Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Harare. AFP, AP. | Stjórnarandstaðan
í Simbabve ákvað í gær að halda fast
við fyrri ákvörðun sína um að boða
allsherjarverkfall í dag, þriðjudag, ef
ekki yrðu umsvifalaust birt úrslit í
forsetakosningum sem fram fóru 29.
mars. Hæstiréttur landsins hafnaði í
gær kröfu um að niðurstöðurnar
yrðu birtar strax.
Hæstiréttur féllst á þá útskýringu
yfirkjörstjórnar að verið væri að
rannsaka hvort kosningalög hefðu
verið brotin í allmörgum kjördæm-
um. Ekki væri hægt að taka undir
þau rök stjórnarandstæðinga að um
óeðlilega töf á birtingu úrslita væri
að ræða.
„Við hvetjum almenning til að
mótmæla yfirkjörstjórninni fyrir að
birta ekki úrslitin,“ sagði einn tals-
mönnum stjórnarandstöðuflokksins
Lýðræðishreyfingarinnar (MDC),
Thokhozani Khupe. Sagðist hann
vona að aragrúi fólks tæki þátt í að-
gerðunum sem myndu standa yfir
þar til úrslitin yrðu birt.
Stjórnarandstaðan fullyrðir, að
Morgan Tsvangirai, frambjóðandi
stjórnarandstöðunnar, hafi fengið
rétt rúmlega 50% atkvæða en því
neitar Robert Mugabe, forseti lands-
ins undanfarin 28 ár. Álítur stjórn-
arandstaðan að töfin stafi af því að
verið sé að hagræða niðurstöðum
með því að falsa kjörgögn. Þótt
hæstiréttur sé að mestu skipaður
dómurum sem Mugabe hefur skipað
og styðja hann hafði MDC gert sér
vonir um að rétturinn myndi þvinga
yfirkjörstjórn til að birta úrslitin.
Reuters
Til taks Lögreglumenn við húsa-
kynni hæstaréttar í Harare, höf-
uðborg Simbabve, í gær.
Verkfall
gegn
Mugabe
ANDERS Eklund, sem hefur játað á
sig morð á 10 ára sænskri stúlku,
Englu Juncosa-Höglund, sagði við
yfirheyrslur hjá lögreglu í gær að
það hefði verið tilviljun að hann
rændi litlu stúlkunni og myrti hana.
Morðinginn sagði að ekki hefði verið
um kynferðisbrot að ræða og engu
vopni beitt. „Hann rakst á hana fyrir
tilviljun, hann hafði ekki skipulagt
þetta,“ sagði lögfræðingur Eklunds,
Jan Kyrö. Það hefði verið léttir fyrir
skjólstæðing sinn að segja allt af
létta.
Sænska lögreglan virðist í nóvem-
ber sl. hafa fengið nafnlausa ábend-
ingu um að Eklund kynni að hafa
myrt 31 árs konu, Pernillu Hellgren
árið 2000. Þessum upplýsingum var
ekki fylgt eftir og verður málið nú
rannsakað en Eklund hefur játað á
sig morðið. „Myndi litla stúlkan vera
á lífi ef við hefðum brugðist við
[ábendingunni]? Þetta er spurning
sem við verðum að spyrja okkur
núna,“ sagði talsmaður sænsku lög-
reglunnar, Sven-Åke Petters og
bætti við að lögreglan yrði að búa sig
undir harða gagnrýni vegna málsins.
Norska blaðið Aftenposten segir
auk þess á vef sínum að verið sé að
rannsaka hvort Eklund kunni að
hafa myrt Trude Espås og Kristin
Juel Johannessen, tvær ungar stúlk-
ur í Noregi. Mál þeirra hafa aldrei
verið upplýst. Espås, sem var 19 ára,
var myrt í Geiranger 1996 en hin 12
ára gamla Johannessen í Larvik árið
1999. Er verið að bera DNA-erfða-
efni þeirra saman við lífsýni úr Ekl-
und og kanna hvort hann geti hafa
verið á ferð á umræddum stöðum
þegar stúlkurnar dóu.
Juncosa-Höglund hvarf í Stjärn-
sund í sænsku Dölunum fyrir rúmri
viku og vísaði Eklund lögreglu á
staðinn þar sem hann gróf hana, í
Gästrikland, um 45 km frá Stjärn-
sund. Eklund býr í Gästrikland.
Hann er 42 ára gamall flutningabíl-
stjóri og var handtekinn af því að
rauður Saab-bíll hans sást á mynd-
um, sem teknar voru af litlu stúlk-
unni sama dag og hún hvarf. Eklund
hefur hlotið marga dóma fyrir of-
beldisbrot af ýmsu tagi, alltaf gegn
ungum konum.
Einnig grunaður um
tvö morð í Noregi
Eklund játar morðið á Englu og 31 árs konu árið 2000
JÁRNBRAUTARLESTIN Maitree (Vinátta) Express í
indversku borginni Kolkata í gær. Því var ákaft fagnað
í Indlandi og Bangladess í gær að loksins voru, eftir
langar samningaviðræður, teknar á ný upp lestarferðir
fyrir farþega milli ríkjanna eftir 43 ára hlé, Maitree
Express varð fyrst til að aka yfir landamærin. Indland
og Pakistan, sem þá náði einnig yfir núverandi Bangla-
dess, háðu styrjöld árið 1965 og í kjölfarið lauk ferð-
unum. Íbúar Bangladess eru múslímar eins og milljónir
þjóðbræðra þeirra í nálægum héruðum Indlands.
Reuters
Lestarferðir á ný eftir 43 ár
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, segir stjórn sína gera allt
sem í hennar valdi standi til að
tryggja efnahagslegan stöðugleika
og vísar hann á bug gagnrýni á for-
ystuhæfileika
sína.
Brown naut á
sínum tíma mikils
trausts almenn-
ings er hann var
fjármálaráð-
herra. En ný
könnun sem birt-
ist í blaðinu Fin-
ancial Times gef-
ur til kynna að
traust Breta á Brown sé afar lítið.
Þar kemur fram að 68% þeirra hafi
„enga trú“ á því að stjórnvöld hafi
getu til að takast á efnahagsvandann
sem nú steðjar að. Í Þýskalandi var
hlutfallið 52%, 51% í Bandaríkjun-
um, 50% í Frakklandi, 43% á Ítalíu
og 36% Spáni.
Vantreysta
Brown
Gordon Brown
HART er nú lagt að ráðherrum
landbúnaðarmála í ríkjum Evrópu-
sambandsins að efla framleiðsluna í
ljósi þess að ört hækkandi mat-
vælaverð geti á næstu árum ýtt enn
fleira fólki í þróunarlöndunum út í
örbirgð.
Frakkar styðja ákaft þessar til-
lögur en þeir eru mesta landbún-
aðarþjóð ESB. Hafa þeir lengi haft
forystu um að tryggja áfram mik-
inn fjárstuðning sambandsins við
landbúnað. Bretar óttast hins vegar
að Frakkar noti nú tækifærið til að
stöðva fyrirhugaðar breytingar
sem miða að lækkun styrkjanna.
Vilja auka
framleiðslu
ÁÆTLUN rússneskra vísinda-
manna um mannaða ferð til Mars
hefst á næsta ári en ólíklegt er að
sjálf ferðin hefjist fyrr en eftir
a.m.k. tíu ár, að sögn BBC. Ferða-
lagið fram og aftur mun taka rösk-
lega 500 daga. Fljótlega verður
byrjað að velja 40 macaque-apa
sem nota á við tilraunir þar sem
m.a. verður kannað hvernig aparn-
ir þola geislun á leið til Mars. Ef til
vill verða apar sendir á undan
mönnum. Rússar hafa oft notað dýr
í geimrannsóknum sínum en dýra-
verndarsinnar segja að um ómann-
úðlegar tilraunir sé að ræða.
Verða apar
fyrstir til Mars?
A Ð A L F U N D U R S A
1 8 . A P R Í L - H A F N A R H Ú S I N U 16:00 ÚT ÚR UMRÓTINU - INN Í FRAMTÍÐINA
Ræ›a Ingimundar Sigurpálssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins
Ræ›a Geirs H. Haarde, forsætisrá›herra
Inn í framtí›ina:
Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums
Edda Rós Karlsdóttir, forstö›uma›ur greiningardeildar Landsbanka Íslands
Ólöf Nordal, alflingisma›ur
Brug›i› ver›ur upp svipmyndum af íslenskum vinnumarka›i
17:15 Lokaorð: N‡r forma›ur SA - móttaka hefst
Fundarstjóri er Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Fundarmenn fá n‡tt rit SA um alfljó›avæ›ingu vinnumarka›arins
English translation
ÚT ÚR UMRÓT INU - I N N Í F R A M T Í Ð I N A
O P I N D A G S K R Á
Skráning á vef SA – w w w . s a . i s