Morgunblaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 24
Hamskiptameistarinn Ísak Freyr Helgason
fagnar sigri með fyrirsætunni.
Framtíðarhúsfreyja Hún er óneitanlega tilhöfð og vel litasamsett en þó skemmtilega fortíð-
arskotin húsmóðirinn sem Ísak Freyr Helgason á heiðurinn að.
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Framtíðin er núna. Þeir voru að minnsta kosti vel með á nót-unum nemarnir sem tóku þátt í hárgreiðslu- og förð-unarkeppninni Hamskipti 2008 sem fram fór í Vetrargarð-inum í Smáralind á fimmtudagskvöldið, en þema
keppninnar að þessu sinni var framtíðin í hár og förðun. Bleikir
lokkar og fjólubláir, álskreytingar og tölvutakkaprýddur haddur voru
meðal þess sem fyrir augu bar. Förðun sumra fyrirsætnanna vakti
þá ekki minni athygli, til að mynda framtíðar-geisha þar sem tengsl
fortíðar og framtíðar voru augljós. Ekki lá þá minni vinna í mörgum
búningnum. Þannig bar ein fyrirsætan sérsmíðað skart, sérsaumuð
klæði og jafnvel sérskreytta skó. Fjölmargir aðrir búningar fönguðu
ekki síður augað og ljóst að hér lágu víða ófáar vinnustundir að baki,
enda lagt upp með að þátttakendur hönnuðu heildarútlit fyrirsætu
sinnar.
„Við viljum að krakkarnir hugsi út fyrir kassann – út fyrir sitt
venjulega fagsvæði og þess vegna leggjum við upp með að þau hanni
heildarútlit þar sem greiðsla, förðun og fatnaðar skiptir allt máli,“
segir Ásgeir Hjaltason annar eigandi Supernova hair and airbrush
studio, sem skipuleggur og stendur að baki keppninni sem nú var
haldin í 2. skipti. „Hugsunin að baki Hamskiptum er að krakkarnir
læri að bjarga sér sjálf og standa fyrir sínu, enda styrkir það þau og
eykur sjálfstraust þeirra auk þess sem að það skilar okkur betra fag-
fólki í framtíðinni.“
Líkt og áður sagði var þema Hamskiptanna að þessu sinni fram-
tíðin í hári og förðun og hamskiptameistari var, af dómnefnd skipuðu
færu fagfólki, valinn Ísak Freyr Helgason, sem einnig lenti í fyrsta
sæti. Ísak Freyr er nýútskrifaður úr förðunarskólanum Emm School
of Make Up, en hann kynnti til sögunnar framtíðarhúsfreyjuna sem
greinilega hefur engu gleymt af eldhúskúnstunum.
Í öðru sæti var Erik Helgi Björnsson af hárgreiðslustofunni
Kristu og í því þriðja lenti Theódóra Mjöll Skúladóttir af Rauðhettu
og úlfinum.
Eldhugi Kristján Aage Hilmarsson af Super-
nova kynnti framakonu framtíðar.
Framtíðar geisha Theódóra Mjöll Skúladótt-
ir af Rauðhettu og úlfinum leitaði innblásturs
í Japan framtíðarinnar fyrir sína línu.
Vel samsett Gerður Huld Arnbjörnsdóttir
hannaði greiðslu, förðun, fatnað og glitskó.
Árvakur/G.Rúnar
Framtíðarbræðingur Erik Helgi Björnsson á Kristu, sem lenti í 2.
sæti, hefur trú á að framtíðin verði sambræðingur litríkis og hátækni.
Í takka fjarlægð Selma Hafsteinsdóttir af
hárgreiðslustofunni Ýr spáir því að í framtíð-
inni verði bara ýtt á takka fyrir rétta hárið.
Framtíðar-
bræðingur í
samtímanum
Fótaföndur Þessir glitrandi skór voru
skreyttir sérstaklega fyrir keppnina.
Bleikir lokkar og
fjólubláir, álskreyt-
ingar og tölvu-
takkaprýddur hadd-
ur voru meðal þess
sem fyrir augu bar.
|laugardagur|5. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf