Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er bandaríska kvikmyndin 21
sem frumsýnd var um helgina sem
fellir mynd Ólafs Jóhannessonar
Stóra planið af toppi Bíólistans.
Þegar hafa rúmlega 15.500 manns
borgað sig inn á Stóra planið sem
verður að teljast ansi gott þegar
haft er í huga að myndin er fyrsta
leikna kvikmynd Ólafs Jóhann-
essonar í fullri lengd. Um 2.500
manns sóttu kvikmyndina 21 sem
fjallar um nokkra bráðsnjalla nem-
endur við MIT-tækniháskólann sem
finna leið til þess að sveigja líkur í
fjárhættuspilum sér í vil og nýta sér
það óspart í spilavítunum í Las Veg-
as. Myndin er lauslega byggð á
sannsögulegum atburðum og hefur
hlotið ágætis dóma víðast hvar.
Það segir manni svolítið um aldur
og húmor kvikmyndagesta síðustu
helgar að grínmyndin Superhero
Movie skaut tónleikamyndinni
Shine a Light ref fyrir rass. Tæp-
lega 2.200 gestir sóttu grínmyndina
sem er leikstýrt af Craig Mazin,
þeim hinum sama og skrifaði hand-
ritin að Scary Movie 3 og 4. Mazin
tekur ofurhetjumyndir undanfar-
inna missera fyrir á sama hátt og
hann gerði með hryllingsmyndirnar
og útkoman er … álíka klikkuð. Um
þúsund manns gerðu sér ferð á
Rolling Stones-tónleika í leikstjórn
kvikmyndajöfursins Martins Scor-
sese.
Eins og sjá má kemst engin af
þeim kvikmyndum sem frumsýndar
voru á vegum Græna ljóssins inn á
topp 10-listann en opnunarmyndin
Tropa de Elite situr við þröskuldinn
og bíður þolinmóð. Kvikmyndagest-
ir eru að sjálfsögðu hvattir til að
gera sér ferð niður í Regnboga þar
sem í boði eru bæði leiknar kvik-
myndir og heimildarmyndir á
heimsmælikvarða.
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Svarti Pétur
trompar Stóra planið
%5"#%
! "# $ %
&'
() (*
+ %,-. / - #
+ 0 #
1 %%
Fjárhættuspilarar Gæfuhjólið snýst í heilan hring hjá krökkunum í 21.
SPILAKASSALEIKURINN Don-
key Kong er enn spilaður af mikilli
ástríðu meðal dyggustu aðdáenda
þessa gamla tvívíða tölvuleiks.
Þaulskipulögð mót fara fram þar
sem einskis er svifist, heimsmeist-
aratitillinn er að veði og aðeins
einn trónir á toppnum. Þetta er
veröldin sem Seth Gordon kynnir
fyrir áhorfendum í heimildamynd
sinni, Donkey Kong kóngurinn, en
hún fjallar um menn sem lifa sig
svo sannarlega inn í leikinn þar
sem píparinn Mario leitast við að
bjarga prinsessu úr prísund hjá
stórri górillu með því að komast
upp byggingarplanka og hoppa yf-
Meistarar „Þetta er forvitnileg mynd sem veitir innsýn í sérkennilegan
menningarkima […],“ segir meðal annars í dómi gagnrýnanda.
Glymur í spilakassa
KVIKMYND
Regnboginn – Bíódagar
Græna ljóssins
Leikstjórn: Seth Gordon. 78 mín. Banda-
ríkin, 2007.
Donkey Kong kóngurinn: Hnefafylli af
klinki (The King of Kong: A Fistful of Quar-
ters)
bbbmn
Heiða Jóhannsdóttir
ir tunnur. Mynd-
in kynnir til sög-
unnar
heimsmeist-
arann í Donkey
Kong, Billy
Mitchell, og
yngri áskoranda,
Steve Wiebe, og
lýsir því kostu-
lega ferli sem í
hönd fer þegar allt útlit er fyrir að
Wiebe hafi tekist að slá met
Mitchells. Þetta er forvitnileg
mynd sem veitir innsýn í sérkenni-
legan menningarkima en helsti
styrkur Gordons sem leikstjóra er
sú virðing sem hann hefur fyrir
spilamönnunum sem hann fylgir
eftir og sértæku áhugamáli þeirra.
Þá hefur Gordon næmt auga fyrir
góðum viðtalsbútum og lýsandi
myndskeiðum. Útkoman er heim-
ildamynd sem er jafn-grátbrosleg
og hún er skemmtileg.
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ
(TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
eeeee
-S.M.E., Mannlíf
eeee
- S.S. , X-ið FM 9.77
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Háskólabíói
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
J E S S I C A A L B A
Vantage point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Shutter kl. 10:30 B.i. 16 ára
Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6
- L.I.B.
TOPP5.is/FBL.
eee
21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 B.i. 12 ára
21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 LÚXUS
Superhero movie kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Definately maby kl. 5:30 - 8
SÝND Í BORGARBÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
- Empire
eeeeeeee
- E.E, D.V.- ÓHT, Rás 2
eee
- L.I.B.
Topp5.is/FBL
eeee
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
2 VIKUR Á TOPPNUM Í USA!
MÖGNUÐ MYND BYGGÐ
Á SÖNNUM ATBURÐUM
UM HÓP NEMENDA SEM
SÉRHÆFÐU SIG Í AÐ
LÆRA OG TELJA Í SPILIÐ
21 MEÐ ÞAÐ MARKMIÐ
AÐ HREINSA SPILAVÍTIN
Í VEGAS!
Superhero Movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Vantage Point kl. 8 B.i. 16 ára
The Orphanage kl. 6 B.i. 16 ára
The Eye kl. 10 B.i. 16 ára
21 kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Superhero movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Doomsday kl. 10:30 B.i. 16 ára
The other Boleyn girl kl. 5:30 B.i. 10 ára
The Kite Runner kl. 10 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
eee
- S.V., MBL
- S.V., MBL
eee