Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 43
SJÓNVARPSÞÁTTUR
RÚV
Mannaveiðar
bbbnn
Leikstjóri: Björn B. Björnsson. Leikarar:
Ólafur Darri Ólafsson, Gísli Örn Garð-
arsson, Björn Thors, Charlotte Böving,
Darri Ingólfsson, Elva Ósk Ólafsdóttir,
Halla Vilhjálmsdóttir, Halldóra Björns-
dóttir, o.fl. Kvikmyndataka: Víðir Sigurðs-
son. Klipping: Sævar Guðmundsson.
Hljóðvinnsla og tónlist: Valgeir Sigurðs-
son. 200 mín. Ísland. 2008.
FYRSTU kynni okkar af Gunnari
(Ólafi Darra Ólafssyni) og Hinriki
(Gísla Erni Garðarssyni) í Manna-
veiðum gefa tóninn fyrir þættina.
Eins og flestir vita sem hafa fylgst
með þáttunum eru þeir byggðir á
skáldsögunni Aftureldingu (2005) eft-
ir Viktor Arnar Ingólfsson. Nú er
sjónvarp annars konar miðill en bók
og maður skilur að ýmsu er breytt þó
að sögugrindin haldi sér. Ein breyt-
ing fannst mér ekki gera neitt fyrir
þættina. Það var að láta Gunnar vera
að byrja, þannig að hann og Hinrik
eru nýir félagar sem eru algerar and-
stæður. Mér fannst þetta ódýr kynn-
ingarlausn og kjánaleg eftiröpun á
bandarískum löggupörum.Vinskapur
þeirra var mun áhugaverðari en rex
um að geta ekki unnið saman. Sér-
staklega þegar þeir héldu sömu kar-
aktereinkennum og í bókinni, og Ólaf-
ur Darri var hinn úfni Gunnar frá
fyrstu mínútu. Á meðan var Gísli Örn
hæfilega fráhrindandi sem hinn
ómannblendni snyrtipinni Hinrik.
Þessi breyting passaði líka svo illa
inn í þáttaröðina af því að yfirbragð
hennar var að mörgu leyti tilraun til
að vera meira í anda breskra eða nor-
rænna sakamálaþátta að því er virtist
vera. Allt ívið þyngra, hægara og
dempaðra heldur en hjá skyldmenn-
um þeirra í Bandaríkjunum þar sem
ráðandi litaskalinn virðist vera app-
elsínugulur þessa dagana. Litirnir
hér eru eins og búningur gæsaskyttu:
grænn, drappaður, brúnn, svartur. Í
Mannaveiðum er einnig frekar þungt
yfir og skýjað eða rigning. Og Gunnar
segist alltaf vera svangur þegar hann
sér Borgarnes. Ekkert tryllt fjör en
lúmskur húmor inn á milli.
Í þáttaröðinni var sakamálið jafn-
framt notað til að kíkja á ýmis mál
sem tekist er á um í samfélaginu.
Komið var inn á íslenska útrás,
banka- og virkjunarmál, offitu, sér-
trúarsöfnuði og samkynhneigð.
Þannig eru þættirnir ákveðin sam-
félagslýsing. Stikkprufa á tíðaranda,
sem á kannski eftir að eldast ótrúlega
illa. Eða verða klassík! Er framtíð
fyrir Gunnar og Hinrik sem okkar
Derrick og Klein í svona seríuformi?
Anna Sveinbjarnardóttir
Löggur á
skjánum
Mannaveiðar „Stikkprufa á tíðaranda, sem á kannski eftir að eldast ótrúlega illa. Eða verða klassík!“
Fréttir á SMS
BRESKA leikkonan Keira Knight-
ley og unnusti hennar, breski
leikarinn Rupert Friend, hafa
ákveðið að festa kaup á húsi sem
kosta má um 2 milljónir punda,
um 300 milljónir íslenskra króna.
Þau vonast til þess að kaupin
verði til þess að þau verji meiri
tíma saman, en þau hafa bæði
verið mjög upptekin að und-
anförnu. Fregnir herma að hvort
þeirra hafi nú þegar lagt 1 milljón
punda til kaupanna og að þau séu
að leita að rétta húsinu í Notting
Hill hverfinu í Lundúnum.
Parið kynntist við tökur á kvik-
myndinni Pride and Prejudice ár-
ið 2004.
Kaupa
sér hús
Reuters
Sæt Keira Knightley.