Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 41
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Á TÓNLEIKUNUM, sem bera yf-
irskriftina Bláu augun þín, verða
höfundarverk tónskáldanna þriggja
flutt af einvalaliði hljómlistarmanna
sem verður stýrt af Eyþóri Gunn-
arssyni. Eyþór
verður með alla
fjölskylduna á
sviðinu, þ.e. konu
sína Ellenu Krist-
jánsdóttur, dæt-
urnar Sigríði, El-
ínu og Elísabetu
og svo soninn Ey-
þór. Þá verður
tengdasonur
hans, Þorsteinn
„Steini Hjálmur“
Einarsson einnig á sviðinu og þau
Lay Low, Stefán Hilmarsson, Högni
„Hjaltalín“ Egilsson og Svavar
Knútur einnig. Að tónleikunum
loknum mun forseti Íslands sæma
umrædda þrjá höfunda heið-
ursfélaganafnbót FTT.
Bara tíu ára
Eyþór Gunnarsson var í óðaönn
að pakka fyrir ferðalag norður vegna
tónleika Þursa þegar blaðamaður
heyrði í honum. „FTT á einnig 25 ára
afmæli í ár og því verður og fagnað á
þessum tónleikum,“ útskýrir Eyþór.
„FTT og FÍH hafa undanfarið staðið
að svokölluðum söngvaskáldakvöld-
um á Domo og er þetta þannig séð
meiður af því – en vegna tilefnisins
og heiðrunarinnar var ákveðið að
færa þetta í stærra hús.“
Eyþór segir að Jakob Frímann,
formaður FTT, hafi farið þess á leit
við hann að hann tæki þetta að sér. Í
hljómsveitinni, auk Eyþórs, verða
þeir Davíð Þór Jónsson, Einar
Scheving, Þórður Árnason og Jó-
hann Ásmundsson „bössuður“ eins
og fram kemur á vefsíðu FTT. „Að-
alvandamálið var nú bara að velja
efni úr þessu mikla safni tónskáld-
anna,“ segir Eyþór. „Sá hausverkur
er að baki og nú erum við að æfa
þetta og útsetja.“
Eins og sjá má flæðir mikil tónlist
um fjölskyldubönd Eyþórs og yngsti
meðlimurinn, sonurinn Eyþór, er
þegar farinn að láta til sín taka. „Við
erum að reyna að véla hann í þetta.
Ætlum að fá hann til að spila á
trommur. Hann er pínu stressaður,
enda ekki nema tíu ára,“ segir Ey-
þór. „Hann er afar hæfileikaríkur og
á efalaust eftir að láta til sína taka í
framtíðinni.“
Þrír þungavigtarmenn
Hátíðartónleikar í Íslensku óperunni á fimmtudagskvöldið til
heiðurs Gunnari Þórðarsyni, Ólafi Hauki og Ólafi Gauki
Morgunblaðið/Kristinn IngvarssonGunnar Þórðarson
Ólafur Haukur
Símonarson
Eyþór
Gunnarsson
Ólafur
Gaukur
Tónleikarnir verða í Íslensku óp-
erunni á fimmtudagskvöldið kl.
20. Miðasala er í Íslensku óp-
erunni. Nánar á www.ftt.is.
TVEIR ljósmyndarar hafa verið
sakaðir um að útvega Heath heitn-
um Ledger kókaín til þess að geta
tekið myndband af honum að sjúga
það upp í nefið. Mál hefur verið
höfðað gegn fyrirtækinu Splash
News & Picture Agency fyrir að
greiða fyrir kókaínið sem tveir ljós-
myndarar, svokallaðir „pap-
arazzar“, eru sagðir hafa notað og
gefið Ledger af árið 2006. Mynd-
band sem tekið var af Ledger við
neyslu kókaíns var svo selt ýmsum
fjölmiðlafyrirtækjum skömmu eftir
að hann dó í janúar sl.
Talið er að sölugróði af mynd-
bandinu nemi einni milljón dollara í
það minnsta. Fyrrum lausapenni
fyrir tímaritið People mun hafa
lögsótt Splash News & Picture
Agency en hún
er fyrrverandi
kærasta annars
ljósmyndaranna.
Hún hefur ekki
verið nefnd á
nafn og er því
kölluð Jane Doe í
fjölmiðlum, eða
Jóna Jóns.
Jóna segist
hafa hitt Ledger í anddyri hótels í
Los Angeles ásamt unnusta sínum
þá, Darren Banks, og kollega hans
Eric Munn. Þau hafi boðið Ledger
upp í herbergi hennar og Banks og
þar hafi þau fært honum innpakkað
kókaín. Annar ljósmyndaranna hafi
svo tekið upp myndband af Ledger
við neyslu.
Færðu Ledger kókaín
Heath Ledger
12.04.2008
1 7 16 26 35
8 4 4 9 9
7 9 6 6 5
29
09.04.2008
1 8 24 27 34 43
306 48
Ráðhús Reykjavíkur
Miðvikudag 16. apríl. kl. 20:30
Aðgangur
ókeypis
Ný tónlist
HILMAR JENSSON
Stórsveit Reykjavíkur
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
VANTAGE POINT kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 8 B.i. 10 ára
THE EYE kl. 10:10 B.i. 16 ára
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
,,Þessi glimrandi stemmning
sem skapast á tjaldinu er betri
en ég hef upplifað á tónlei-
kum hérlendis."
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á SELFOSSI
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10D B.i. 10 ára DIGITAL
SHINE A LIGHT kl. 5:30D - 8D- 10:30D LEYFÐ DIGITAL
FOOL'S GOLD kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
JUNO kl. 6 B.i. 7 ára
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 LEYFÐ
SHUTTER kl. 10:10 B.i. 16 ára
eeeee
Rás 2
eeee
- 24 Stundir
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
SÝND Í KRINGLUNNI
21 kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
FOOL'S GOLD kl. 8 B.i. 7 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 10 B.i. 10 ára
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
/ KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
Á SELFOSSI
J E S S I C A
A L B A
SÝND Í KEFLAVÍK
eeee
EMPIRE
eeee
NEWSDAY
eeee
OK! - G.H.J
POPPLAND
eeee
"Shine a Light skal njóta í bíó,
þar sem að hljóðrásin
nýtur sín í botn!
Dúndur upplifun fyrir
sanna Stones-menn."
BÍÓTAL
KVIKMYNDIR.IS