Morgunblaðið - 05.04.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 23
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Mikill hlaupaáhugi er á Selfossi. Þar
fer fremstur í flokki hlaupahópurinn „Frískir
Flóamenn“. Aðrir hlaupahópar eru einnig
starfandi í bæjarfélaginu, t.d. hópur fimm-
menninga, sem er á leiðinni til London til að
hlaupa í Lundúnamaraþonhlaupinu sunnudag-
inn 13. apríl. Maraþon er 42,2 km og vonast
hver og einn í hópnum til að geta hlaupið leið-
ina á 3,5 til 4 klukkustundum.
Þau sem fara frá Selfossi eru hjónin Guðjón
Sigurjónsson og Þórdís Erla Þórðardóttir og
Grímur Hergeirsson og Björk Steindórsdóttir,
ásamt Kristni Marvinssyni, sem tók þátt í
Berlínarmaraþoninu á síðasta ári. Guðjón sem
er 37 ára lögfræðingur og sjálfstætt starfandi
lögmaður á Selfossi fer fyrir hópnum.
Hlaup sem líkamsrækt
„Það má segja að ég hafi byrjað að fikta við
að hlaupa um vorið 2004. Þá fannst mér hlaup
reyndar frekar einkennilegt sport og óspenn-
andi, þar sem það var enginn bolti til að elta.
En ég byrjaði á þessu í upphafi vegna þess að
frásagnir vina og kunningja sem höfðu tekið
þátt í Laugavegshlaupinu árið áður þóttu mér
spennandi. Vildi kanna hvort ég gæti tekist á
við þá þrekraun, sem er 55 km hlaup um fjall-
lendi frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Það
hafðist með herkjum og síðan hef ég haldið
mig við hlaup sem líkamsrækt, með smá-
hléum,“ sagði Guðjón þegar hann var spurður
hvenær hann hefði byrjað að hlaupa.
Hann segir að hlaup sé mjög hentug leið til
líkamsræktar. „Maður getur nánast alltaf
fundið sér tíma til að fara út að hlaupa og er í
sjálfu sér ekki bundinn af neinum öðrum en
sjálfum sér. Auðvitað líður manni miklu betur
þegar maður nær að halda sér í formi og svo
er skemmtilegur félagsskapur hluti af þessu
öllu saman,“ bætti hann við. Guðjón segist
ekki hafa neina skýringu á þessum mikla
áhuga á Selfossi fyrir hlaupum en segir þó að
starfsemi „Frískra Flóamanna“ hafi þar mikið
að segja.
40 þúsund hlauparar
Lundúnamaraþonhlaupið fer fram um
næstu helgi en það er eitt af fimm fjölmenn-
ustu hlaupum í heiminum. En hvað eru Sel-
fyssingar að þvælast í þetta hlaup?
„Þetta er bara ein af þessum dellum. Við
þessi fimm drifum okkur til New York fyrir
tveimur árum og tókum þátt í maraþoninu
þar. Það var mögnuð upplifun. Þrátt fyrir stífa
vöðva og stirða leggi í lok hlaups þá kviknaði í
kjölfarið sú hugmynd að klára fimm helstu
maraþonhlaup heimsins, sem eru auk New
York, London, Berlín, Chicago og Boston.
Þetta er partur af því ferli. Lundúna-
maraþonið er mjög fjölmennt með ríflega 40
þúsund þátttakendum og samkvæmt mínum
upplýsingum eru á milli 20 og 30 Íslendingar
hluti af þeim fjölda. Umgjörðin er sögð mjög
skemmtileg, með gríðarlegum fjölda áhorf-
enda og mikilli hvatningu á leiðinni. Það er
ekki laust við að það sé að myndast spenna í
hópnum fyrir hlaupið,“ sagði Guðjón.
Í máli hans kom fram að hópurinn hefur
undirbúið sig fyrir hlaupið með því að reyna
að hlaupa nokkuð markvisst 4 til 5 sinnum í
viku, síðustu 10 til 12 vikur. Hann segir það
hafa gengið misvel í þessari vetrartíð sem hef-
ur verið en telur þó að hópurinn sé þokkalega
undir hlaupið búinn.
Ótrúlegur kraftur í Grími
Sérstaka athygli vekur þátttaka Gríms Her-
geirssonar í hlaupinu því hann greindist með
hálskirtlakrabbamein fyrir um 9 mánuðum og
gekkst undir erfiða aðgerð og geislameðferð í
kjölfarið.
„Grímur er gríðarlegur keppnismaður og
maður átti kannski ekki von á að hann yrði
kominn í form til að hlaupa maraþon núna
svona skömmu síðar. En viljinn og krafturinn í
honum er ótrúlegur og nú er staðan líklega sú
að hann er kominn talsvert fram úr okkur hin-
um í formi og það er náttúrlega ekki hægt
annað en að dást að og gleðjast yfir þessum
árangri hans,“ sagði Guðjón um þátttöku
Gríms í hlaupinu.
Guðjón er að lokum spurður hvaða skilaboð
hann eigi handa þeim sem nenna ekki að fara
út að hlaupa og vilja frekar hafa það gott
heima í sófanum.
„Það er um að gera að setja á sig skóna og
skella sér út að hlaupa. Sníða sér stakk eftir
vexti og áður en menn vita af þá finna menn
gríðarlegan mun á sér. Reynslan segir okkur
að það er miklu vænlegri kostur en að sitja
hreyfingarlaus heima.“
Getur alltaf farið út að hlaupa
Stífar æfingar Selfyssingarnir sem taka þátt í Lundúnamaraþoninu, f.v. Guðjón Sigurjónsson,
Þórdís Erla Þórðardóttir, Kristinn Marvinsson, Björk Steindórsdóttir og Grímur Hergeirsson.
Í HNOTSKURN
»Hlaupahópurinn frá Selfossi stefnir aðþátttöku í fimm helstu maraþon-
hlaupum heims. New York er að baki og
London framundan. Þá verða eftir Berlín,
Chicago og Boston.
Taka þátt í Lundúna-
maraþonhlaupinu með
40 þúsund hlaupurum
Selfoss | Heilbrigðisstofnun Suður-
lands á Selfossi fékk nýlega til-
kynningu frá útibúi Landsbanka Ís-
lands um peningagjöf. Steinþór
Zóphóníasson gaf stofnuninni eina
milljón kr. Einnig gaf hann milljón
til Dagdvalar aldraðra í Árborg.
Steindór lést 17. mars síðastlið-
inn á dvalarheimilinu Kumb-
aravogi. Hann bjó lengst af í Ás-
brekku í Gnúpverjahreppi, en
fluttist á Selfoss árið 1992. Árið
2007 vistaðist Steindór á hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Kumb-
aravog á Stokkseyri. Dóttir Stein-
dórs og Bjarneyjar G.
Björgvinsdóttur er Ingveldur Sig-
rún Steindórsdóttir og býr í
Reykjavík.
Steindór var mjög ánægður með
þá þjónustu sem Heilbrigðisstofnun
Suðurlands hafði veitt honum og
vildi sýna þakklæti sitt með þessum
hætti. Með sama hætti vildi hann
sýna þakklæti sitt fyrir þá þjónustu
sem hann naut hjá Dagdvöl aldr-
aðra í Árborg.
Gjöf Steinþór Zóphóníasson gaf
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi eina milljón króna.
Gaf tvær
milljónir
króna
Árborg | Glaðheimar, elsti leik-
skólinn á Selfossi, fagnaði 40 ára
afmæli sínu á dögunum. Við af-
mælisathöfn í skólanum tilkynnti
Ragnheiður Thorlacíus, fram-
kvæmdastjóri fjölskyldumiðstöðvar
Árborgar, að bæjarstjórn hefði
ákveðið að láta rita sögu leikskóla
í sveitarfélaginu, sögu sem hefst
við stofnun Glaðheima hinn 1. apríl
árið 1968. Heiðdís Gunnarsdóttir,
fyrrverandi leikskólafulltrúi, hefur
tekið verkið að sér.
Heiðdís er manna fróðust um
starfsemi leikskóla Árborgar eftir
áratuga vinnu hjá sveitarfélaginu,
fyrst sem leikskólastjóri og síðar
leikskólafulltrúi. Stefnt er að því
að ritið komið út í byrjun næsta
árs.
Saga leikskóla skrifuð
Hörkutól
– með rykgrímu, hjálm og vinnuvettlinga
VGA myndavél Ryk- og rakavarinn (IP54) Bluetooth
Vasaljós Stereó FM-útvarp Innbyggður hátalari
Samsung M110 farsíminn er nýjasta verkfærið í verkfærakassann. Honum er
pakkað inn í sterkbyggða umgjörð sem er bæði ryk- og rakavarin (IP54) og hann
er fullur af notadrjúgum aukabúnaði. Samsung M110 – er sannkallað hörkutól.
Heildsöludreifing og þjónusta:
Skútuvogi 12c auk viðukenndra söluaðila um land allt
M110 fæst hjá eftirtöldum aðilum: