Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.04.2008, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Reykjanesbær | Þótt samdráttur hafi verið í byggingariðnaði á Suð- urnesjum að undanförnu, eins og víðast um landið, eru nýjar verslanir að bætast við og aðrar að stækka við sig. Þannig hefur Múrbúðin opn- að verslun á iðnaðarsvæðinu við Helguvík og Húsasmiðjan og Blómaval flutt í nýtt húsnæði á Njarðvíkurfitjum. Verslun Múrbúðarinnar í Reykja- nesbæ er jafn stór verslun hennar á Kletthálsi í Reykjavík. Hún var opnuð fyrr í vikunni. Stjórnendur Múrbúðarinnar fóru að skoða mark- aðinn á Suðurnesjum eftir að hafa fengið áskoranir um að koma þang- að. „Við eigum trausta viðskiptavini á Suðurnesjum og fundum mikinn áhuga hjá þeim,“ segir Baldur Björnsson framkvæmdastjóri. Hann segir að vissulega hafi það einnig haft áhrif að þetta sé ört vax- andi samfélag og framundan fram- kvæmdir við álver og fleira, en það hafi ekki haft úrslitaáhrif. Verslunin er skammt frá álverslóðinni. Aukning á hverju ári Húsasmiðjan og Blómaval opnuðu í gær verslanir sínar í nýju húsnæði á Njarðvíkurfitjum. Húsnæðið er samtals um 3.000 fermetrar að stærð og þar er einnig til húsa Ís- kraft, dótturfyrirtæki Húsasmiðj- unnar, sem selur fagmönnum raf- lagnaefni. Árni Júlíusson, rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ, segir að Húsasmiðjan sé búin að vera með starfsemi í Reykjanesbæ í ellefu og hálft ár, í óhentugu leigu- húsnæði. Starfsemin hafi gengið vel, aukning á hverju ári þangað til í ár, og ákveðið hafi verið að fara í nýtt húsnæði sem hentaði undir nútíma verslunarrekstur. Húsasmiðjan og BYKO hafa verið aðalleikendur á byggingamarkaðn- um á Suðurnesjum. Nú hefur Múr- búðin bæst við en hún hefur skapað umræðu og aukna samkeppni á viss- um sviðum þótt hún sé mun minni en stórverslanirnar. Baldur segir að það muni vafalaust gerast á Suð- urnesjum. Árni Júlíusson segir að samkeppni hafi verið á markaðnum en hún muni nú væntanlega aukast. Aukin samkeppni í byggingavörum Morgunblaðið/Golli Í HNOTSKURN »Húsamiðjan og BYKO hafaverið helstu bygging- arvöruverslanirnar í Reykja- nesbæ. Nú hefur Múrbúðin bæst við og Húsasmiðjan og Blómaval flutt í nýtt húsnæði. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | „Það hefur lítið verið gert fyrir unglinga í Reykja- nesbæ í tíu ár. Við áttum þetta inni,“ segir Bjarki Brynjólfsson, formaður Fjörheimaráðs. Í gær var formlega tekið í notkun nýtt hús- næði félagsmiðstöðvarinnar Fjör- heima, húsnæði á Vallarheiði. Fjörheimar voru stofnaðir 1983. Vegna framkvæmda við Hljóma- höllina og félagsheimilið Stapa, þar sem félagsmiðstöðin hefur haft að- stöðu frá upphafi, þurfti að finna starfseminni nýjan stað. Bjarki er nemandi í tíunda bekk Njarðvíkurskóla og á sæti í nem- endaráði skólans. Hann mótmælti því þegar það kom upp á fundi nem- endaráðsins í haust að flytja ætti skemmtanir og aðra viðburði sem Fjörheimar hafa staðið fyrir inn í skólann. „Mér fannst það fáránlegt og fleiri voru sammála,“ segir hann. Bjarki vissi hvað hann var að tala um því hann hafði gert könnun í skólanum sínum sl. vor þar sem vilji nemenda kom vel fram. Eftir að málið hafði verið rætt við hina grunnskólana mótmæltu öll nemendaráðin þessum áformum sem og Fjörheimaráð sem er nefnd notenda aðstöðunnar. Þegar málið fór til umfjöllunar á vettvangi bæj- arstjórnar féllst Árni Sigfússon bæjarstjóri á rök unglinganna og lýsti sig sammála því að reka þyrfti sameiginlega félagsmiðstöð áfram. Gengið var í það að finna húsnæði og tókust samningar um leigu á „Windbraker“, húsnæði sem áður þjónaði sem félagsmiðstöð ein- hleypra hermanna. Unglingarnir voru hrifnir þegar málið var borið undir þá, að sögn Bjarka. Árni Sigfússon þakkaði í gær unga fólkinu sem stóð að undirbún- ingnum með bæjaryfirvöldum. Sagði mikilvægt að ungmennin létu til sín taka eins og þau gerðu í þessu. Húsnæðið er liðlega þúsund fer- metrar, mörgum sinnum stærra en Fjörheimar, og þar er sjoppa, stór danssalur og bíósalur, svo nokkuð sé nefnt, og tækjakosturinn hefur verið endurnýjaður. „Það er hægt að spila borðtennis um leið og dans- partí fer fram. Það var ekki hægt að hafa tvo viðburði á sama tíma í gömlu Fjörheimum,“ segir Bjarki. Árni sagðist geta fullyrt að þessi aðstaða ætti sér engan líka hér á landi. Krakkarnir hafa sjálfir skreytt salarkynnin og átti lista- maðurinn Þorbjörn Einar Guð- mundsson mikinn þátt í því. Samið hefur verið við SBK um reglulegar strætóferðir frá og með næstkomandi mánudegi sem sniðn- ar eru að þörfum og opnunartíma Fjörheima. Þá hafa starfsmenn fé- lagsmiðstöðvarinnar til afnota tvo bíla sem þeir geta notað þegar þörf er á. Fjörheimar voru formlega opn- aðir á nýjum stað í gærkvöldi með því að Árni Sigfússon bæjarstjóri afhenti ungmennunum húsið til notkunar. Að því búnu hófst svo- kallað risaball fyrir nemendur 8. til 10. bekkjar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason „Við áttum þetta inni“ Ný aðstaða Bjarki Brynjólfsson, formaður Fjörheimaráðs, býður gesti vel- komna í nýja húsnæðið. Árni Sigfússon bæjarstjóri og Böðvar Jónsson, for- maður bæjarráðs, standa honum til hægri handar. SUÐURNES KRISTJÁN Ingimarsson leikari verður með tilraunastofu í Ket- ilhúsinu í kvöld kl. 20.30. Þetta er þriðji viðburðinn í tengslum við SKÖPUN – tilraunastofu leikarans. Kristján nýtur aðstoðar myndlist- armannsins Þórarins Blöndal við uppsetninguna í Ketilhúsinu. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis, en fólk er vinsamlegast beðið að taka með sér myndavél með flassi!  Listakonan Magga Steingríms opnar sýningu á verkum sínum í Deiglunni í dag kl. 14.00. Hún hefur undanfarið unnið að gerð þrívíðra myndverka sem hún vinnur úr þæfðri íslenskri ull og sýnir nú af- rakstur þeirrar vinnu.  Guðmundur R. Lúðvíksson opnar í dag sýninguna „Hreppsó- magi og vindhanar“ á Café Karol- ínu.  Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju, heldur sína árlegu óskalagatónleika í kirkjunni á morgun, sunnudag, kl. 17. Eyþór hefur valið fjölbreytta tónlist úr miklum fjölda óskalaga sem honum hafa borist. M.a. spilar hann Queen, Jón Múla Árnason, Mark Knopfler, Sigfús Halldórsson, Bach, Bítlana, íslensk sönglög, harmonikkutónlist, sálmaspuna og ný lög eftir Kristin Inga Pétursson og Zbigniew Zucho- wicz. Aðgangseyrir 1.500 kr. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tilraunir Kristjáns KEA hefur keypt allt stofnfé í Spari- sjóði Höfðhverfinga, eins og fram kom á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Í fréttatilkynningu sem KEA og sparisjóðurinn sendu frá sér í gær af þessu tilefni kemur fram að KEA ætli sér ekki að eiga öll stofnbréfin til langframa og gert sé ráð fyrir því að fleiri fjárfestar komi að eflingu sjóðsins mjög fljótlega. Tilkynningin er svohljóðandi: „Í framhaldi af stofnfjáraðilafundi Sparisjóðs Höfðhverfinga hefur KEA gert samning um kaup á öllu stofnfé í sjóðnum með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins. Sparisjóður Höfðhverfinga er einn elsti sparisjóður landsins, stofnaður 1879. Í framhaldinu er gert ráð fyrir því að auka eigið fé sparisjóðsins verulega til þess að efla sjóðinn. Það liggur fyrir að núverandi stofnfjáraðilar munu að einhverju leyti endurfjárfesta í sjóðnum sem og fjársterk fyrirtæki á starfssvæði sjóðsins og víðar. Í tengslum við þessi viðskipti verður núverandi starfsstöð fest í sessi á Grenivík. Í framhaldinu af þessum viðskiptum og hlutafélagavæðingu sparisjóðsins verður til sjálfeignarstofnun sem mun ráðstafa arði til menningar- og líknarmála á starfssvæði sparisjóðs- ins. Halldór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri KEA er ánægður með þennan samning. „KEA hefur viljað fjárfesta og koma að eflingu og upp- byggingu fjármálafyrirtækja á starfssvæði sínu. Þetta er verkefni í þá veru og ekki það fyrsta en KEA var einn stofnenda Saga Capital fjár- festingabanka á sínum tíma. Þrátt fyrir erfið ytri skilyrði fjármálafyr- irtækja um þessar mundir tel ég vera sóknarfæri og ég hlakka til að takast á við þetta verkefni. Það er ekki markmið KEA að eiga allt stofnfé sjóðsins til lengri tíma og ég geri ráð fyrir að fleiri fjárfestar komi að eflingu og stækkun sjóðsins mjög fljótlega.“ Jakob Þórðarson, formaður stjórnar Sparisjóðs Höfðhverfinga, segir þennan samning vera niður- stöðu stefnumótunarvinnu stjórnar um að tryggja framtíðarrekstur með stækkun og eflingu sjóðsins um leið og tryggð eru sjónarmið um að fjár- magn sitji eftir í samfélaginu og starfsstöð sjóðsins á Grenivík sé tryggð til frambúðar. „Með samningi við KEA nást þessi markmið fram og stofnfjáraðilafundur hefur þegar samþykkt með öllum greiddum at- kvæðum að vinna að lúkningu máls- ins í þessa veru. Ég er ánægður með þessa niðurstöðu og tel hana mikið heillaspor.““ Sparisjóður Höfðhverfinga er að- eins með starfsstöð á Grenivík. Starfsmenn eru nú fjórir og spari- sjóðsstjóri Ingvi Þór Björnsson. Fleiri fjárfestar koma að eflingu sjóðsins Morgunblaðið/Sverrir Vilja efla svæðið Halldór Jóhannsson: „KEA hefur viljað fjárfesta og koma að eflingu og uppbyggingu fjármálafyrirtækja á starfssvæði sínu.“ Í HNOTSKURN »Sparisjóður Höfðhverfingaer næstelsti sparisjóður landsins, stofnaður 1879 »Viðskiptavinir sjóðsins hafaverið jafnt fyrirtæki og ein- staklingar sem oftar en ekki eru annað hvort búsettir á nánasta starfssvæði sjóðsins eða tengjast því með einum eða öðrum hætti. EKKERT verður af því að gervigras verði lagt strax á nýtt æfingasvæði íþróttafélagsins Þórs við Sunnuhlíð. Bæjarráð hafnaði þeirri beiðni fé- lagsins í vikunni. Skv. samningi Þórs og bæjarins á að leggja á venjulegt gras þar fyrir næsta sumar, en gervigras að nokkrum árum liðnum. Á fundi ráðsins á fimmtudag var tekið fyrir erindi frá Þór þar sem óskað var eftir því að bæjarráð veitti heimild til að lagt yrði nú þegar gervigras. „Gerð er grein fyrir hugs- anlegri fjármögnun verkefnisins m.a. í formi láns sem Akureyrarbær tæki. Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á að áfram verði unnið að uppbyggingu á Þórssvæðinu á grundvelli samnings Akureyrarbæj- ar og Íþróttafélagsins Þórs þar sem gert er ráð fyrir að náttúrulegt gras verði lagt á Sunnuhlíðarsvæðið. Bæjarráð getur því ekki orðið við er- indinu,“ segir í fundargerðinni. Bæjarfulltrúarnir Oddur Helgi Halldórsson, L-lista fólksins, og Baldvin H. Sigurðsson, oddviti Vinstri grænna, greiddu atkvæði á móti afgreiðslunni. Þór fær ekki gervi- gras strax KÖRFUBOLTASKÓLI Þórs verður haldinn í íþróttahúsi Síðuskóla í dag og á morgun. Hann er ætlaður öllum krökkum í 4. til 10. bekk grunnskóla og eru allir velkomnir. Skólinn er í dag kl. 11.00 til 15.00 og á morgun 12.30 til 17.00. Allir þurfa að koma með hollt nesti með sér báða dagana. Körfuboltaskóli Þórs um helgina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.