Morgunblaðið - 06.04.2008, Side 40
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
FOSSVOGUR - BYGGINGARLÓÐ
Byggingarréttur að 540 fm tvíbýlishúsiá frábærum stað í Fossvogi.
Gert er ráð fyrir mikilli lofthæð í væntanlegri nýbyggingu. Lóðin er
byggingarhæf í október nk. TILBOÐ ÓSKAST
FÁFNISNES - SKERJAFIRÐI
Fallegt 87,5 fm parhús á tveimur
hæðum í Skerjafirði. Eignin er
nánast öll endurnýjuð t.d. inn-
réttingar, gólfefni, hurðar og lýs-
ing. Hvít háglans innrétting og
vönduð tæki í eldhúsi og bað-
herbergi flísalagt í hólf og gólf.
Góð lofthæð í stofu. Vestursvalir
út af efri hæð og hellulögð lóð með heitum potti. Verðtilboð.
KLETTÁS - GARÐABÆ
Glæsilegt 169 fm endaraðhús
þ.m.t. 21 fm bílskúr á útsýnis-
stað. Húsið er á þremur pöllum
og er afar vel innréttað með
vönduðum innréttingum úr hnotu
og gólfefni eru afar vönduð. Stór
eyja í eldhúsi, 4 herbergi auk
fataherbergis og svalir til suðurs
út af stofu. Mikil lofthæð er á 1. og 2. palli og innfelld lýsing í loftum.
Glæsileg lóð fyrir framan hús, sólpallur með skjólveggjum baka til og
hellulagður pallur við hlið hússins. Gríðarlegt útsýni yfir Reykjanesið
og til sjávar. Verð 58,7 millj.
HEIÐARBÆR - NEÐST Í ELLIÐAÁRDAL
Vel staðsett 252,5 fm einlyft ein-
býlishús. Um er að ræða annars
vegar 150,3 fm íbúðarrými sem
skiptist m.a. í rúmgóða stofu
með útg. á lóð, arinstofu, 3 her-
bergi, eldhús með nýrri innrétt-
ingu og eyju og baðherbergi og
hins vegar 102,2 fm vinnu-
stofu/íbúð sem bæði er innan-
gengt í og sér inngangur.Verð
60,0 millj.
AUSTURSTRÖND - SELTJARNARNESI
Falleg 161 fm útsýnisíbúð á 8.
hæð (efstu) auk sér stæðis í lok-
aðri bílageymslu. Rúmgott
hol/sjónvarpshol, 3 rúmgóð her-
bergi, stórar stofur með útgangi
á svalir til norðausturs, marm-
aralagður skáli og opið eldhús.
Glæsilegt og víðáttumikið útsýni.
Sér geymsla í kj. og sameiginl.
þvottaherbergi á hæðinni. Verð
55,0 millj.
SKÚLAGATA - ELDRI BORGARAR
3JA HERB. ÍBÚÐ
Vel innréttuð 3ja herb. 73,2 fm
íbúð á 3.hæð í góðu lyftuhúsi
fyrir eldri borgara auk sér
geymslu í kj. Stofa, sjónvarps-
stofa, rúmgott svefnherbergi og
baðherbergi með sturtuklefa og
þvottaaðstöðu. Tvennar flísa-
lagðar yfirbyggðar svalir. Fallegt
útsýni til Esjunnar og víðar. Sér
stæði í bílageymslu. Húsvörður.
Laus strax.Verð 31,9 millj.
FJARÐARGATA - HAFNARFIRÐI
4RA HERB. LÚXUSÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI TIL SJÁVAR
Falleg og björt 128 fm 4ra herb.
íbúð á 4. hæð í þessu glæsilega
lyftuhúsi í miðbæ Hafnarfjarðar.
Rúmgóð stofa/borðstofa, 2 góð
herbergi, eldhús með maghogny
innréttingu og mósaiklagt bað-
herbergi. Flísalagðar yfirbyggðar
svalir. Frábært útsýni. Laus til
afh. við kaupsamn.
40 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
564 6464
Síðumúla 24 • 108 Reykjavík
hof@hofid.is • www.hofid.is
Guðm. Björn Steinþórsson
lögg. fasteignasali
Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala
Ögurhvarf - Til leigu
Gott 520 fm verslunarrými með mikilli lofthæð. Rýmið er að mestu
einn salur og er steinteppi á gólfum. Húsið er vel staðsett og mjög
sýnilegt í vaxandi þjónustuhverfi og hefur því mikið auglýsingagildi.
Bæjarlind - Til leigu
Vel innréttað 425 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í næsta nágrenni við
Smáralindina í Kópavogi. Húsnæðið getur losnað fljótlega.
Skútuvogur - Til leigu
Gott ca. 160 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð, skiptist í fjórar skrifstofur,
eldhús, og snyrtingu. Tölvulangnir í stokkum. Dúkur á gólfi. Laust strax.
KÆRI umboðsmaður barna,
Margrét María Sigurðardóttir.
Frétt í Morgunblaðinu 13. mars
síðastliðinn vakti mig til umhugs-
unar um málefni barna sem ekki
eru komin í heiminn eins og flest
okkar hafa borið gæfu til, þ.e. inn
í fjölskyldu líffræðilegra foreldra
og systkina. Þetta málefni hefur
staðið hjarta mínu nær frá því ég
var lítil stúlka.
Umrædd grein varð til þess að
ég fór að skoða barnalögin sem oft
er vitnað í. Ég átta mig hins vegar
ekki almennilega á
öllum þeim lögum
sem eiga að hafa vel-
ferð barna að leið-
arljósi og sný mér því
til þín í angist minni.
Mér finnst ekki gæta
samræmis innan lag-
anna þegar ég skoða
þau, þ.e. „barnalögin“
og „lög um ættleið-
ingar“ (þ.e. upplýs-
ingaskyldu kjörfor-
eldra og aðgang
kjörbarns að upplýs-
ingum).
Í I. kafla barnalaga 1. gr. er
kveðið á um rétt barna til að
þekkja foreldra sína
og í athugasemdum
við einstakar greinar
frumvarpsins er í
þessu sambandi vitn-
að í 4. gr. samnings
Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barna. Í
samningnum er m.a.
mælt svo fyrir að
barn eigi frá fæðingu
rétt til, „eftir því sem
unnt er“, að þekkja
foreldra sína og er
hið nýja upphafs-
ákvæði frumvarpsins
leitt af þessum ákvæðum.
Þetta „eftir því sem unnt er“
hlýtur að vera vegna aðstæðna
sem enginn getur ráðið við.
Lög um ættleiðingar gera kjör-
foreldrum skylt að upplýsa barn
um að það sé ættleitt strax og það
hefur þroska til eða ekki síðar en
um 6 ára aldur. „Þegar kjörbarn
hefur náð 18 ára aldri á það rétt á
að fá tiltækar upplýsingar um það
frá dómsmálaráðuneytinu hverjir
séu kynforeldrar þess eða fyrri
kjörforeldrar.“
Nú eru allir jafnir fyrir lögum.
Börn sem getin eru með tækni-
frjógvun hljóta að njóta, frá fæð-
ingu sinni, sömu réttinda og önnur
börn. Þau eru varla svipt þessum
réttindum á kerfisbundinn hátt?
Heldur dómsmálaráðuneytið líka
utan um upplýsingar um kynfor-
eldra þessara barna?
Ég birti hér fyrir neðan útdrátt
úr barnalögum og lögum um ætt-
leiðingar og athugasemdir við ein-
stakar greinar þeirra til frekari
skýringar. Efnið fann ég á vefn-
um: www.althingi.is
Barnalög
2003 nr. 76 27. mars
Tóku gildi 1. nóvember 2003.
Breytt með l. 115/2003 (tóku gildi
30. október 2003), l. 50/2006 (tóku
gildi 1. júlí 2006), l. 65/2006 (tóku
gildi 27. júní 2006) og l. 69/2006
(tóku gildi 30. júní 2006).
I. kafli. [Foreldrar barns.]1)
1)L. 65/2006, 26. gr.
1. gr. Réttur barns til að þekkja
foreldra sína.
Opið bréf til umboðsmanns b
Stella Gróa Óskarsdóttir
fjallar um rétt barna til að
þekkja foreldra sína
Stella Gróa
Óskarsdóttir
Fréttir
í tölvupósti
Strandvegur 15
210 Garðabær
Design útsýnisíbúð
Stærð: 119 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 2004
Brunabótamat: 23.620.000
Bílskúr: Nei
Verð: 45.900.000
Stórglæsileg Design og útsýnisíbúð. Íbúðin er öll sérhönnuð af Valgerði Matthíasdóttur arkitekt. Einstaklega
björt íbúð á 3 hæð í lyftuhúsi, með bílastæði í bílakjallara.Anddyri: Fataskápar með flottum glerhurðum á
stálbrautum. Þvottaherbergi: Sandsteinsflísar á gólfi og er ljósnemi í gólfinu. Eldhús: Hálfopið inní
borðstofuna og stofuna en sérsmíðað borð er í kringum eyjuna. Borðstofa og stofa: Risastórir gluggar út
að sjónum með útsýni sem er engu líkt og útgengt á svalir.
Lind
Þórarinn Jónsson
Lögg. fast. hdl.
Hannes Steindórs.
Sölufulltrúi
thorarinn@remax.is
hannes@remax.is
Kristín Skjaldard
Sölufulltrúi
kristins@remax.is
Opið
Hús
OPIÐ HÚS SUN 6. APRÍL KL.16:00 - 16:30
RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is
699 5008
824 4031