Morgunblaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Nú er minn tími sannarlega kominn. VEÐUR Sífellt gefst tilefni til að undrast afhversu mikilli reisn og hugrekki fólk tekst á við erfitt hlutskipti. Þannig er maðurinn síendurtekið að sigrast á aðstæðum sínum.     Ólafur JóhannÓlafsson fjallaði um æðru- leysi Ólafs Ragn- arssonar í glím- unni við MND í minningargrein á föstudag. „Hann kepptist við skriftir frá morgni til kvölds því hann vildi ljúka bókum sem hann var með í smíðum – fyrrnefndri bók um Laxness og kvæðabók sem kem- ur út á næstu dögum. Það síðasta skrifaði hann með litla fingri hægri handar því aðrir fingur voru hættir að gagnast honum. Hann kvartaði ekki en skrifaði fallega um litla putta sem hann kunni miklar þakk- ir.“     Ólöf Péturs-dóttir dóm- stjóri Héraðs- dóms Reykjaness lést í liðnum mán- uði eftir að hafa slasast alvarlega og lamast frá hálsi í september 2006. En uppgjöf var ekki henni að skapi. Hún fékk því komið til leiðar að Ísland varð fyrsta land í Evrópu sem reyndi bandaríska aðferð við raförvun þindar í stað öndunarvélar og sú nýj- ung hefur nú hlotið viðurkenningu í öðrum Evrópulöndum. Ólöf tókst á við fötlun sína með mikilli reisn. Hún hafði um árabil lært myndlist og málað í frístundum. Á Grensási hélt hún því áfram, málaði með munn- inum og náði á skömmum tíma af- bragðs færni, eins og sýning á verk- um hennar sem haldin var í Ráðhúsinu í Reykjavík bar vott um.     Svona afrekssögur bera merki umreisn mannsandans og eru öðr- um hvatning í mótstreymi. STAKSTEINAR Ólafur Ragnarsson Reisn mannsandans Ólöf Pétursdóttir SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                      * (! +  ,- . / 0     + -                              !    12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (             # $  %#% &%  & :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).?    &"  &   '&  &" &  & &                      *$BCD  %%                  !" # ! $    % &"  ' (   "   $   &"   *! $$ B *!   (#) * %  %) %   !  $+  <2  <!  <2  <!  <2  (!*  %,  -%.  /   $               )     *   & $   + , - . &  ,  6  2  /0'   *  $       !"   !   % ' 1    "     B  %      . &       ! +  %   $      "  01 %#%22  %$ #%3   $%,  %4 &%  % &%'& Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Níels A. Ársælsson. | 5. apríl 2008 Karfinn bestur Nú á tímum versnandi lífskjara, streitu, fjár- málakreppu, hraða og síaukinnar neyslu á óhollum skyndibita þá vil ég leggja mitt af mörkum og ráðleggja fólki að kaupa karfa til eldunar. Karfinn er sá fiskur sem er hvað bestur, hollastur og ríkastur af Omega-3 fitusýrum. Um þessar mundir er karfinn mjög ódýr fiskur í samanburði við nánast allan annan fisk og er lágt verð á honum komið til vegna markaðsaðstæðna erlendis. Meira: nilli.blog.is Birgitta Jónsdóttir | 5. apríl 2008 Að vera aðgerðasinni Stundum spyr fólk mig af hverju ertu ekki að mótmæla hinu eða þessu í stað þess sem ég er að gera. Ég gleymi alltaf að segja það sem er augljósast: „Af hverju ert þú ekki að því?“ Það að gera eitt- hvað krefst ekki prófgráðu í aðgerð- um. Það að gera eitthvað til að breyta því sem manni finnst að mætti betur fara er jafn einfalt og að taka ákvörð- un um að fara að stunda meiri hreyf- ingu. Maður þarf ekkert að hafa náð- argáfu til að gera eitthvað. Meira: birgitta.blog.is Baldur Kristjánsson | 5. apríl 2008 Stofnanarasismi Enn eru þeldökkir menn undirmáls í Bandaríkjunum þó þeir hafi formlega séð sömu réttindi og þeir hvítu. Stofnanarasismi, sem við getum kallað svo, er innbyggður í þjóðfélagið og ívilnar þeim hvítu í einhverjum mæli. Þessi stofnanarasismi er til staðar í öllum þjóðfélögum. Hjá okkur ívilnar hann þeim sem eru af íslensku bergi brotnir. Þess vegna verða stjórnvöld að tryggja rétt aðfluttra ætli þau að stuðla að réttlátu samfélagi. Meira: baldurkr.blog.is Ómar Ragnarsson | 5. apríl 2008 Hesturinn ber ekki það sem ég ber Þekkt er þjóðsagan af karlinum sem sat á hesti og bar þungan poka á baki sér í stað þess að hafa hann fyrir aftan sig á hestinum. Þegar hann var spurður að því hvers vegna hann gerði þetta svona svaraði hann: „Hesturinn ber ekki það sem ég ber.“ Ríkið hefur í raun lækkað megin álögur sínar á eldsneyti undanfarin ár með því að hafa þær í fastri krónutölu. Tekjuauki vegna virðisaukaskatts hefur verið sáralítill. Ríkið leggur minna á eldsneyti hér en í nágrannalöndunum og verðið er lægra hér. En margir virðast gæla við þá hugsun að stórhækkun verðs er- lendis frá sé hægt að losna við á svip- aðan hátt og karlinn á hestinum taldi sig gera. Í tilfelli eldsneytiskostnaðarins samsvarar hesturinn þjóðfélaginu í heild, karlinn samsvarar ríkissjóði og pokinn samsvarar hækkandi verði eldsneytis sem borga þarf erlendum aðilum. Nú halda menn að hægt sé að láta ríkissjóð taka pokann og að þá beri hesturinn (þjóðfélagið) ekki lengur byrðina. Hið rétta er að það er ekki hægt að láta þessa hækkun gufa upp rétt si svona. Einhver verður að borga hana. Ef tekjur ríkissjóðs verða minnkaðar til þess að bera hækkunina hefur rík- issjóður minna fjármagn til spítala og skóla. Það þýðir með öðrum orðum að spítalar og skólar eiga að borga hækkunina fyrir þá sem nota elds- neytið. Um 2010 er áætlað að olíu- framleiðsla nái hámarki. Eftir það verða þær olíulindir, sem taka þurfa við þeim lindum sem þá byrja að þverra, æ dýrari og erfiðari í vinnslu. Verðið á þverrandi olíu getur ekkert nema hækkað og við því er ekki hægt að finna nein hókus pókus ráð. Hest- urinn mun þurfa að bera vaxandi byrði, sama hvað hlaðið verður á bak- ið á karlinum sem situr á honum. Að auki er augljóst að kostnaður af afleiðingum olíunotkunarinnar, lofts- lagsbreytinganna, verður margfalt meiri en nokkur „sparnaður“ sem menn þykjast ætla að finna með því að „láta einhvern annan“ borga brús- ann af olíuverðshækkunum. Meira: omarragnarsson.blog.is BLOG.IS Málstofa á vegum verkfræðideildar HÍ miðvikudaginn 9. apríl, kl. 16:00–18:00, stofu HT-104, Háskólatorgi. Eignarhald íslenskra orkuauðlinda og orkukerfa í virku markaðsumhverfi VERKFRÆÐIDEILD www.verk.hi.is Dagskrá: » Dr. Bjarni Bessason, prófessor, varadeildarforseti verkfræðideildar: Ávarp/setning » Dr. Ragnar Árnason, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild: Orkuauðlindir: Hagkvæmt eignarhald. » Eyvindur G. Gunnarsson, lektor í lagadeild Háskóla Íslands: Eignarhald á náttúruauðlindum. » Egill Benedikt Hreinsson, prófessor í verkfræðideild: Íslenskar orkuauðlindir: Eignarhald – verðmæti – markaður. » Júlíus Jón Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja: Frumvarp um orkuauðlindir og veitustarfsemi; áhrif lagasetningar á rekstrarform veitufyrirtækja. » Fyrirspurnir og pallborðsumræður með frummælendum. Allir velkomnir ÍSLE N S K A /S IA .I S /H S K 4 18 68 0 4/ 08
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.