Morgunblaðið - 05.04.2008, Side 20
20 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
DVERGHAMRAR, sýn-
ing á ljósmyndum Rafns
Hafnfjörð, hefur verið
opnuð á Loftinu í Start
Art á Laugavegi. Rafn
hóf markvisst að mynda
náttúru Íslands 1960, í
þeim tilgangi að kynna
Ísland erlendis, bæði
með ferðabæklingum og póstkortum. Sérstæðar
ljósmyndir hans voru aðaluppistaða Íslandsdeild-
arinnar á heimssýningunni í Montreal 1967, hann
hefur haldið stórar einkasýningar á Kjarvals-
stöðum, í Hafnarborg og víðar auk þess að hafa
átt ljósmyndir á kynningum og viðburðum tengd-
um Íslandi víða um heim.
Myndlist
Rafn Hafnfjörð
sýnir Dverghamra
Rafn Hafnfjörð
BÁSÚNUKÓR, skipaður um
fjórtán básúnuleikurum, leikur
á tónleikum í Grensáskirkju kl.
14 í dag. Þar verður flutt tón-
list eftir bandaríska básúnu-
leikarann Norman Bolter,
meðal annars frumflutt nýtt
verk sem samið var sér-
staklega fyrir þessa Íslands-
heimsókn hans og kallast In
All Hearts. Hann tileinkar
verkið Íslendingum og vináttunni.
Norman Bolter er 53 ára en kominn á eftirlaun
eftir að hafa leikið með Sinfóníuhljómsveitinni í
Boston og Boston Pops í um 30 ár. Öllum er heim-
ill aðgangur að þessum sérstaka viðburði.
Tónlist
Básúnur, básúnur,
básúnur
Norman Bolter
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
„ÞETTA er eitt af viðameiri kór-
verkum klassísku bókmenntanna,“
segir Hákon Leifsson, stjórnandi
Vox Academica, um Requiem eftir
Verdi sem kórinn flytur í Hall-
grímskirkju í dag ásamt úrvalshópi
einsöngvara. „Þetta er sálumessa
sem kom upphaflega til þegar
Verdi reyndi að koma því í fram-
kvæmd að nokkur tónskáld semdu
messu í minningu Rossinis. Hann
skrifaði sjálfur einn kafla í því
verkefni en það gekk hálferfiðlega
að koma því á koppinn.“
Svo fór að Verdi hélt áfram að
vinna með sinn hluta og þegar vin-
ur hans, rithöfundurinn Aless-
andro Manzoni, lést ákvað hann
loks að gera úr því heila sálumessu
og það er það Requiem Verdis sem
tónlistarunnendur þekkja í dag.
Einvalalið í
einsöngshlutverkum
Hákon sérvaldi einsöngvarana
fyrir verkið og fékk þau Kristin
Sigmundsson, Sólrúnu Bragadótt-
ur, Rannveigu Fríðu Bragadóttur
og Gissur Pál Gissurarson til liðs
við sig. „Þau eru öll atvinnusöngv-
arar erlendis nema Gissur. Okkur
langaði til að flytja þetta einu sinni
bara með íslenskum einsöngvurum
og til þess að skapa heild á milli
þeirra ákvað ég að fara þá leið að
fá Kristin, Sólrúnu og Rannveigu
að utan og ég er mjög ánægður
með hvað þau smellpassa saman.“
Á tónleikunum leikur hljóm-
sveitin Jóns Leifs Camerata með
kórnum, en hún er skipuð hljóð-
færaleikurum úr Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. „Til þess að svara
stærri hljómsveit og svo þessari
rómantísku tónlist Verdis lögðum
við áherslu á að stækka kórinn og
erum núna 75,“ segir Hákon. Kór-
inn hefur hingað til talið um fimm-
tíu manns, svo talsvert hefur fjölg-
að í röðum kórfélaga.
Hákon er ekki viss hvort þessi
stækkun kórsins sé til frambúðar.
„Hvert verkefni fyrir sig krefst
ákveðinnar stærðar af kór. Svo
hafa sum verk meira aðdráttarafl
en önnur fyrir kórfólk. Þetta er
allt meira og minna vant söngfólk
sem er búið að syngja haug af
verkum í gegnum tíðina. Við í Vox
Academica tökum gjarnan bara
eitt verkefni fyrir í einu og hugs-
um þetta frá verki til verks til að
spenna bogann ekki of hátt.“
Hvað sem því líður hefur Vox
Academica verið að ráðast í sífellt
stærri verkefni undanfarin ár. „Við
höfum verið að feta okkur nær því
að flytja þessar stóru klassísku
kórperlur,“ segir Hákon en meðal
þeirra verka sem kórinn hefur ráð-
ist í að flytja eru Messías eftir
Händel, Magnificat eftir Bach og
Cantate de Noël eftir Honegger.
Það er óráðið hvaða verkefni
verður næst á dagskrá hjá kórn-
um. „Ég reikna með því að það
verði rætt yfir matnum eftir tón-
leikana. Ég passa mig afskaplega
mikið á því að ákveða ekki neitt
slíkt nema í samráði við liðsheild-
ina, þannig að allir finni fyrir
ábyrgð gagnvart hugmyndinni,“
segir Hákon.
Vox academica, Jóns Leifs Camerata og einsöngvarar flytja Sálumessu Verdis
Messa í minningu vinar
Af æfingu Hákon Leifsson stjórnar í dag 75 manna kór ásamt úrvalshóp einsöngvara og hljómsveitinni Jóns
Leifs Camerata, þegar Sálumessa Verdis verður flutt. Hákon Leifsson er í forgrunni, en einsöngvararnir á miðri
mynd eru Sólrún Bragadóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Gissur Páll Gissurarson og Kristinn Sigmundsson.
TILNEFNINGAR til írsku Impac-
bókmenntaverðlaunanna voru op-
inberaðar í gær.
Þetta eru mestu verðlaun sem í
boði eru í bókmenntaheiminum.
Átta skáldverk eru útnefnd og er
listinn mjög alþjóðlegur í anda
verðlaunanna. Aðeins tvær skáld-
sagnanna eru skrifaðar af ensku-
mælandi höfundum, önnur írsk,
hin áströlsk.
Impac-verðlaunin verða nú veitt
í 13. sinn en þau þykja ekki síst
eftirsóknarverð fyrir verðlaunaféð
sem nemur andvirði tæpra 12
milljóna króna sem er langt um-
fram það sem önnur virt bók-
menntaverðlaun geta státað af að
bjóða.
Fyrir þá sem vilja kíkja í for-
vitnilegar bækur lítur listinn svona
út: The Speed of Light eftir Javier
Cercas frá Spáni, The Sweet and
Simple Kind eftir Yasmine Goone-
ratne frá Sri Lanka, De Niro’s
Game eftir Rawi Hage frá Líb-
anon, Dreams of Speaking eftir
Gail Jones frá Ástralíu, Let it be
Morning eftir Sayed Kashua frá
Ísrael, The Attack eftir Yasminu
Khadra frá Alsír, The Woman who
Waited eftir Andrei Makine frá
Rússlandi og Winterwood eftir
írska skáldið Patrick McCabe. Ef
verðlaunabók er þýdd fær þýðand-
inn fjórðung verðlaunafjárins.
Átta bækur
tilnefndar
til Impac
Aðeins tvær eftir
enskumælandi skáld
FINNSKA tón-
skáldið Kaija Sa-
ariaho hreppti
Nemmers-
tónskáldaverð-
launin í ár, en
þau voru veitt við
Northwestern-
háskólann í Ill-
inois í Bandaríkj-
unum í fyrradag.
Þetta eru virt verðlaun og verð-
launaféð nemur andvirði sjö og
hálfrar milljónar íslenskra króna.
Að auki verður nýtt verk eftir hana
flutt á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Chicago og tónskáld-
inu er boðin dvöl við háskólann í ár
þar sem hún fær aðstöðu til að
semja og sinna kennslu í ein-
hverjum mæli. Kaija er eitt þekkt-
asta tónskáld Finna í dag, en verk
hennar hafa hljómað á tónleikum á
Íslandi, m.a. hjá Caput og Adapter.
Saariaho
fær verðlaun
Kaija Saariaho
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞAÐ er gaman að koma heim með
svona gullkorn í pokanum,“ segir
Margrét Hrafnsdóttir sópr-
ansöngkona, en hún syngur á tón-
leikum í Salnum annað kvöld kl. 20
með Hrönn Þráinsdóttur píanóleik-
arara. Gullkornin eru sönglög sem
við báðar efumst um að nokkurn
tíma hafi verið flutt á Íslandi, eftir
pólska tónskáldið Karol Szym-
anovsky. En hver er Margrét og
hvaðan kemur hún inn á íslenskt
söngsvið með tónleika sem hún segir
sína fyrstu „virkilega opinberu“ tón-
leika hér heima?
„Ég er búin að vera í Stuttgart í
10 ár. Ég fór þangað í söngnám og
lauk þremur prófum: söngkenn-
araprófi, einsöngvaraprófi og ljóða-
deildarprófi. Ég starfa nú við söng
og söngkennslu. Það gengur yfirleitt
vel, en er stundum streð.“
Margrét segir það rétt að kreppa
hafi þjakað þýsk óperuhús und-
anfarið og oft sé illa farið með unga
óreynda söngvara. „Fólk er heppið
ef það kemst á eins ár samninga og
þeir eru endurnýjaðir á hverju ári.
Það er ekki lengur neitt öryggi í
þessu,“ segir Margrét. Hún segir
það að starfa úti fyrst og fremst
betra fyrir það hvað markaðurinn sé
miklu stærri. „Söngvarar hér heima
eru ótrúlega duglegir, þeir þurfa að
vera allt í öllu og syngja hvað sem
er, en það er orðið þannig úti líka.“
En hvað um gullmolann?
„Við sóttum um að syngja í Tí-
brárröðinni af þeirri ástæðu að við
vorum með lögin eftir Szymanovsky.
Við vorum saman í ljóðadeildinni í
Stuttgart og vorum þar hjá sérvitr-
um prófessor sem lét okkur aldrei
syngja neitt þekkt. Enginn Schubert
þar, nema óþekktur Schubert. Við
kynntumst þessum ljóðum hjá hon-
um og fluttum á pólskum tónleikum
sem voru haldnir í samvinnu við
pólskan tónlistarháskóla í Varsjá.
Ég er svo heppin að Szymanovsky
samdi þetta við þýskan ljóðaflokk
við ljóð eftir eftir Dehmel og fleiri.
Szymanovsky var hrifinn af þýskum
ljóðskáldum en Dehmel var sam-
tímamaður hans. Strauss samdi líka
við ljóð eftir hann.“
Ljóðaflokurinn heitir Aufblick, og
Margrét segir ljóðin mjög ólík, þótt
tónskáldið noti svipaða hljóma aftur
og aftur. „Það var sagt um Szym-
anovsky að hann væri pólskur im-
pressjónisti. þetta eru þykkir og
stórir hljómar, púra síðrómantík. En
hann var líka fyrir einfaldleikann.
Stundum tekur hann eitt orð úr ljóð-
inu og litar allt lagið með, ann-
aðhvort lýsingarorð eða tilfinningu.
Þetta er ótrúlega flott.“
Grieg, Schumann og Strauss eiga
líka sína fulltrúa á tónleikunum.
Margrét Hrafnsdóttir og Hrönn Þráinsdóttir flytja ljóð eftir Szymanovsky í Salnum annað kvöld
Kallaður pólski
impressjónistinn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Pólsk dagskrá Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og Margrét Hrafnsdóttir
sópransöngkona hafa áður flutt lög Szymanovskys í Stuttgart.
♦♦♦
GUÐMUNDUR R. Lúðvíksson
opnar sýninguna Hreppsómagi
og vindhanar á Café Karólínu á
Akureyri í dag. Guðmundur
lagði af stað frá Njarðvíkum kl.
fimm í morgun og hélt til Ak-
ureyrar. Hann núllstillti kíló-
metramæli bílsins í upphafi
ferðar og við hver hreppamörk
á leiðinni til Akureyrar blæs
hann, eða blés, lofti í poka og
lokaði fyrir. Hver poki er síðan
merktur með fjölda km sem eftir eru að áfangastað,
0 km-pokinn þeirra stærstur. Ljósmyndir eru tekn-
ar af gjörningnum en einnig verða þrjú verk sýnd
sem unnin voru með girni og eru þrívíð.
Myndlist
Blásið í poka á leið
til Akureyrar
Guðmundur Lúð-
víksson blæs í poka.