Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 102. TBL. 96. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HVERNIG ER ÁLFUR?
HVAÐ GEKK PHILIPP BERGMEISTER TIL MEÐ ÞVÍ
AÐ VARPA MYNDUM Á HALLGRÍMSKIRKJU? >> 36
!
"
# $
%
$&
' (%
)
*+
,--.
,/
,--0
1
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
VIÐ þurfum að leita langt aftur í tímann
til að sjá viðlíka vexti. Ef einhvern tímann
er hagstætt að spara er það við þessar að-
stæður,“ segir Tómas Möller, for-
stöðumaður verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
Landsbankans. Vextir á innlánsreikningum
banka og sparisjóða, sem voru ákvarðaðir
11. apríl sl., hafa vart verið hærri í nær tvo
áratugi. Kjörin taka mið af stýrivöxtum
Seðlabankans, sem eru nú 15,5% en voru
síðast 15% um mitt ár 1989.
Flestir bankar og sparisjóðir bjóða upp á
tvær megingerðir sparireikninga. Annars
vegar óverðtryggða reikninga með litlum
eða engum binditíma og háum vöxtum, hins
vegar verðtryggða reikninga með nokkurra
ára binditíma og lægri vöxtum. Vaxtamun-
urinn tekur mið af verðbólgustiginu, sem
síðast mældist 8,7%.
Hærri innistæða gefur hærri vexti
Hæstu vextir á óverðtryggðum spari-
reikningum eru iðulega á svonefndum
markaðs- eða vaxtareikningum. Þeir eru
ýmist á bilinu 11,5-15,5% eða 14,5-16,8%
eftir því hvaða banka eða sparisjóð skipt er
við. Ef innistæðan er t.a.m. ein milljón, bera
markaðsreikningar þessir almennt yfir 14%
vexti. Yfir 16% vextir fást ekki nema með
40-60 milljóna innistæðu. Þessir reikningar
eru yfirleitt ekki bundnir nema til tíu daga í
mesta lagi, en stundum miðast vextirnir við
hversu lengi upphæðin hefur staðið inni.
Svokallaðir peningamarkaðssjóðir eru
einnig í boði, þar sem sjóðstjóri fjárfestir í
öruggum skammtímabréfum fyrir hönd
viðskiptavina. Tómas segir vaxtastig slíkra
sjóða hreyfast í takt við stýrivexti, líkt og
markaðsreikninganna. Ávöxtunin sé oft
svipuð ef um minni upphæðir er að ræða.
Vextir verðtryggðra reikninga eru nú á
bilinu 6,9-7,7%. Þeir eru yfirleitt bundnir í
þrjú til fimm ár og geta að sögn Tómasar
reynst vel þegar verðbólga er mikil.
Loks eru í boði höfuðstólstryggðir reikn-
ingar, þar má fjárfesta á verðbréfa- og
gjaldeyrismörkuðum.
„Ávöxtun þeirra tekur mið af verðbreyt-
ingu á vöru eða vísitölu, svo sem gengi á
gulli eða úrvalsvísitölu,“ segir Þórdís Páls-
dóttir hjá viðskiptabankasviði Kaupþings.
Bestu kjör
á sparnaði
í áraraðir
Óverðtryggðir vextir
allt að því 16,8%
„ÞAÐ ERU erfiðir mánuðir fram undan sem
munu krefjast mikils styrks,“ sagði Silvio Ber-
lusconi, næsti forsætisráðherra Ítalíu, sigurreif-
ur eftir að hægri menn fóru með sigur af hólmi í
nýafstöðnum þingkosningum.
Umberto Bossi, leiðtogi Norðurbandalagsins,
sem mun fara fyrir hinni nýju stjórn ásamt
Frelsisflokknum, bandalagi nokkurra hægri-
flokka undir forystu Berlusconis, sagðist í gær
myndu virða sameiginlegar áætlanir þeirra.
Hann myndi ekki halda Berlusconi í „gíslingu“.
Hægrimanna á Ítalíu bíður það erfiða verkefni að blása í glæður
efnahags landsins, en útlit er fyrir lítinn hagvöxt í ár. | Miðopna
Silvio Berlusconi
Berlusconi boðar
erfiða tíma á Ítalíu
Fló á skinni >> 37
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8-
00
80
NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is
Hringdi á undan sér
Maður sem grunaður er um aðild að hrottalegu morði í heimalandi sínu, Póllandi,
gaf sig fram við lögreglu um sjöleytið í gærkvöldi Gæsluvarðhalds krafist í dag
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
og Önund Pál Ragnarsson
ALÞJÓÐADEILD ríkislögreglustjóra barst í
gær handtökubeiðni frá skrifstofu alþjóðalög-
reglunnar Interpol í Varsjá í Póllandi vegna Pól-
verjans sem dvelst hér á landi og er grunaður um
aðild að hrottalegu morði í heimalandi sínu. Þetta
staðfestir Smári Sigurðsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá alþjóðadeild. Eftir að þetta var
kunngert hringdi maðurinn í lögreglu og lét vita
af því að hann myndi gefa sig fram á lögreglu-
stöðinni við Hverfisgötu. Þangað mætti hann svo
rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi, þar sem hann
var handtekinn. Tekin var af honum skýrsla og
hann því næst vistaður í fangageymslu. Í dag
breytingar í samræmi við hana. Svo verði samn-
ingurinn lagður fram til fullgildingar. Björn telur
þó ekki að hér á landi sé að finna sérstakt skjól
fyrir erlenda afbrotamenn á Evrópska efnahags-
svæðinu, þar sem í stjórnkerfinu sé tekið með
skjótum hætti á þeim framsalsbeiðnum sem
stjórnvöldum berast að utan. „Þetta er ekki rétt
þegar litið er á hversu fljótt er brugðist við ef til-
mæli koma. Það getur vel verið að einhver hafi
talið þessum mönnum trú um að þeir hafi meira
skjól hér, en ég vil alls ekki að íslensk löggjöf sé
þannig eða sé túlkuð þannig,“ segir Björn.
verður krafist gæsluvarðhalds yfir manninum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom
nafn mannsins fyrst til skoðunar þegar hann var
talinn hafa verið í hópi manna sem ruddust inn í
íbúð í Reykjavík og ógnuðu íbúum. Íbúarnir vildu
ekki kæra, en farið var að spyrjast fyrir um
manninn í kjölfar þessa.
Pólsk stjórnvöld biðja um framsal
Framsalsbeiðni frá pólskum stjórnvöldum
barst dómsmálaráðuneytinu strax í gær, að sögn
Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, í viðtali
við fréttavef Morgunblaðsins.
Björn segir þar að Ísland hafi samið við ESB
um aðild að evrópsku handtökutilskipuninni. Ver-
ið sé að semja frumvarp um nauðsynlegar laga-
Reglur um framsal einfaldaðar
mbl.is | Sjónvarp
LÍF og fjör var á generalprufu nemenda Ball-
ettskóla Eddu Scheving í Borgarleikhúsinu í
gær. Hópar ungra og upprennandi dansara
æfðu þar sporin fyrir aðalsýninguna sem hald-
in verður í dag fyrir ættingjahópinn sem auð-
vitað horfir á fullur stolts og aðdáunar.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Ballettskór, tútú og fullt af brosum