbyggingu eld- flaugavarnakerfis í Evrópu. Á hinn bóginn sagði Pútín að hvorki Rússar né evrópskir eða banda- rískir ráðamenn hefðu áhuga á að hverfa aftur til kalda stríðsins, enginn hefði hag af slíku skrefi. Pútín lét þessi orð falla í ávarpi á leiðtogafundi Atlantshafs- bandalagsins í Rúmeníu og sagði að þegar Rússar hefðu dregið her- lið sitt frá Evrópu eftir hrun Sov- étríkjanna, hefðu þeir vænst ein- hvers í staðinn en ekki orðið að þeirri ósk sinni. Á fimmtudag lýstu leiðtogar að- ildarríkjanna yfir stuðningi við áætlanir Bandaríkjamanna um að setja upp „eldflaugaskjöld“ í Pól- landi og Tékklandi en náðu hins vegar ekki samkomulagi um inn- göngu Georgíu og Úkraníu í NATO, þrátt fyrir þrýsting Banda- ríkjastjórnar. Að sögn AP- fréttastofunnar voru Þýskaland og Frakkland í hópi ríkja sem voru andvíg inngöngunni, m.a. vegna þess að Rússar gætu litið á hana sem ögrun. Rússar telja inngöngu þeirra þannig mundu ógna öryggi sínu og sagði Pútín að málið snerist um þá möguleika sem stækkun hern- aðarbandalagsins austur á bóginn að landamærum Rússlands byði upp á, ekki yfirlýst markmið stækkunar. Framlag Rússa til NATO í fram- tíðinni færi eftir því hvort tekið yrði tillit til þessara sjónarmiða þeirra. „Við viljum að það sé hlustað á okkur og við viljum sjá lausn þeirra vandamála sem skilja okk- ur að,“ sagði forsetinn á fund- inum. Þá gagnrýndi Pútín NATO-ríkin fyrir að ná ekki saman um nýja út- gáfu samkomulags frá tímum kalda stríðsins sem felur í sér tak- mörkun á notkun hergagna í Evr- ópu. Útlit fyrir frekari fjölgun Þrátt fyrir andstöðu Rússa sagði Jaap de Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri NATO, engan vafa á að Úkraína og Georgía myndu fá aðild að bandalaginu á næstunni. Útlit er fyrir frekari fjölgun því Albaníu og Króatíu var boðin inn- ganga, á sama tíma og stjórnvöld- um í Makedóníu var sett það skil- yrði, að greitt yrði úr deilunni við Grikki vegna nafns landsins áður en aðildarviðræður gætu haldið áfram. Pútín þótti nú mildari í máli sínu en á öryggisráðstefnu í München í fyrra, þar sem hann gagnrýndi Bandaríkjamenn fyrir að beita valdi við að setja niður alþjóðleg deilumál, og þakkaði nú banda- rískum stjórnvöldum fyrir að hafa hlustað á áhyggjur Rússa af fyr- irhugaðri uppbyggingu eld- flaugavarnakerfisins. Hyggst forsetinn ræða það at- riði á fundi sínum með George W. Bush Bandaríkjaforseta um helgina. Ítrekar andstöðu Rússa við stækkun INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir utanríkis- ráðherra sagði erfitt að meta hversu raunhæfa möguleika Ís- land ætti að komast í örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi framboðið við forystumenn sem sóttu fund Atlantshafsbandalgsins í Búkarest í Rúmeníu. Greidd verða atkvæði um fram- boð í öryggisráðið í október nk. Ingibjörg Sólrún sagðist ekki treysta sér til að spá fyrir um líkur á að Ísland næði kjöri í ráðið. „Þetta mun ekkert skýrast fyrr en í sjálfri atkvæðagreiðslunni vegna þess að þó að við séum kom- in með heilmikið af loforðum, bæði munnlegum og skriflegum, þá er það þannig að maður veit aldrei hvað það heldur vegna þess að þeg- ar til kastanna kemur eru það fastafulltrúarnir í New York sem greiða atkvæði. Þetta er leynileg atkvæðagreiðsla og hvað þeir ná- kvæmlega gera veit enginn,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg Sólrún sagði að ef Ís- land yrði kosið í öryggisráðið yrðu íslensk stjórnvöld að búa sig undir þetta stóra verkefni. Þetta myndi kosta heilmikla endurskipulagn- ingu á utanríkisþjónustu landsins. Ef við kæmumst ekki í ráðið væri framboðið engu að síður búið að skila þeim árangri að málstaður Ís- lands hefði verið styrktur erlendis. Ræddi fram- boð Íslands í öryggisráðið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Haldi matvælaverð áframað hækka eru líkur á aðþær breytingar semurðu á neyslumynstrinu í kjölfar lækkaðs virðisaukaskatts og afnámi vörugjalda af matvælum muni ganga til baka og neytendur í auknum mæli snúa sér að ódýrari matvælum. Velta veitinga- húsanna kann einnig að minnka, eftir því sem neytendur spara við sig. Þetta er mat Emils B. Karls- sonar, forstöðu- manns Rann- sóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bif- röst, sem bendir á veltutölur. „Það virtist sem að þegar virð- isaukaskatturinn var lækkaður og vörugjöld afnumin 1. mars á síðasta ári hafi fólk jafnvel farið að kaupa dýrari mat, því veltan jókst umfram verðlækkanirnar,“ segir Emil. „Á sama hátt má gera ráð fyrir því að verði maturinn dýrari fari neytend- ur að kaupa ódýrari matvæli.“ Emil segir nauðsynlegt að hafa í huga aðstæður á alþjóðlegum mörkuðum þegar lögð er fram gagnrýni á hendur matvöruverslun- um. Hækkun matvælaverðs hér á landi hafi verið í takt við hækkanir á öðrum Norðurlöndum. Hækkanir í Svíþjóð hafi komið einna mest á óvart og að ljóst sé að matvöru- verslunin um allan heim sé að bregðast við aðstæðum. „Ástæðan er hækkanir á matvæl- um á heimsmarkaði. Þetta er svolít- ið svipað og með bensínið. Alþjóð- legir hráefniskaupendur hafa fjárfest í ýmsum hráefnum og veðj- að á að það þau myndu halda áfram að hækka, svo sem verð á kornvör- um og kakói. Þeir hafa talið tryggara að fjár- festa í þessum hráefnum heldur en hlutabréfum, sem hafa farið lækk- andi. Þetta heldur uppi verðinu og sérfræðingar sammála um að neysla á dýrari matvælum sé að aukast mjög mikið, sérstaklega í Asíu.“ Emil segir litlar líkur á að versl- unin færi sér svona ástand í nyt með því að hækka álagninguna. „Það er meiri ástæða til að ætla að verslunin reyni að hækka álagn- ingu þegar verðlag fer lækkandi. Tilhneigingin er að verslun taki frekar á sig hækkanir. Samkeppnin harðnar ef einhver ætlar að fara að notfæra sér það að hækka eitthvað meira, því neytendur fara að velja ódýrari matvæli þegar hækkanir eiga sér stað. Það yrði kannski frek- ar þegar hægir um, að verslunar- aðilar myndu þá frekar fara að hækka álagninguna.“ Erlendir aðilar fylgjast með Emil segir „engan geta sagt til um“ hver áætla megi að álagningin sé á matvöru. Hans mat sé að svig- rúmið til að taka á sig hækkanir um þessar mundir sé „þröngt“. „Það er kannski einkum vegna nýrra kjarasamninga sem komu illa niður á versluninni, vegna þess að í verslununum eru láglaunastörf og það voru þær stéttir sem hækkuðu mest. Ég tel að það sé mjög erfitt fyrir verslunina að taka á sig hækk- anir, þó ekki sé nema út af þessu.“ Inntur eftir því hvort hann telji að matvælaverð sé nú í upphæðum og að það versta verði senn yfir- staðið segir Emil að líkt og með bensínið sé mjög erfitt að spá. „Almenna viðhorfið er að þetta muni standa yfir í nokkurn tíma og að svo komist á einhvers konar jafn- vægi og að á seinna hluta ársins komi þessar hækkanir til með að ganga til baka, ef svo má að orði komast.“ Aðspurður um þær spár úr röð- um stórkaupmanna að matvæla- verð kunni að hækka um 20 til 30% vegna þessara aðstæðna segir Emil að því fari fjarri að allir séu sam- mála því. Sé álagning jafn mikil og í veðri sé látið vaka geti t.d. erlendar ofur- lágvöruverðsverslanir haslað sér völl hér. Hækkanirnar í takt við Norðurlöndin  Breytingar á neyslumynstri matvæla kunna að ganga til baka  Kjarasamningar olía á eld hækkana  Forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar segir ekki búist við 20 til 30 prósenta hækkunum Emil B. Karlsson Í HNOTSKURN »Hlutfall innfluttra matvælaer um 25 til 30%. »Verð á matvöru í mars varum 4% hærra en að með- altali árið 2006. »Þá varði meðalfjölskyldanum 44.167 kr. til matarinn- kaupa á mánuði samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar. »Þessi 4% hækkun felur í sérað matarreikningur fjöl- skyldunnar á mánuði hefur hækkað um 1.766 kr. í mars sl. Aukning Þegar virðisaukaskattur var lækkaður og vörugjöld afnumin 1. mars á síðasta ári virðist sem fólk hafi farið að kaupa dýrari mat. Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.