Morgunblaðið - 15.04.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Tekst Toyota-forstjóranum og stórútgerðarmanninum Magga Kristins að kasta Bakka-
fjörubræðrum fyrir borð og breyta „kúrsinum“ til að forða strandinu?
VEÐUR
Sú var tíðin að svokallað „hæfi-legt“ atvinnuleysi var talin for-
senda fyrir því að hægt væri að
stjórna landi með viðunandi hætti.
Hæfilegt“ atvinnuleysi var taliðheppilegt til þess að halda
launakröfum niðri. Launþegar, sem
væru óöryggir um atvinnu sína væru
ekki líklegir til að hafa uppi miklar
kröfur.
Slíkt atvinnuleysi hefur ekkiþekkzt á Íslandi í langan tíma.
Þvert á móti hefur mikil eftirspurnverið eftir vinnuafli, sem hefur
leitt til yfirborgana og innflutnings á
vinnuafli.
Nú er hins vegar spurning, hvortstefnir í hið hæfilega atvinnu-
leysi á nýjan leik. Samtök atvinnu-
lífsins og Samtök iðnrekenda herða
nú áróðurinn mjög fyrir aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu og upp-
töku evru í stað krónunnar.
Á sama tíma er evran að styrkjastsvo mjög sem gjaldmiðill, að ein-
stök svæði innan ESB þola illa þá
sterku evru.
Við þekkjum þetta hér. Þegarkrónan verður of sterk lenda út-
flutningsatvinnuvegir okkar í erfið-
leikum og fækka fólki.
Þetta er nú að gerast á Írlandi,Spáni og Ítalíu. Berlusconi böl-
sótast út í Seðlabanka Evrópu fyrir
að lækka ekki vexti.
Ætli verkalýðshreyfingin á Íslandihafi áhuga á því að hér skapist
„hæfilegt“ atvinnuleysi, sem meiri
líkur eru á en minni ef við gerumst
aðilar að ESB og tökum upp evru?
STAKSTEINAR
Hið „hæfilega“ atvinnuleysi
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"
#
$
"%%&
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
' ' '
' '
'
' '
'
'
'
'
'
*$BC %%
!
"#
$%&'
(
)
&*
*!
$$B *!
( ) * %" %) %" !#" +#
<2
<! <2
<! <2
(!"* %, &-%.#/
D
$
/
$
& !
'
+#
! &
,-&
&
#
*
<7
$
& !
'
+#
! &
,-&
&
#
*
8
)
"** &
' !
* $
.
'%!
*
01% %#22 #"% %3 # #%, &
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Magnús Ragnar Einarsson | 14. apríl
„Græna Ljósið“
í myrkrinu
Fór í bíó um daginn sem
er ekki í frásögur fær-
andi nema vegna þess
að ég tók eftir að miða-
verð hefur hækkað
rosalega. 1.000 kall
takk. Sem er svo sem
ekki úr takt við aðrar „verðbreytingar“
sem hafa orðið að undanförnu. Mað-
ur verður bara kindarlegur og borgar
uppsett verð og trítlar hnípinn í popp-
ogkókröðina. Þar kemur annað hækk-
unarsjokk. ...
Meira: raggissimo.blog.is
Gestur Guðjónsson | 14. apríl
Atvinnuleysi
stjórntæki
ríkisstjórnarinnar?
... Manni kemur ekkert
á óvart að íhaldinu
hugnist hæfilegt at-
vinnuleysi, enda lækkar
það launataxtana en
hvað Samfylkingin er að
hugsa er mér ráðgáta.
Líklegast sér Samfylkingin hag í því
að auka verkalýðsvitund sem óhjá-
kvæmilega fylgdi auknu atvinnuleysi,
nema hún sé einfaldlega að koma ...
Meira: gesturgudjonsson.blog.is
Elfar Logi Hannesson | 14. apríl
Bráðum fært
á Bíldudal
Stórtíðindi á mánudegi,
Vegagerðin er byrjuð að
moka Hrafnseyrar- og
Dynjandaheiði og munu
þær jafnvel vera færar í
lok vikunnar. Þetta eru
stórmerkilegar fréttir því
í dag þegar þessar heiðar eru ófærar
er maður um 9 klukkutíma að keyra á
Bíldudal frá Ísafirði. En þegar búið
verður að moka heiðarnar er maður
ekki nema 2 tíma að skutlast ...
Meira: komediuleikhusid.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 14. apríl
Fáránlegar kröfur –
ansi langt gengið
hjá Árna
Missti endanlega alla
virðingu fyrir Árna M.
Mathiesen fjármála-
ráðherra við framgöngu
hans nýlega í þjóð-
lendukröfum á svæð-
um hér. Þar er lýst
kröfu á efri hluta fjallsins Súlur og
auk þess ásælist fjármálaráðherra í
nafni ríkisins vatnsból Akureyringa.
Finnst ansi langt gengið í þessu og
velti því fyrir mér hversu lengi enn
fjármálaráðherra muni ganga í fárán-
legum þjóðlendukröfum sínum.
Í kosningabaráttunni hér í fyrra var
mjög deilt á verklag ráðherrans og
var það sérstaklega gott að Kristján
Þór Júlíusson, fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins, tók undir það. Er ánægð-
ur með að Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri hefur talað mjög ákveðið
í þessum efnum og ætlar að standa
vörð um þetta svæði. Það verður
ekki gefinn þumlungur eftir.
Það væri gott að heyra sama sjón-
armið hjá Kristjáni Þór Júlíussyni, for-
seta bæjarstjórnar og fyrrverandi
bæjarstjóra, í fjölmiðlum. Hann er
leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu og fyrsti þingmaður okkar
og þarf að tjá sig um þetta mál, sem
kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og á Al-
þingi í okkar nafni. Er þó ekki í vafa
um að hann er sömu skoðunar og
bæjarstjórinn.
Eftir allt sem á undan er gengið
finnst mér undarlegt að ríkið reyni
enn að seilast þetta langt ...
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS
Reynir Heiðar Antonsson | 14. apríl
Græni hatturinn
Nú á föstudagskvöldið
brá hugskotið sér á tón-
leika hins íslenska
þursaflokks sem haldnir
voru á græna hattinum á
Akureyri. Voru þetta hinir
ágætustu tónleika og
þursarnir í miklu stuði. Í upphafi minnti
Egill Ólafsson á þá staðreynd að þessi
staður er nú um stundir helsti tónleika-
staðurinn á Akureyri og í raun eiginlega
sá eini. Í Sjallanum er að sönnu oft líka
lifandi tónlist en þar er eiginlega meira
um dansleiki ...
Meira: hugskotid.blog.is
» Odda, stofu 101
» fimmtudaginn 17. apríl
» kl. 8.30 – 9.30
Kaffi og meðlæti í boði fyrir fundinn.
ESB og Ísland
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
4
19
46
0
4/
08
www.hi.is
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins,
ræðir um breytt hlutverk ESB í breyttum heimi
og stöðu Íslands gagnvart sambandinu.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn