Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
ÞJÓÐIRNAR tvær eiga það sameig-
inlegt að hafa nýtt sér menningararf
sinn til að lifa af erfiða tíma,“ segir
sendiherra Rúmeníu á Íslandi, Theo-
dor Paleologu. „Ég hef líka sterkt á
tilfinningunni að hér sé fólk, eins og
við Rúmenar erum líka yfirleitt, síð-
ur formfast en gengur og gerist í
mörgum löndum og kann því vel.“
Paleologu er 34 ára og tók við
embætti sínu í Kaupmannahöfn fyrir
tveim árum, þá langyngsti sendi-
herrann í borginni og er reyndar
enn. Ættarnafnið er grískt, forfeður
hans fluttust til Rúmeníu frá eynni
Lesbos á 19. öld. Hann segir að-
spurður að umskiptin þegar komm-
únisminn hrundi í Austur-Evrópu
hafi veitt ungu fólki óvænt tækifæri
til frama í stjórnkerfinu enda þurfti
sums staðar að stokka upp stofnanir
eins og utanríkisráðuneyti, byrja frá
grunni. „Þetta hafði sína kosti en
auðvitað ekki bara kosti!“ segir hann
brosandi.
Paleologu er menntaður í heim-
speki og bókmenntum við háskóla í
París. Hann er mjög áhugasamur
um menningarleg tengsl þjóðanna
enda hefur hann kynnt sér vel ís-
lenskar bókmenntir og hefur m.a.
notað íslenskar skáldsögur við
kennslu í bókmenntafræði við há-
skóla í Berlín. Vitnar hann í Laxness
um mikilvægi skáldskaparins og
segir bæði Heimsljós og Íslands-
klukkuna hafa haft djúp áhrif á sig.
Áhersla á aukin viðskipti
Sendiherrann leggur í starfi sínu
áherslu á að ýta undir viðskipti milli
landanna enda eru þau í góðum far-
vegi. Íslendingar hafa m.a. fjárfest í
rúmenskum fasteignum.
„Rúmenía er ekki í sjálfu sér fá-
tækt land þótt enn sé þar til mikil fá-
tækt,“ segir hann. „Möguleikarnir
eru miklir, það ríkir veruleg hagsæld
og uppgangur í sumum héruðum
landsins. En ástandið er ákaflega
misjafnt enda er þetta mjög flókið og
fjölbreytt samfélag, þjóðarbrotin
mörg. Höfuðborgin Búkarest er auð-
ug og þar er mikill kraftur í efna-
hagslífinu en í sumum sveitahéruð-
um er ástandið alls ekki þannig.
Það skipti miklu að þegar forseti
Íslands heimsótti okkur í fyrra voru í
fylgd með honum fjölmargir íslensk-
ir kaupsýslumenn. Athyglinni var
mjög beint að viðskiptum og þá ekki
síst samstarfi á sviði jarðvarma en
þar standið þið Íslendingar mjög
framarlega. Það er talsverður jarð-
varmi í Rúmeníu og við þurfum að
læra að nýta hann betur. Og við ráð-
um líka yfir mikilli vatnsorku, þess
vegna stöndum við ágætlega að vígi
varðandi fyrirheit Evrópusam-
bandsins um minni losun koldíoxíðs.
Við vorum eitt sinn með mikla ol-
íuframleiðslu en nú eru lindirnar að
miklu leyti búnar, a.m.k. er orðið of
dýrt að nýta þær. En við eigum samt
bæði olíu og gas og erum því ekki
jafn-háð innflutningi og margar aðr-
ar þjóðir. Hins vegar kemur sér vel
fyrir okkur að við eigum mikið af
olíuhreinsistöðvum. Við ráðum líka
yfir þekkingu á því sviði sem við nýt-
um til að hreinsa olíu frá ýmsum
fjarlægum löndum.“
Baráttan gegn spillingu
Evrópusambandið hefur kvartað
mjög undan því að spilling sé þrösk-
uldur á vegi framfara í sumum nýj-
um aðildarríkjum og ekki síst Rúm-
eníu. En hvernig gengur Rúmenum
að bæta ástandið?
„Lögreglan og réttarkerfið ein-
beita sér gegn spillingu og þar hefur
margt áunnist,“ svarar Paleologu.
„Umskiptin frá sósíalisma yfir í kap-
ítalisma, tíminn þegar eignarréttur-
inn var oft óljós, var einstakur jarð-
vegur fyrir spillingu. En allt slíkt
tekur enda. Sumir segja að umskipt-
unum sé lokið. Hvað merkir það?
Auðvitað herjar hjá okkur spilling.
En þegar við metum viðleitni rétt-
arkerfisins og breytingarnar sem
eru að verða á aðstæðum sem kalla
fram spillingu er hægt að ala með sér
nokkra bjartsýni. Nokkra bjartsýni
en við verðum að vera vel á verði.“
Kraftur í
Búkarest
Nýr ræðismaður Theodor Paleologu, sendiherra Rúmeníu á Íslandi, ásamt Þórunni Sveinbjarnardóttur, starf-
andi utanríkisráðherra, og Jafet S. Ólafssyni, nýskipuðum ræðismanni Rúmeníu hér á landi.
Spilling enn vandamál í efnahagslífi
Rúmena þótt margt hafi áunnist
Ungur sendiherra Rúmeníu, Theodor Paleologo, segir vel hægt að auka viðskipti milli þjóðanna
„VIÐ höfum ákveðið gildi
og mótað framtíðarsýn
Mosfellsbæjar og stefnu-
áherslur með sömu aðferð-
um og nútíma fyrirtæki.
Þetta er að mínu mati fátítt
eða jafnvel einstakt fyrir ís-
lenskt sveitarfélag. Þessi
gildi og framtíðarsýn ásamt
stefnumótuninni í heild
hafa nú verið samþykkt
samhljóða í bæjarstjórn,“
segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
Capacent vann stefnumótunina í samstarfi
við fulltrúa bæjarins en alls komu um 200
manns að verkefninu með einum eða öðrum
hætti, starfsmenn bæjarins, íbúar og fulltrúar
pólitísku flokkanna ásamt ráðgjöfum. Sam-
kvæmt stefnumótuninni eru gildi bæjarins:
Virðing, jákvæði, framsækni og umhyggja.
Í framtíðarsýninni segir meðal annars að
Mosfellsbær verði eftirsótt bæjarfélag til bú-
setu þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Bær-
inn verði framsækið samfélag þar sem ábyrgð-
arkennd ríkir gagnvart náttúru og umhverfi
auk þess sem hagkvæmni í rekstri og sam-
félagsleg ábyrgð verði ávallt hafðar að leið-
arljósi.
Haraldur segir að í ljósi þeirra miklu breyt-
inga sem orðið hafi í sveitarfélaginu á und-
anförnum árum hafi hann talið, að tími væri
kominn til að fara í allsherjarnaflaskoðun þeg-
ar hann tók við starfi bæjarstjóra 1. september
síðastliðinn. Vinnan við stefnumótunina hófst
formlega í október og tók um fimm mánuði.
Verkefnin voru allt frá einföldum fram-
kvæmdum til flókinna og viðkvæmra verkefna
sem snerta tilfinningar og hag íbúa.
Verkefnið hófst þannig að haldinn var grein-
ingarfundur með fulltrúum Capacent og
starfsfólki Mosfellsbæjar. Niðurstöður hans
náðu til allra þátta í starfsemi bæjarins og í
kjölfarið voru myndaðir fjórir framkvæmda-
hópar: Um fræðslu, menningu og tómstundir;
umhverfi og öryggi; bætta mannauðsstjórnun
og ímynd og kynningarmál. Þessir hópar lögðu
fram tillögur um aðgerðaáætlanir til úrbóta á
því sem betur mátti fara samkvæmt nið-
urstöðum greiningarfundarins. Auk þess var
myndaður stýrihópur sem hafði yfirstjórn með
breytingarferlinu og hann lagði m.a. til að
fagsvið bæjarins yrðu fjögur; fræðslusvið,
menningarsvið, fjölskyldusvið og umhverf-
issvið. Stjórnsýslusvið yrði eina stoðsviðið en
verkefni þess eru þvert á skipulag bæjarins.
Samþykkt í bæjarstjórn
„Nú þegar stefnumótunin hefur formlega
verið samþykkt í bæjarstjórn verður farið að
vinna eftir henni,“ segir Haraldur. „Fyrstu
verkefnin verða að auglýsa eftir starfsfólki í
þau nýju störf sem verða til, eins og mann-
auðsstjóra, forstöðumanni kynningarmála og
nýjum sviðsstjóra.“
Haraldur er bjartsýnn á að starfsemi bæj-
arins muni eflast við breytingarnar sem verða
með tilkomu stefnumótunarinnar. „Allt snýst
þetta um það að gera gangverk bæjarins betra
og til þess fallið að framkvæma það sem nefnd-
ir, bæjarstjórn og bæjarráð ákveða. Auðvitað
er þetta gert í þeim tilgangi að kerfið verði
skilvirkara, fljótvirkara og betur í stakk búið
til að framkvæma þær ákvarðanir sem eru
teknar og koma til móts við þau sjónarmið sem
bæjarbúar hafa um rekstur bæjarfélagsins.
Stefnuáherslurnar eiga að vera til þess fallnar
að geta staðist tímans tönn og eiga ekki að
vera flokkspólitískar, heldur sýn sveitarfé-
lagsins almennt séð til næstu ára,“ segir hann
og bætir við að grundvöllur sé þá fenginn til að
móta stefnu í hinum ýmsu málefnum sveitarfé-
lagsins. „Það er þá næsta verkefni,“ segir Har-
aldur „að endurskoða t.d. skólastefnu, gera
nýja menningarstefnu, tómstundastefnu og
svo framvegis.“ Þannig verður til heild-
arstefna fyrir sveitarfélagið.
Mosfellsbær mótar framtíðarsýn
Haraldur
Sverrisson
Framtíðin Gildi Mosfellsbæjar eru virðing, jákvæði, framsækni og umhyggja.
FYRIR ALLA FÉLAGA Í
VILDARKLÚBBI ICELANDAIR
Dagana 16.–18. apríl bjóðum við öllum okkar
félögum 50% afslátt af Vildarferðum.
Ferðatímabil er til og með 31. desember.
Bókanir hefjast miðvikudaginn 16. apríl kl.09:00.
Tilboðið bókast inn á www.vildarklubbur.is.
Barnaafsláttur Vildarklúbbsins gildir.
Flugvallarskattar ekki innifaldir.
+ Skilmálar og allar nánari upplýsingar
inn á www.vildarklubbur.is.
*Tilboðið gildir ekki til Barcelona, Mílanó og Madrid.
– TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ
HELMINGS
AFSLÁTTUR
AF VILDAR-
FERÐUM*
Vildarklúbbur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.IS
IC
E
41980
04
/08
WWW.VILDARKLUBBUR
.IS