Morgunblaðið - 06.04.2008, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
LEYFIR ÞÚ EINHVERN
TÍMANN FÓLKI AÐ
NJÓTA VAFANS?
HVAÐ HELDUR
ÞÚ AÐ ÉG SÉ AÐ
GERA NÚNA?
HVAÐ ÁTTU
EIGINLEGA VIÐ
MEÐ ÞVÍ?
ÞÚ ÁTT EFTIR
AÐ HITTA
HÁVAXINN,
DÖKKAN MANN
HVERNIG STAFAR MAÐUR
EIGINLEGA PÍRAMÍDI?
MIG LANGAÐI ALLTAF AÐ FARA Í
FLÓASIRKUS, EN ÞÁ HEFÐI ÉG ÞURFT AÐ
YFIRGEFA ALLA VINI MÍNA
ÞEGAR ÉG HEF
REYNT ALLT
OG ÞAÐ ER
EKKI ENN
BYRJAÐ AÐ
RIGNA, ÞÁ
ÞVÆ ÉG BARA
BÍLINN MINN
VERÐUM AÐ AUKA
FRAMLEIÐNINA
1. SKREF
BAUKA
FRAMLEIÐSLA
2. SKREF 3.SKREF
4. SKREF
BLA BLA
HVAÐ ÁTTI ÉG AÐ SETJA
Í SPARIBAUKINN?SPARIBAUKINN
FRAM
NÚNA ÞEGAR
MÉR HEFUR TEKIST
AÐ TEMJA ELDINN
ÆTLA ÉG AÐ KVEIKJA
Í HELLINUM MÍNUM,
FÁ HANN BÆTTAN
FRÁ TRYGGINGUNUM
OG KAUPA MÉR
NÝJAN, STÆRRI
HELLI
dagbók|velvakandi
Mjólkurkexið
ÉG ætla að taka undir þetta með
mjólkurkexið, að það er ekki eins
gott og það var. Eins er það með
aðrar vörur frá Frón, þær eru
ekki eins og þær voru. Það væri
gott að fá svör við þessu, hvers
vegna það hefur breyst.
Neytandi
Mjólkurkex
ÉG hef tekið eftir því að mjólk-
urkexið hefur breyst og hef ég
varla haft það á mínum borðum
síðan. Það er miklu grófara og
ekki nærri því eins gott. Svo ég
tek undir þessa kvörtun sem birt-
ist í Velvakanda föstudaginn 4.
apríl.
Amma á Seltjarnarnesi
En um mjólkurkexið
ÉG las bréf frá neytanda í föstu-
dagsblaðinu 4. apríl, þar er kvart-
að undan breyttu mjólkurkexi frá
Frón. Þeir þurfa aldeilis að taka
sig saman í andlitinu, einnig
kremkexið, sem hefur verið gott
þangað til nýlega, er orðið grjót-
hart og dugar ekki að dýfa því í
kaffið til að það linist. Mér finnst
þetta alveg synd því það hefur
alltaf verið svo gott.
Annar neytandi
Sími gleymdist
ÉG gleymdi Nokia-símanum mín-
um á kaffihúsinu Addesso í
Smáralindinni, á miðvikudag sl.
Þegar ég kom aftur, aðeins 10 mín
síðar, var hann horfinn og enginn
kannaðist við að hafa séð hann.
Þetta hefur verið um kl. 15. Ef
einhver hefur upplýsingar um
hann er hann vinsamlegast beðinn
um að hringja í mig í síma: 695-
8291.
Engar auglýsingabrellur
VARÐANDI grein sem birtist í
Velvakanda 3. apríl um auglýs-
ingabrellur Nóatúns, þá er það
ekki alveg rétt að kóteletturnar
hefðu verið búnar eins og fram
kom, því ég fór í Nóatún og keypti
kótelettur á þessum afslætti um
miðjan daginn sl. sunnudag, 30
mars.
Eldri borgari
Áminning
ÉG tek undir þá hugmynd að ríkið
kaupi flugvél og alþingismenn geti
sem oftast farið til útlanda. En
sumir ráðherrar þurfa ekki endi-
lega að koma til baka og það átti
fyrir löngu að reka Árna Mathie-
sen fyrir afglöp í starfi.
Björn Indriðasson
Tryggingar
ÉG er búin að tryggja heimilið
mitt í 40 ár og ég borga alltaf
gjaldið mitt einu sinni á ári. Ekki
alls fyrir löngu spurði ég hvort að
innbúið allt væri ekki örugglega
tryggt og fékk jákvætt svar við
því. Ég keypti nýtt sjónvarp og
ári síðar gerist það að sjónvarpið
dettur fram fyrir sig og eyði-
leggst. Þá hringdi ég í trygging-
arnar og var mér tjáð það að allt
innbúið væri tryggt nema sjón-
varpið. Þá er það varla allt innbú-
ið.
Ólafía
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Kynntu þér námið á www.hr.is
Í kennslufræðináminu er lögð áhersla á aðstæður í lífi barna
og unglinga innan og utan skóla á Íslandi í dag en einnig á
menntun fullorðinna og verðandi kennarar þjálfaðir í
árangursríkum kennsluháttum sem henta ólíkum
aldurshópum.
Námið er 30 eininga diplómanám sem veitir kennsluréttindi
í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskóla. Námið er
ætlað þeim sem hafa lokið að minnsta kosti BA- eða
BSc-námi. Nemendur sem hafa lokið meistaranámi taka 15
einingar í stað 30 til að öðlast kennsluréttindi á
framhaldsskólastigi. Kennt er haustönn, vorönn og
sumarönn og er hægt er að hefja nám á hvaða önn sem er,
en fylgja þarf undanfarareglum við val á námskeiðum.
Námið er lotubundið þar sem hvert námskeið stendur yfir í
fjórar vikur og eru flest námskeið kennd þrisvar í viku frá kl.
16:20 – 19:00 virka daga. Lögð er áhersla á virka þátttöku
nemenda í tímum, sjálfstæð vinnubrögð og raunhæf
verkefni.
Tökum við umsóknum núna
Í KENNSLUFRÆÐI
DIPLÓMANÁM