Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG MUNDI EKKI
BORÐA SÚKKULAÐIÐ
Á KODDANUM
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
ÞIÐ SÉUÐ VEÐURTEPPT...
ÞIÐ VERÐIÐ AÐ GISTA
HÉRNA Í NÓTT
ÞJÓNNINN MINN, TRÚGLÓ, VÍSAR
YKKUR AÐ DÝFLISSUNUM YKKAR...
ÉG MEINA
HERBERGJ-
UNUM...
YKKAR
ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT HVAÐ ÞÚ
ERT MIKILL KJÁNI!
JÁ, KJÁNASKAPURINN Í
MÉR ER ALVEG EINSTAKUR!
ÉG ÆTLA
AFTUR HEIM.
ÉG ER EKKI Í
KULDASKÓM
ÉG GLEYMDI LÍKA AÐ
FARA Í VETTLINGA OG
SETJA Á MIG HÚFU
KALVIN,
VILT ÞÚ EKKI
BYRJA
LESTURINN
Í DAG?
NEI
HVAÐ SEGIR HÆSTIRÉTTUR
UM ÞETTA? ÞARF EKKI AÐ
HANDTAKA MIG FYRST? ÞAÐ
MÁ EKKI NEYÐA MIG TIL AÐ
GERA ÞETTA ÁN ÞESS AÐ
HAFA ÁSTÆÐU!
ÉG KEM BARA HINGAÐ
VEGNA ÞESS AÐ FORELDRAR
MÍNIR NEYÐA MIG TIL ÞESS!
ÉG VIL EKKI ÞURFA AÐ TAKA
ÞÁTT Í ÞESSARI VITLEYSU!
ÞÚ VERÐUR AÐ BIÐJA
EINHVERN ANNAN UM ÞETTA
KALVIN? ANSANS!
KLUKKAN ER
EKKI EINU
SINNI ORÐIN
NÍU...
TAKK FYRIR AÐ BJÓÐA MÉR Í
MAT, HRÓLFUR... EN VERÐUR
HELGA EKKI REIÐ EF ÞÚ KEMUR
SEINT HEIM Í MAT?
BARA EF HÚN
ÞARF AÐ
BÍÐA ÞAÐ
LENGI AÐ
HÚN BRENNIR
MATINN
EEE... HVAÐ
SEGIR ÞÚ
UM AÐ VIÐ
FÖRUM ÚT
AÐ BORÐA?
AF
HVERJU
SEGIR ÞÚ
AÐ ÞETTA SÉ
KVENNA-
BRUNAHANI?
LALLI, MÉR
FINNST ÞÚ VINNA
ALLT OF MIKIÐ!
ÉG REK MITT EIGIÐ
FYRIRTÆKI! ÞAÐ ER
MJÖG TÍMAFREKT!
MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ
HVERSU KREFJANDI
ÞAÐ ER, ÞÁ FINNST
MÉR ÉG LIFA FREKAR
EÐLILEGU LÍFI
ÉG VAR TIL DÆMIS HEIMA
Í HEILA TVO TÍMA NÚNA!
OG ÞÚ EYDDIR ÖÐRUM ÞEIRRA Í
AÐ FARA Í STURTU, RAKA ÞIG
OG SKIPTA
UM FÖT!
ÉG SKEMMTI
MÉR VEL Í
KVÖLD
JÁ, JONAH
JAMESON Á EKKI
Í VANDRÆÐUM MEÐ
AÐ HAFA OFAN AF
FYRIR DÖMU...
...AUK ÞESS
SEM...
SEM...
dagbók|velvakandi
Upplýsingaskylda
Ríkisútvarpsins
UPPLÝSINGASKYLDA rík-
isútvarpsins finnst mér vera fyrir
borð borin. Ég hélt í einfeldni minni
að þetta væri hlutlaus miðill, sem
ætti að koma sem réttustu upplýs-
ingum til landsmanna.
Fyrir mér þýða æsifréttir eitthvað
ýkt og upptrekkt, sem hittir fólk
burtséð frá sannleiksgildi eða hlut-
leysi. Tvö atvik virðast mér benda til
að Sjónvarpið sé að verða æsifrétta-
miðill.
Fyrst er birt viðtal við Björgvin
Halldórson, þjóðkunnan mann,
vegna umferðarslyss á Reykjanes-
braut. Ég tek undir ummæli Björg-
vins um starfsfólk á spítalanum, en
ummæli hans um starfsmenn Vega-
gerðarinnar eru gjörsamlega út í
hött og lýsa fádæma vanþekkingu á
hlutunum.
Þeim má líkja við að kenna starfs-
fólki spítalans um öll dauðsföll, sem
hafa orsakast af niðurskurði í heil-
brigðiskerfinu.
Orsök umferðarslysa er oftast
nær sú að ekki er farið eftir hinni
gullnu reglu, að haga akstri eftir að-
stæðum.
Seinna atvikið gerðist svo 10. maí,
þegar samgönguráðherra sat fyrir
svörum í Kastljósi og reyndi að út-
skýra fyrir hlustendum ýmsar stað-
reyndir, sem höfðu af öðrum aðilum
verið rangtúlkaðar í þessum miðli.
Ég dáðist að samgönguráðherranum
fyrir það, hvað hann kom miklum
upplýsingum til skila, þrátt fyrir að
spyrillinn gerði allt, sem í hans valdi
stóð, til að koma í veg fyrir að nokk-
ur nothæf svör kæmu frá svarand-
anum.
Þórhallur Hróðmarsson.
Um dagskrárlok Útvarpsins
ÉG get ekki lengur orða bundist
vegna dagskrárloka útvarpsins. Þó
að það sé nú gott og blessað að hafa
klassíska næturtónlist eftir mið-
nætti og fram til morguns, þá finnst
mér fullmikið þegar þulirnir eru
hættir að bjóða manni góða nótt við
dagskrárlok. En ennþá verra þótti
mér að þjóðsöngnum væri sleppt sl.
sunnudagskvöld sem alltaf hefur
komið í dagskrárlok á hverju einasta
sunnudagskvöldi fram til þessa.
Þetta er nokkuð sem hver einasta
þjóð í heiminum hefur í lok sinnar
útvarps- og sjónvarpsdagskrár á
sunnudagskvöldum, að leika þjóð-
söng landsins. Þessi liður hefur verið
í útvarpi og sjónvarpi Íslendinga allt
frá upphafi. Hvers vegna í ósköp-
unum á að fara brjóta þá hefð allt í
einu núna? Og allt út af þessu klass-
íska næturútvarpi. Hvers vegna líka
að hafa það næturútvarp alltaf í
beinu framhaldi af dagskrá útvarps-
ins yfir daginn?
Það eru trúlega fleiri en ég, sem
sakna þeirrar kveðju þularins í dag-
skrárlok þegar hann hefur boðið
góða nótt, og vafalaust geta fleiri
tekið undir það með mér að þjóð-
söngnum megi alls ekki sleppa í dag-
skrárlok sunnudagskvöldanna.
Því skora ég á yfirstjórn Útvarps-
ins að breyta þessu hið snarasta og
leyfa þjóðsöngnum a.m.k. að hald-
ast, enda myndum við Íslendingar
verða eina þjóðin í heiminum sem
ekki léki þjóðsönginn þá líkt og aðra
helgidaga. Það má alls ekki gerast.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÓÐUM hækkar sólin og snjórinn hopar undan hlýjum geislum hennar en
trén eru farin að bruma og fuglasöngur að óma. Við bíðum þó örlítið leng-
ur eftir vorinu sem muna þó koma von bráðar.
Morgunblaðið/hag
Þetta er allt að koma
BS og diplóma nám
í viðskiptafræði
samhliða starfi
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Næsta haust fer Háskóli Íslands
af stað með BS og diplóma nám
í viðskiptafræði. Kynning á
náminu fer fram miðvikudaginn
16. apríl kl. 17:00 í hringstofu á
Háskólatorgi.
Allir velkomnir!
Umsóknarfrestur er til 5. júní.
vidskipti.hi.is