Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 24
kvikmyndir 24 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er laugardagseft- irmiðdagur í Eyjum ár- ið 1964, úti skín sólin og gamla fúla velmeg- unartáknið, gúanó- brækjan, liggur í loftinu. Inni á Skálanum sitja unglingarnir, hann er vinsælastur um þessar mundir. Ekki síst vegna djúkboxins sem er alltaf rausnarlega stillt og það er ekki útilokað að blanda sér gör- óttan drykk í básunum, ef menn eru á þeim buxunum. Það stór- merka fyrirbrigði „Bítlaæðið“ hefur hafið innreið sína, Hljómar, Flo- wers, Dátar og fleiri frábær bönd hafa verið að gera allt vitlaust uppi á fastalandinu og Óttar Felix búinn að fara fimm hundruð sinnum á A Hard Day’s Night. Verið að loka Tívolí í Vatnsmýrinni og nýkeyptir „Monsar“ Loftleiða bjóða upp á ódýrari möguleika á að komast á milli heimsálfa. Það eru einkum blómabörn sem hrífast af þeim val- kosti enda hippamenningin að leggja undir sig heiminn. Skyndilega kveður við nýjan tón í glymskrattanum góða, ferskt og flott lag er komið á fóninn og það tekur gestina umsvifalaust með trompi. Næstu vikurnar ómar It’s All over Now um allan heim, Skál- inn ekki undanskilinn. Presley, Bítlarnir, Kinksararnir, Döstí, þau geta öll étið það sem úti frýs. Blús- aðir, rámir og rokkaðir stefna The Rolling Stones að heimsyfirráðum. Maður heyrir, finnur og sér að þarna eru komnir frábærir tónlist- armenn og töffarar sem láta ekkert stoppa sig. Það hefur ekki hvarflað að þeim í tæp 50 ár og hver kyn- slóðin á eftir annarri heillast af „magnaðasta Rock n’ Roll-bandi heims“. Það er titillinn sem þeir gáfu sér á þeim sjöunda og þeir halda honum enn þann dag í dag karlarnir, sem sjá nú áttræðisald- urinn í seilingarfæri! Halda sínu striki Tímarnir breytast og mennirnir með, en áhöfnin á Stones-skútunni lætur sér fátt um finnast og heldur sínu striki. Jagger er jafnan hinn ókrýndi leiðtogi, þvengmjór gúmmíkarl með endalaust úthald og þanda sviðsframkomu (að ekki sé minnst á röddina). Hann virðist að minnsta kosti þrjátíu árum yngri en þau 64 sem hann ber á nettum herðunum. Margir aðdáendur hljómsveit- arinnar hafa ekki síður dálæti á hinum ódrepandi og lífsglaða 63 ára Keith Richards, sem hefur samið ásamt Jagger flesta smelli the Rolling Stones í 40 ár. Á með- an Jagger hefur haldið furðumiklu af æskublómanum verður ekki sama sagt um Richards; í útliti minnir hann á ævafornan og skorp- inn indjánahöfðingja. Með fjað- urbrúska og glingur í hári, hringi í eyrum og á hverjum fingri, skreytta hauskúpum og öðrum ámóta töffaratáknum, er hann sannkölluð sjón að sjá. Innan við veðraða ímyndina, rúnum rista af áratuga svalli, næturvökum, óslökkvandi áfengisþorsta og eitur- lyfjaneyslu af öllum stærðum og gerðum, fer eldhress, síkátur nagli sem spilar og syngur eins og engill úr neðra. Það er unun að hlusta á sólóplöturnar hans en á sviðinu með Stones stendur hann sem söngvari í skugganum af Jagger. Hörðustu og ráðsettustu Stones- áhangendurnir halda því fram full- um fetum að enginn, fyrr né síðar, fylli skarð Brians Jones, gítarleik- arans og aðalsprautu hljómsveit- arinnar fyrstu árin. Hann sukkaði sig út úr hópnum árið 1969 og fannst látinn í sundlaug sinni skömmu síðar. Aðeins 27 ára gam- all og er enn deilt um raunverulega dánarorsök tónlistarmannsins sem átti ríkan þátt í að skapa upp- runalega Stones-„sándið“. Yngsti meðlimurinn, Ronnie Wood, hefur fyllt skarð hans lengst af. Sá elsti er hinn taktfasti trommari Charlie Watts, gjörsamlega ómissandi hluti bandsins um alla tíð og lemur húð- irnar af tilfinningahita unglingsins, harðfullorðinn maðurinn, kominn á löggiltan eftirlaunaaldur. Saga Stones verður seint rakin án þess að getið sé bassaleikarans góða Bills Wymans, sem var búinn að fá nóg af ólgunni í hljómsveit- inni í kringum 1990 og hætti af eig- in hvötum árið 1992 og hefur verið að gera góða hluti með öðrum eft- irlaunaþegum í poppinu í hljóm- sveit sinni Bill Wyman’s Rythm Kings. Wyman er elstur stofnenda the Rolling Stones, á skammt í 72. afmælisdaginn. Hugmyndin verður að veruleika Það munu vera um fjögur ár síð- an Jagger kom til fundar við Scor- sese til að ræða gerð heimild- armyndar um hljómleika með Stones. Afraksturinn sjáum við á föstudaginn þegar Shine a Light Scorsese valdi ósk- arsverðlaunahafann Ro- bert Richardson sem kvik- myndatökustjóra og honum til halds og trausts eru margir snillingar. Stones og Scorsese saman á sviðinu Ungir sem gamlir Sto- nes-aðdáendur tóku viðbragð þegar það fréttist að Martin Scor- sese íhugaði að gera heimildarmynd um The Rolling Stones, þessa lífseigu snillinga, sem stilltu fyrst saman strengi sína á öndverð- um 7. áratugnum. Sæ- björn Valdimarsson ætlar á frumsýningu hljómleikamynd- arinnar Shine a Light um næstu helgi Í stuði Mick Jagger ásamt söng- konunni Christinu Aguilera. Smellir Rolling Stones taka á þriðja tug laga sem flest eru ódauðleg í rokk- sögunni, smelli á borð við Brown Sugar og Jumpin’ Jack Flash. Í hofi listaviðburða Myndin var tekin upp í Beacon leikhúsinu í New York. Gamlar kempur Martin Scorsese, fyrir miðju, ásamt Charles Watts, Keith Richards, Mick Jagger og Ronnie Wood. . Ungir sem gamlir Stones-aðdáendur tóku viðbragð þegar það fréttist að Martin Scorsese íhugaði að gera heimildarmynd um þessa lífseigu snillinga sem stilltu fyrst saman strengi sína á öndverðum 7. ára- tugnum. Villt tónlistin og lífsstíll hljómsveitarmeðlimanna gerði bandið á örskotshraða að goðsögn í poppheiminum, sem og farsælar lagasmíðar og óteljandi æsifréttir um hömlulaust, snargeggjað einkalíf sem iðaði af rokki, dópi og kvenna- fans. Tónlistin, textarnir og hegðun þeirra á sviði jafnt sem utan þess var og er ögrandi og andfélagsleg að sumra mati. Lengi vel voru þeir fastagestir í toppsæti vinsældalist- anna, en síðari árin hafa Stones flakkað um heiminn þveran og endi- langan í hverri hljómleikaferðinni af annarri. Ellimörk? Ekki að sjá, þvert á móti ber ekki á öðru en að löng og slítandi ferðalögin veiti þeim aukinn kraft og gleði. Ósvikið stuðið er ótrúlegt á þeim félögum. Þrátt fyrir að meðlimir Stones séu ennþá sprækir sem unglömb er eng- inn ern að eilífu og löngu tímabært að skrásetja á filmu afrek einnar vinsælustu – ef ekki alvinsælustu hljómsveitar rokksögunnar. Það hafa verið gerðar ófáar tilraunir til þess í gegnum árin, þeir sem sáu fréttamyndina með Bítlunum og The Rolling Stones í Laugarásbíó 1963 eru örugglega ekki búnir að gleyma upphafinu – þótt liðið sé hátt í hálfa öld. Samstundis skiptust ungling- arnir í andstæðar fylkingar sem enn eimir eftir af: Þær sem lentu undir áhrifum hinna blúsuðu og hráu Sto- nes eða snyrtipinnanna í The Beat- les. „Gamla fólkið“, einkum mæður og feður, gerði talsverðan grein- armun á útganginum á böndunum og lét vanþóknun sína óspart í ljós í Velvakanda og hliðstæðum vett- vangi. En heilsteypt heimildarmynd í anda The Last Waltz, Stop Making Sense og örfárra topp-tónlist- armynda til viðbótar hefur látið á sér standa. Aðeins Gimme Shelter (’70) getur talist athyglisverð og stendur upp úr í minningunni. Martin Scorsese er viðurkenndur einn fremsti kvikmyndagerð- armaður samtímans og hann á ein- mitt að baki eina bestu hljómleika/ heimildarmynd sögunnar, fyrr- greinda The Last Waltz, sem hann gerði um lokatónleika The Band fyr- ir 30 árum. Síðasti valsinn (’78) Meðlimir The Band, einnar bestu hljómsveitar síns tíma, ákváðu öllum á óvart á tindi ferilsins að hætta samstarfinu. Fundu út réttan tíma- punkt með stjarnfræðilegum út- reikningum. Hvort þeir stóðu sjálfir að valinu á leikstjóranum veit ég ekki, en þeir gátu ekki fundið neinn betri til að skrásetja þennan merk- isviðburð í sögu dægurtónlist- Verði ljós

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.