Morgunblaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 97. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 1°C | Kaldast -5 °C
Norðan og norð-
vestan 3-8 m/s. Hæg-
viðri norðvestanlands.
Léttskýjað sunnan til
á landinu. » 8
ÞETTA HELST»
Vantar aðstöðu
Talsmaður atvinnubílstjóra segir
að hvíldaraðstöðu með snyrtingum
skorti við þjóðvegina svo bílstjórar
geti farið að reglum um hvíld-
artíma. » 2
Borgarráð svarar
Borgarráð hefur svarað fyr-
irspurnum umboðsmanns Alþingis
vegna REI-málsins. Þar kemur
fram að kjörnir fulltrúar svöruðu
ekki fyrra erindi umboðsmanns.
» 46
Óttast blóðsúthellingar
Stjórnarandstaðan í Simbabve
sagði í gær að Robert Mugabe for-
seti og stuðningsmenn hans hygð-
ust beita ofbeldi til að halda völd-
unum. Hún skoraði á Sameinuðu
þjóðirnar að gera þegar í stað ráð-
stafanir til að afstýra blóðsúthell-
ingum í landinu. » 6
Vill nýja matvælalöggjöf
Ósoðið innflutt kjöt mun sjást í
búðum hérlendis ef frumvarp Ein-
ars K. Guðfinnssonar sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra gengur eft-
ir.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að taka
algerlega upp matvælalöggjöf Evr-
ópusambandsins og væntir ráðherra
þess að hún muni auka samkeppni á
kjötmarkaði.
» 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Reisn mannsandans
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf
Er ekki komið nóg?
Ljósvaki: Íslenskan er alltaf …málið
UMRÆÐAN»
Áhyggjur af gengi krónunnar
Nýr formaður VM
Álver í Helguvík 2010
Alcan fær góðar einkunnir
Góð tíðindi á fjarskiptamarkaði
Fjárhagsaðstoð í slæmu árferði
Opið bréf til umboðsmanns barna
Stóriðja á ábyrgð ríkisstjórnar
ATVINNA »
TÍSKA»
Naomi Campbell aftur í
kast við lögin. » 56
Upprennandi lista-
menn láta ljós sitt
skína í Cosi fan tutte
eftir Mozart í Óp-
erustúdíói Íslensku
óperunnar. » 57
TÓNLIST»
Kærastar og
kærustur
KVIKMYNDIR»
Leikarar Clooneys velt-
ast um í leðjubaði. » 59
KVIKMYNDIR»
Handrit klárt að mynd
upp úr Gauragangi. » 60
Höfundur vefsíðu
gerir grín að hvítu
fólki með kórréttar
skoðanir og viðhorf.
Í bígerð er bók
byggð á síðunni. » 63
Eftirlæti
bleiknefja
VEFSÍÐUR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Andlát: Hanna Frímannsdóttir
2. Sviðsetur morð sem hún framdi
3. Íslensku bankarnir að koma inn …
4. Óþarfi að drekka átta vatnsglös …
WOLFGANG Pomorin, staðarhaldari á Reyn-
isvatni í Reykjavík, var í gær að undirbúa slepp-
ingu á 500 silungum, 2-15 punda þungum. Nokk-
ur ísskán hafði myndast á vatninu og þurfti að
brjóta hana áður en fiskunum var sleppt.
Á hverjum laugardegi er haldin veiðikeppni í
Reynisvatni og sagði Wolfgang að ef ísinn bráðn-
aði ekki í gær yrði keppnin haldin í dag. Nú er
hægt að veiða í Reynisvatni allan ársins hring.
Morgunblaðið/Kristinn
Ísinn var brotinn á Reynisvatni í gær til að sleppa þar fiskum
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BANDARÍSKI
tónlistarmaður-
inn Paul Simon
heldur tónleika í
Laugardalshöll
þriðjudagskvöld-
ið 1. júlí í sumar.
Simon er hvað
þekktastur sem
annar helmingur
dúettsins Simon
og Garfunkel sem hann stofnaði
ásamt Art Garfunkel árið 1957, en
þeir félagar sendu frá sér ódauðleg
lög á borð við „Mrs. Robinson“ og
„Bridge over Troubled Water“.
Simon hefur einnig átt gifturíkan
sólóferil og þekkja eflaust margir
lagið „50 Ways to Leave Your
Lover“ frá árinu 1975.
Simon hefur hlotið fjölmörg
Grammy-verðlaun, fyrir samstarfið
við Garfunkel og sólóferil sinn. | 61
Paul Simon
með tónleika
á Íslandi
Paul Simon
VERKAMENN eru að reisa rúm-
lega 30 metra háan turn úr still-
ansaefni við Austurá, sem rennur
til hafs milli Manhattan-eyju og
hverfanna The Bronx og Queens í
New York. Þetta er fyrsti stall-
urinn af fjórum sem fossar lista-
mannsins Ólafs Elíassonar munu
falla fram af í Austurá í sumar.
Þessi fyrsti foss er nokkuð fyrir
ofan Brooklyn-brúna, sem er eitt
af kennileitum borgarinnar, en
annar mun flæða undir brúnni.
Fossarnir verða knúðir vistvænni
orku og lýstir upp eftir sólsetur.
Public Art-sjóðurinn, sem fjár-
magnar verkið, hefur unnið með
yfir 500 listamönnum á þremur
áratugum en stjórnendur sjóðsins
segja þetta metnaðarfyllsta og
dýrasta verkefnið til þessa.
„Þetta fær fólk niður að vatn-
inu. Verkið dregur að þúsundir
gesta, milljónir dollara og
spennu,“ sagði aðstoðarborg-
arstjórinn í New York, Patricia
Harris. „Þetta mun höfða til fólks
á öllum aldri,“ bætti hún við í
samtali við sjónvarpsstöðina NY1.
Fossarnir byrja að falla um
miðjan júlí og renna fram í októ-
ber.
Vinna hafin við Fossa Ólafs
Elíassonar í New York
Ljósmynd/Birna Anna Björnsdóttir
Hár Sá fyrsti af fjórum stöllum, sem fossar Ólafs Elíassonar munu falla
fram af í Austurá í New York í sumar, er að rísa við ána.