Morgunblaðið - 06.04.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 93. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
SAMKVÆMT mælikvörðum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) er offitufaraldur
á Íslandi en þjóðin hefur að meðaltali þyngst
um 7-8 kg á síðustu 40 árum. Árið 1967 var
meðalkarlmaður 83 kg að þyngd en í fyrra var
hann kominn upp í 91 kg. Meðalkona var 69 kg
árið 1967 en í fyrra var hún orðin 76 kg.
Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir
Hjartaverndar, segir skýringuna á þyngdar-
aukningu þjóðarinnar að verulegu leyti stafa af
breyttum lífsstíl hennar. „Ef maður fitnar
borðar hann meira en hann brennir. Svo einfalt
er það. Við lifum á öld ofgnóttar og kunnum
okkur ekki hóf. Að vísu hreyfum við okkur sem
aldrei fyrr en það dugar einfaldlega ekki til.
Við erum alltaf nartandi.“
Skyndibitafæði áhrifavaldur
Þar sem offita er ört vaxandi heilbrigðis-
vandamál hafa heilsuhagfræðingar í auknum
mæli beint sjónum sínum að henni á umliðnum
árum og misserum. Bandaríkjamaðurinn
Michael Grossman, einn virtasti heilsuhag-
fræðingur heims, sem staddur er hér á landi,
bendir á að aukið vægi skyndibitafæðis ráði
þarna miklu, samkvæmt rannsóknum.
„Annað sem við skoðuðum eru breyttir sam-
félagshættir en á sjöunda og áttunda áratugn-
um hófu konur að streyma út á vinnumark-
aðinn í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Það
má alls ekki skilja það þannig að aukin atvinnu-
þátttaka giftra kvenna hafi með beinum hætti
leitt til aukinnar offitu meðal þjóðarinnar en
svo virðist sem hún hafi leitt til þess að fjöl-
skyldur neyti í auknum mæli skyndibitafæðu.
Það er ósköp eðlilegt, tíminn til að elda mat
heima er minni en áður,“ segir Grossman.
Dr. Tinna L. Ásgeirsdóttir, umsjónarmaður
MS-náms í heilsuhagfræði við HÍ, segir stjórn-
völd hér hafa sýnt greininni áhuga og skilning.
Offitufaraldur á Íslandi
Þjóðin hefur að meðaltali þyngst um 7-8 kg á síðustu 40 árum Alvarlegt að mati WHO Kunnum
okkur ekki hóf, segir læknir Aukið vægi skyndibitafæðu meðal skýringa, segja heilsuhagfræðingar
Að komast í feitt | 10
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Heilsuhagfræðingar Dr. Michael Grossman
og dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir.
MEÐ pokaskjatta og dulur koma hundruð fátækra íbúa
Managua, höfuðborgar Níkaragva, á sorphaugana í leit
að einhverju ætilegu og verðmætu. Á haugunum búa
líka mörg þúsund manns í reyk og stybbu við örbirgð
og sjúkdóma. Gunnar Salvarsson var þar á ferð á
dögunum og tók myndir af mannlífi á haugum. | 22
Ljósmynd/Gunnar Salvarsson
Eitt af sjö vítum veraldar
Fjöldi barna hefur lífsviðurværi af ruslahaugum í Níkaragva
SOFFÍA Ósk
Magnúsdóttir Da-
yal er efnafræð-
ingur, að mestu
alin upp í Borgar-
firðinum. Hún er
gift indverskum
verkfræðingi og
býr í höfuðborg
landsins, Nýju-
Delhí, en Soffía
starfar fyrir sam-
tökin PATH sem sinna þróunarað-
stoð.
Hjónin giftu sig að hindúasið í Ind-
landi en Soffía þurfti ekki að gerast
hindúi.
„Tengdafaðir minn er ráðuneytis-
stjóri í heilbrigðisráðuneyti Indlands
og tengdaforeldrar mínir voru svo
ánægð með að sonurinn væri búinn að
finna konu sem hann vildi giftast að
þau reyndu ekki neitt að ráðskast
með hann, sýndu honum algert traust
og studdu hann eindregið í öllum
þessum ákvörðunum,“ segir hún. | 22
Giftist inn í
indverska
fjölskyldu
Soffía Dayal fann
eiginmann í Illinois
Soffía Ósk Magn-
úsdóttir Dayal
Þegar allt er um garð gengið leyfa
allir sér að harma það sem gerðist,
segir tútsi, sem barðist með RPF,
um afskiptaleysi heimsins um þjóð-
armorð hútúa á tútsum.
Voðaverk í skjóli
afskiptaleysis
Á áttunda áratugnum var R.E.M.
ein fremsta neðanjarðarrokksveit
heims. Undanfarið hafa plötur
sveitarinnar fengið slaka dóma, en
með Accelerate þykir landið rísa.
R.E.M. hverfur til
rokkaðri tíma
Á degi flónanna sögðu fjölmiðlar
frá skjaldböku með nikótínfíkn,
manni sem komst út úr fjölmennu
sædýrasafni með krókódíl, og BBC
greindi frá fljúgandi mörgæsum.
Lífið er á stundum
lyginni líkast
VIKUSPEGILL
Magnaðar stundir
í leikhúsinu
Kommúnan >> 56
Leikhúsin í landinu
SUNNUDAGUR
HVAÐ VARÐ
UM HANN?
EINAR ÖRN EINARSSON
VAR MANNI TÍU ÁRA
TUTTUGU ÁR ERU LIÐIN >> 25
HANN ER Á
KÚPUNNI
RUFUS WAINWRIGHT
KEMUR TIL ÍSLANDS
FRAMANDI STAÐIR >> 54
Manila. AP. | Farþegar í litlum stræt-
isvagni í Manila, höfuðborg Filipps-
eyja, urðu skelfingu lostnir þegar
þeir urðu varir við 2,1 metra langa
kyrkislöngu. Farþegarnir þustu út
úr strætisvagninum í dauðans of-
boði og stöðvuðu bílaumferð á fjöl-
farinni götu.
Kyrkislangan hafði vafið sig um
stálstöng undir vagninum á leiðinni
til höfuðborgarinnar frá bæ í ná-
lægu héraði, að sögn lögreglunnar.
Lögreglumönnum og vegfar-
endum tókst að koma kyrkislöng-
unni í poka eftir að hún skreið út á
götuna. Snákasérfræðingur nátt-
úruverndarstofnunar, sem tók við
slöngunni, sagði að hún virtist vera
gæf og vön fólki þannig að hún
kynni að vera gæludýr sem hefði
strokið að heiman og húkkað
strætó til borgarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Kyrkislanga
í strætó