Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Egilsstaðir | Karlakórinn Drífandi á
Fljótsdalshéraði verður á faralds-
fæti nú um sumarmálin. Kórinn er
lagstur í ferðalög með fjölbreytta
söngskrá sína sem hann nefnir Út-
rás, á vortónleikum.
Tónleikaferðin hófst á Vopnafirði
föstudaginn 11. apríl síðastliðinn,
síðan var sungið í Egilsstaðakirkju
sunnudaginn 13. apríl. Á morgun,
miðvikudaginn 16. apríl, heldur kór-
inn tónleika í Norræna húsinu í
Reykjavík. Þeir tónleikar eru upp-
hafið að eiginlegri útrás kórsins en
19. og 20. apríl heldur kórinn tvenna
tónleika í Krakow í Póllandi. Vortón-
leikaröðinni lýkur svo með árvissum
tónleikum kórsins að Arnhólstöðum í
Skriðdal sem hann heldur ásamt
Kvenfélagi Skriðdæla til styrktar
Örvari, íþróttafélagi fatlaðra. Þetta
framtak Drífanda hefur meðal ann-
ars gert Íþróttafélaginu Örvari kleift
að senda keppanda á Ólympíuleika
fatlaðra, þar sem hann vann til verð-
launa.
Félagar í kórnum koma flestir af
Fljótsdalshéraði en dreifast annars á
svæðið norðan frá Vopnafirði suður í
Fáskrúðsfjörð. Karlakórinn hefur
frumflutt mörg lög eftir heimamenn
á Fljótsdalshéraði en kórfélagar
leggja sig jafnan fram um að syngja
lög sem eiga rætur sínar að rekja til
Fljótsdalshéraðs og eða Austur-
lands.
Aðalverkefni kórsins á síðasta
starfsári var verkefni undir yfir-
skriftinni „Á heimaslóðum“. Þar var
lögð áhersla á flutning verka eftir
heimamenn á Austurlandi. Bæði var
um að ræða þekkt verk eða verk sem
sjaldan eða aldrei höfðu verið flutt
áður.
Stjórnandi kórsins hefur verið frá
upphafi Drífa Sigurðardóttir, skóla-
stjóri Tónlistarskólans í Fellum, og
undirleikari er Zbigniew Zuchowicz,
skólastjóri Tónlistarskóla Vopna-
fjarðar.
Drífandi karlar
á faraldsfæti
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Söngvinir Félagar í Karlakórnum Drífanda á Fljótsdalshéraði.
Neskaupstaður | Uppstilling í Náttúrugripasafninu í
Neskaupstað er með því besta sem gerist á nátt-
úrugripasöfnum landsins. Nemendur í 1. bekk Nes-
skóla voru að læra um hrafninn og brugðu á það ráð að
heimsækja safnið til að geta skoðað krumma betur í ná-
vígi. Meðal verkefna var að teikna fuglinn, en það er
ólíkt þægilegra viðfangs með uppstoppaðan krumma,
en lifandi krumma. Þessi litli listamaður, Hilmir Óm-
arsson, var að minnsta kosti ánægður með viðfangs-
efnið og leysti það með bros á vör.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Svartfjaðraður safnfugl teiknaður
Fjarðabyggð | Á fimmtudag fer
fram seinni umræða bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar um ársreikning
sveitarfélagsins fyrir árið 2007.
Rekstrarniðurstaða án fjármuna-
tekna og fjármagnsgjalda var já-
kvæð sem nam 773.4 milljónum
króna í samstæðuársreikningi, A og
B hluta. Þar af var rekstrarniður-
staða A hluta jákvæð um 589.6 m. kr.
Að teknu tilliti til fjármagnsgjalda
var rekstur samstæðu jákvæður sem
nam 500.9 m. kr. og A hluta 507.8 m.
kr. Rekstrartekjur námu 4.042.8 m.
kr. og rekstrargjöld án afskrifta í
samstæðu 2.997.7 m. kr.
Fjárfestingar í varanlegum
rekstrarfjármunum námu 770.8 m.
kr. Eignir sveitarfélagsins voru í lok
árs 2007 8.596.5 m. kr. Langtíma-
skuldir við lánastofnanir námu
4.827.3 m. kr. og skammtímaskuldir
6.3 m. kr.
Tekjur hækkuðu í heild um 6,6%
frá 2006. Mest hækkuðu útsvarstekj-
ur eða um 16,6% og aðrar tekjur um
13,3%. Bygging álvers í Fjarða-
byggð og umsvif vegna framkvæmda
í sveitarfélaginu höfðu mikil áhrif á
tekjumyndun og þá sér í lagi áhrif
frá starfsmannaþorpi Bechtel á
Haga. Fram kemur að framlag Jöfn-
unarsjóðs til Fjarðabyggðar lækkaði
um tæp 50% frá fyrra ári en með
hækkandi tekjum sveitarsjóðs lækk-
ar framlag jöfnunarsjóðsins umtals-
vert.
Forstöðukona fjármála Fjarða-
byggðar er Jóna Árný Þórðardóttir.
Góð afkoma í Fjarðabyggð
MENNINGARRÁÐ Eyþings hefur
úthlutað rúmlega 20 milljónum til
margvíslegra menningarverkefna í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
Hæsta styrkinn, eina milljón,
hlaut Akureyri International Music
Festival, AIM festival, eins og hún
er kölluð í daglegu tali. Að hátíðinni
stendur áhugahópur um fjölbreyttan
og lifandi tónlistarflutning. Aðrir
sem fengu styrk að þessu sinni eru
eftirtaldir: Hugrún Ívarsdóttir til að
halda laufabrauðsdag á Akureyri;
Ungmennafélagið Glói á Siglufirði til
að halda Ljóðahátíðina Glóð í sam-
starfi við Herhúsafélagið á Siglu-
firði; Kristbjörg Sigurðardóttir sem
hefur safnað hringingum sveitasíma
á Vestur-Sléttu, í Núpasveit og Öx-
arfirði í Norður-Þingeyjarsýslu;
Rauðanesdagurinn sem verður hald-
inn snemmsumars og Hrútadag-
urinn sem hefur verið haldinn á
Raufarhöfn; Dalvíkurbyggð vegna
ljósmyndasamkeppni í tilefni 10 ára
afmælis sveitarfélagsins; Kirkjukór
Reykjahlíðar sem heldur upp á ald-
arafmæli 4ra radda söngs; Gall-
erívíð8tta601 til myndlistasýningar;
Tónlistarfélag Akureyrar vegna tón-
leikaraðarinnar „Föstudagsfreist-
inga“; Langanesbyggð til að minnast
síðasta starfandi vatnsberans á Ís-
landi; Anna Richardsdóttir til verk-
efnisins Alheimshreingjörningur;
ættingjar Kristjáns frá Djúpalæk
vegna undirbúnings minnisvarða um
skáldið í Langanesbyggð; Minja-
safnið á Akureyri og Amts-
bókasafnið á Akureyri styrk til verk-
efnisins Sumarlestur – Akureyri
bærinn minn: Norræna félagið á Ak-
ureyri til verkefnisins „Norrænt
handverk norðan heiða“; Amts-
mannssetrið vegna Leikhússins á
Möðruvöllum; áhugahópur fólks úr
Norðurþingi og Svalbarðshreppi til
að heiðra minningu Jóns Trausta;
Þjóðlagasafn sr. Bjarna Þorsteins-
sonar og Síldarminjasafnið á Siglu-
firði til að gefa út fræðsluefni; Garð-
arshólmur sem er upplifunar- og
þekkingarsetur á Húsavík; Dans-
félagið Vefarinn sem er þjóðdans-
ahópur í Eyjafirði; Sumardagskrá
byggðasafnsins Hvols á Dalvík; Ak-
ureyrarstofa vegna verkefnisins
Söguslóð: miðbær-innbær; verkefnið
Norðan Garri 2008, hæfileikakeppni
ungs fólks á Norðurlandi eystra;
Langanesbyggð vegna merkingar á
Skálum, eyðiþorpi á austanverðu
Langanesi; Munkaþverárkirkja
vegna gerðar söguskiltis; sýningin
Staðfugl – Farfugl sem verður sett
upp á víðavangi víðsvegar um Eyja-
fjarðarsveit í vor; Safnasafnið á
Svalbarðsströnd sem tekur nú í
fyrsta skipti þátt í Listahátíð í
Reykjavík; Flygilvinafélagið á Kópa-
skeri vegna tónleikaraðar; Menning-
ar- og fræðslunefnd Norðurþings
vegna verkefnisins Hembrygden;
Byggðasafnið á Grenjaðarstað og
Hið þingeyska fornleifafélag vegna
skipulagðrar göngudagskrár í Að-
aldal; verkefnið Drauma Jói í Sauða-
neshúsi sem er samstarfsverkefni
Draumasetursins Skuggsjár og
Sauðanesnefndar; ferðaþjónustan á
Klængshóli í Skíðadal en þar er lögð
áhersla á að styrkja tengsl ferða-
mannsins við náttúruna og um leið
sjálfan sig; Hollvinir Húna II og
Matvælasetur Háskólans á Akureyri
til verkefnisins „Frá öngli til maga“;
Leikminjasafn Íslands í samstarfi
við Þórarin Blöndal til að setja upp
yfirlitssýningu um leiklistarfsemi á
Akureyri, Eyjafjarðarsvæðinu og
Norðurlandi eystra; verkefnið
„Förumenn og flakkarar“ sem ætlað
er að varpa ljósi á líf og störf föru-
manna á árum áður; Skjálftafélagið
sem er félag áhugafólks um jarð-
skjálftasetur á Kópaskeri; „Siglir
mitt fley“ sem er samstarfsverkefni
Síldarminjasafnsins á Siglufirði,
Verkmenntaskólans á Akureyri og
Nordnorsk Fartøvensenter í Gra-
tangen í Noregi; Helga Bryndís
Magnúsdóttir vegna píanótónleika á
Norðurlandi; Helgi magri ehf. sem
er nýstofnað fyrirtæki í menningar-
tengdri ferðaþjónustu; Ferðaþjón-
ustan Narfastöðum í Þingeyjarsveit
vegna verkefnisins „Sögugönguleið-
ir í Reykjadal“; Gásakaupstaður
vegna merkinga á svæðinu; Kóra-
stefna við Mývatn sem verður haldin
í 6. sinn í byrjun júní; Eyfirski safn-
adagurinn; Útgerðarminjasafnið á
Grenivík en unnið er að opnun þess;
Fuglasafnið í Mývatnssveit; Þing-
eyskur sögugrunnur sem er nýsköp-
unar- og þróunarverkefni sem unnið
hefur verið að undanfarið; stutt-
myndafestivalið Stulli sem verður
haldið í annað skipti á haustdögum,
og Verksmiðjan Hjalteyri sem er
samstarfsverkefni 14 listamanna.
20 milljónir í menninguna
Í HNOTSKURN
»Áherslur við úthlutun þessaárs voru meðal annars verk-
efni sem vekja athygli á sögu-
stöðum og menningartengdum
viðburðum – verkefni sem efla
þekkingu á sögu og sérkennum
svæðisins, verkefni sem stuðla að
þátttöku sem flestra og brúa
kynslóðabil.
Menningin Styrkþegar eftir afhendinguna sem fram fór í Tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit.
FÉLAG eldri borgara á Akureyri og
Akureyrarbær hafa endurnýjað sam-
komulag frá 2005 en það rennur út í
árslok. Nýja samkomulagið tekur
gildi 1. janúar nk. og er að mestu sam-
bærilegt fyrra samkomulagi.
Á heimasíðu Akureyrarbæjar kem-
ur fram að samkomulagið eigi að
stuðla að því sameiginlega markmiði
bæjarins og félagsins að eldri borg-
arar í bænum eigi kost á eins góðu fé-
lags- og tómstundastarfi og þörf er á
hverju sinni til að viðhalda færni sinni
og njóta efri áranna eftir vilja og getu
hvers og eins.
Félagið fær til endurgjaldslausra
afnota húsnæði í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni í Bugðusíðu 1 og auk þess
árlegan rekstrarstyrk að upphæð
700.000 kr. Félagið sinnir marghátt-
aðri starfsemi á eigin vegum og eykur
þannig fjölbreytni þeirra tilboða sem
eldri borgurum stendur til boða. Sam-
komulagið gerir einnig ráð fyrir
auknu samráði milli félagsins og bæj-
arins um ýmislegt sem varðar þennan
aldurshóp sérstaklega og hagsmuni
hans. Félagar í Félagi eldri borgara á
Akureyri eru ríflega 900 talsins.
Samið við félag
eldri borgara
AUSTURLAND
EYGLÓ Björnsdóttir lektor og Ing-
ólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor
flytja í dag erindi á málstofu kenn-
aradeildar Háskólans á Akureyri
undir yfirskriftinni „Menntun til
sjálfbærrar þróunar: þekking virð-
ing, ábyrgð“. Málstofan hefst kl.
16:15 í stofu 16 við Þingvallastræti.
Allir eru velkomnir. Í málstofu þess-
ari verður kynnt rannsóknar- og
þróunarverkefni nokkurra skóla, en
markmið þess er að meta stöðu
menntunar til sjálfbærrar þróunar í
ljósi stefnumörkunar íslenskra
stjórnvalda og alþjóðlegra stofnana.
Menntun og
sjálfbær þróun