Morgunblaðið - 15.04.2008, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„ÉG hélt að eftir að olían hækkaði um helming
væri hugsanlegt að ég gæti fengið meiri afslátt
og því óskaði ég eftir tilboðum frá olíufélögun-
um. Ég fékk tvö skrifleg tilboð og tvö munnleg
og þau voru öll upp á sömu krónutölu. Það er
ekki hægt að draga aðra ályktun en að enn sé
samráð í gangi.“
Þetta sagði eigandi flutningafyrirtækisins
sem nýlega óskaði eftir tilboðum frá olíufélög-
unum um viðskipti. Hann vildi ekki koma fram
undir nafni. Hann kvaðst óttast að það kynni að
hafa áhrif á þau afsláttarkjör sem hann nýtur í
dag.
Taldi að hærra olíuverð gæfi félögunum
aukið svigrúm til afsláttar
Maðurinn sagðist áður hafa óskað eftir til-
boðum frá olíufélögunum og það hefði skilað
nokkrum árangri. Nú hefði hann hins vegar
fengið alveg sömu svör frá fyrirtækjunum.
Hann sagðist hafa talið að hærra olíuverð gæfi
fyrirtækjunum aukið svigrúm til að bjóða af-
slætti. Annað hefði komið á daginn. Maðurinn
fékk tilboð frá N-1, Skeljungi, Olís og Atlants-
olíu. Hann sagði að eftir að hann fékk tilboð hjá
einu fyrirtækinu hefði hann lýst óánægju með
tilboðið og sagt að hann myndi örugglega fá
betra tilboð hjá Atlantsolíu. Þá hefði viðmæl-
andi hans sagt að það fengi hann ekki. Það hafi
síðan reynst rétt því tilboð Atlantsolíu hefði
verið eins og hin tilboðin.
Talsmenn olíufélaganna sem Morgunblaðið
ræddi við í gær höfnuðu því að eitthvert sam-
ráð væri í gangi milli félaganna um verð. Guð-
jón Auðunsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs
N-1, sagði slíkt af og frá. Afslættir til fyr-
irtækja færu eftir magni og því hvar olían væri
afhent og í hve miklum skömmtum. Einnig
væri litið til viðskiptasögu. Hann sagði að þó að
N-1 reyndi að veita afslætti til stórnotenda þá
væru hins vegar þolmörk hvað þetta varðar og
það ætti ekki að þurfa að koma á óvart þó að
olíufélögin væru að bjóða svipuð kjör.
Lúðvík Björgvinsson, forstöðumaður fyrir-
tækjasviðs Skeljungs, hafnar því algerlega að
eitthvert samráð sé milli olíufélaganna um
verð. Hann sagði Skeljung veita afslætti til
stærri notenda. Afslættirnir færu fyrst og
fremst eftir umfangi viðskipta, en einnig gæti
staðsetning skipt máli.
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri hjá Atlants-
olíu, segir að fullyrðingar um samráð kæmu sér
mjög á óvart. Það sé alveg á hreinu að Atlants-
olía taki ekki þátt í slíku.
Óskaði eftir tilboðum og
fékk sama afslátt hjá öllum
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
GANGI áætlanir vísindamanna eftir
gæti binding koldíoxíðs í basalt-
lögum undir sjónum suður af land-
inu hafist innan
nokkurra ára.
Hugmyndin er út-
víkkun tilrauna
með kolefnisbind-
ingu í borholum
nærri Hellisheið-
arvirkjun og gæti
þegar fram í sæk-
ir nýst við að
binda koldíoxíð í
miklu magni í
basaltlögum Atlantshafshryggj-
arins.
Þetta segir Sigurður Reynir
Gíslason, rannsóknarprófessor við
Jarðvísindastofnun Háskólans, sem
telur aðferðina kunna að nýtast að-
ilum á Suðurlandi og Reykjanesinu
sem losa mikið magn koldíoxíðs í
andrúmsloftið og er þá einkum horft
til núverandi og fyrirhugaðra álvera
og orkuvera.
Rætt hefur verið um að verslun
með kolefniskvóta geti komist í
gagnið í náinni framtíð og geti hug-
myndin orðið hluti slíkra viðskipta.
Sigurður segir bergið austur og
vestur af landinu síður heppilegt til
slíkrar bindingar, suður af landinu
sé hins vegar fræðilega hægt að
binda mikið magn koldíoxíðs með því
að fanga það úr útblæstrinum,
hreinsa og dæla í formi kolsýrðs
sjávar niður í holrými í basalt-
setlögum á hafsbotni.
Undir miklum þrýstingi
Á því dýpi sem um ræðir er þrýst-
ingurinn orðinn verulegur og geng-
ur hugmyndin út á að kolsýrðum
sjónum verði dælt um borholur sem
boraðar verða frá landi og niður í
setlögin. Þar muni kolsýrður sjórinn
leysa efni úr berginu sem ganga í
efnasambönd við kolefnið og mynda
kolefnissteintegundir sem geta verið
stöðugar í þúsundir ára.
Hugmyndin gerir því ekki ráð fyr-
ir fljótandi mannvirkjum á sjó, eins
og þekkist úr olíuiðnaðinum, en svo
gæti farið að síðar á öldinni yrðu
reistir fljótandi pallar sem dældu
kolsýrðum sjó niður í holrými í bas-
altlögum í Atlantshafshryggnum.
Sigurður segir tíu doktorsnema
taka þátt í rannsóknunum, sem séu
samvinnuverkefni Háskóla Íslands,
Kólumbíu-háskólans í New York,
Orkuveitu Reykjavíkur og Paul
Sabatier-háskólans í Frakklandi.
Svigrúmið til kolefnisbindingar í
basalti í heiminum sé mikið þar sem
basalt hvarfast hraðar en flest önnur
jarðlög. Íslensk orkufyrirtæki hafi
sýnt áhuga á bindingu af þessu tagi
á jarðhitasvæðum í Austur-Afríku,
auk þess sem indversk stjórnvöld
sýni aðferðafræðinni áhuga sem leið
til að binda koldíoxíð á norðvestur-
strönd landsins.
Tilraunir miða að því að innan nokkurra ára verði koldíoxíð bundið í miklu
magni undir hafsbotni suður af landinu Aðferðin gæti nýst um allan heim
Kolefnisbinding undir sjó
Sigurður R.
Gíslason
Morgunblaðið/RAX
Á Reykjanesi Upp eru hugmyndir
um að binda kolefni undir sjónum.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt þrítugan karlmann í 8
mánaða fangelsi fyrir aðild að svo-
nefndu Tryggingastofnunarmáli.
Þá var 52 ára gömul kona dæmd í
6 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir aðild að sama máli.
Mál mannsins og konunnar voru
skilin frá aðalmálinu, sem ekki hefur
verið dæmt í enn. Alls voru 20 ákærð
í málinu.
Í aðalmálinu er kona, sem starfaði
um tíma hjá Tryggingastofnun, sök-
uð um að hafa á 5 ára tímabili gefið
út 781 tilhæfulausa kvittun fyrir út-
borgun og þannig blekkt gjaldkera
Tryggingastofnunar til að greiða að
tilefnislausu tæpar 76 milljónir
króna úr sjóðum stofnunarinnar.
Maðurinn, sem dæmdur var í gær,
var fundinn sekur um að hafa haft
milligöngu um að útvega reikninga,
sem greitt var inn á með sviksam-
legum hætti. Inn á reikninga manns-
ins runnu rúmar 9 milljónir króna.
Konan var ein þeirra sem tóku við
fénu en inn á reikning hennar voru á
þriggja ára tímabili lagðar um 7
milljónir króna í 69 færslum.
Málið dæmdi Jónas Jóhannsson.
Björn Þorvaldsson var settur sak-
sóknari og Sveinn Andri Sveinsson
verjandi.
8 mánuðir
fyrir trygg-
ingasvik
MAÐURINN
sem fórst í elds-
voða þegar kvikn-
aði í íbúð hans við
Skúlabraut 45 á
Blönduósi á
sunnudag hét
Björn Kristjáns-
son. Hann var
fæddur 31. mars
1960 og lætur eftir sig tvo uppkomna
syni.
Lést í
eldsvoða
♦♦♦
SAUTJÁN ára stúlka, sem tilkynnti
lögreglu aðfaranótt sunnudags að
sér hefði skömmu áður verið nauðg-
að á salerni á skemmtistað í Reykja-
nesbæ, hefur ákveðið að kæra ekki.
Jóhannes Jensson hjá rannsóknar-
deild lögreglunnar á Suðurnesjum
segir að þar með sé málinu lokið af
hálfu lögreglunnar, engin rannsókn
verði gerð á málinu. Jóhannes segist
engar skýringar hafa á því að stúlk-
an hafi fallið frá því að kæra. Hann
segir erfitt að rannsaka mál þegar
samvinna við brotaþola er ekki fyrir
hendi sem yfirleitt er auk þess höf-
uðvitni í viðkomandi máli.
Stúlkan ætlar
ekki að kæra
♦♦♦
♦♦♦
SINUBRUNAR geta verið stór-
hættulegir og stefnt jafnt mann-
virkjum, lífi manna og búfénaðar í
hættu, að sögn Bjarna Þorsteins-
sonar slökkviliðsstjóra á Borgarnesi.
Bændur geta brennt sinu til 1.
maí, en þó aðeins ef þeir hafa fyrst
aflað leyfis hjá sýslumanni og
slökkviliði.
En jafnvel skipulögðum bruna
sinu fylgir töluverð áhætta, og þarf
litla breytingu í vindi til að eldurinn
breiði hratt úr sér og verði óviðráð-
anlegur.
Í gær var kveikt í sinu á Kjal-
arnesi og var slökkvilið kallað til, en
eldurinn hafði á skömmum tíma
breiðst yfir 300 metra svæði.
Slökkviliðið brýnir fyrir for-
eldrum og almenningi að hafa sér-
stakar gætur á börnum og ungling-
um á þessum árstíma og að lögregla
sé strax látin vita verði vart við fikt.
Þannig má mögulega stöðva eld,
sem annars gæti orðið óviðráðan-
legur, og afstýra miklu tjóni.
Sinubrennan sem sést á myndinni
fór hins vegar fram með tilskildum
leyfum og undir öruggu eftirliti. Ljósmynd/Theodór
Getur orðið
að miklu báli
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur úrskurðað að einn af þeim sex
erlendu mönnum, sem handteknir
voru í tengslum við grófa líkamsárás
í Keilufelli í síðasta mánuði, sæti
áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 5.
maí. Fjórir voru úrskurðaðir í far-
bann til 5. maí en sjötti maðurinn er
frjáls ferða sinna, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Árásin var gerð 22.
mars en þá réðst hópur manna inn í
hús þar sem fyrir voru 10 menn og
hlutu sjö þeirra mikla áverka.
Einn í varð-
haldi og fjórir
í farbann