Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
BRÆÐUR munu berjast voru
kjörorð úrslitaeinvígis Íslandsmóts-
ins í atskák sem fram fór hjá RÚV
um helgina. Nokkrum mánuðum eft-
ir að Íslandsmótinu 2007 lauk var
loks sýnt úrslitaeinvígi þeirra
bræðra Björns og Braga Þorfinns-
sona. Einvígið var fjörugt og fyrsta
skák þess einkar athyglisverð. Að
þessu sinni var farin sú leið að taka
þáttinn upp, þýða og fullvinna.
Starfsmenn RÚV hafa öðlast mikla
reynslu af dagskrárgerð af þessu
tagi. Greinilega var vandað til út-
sendingarinnar og skáklistin komst
vel til skila í þeim fallegu römmum
sem glæsileg sviðsmyndin bauð upp
á.
Þessi útsending var hluti Atskák-
móts Íslands 2007 og hefði undir
venjulegum kringumstæðum átt að
fara fram á síðasta ári. Óskandi er að
RÚV sjái sér fært að sýna lokaein-
vígi Íslandsmótsins í beinu fram-
haldi af aðalkeppninni. Þó er alveg
með ólíkindum að stjórnendur RÚV
skuli ekki hafa áttað sig betur á því
hversu gott sjónvarpsefni þetta er;
síðast var skákborðið notað í ára-
mótaskaupi sjónvarpsins 2006.
Kynning á þessum dagskrárlið var
lítil sem vekur furðu.
Einvígið sjálft féll nokkuð í skugg-
ann af skákskýrendunum sem voru
ekki af lakari endanum. Fyrrverandi
heimsmeistari Boris Spasskí, sem
staddur var hér á landi vegna minn-
ingarathafnar um Bobby Fischer,
var aðalskákskýrandi ásamt Jóhanni
Hjartarsyni og hinni búlgörsku An-
toanetu Stefanovu, fyrrum heims-
meistara kvenna. Spasskí er mikill
æringi og fór á kostum í þessari út-
sendingu. Hann hermdi eftir Karpov
og Kasparov og velti fyrir sér tví-
hyggju Vasilí Smyslov. Náðu þeir
Jóhann vel saman og margt bar á
góma sem varðar skáksögu síðustu
aldar, skákfræðilegan bakgrunn
Spasskís og margt fleira.
Sú hugmynd var borin upp við
stjórnendur RÚV fyrir mörgum ár-
um að gera alþjóðlega skákþætti í
anda kontrapunktsins. Spasskí
myndi sóma sér vel sem kynnir
slíkra þátta.
Það kom í sjálfu sér ekki á óvart að
Björn skyldi leggja yngri bróður
sinn en lokaniðurstaðan var 2:1 eftir
bráðabanaskák. Björn hefur verið
talsvert í sviðsljósinu að undanförnu
og teflir oft frumlega og skemmti-
lega. Á nýjasta stigalista FIDE
komst hann í fyrsta skipti upp fyrir
yngri bróður sinn. Bragi er þó mun
sterkari í hinum fræðilega þætti en
gæti lært margt af bróður sínum
þegar kemur að uppátækjasemi og
frumleika. Í fyrstu skákinni sem hér
fer á eftir setur Björn allt í bál og
brand með óvæntri mannsfórn þegar
í 7. leik. Skákskýrendum bar saman
um að hann hefði næg færi fyrir
manninn en í 10. leik fylgdi hann
fórninni ekki rétt eftir þegar hann
valdi 10. … Rc2+ í stað 10. … Dxg2
11. Bf3 Dg6! Með góðum færum.
Bragi gat leikið 14. Da4+ og 15.
Dxe4 en kaus heldur lakari leik.
Hann hefði átt að leika 17. Bg3 en
valdi slakan leik, 17. Bh4. Sú atlaga
geigaði og Björn fann 21. … Bxf3!
sem tryggði honum unnið tafl.
1. einvígisskák:
Bragi Þorfinnsson - Björn Þor-
finnsson
Móttekið drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. e4 Rc6 4. Be3
Rf6 5. f3 e5 6. d5 Rb4 7. Bxc4 Rxe4
8. fxe4 Dh4+ 9. Bf2 Dxe4 10. Be2
Rc2+ 11. Kf1 Df5 12. Rf3 Rxa1 13.
Bd3 e4 14. De2 Df4 15. Bxe4 Kd8 16.
Rbd2 Bg4
17. Bh4+ Be7 18. Bxe7 Kxe7 19.
Kf2 Hhe8 20. d6+ Kf8 21. Hxa1
Bxf3 22. gxf3 Dxh2+ 23. Ke3 Dxe2+
24. Kxe2 f5 25. dxc7 Hac8 26. Hc1
He7 27. Hh1 h6 28. Hh5 fxe4 29.
Rxe4 Hcxc7 30. Ke3 Hc2 31. Hb5 b6
32. Kf4 He2 33. a4 Hf7+ 34. Kg3
He3
– og Bragi gafst upp.
Stefán Bergsson skákmeistari
Norðlendinga
Fjölmennt og velheppnað Skák-
þing Norðlendinga var haldið að
Bakkaflöt í Skagafirði um síðustu
helgi. Alls tóku 23 skákmenn þátt í
mótinu sem lauk með yfirburðasigri
Henrik Danielsen sem vann allar
skákir sínar sjö að tölu. Á mótinu
voru tefldar sjö umferðir, fyrstu
fjórar með atskáka fyrirkomulagi og
síðustu þrjár með kappskáka fyrir-
komulagi. Lokaniðurstaðan varð
þessi:
1. Henrik Danielsen 7 v. ( af 7 )
2.-3. Sævar Bjarnason og Arnar Þor-
steinsson 5 v. 4.-5. Stefán Bergsson
og Gylfi Þórhallsson.
Samkvæmt upplýsingum frá
mótshaldara þarf keppandi að eiga
lögheimili einshvers staðar á Norð-
urlandi til að hreppa titilinn Skák-
meistari Norðurlands. Stefán og
Gylfi Þórhallsson uppfylla þau skil-
yrði en Stefán telst sigurvegari þar
sem hann var hærri á stigum en
Gylfi.
Rimaskóli vann Íslandsmót
grunnskóla
Mikil þátttaka var á Íslandsmóti
grunnskólasveita sem fram fór í fé-
lagsheimili TR í Faxafeni um
helgina. Alls tóku 18 sveitir þátt í
mótinu og voru tefldar níu umferðir.
Eins og búast mátti við stóð baráttan
um efsta sætið milli Rimaskóla og
Salaskóla í Kópavogi. Í innbyrðis
uppgjöri þessara sveita vann Rima-
skóli með minnsta mun, 2½ : 1½ og
náði tveggja vinninga forystu. Sala-
skóli jafnaði þann mun og var jafnt
með sveitunum fram í síðustu um-
ferð en þá vann Svanberg Már Páls-
son frá Hvaleyrarskóla 1. borðs
mann Salaskóla, Patrek Má Magn-
ússon. Á sama tíma vann Rimaskóli
sína viðureign 4:0 og þar með titilinn
og þátttökurétt á Norðurlandamóti
grunnskóla næsta haust. Skólinn
hyggur einnig á þátttöku í Evrópu-
keppni grunnskóla í Varna í Búlg-
aría á sumri komandi.
Hjörvar Steinn Grétarsson vann
allar skákir sínar níu talsins á 1.
borði fyrir Rimaskóla, Hörður Aron
Hauksson hlaut 7 vinninga, Sigríður
Björg Helgadóttir hlaut 7½ vinning
á 3. borði, Sverrir Ásbjörnsson hlaut
5½ vinning af 6 mögulegum og Dag-
ur Ragnarsson sem tefldi þrjár
skákir á 4. borði vann þær allar.
Salaskóli var með Patrek Magnús-
son á 1. borði, Jóhönnu Björgu Jó-
hannsdóttur á 2. borði, Pál Snædal
Andrason á 3. borði og Eirík Örn
Brynjarsson á 4. borði. Lokaniður-
staðan varð þessi:
1. Rimaskóli–a 32 v. ( af 36 ) 2.
Salaskóli–a 31 v. 3. Laugalækja-
skóli–a 28 v. 4. Laugalækjaskóli–b
21 v. 5. Salaskóli–b 20½ v. 6. Hóla-
brekkuskóli–b 20 v. 7. Flataskóli–a
20 v. 8. Rimaskóli–b 19 v. 9. Hvaleyr-
arskóli 18½ v. 10. Grunnskóli Sel-
tjarnarness 18½ v.
MH vann Íslandsmót fram-
haldsskóla
Sveit Menntaskólans við Hamra-
hlíð vann nokkuð óvæntan sigur á
Íslandsmóti framhaldsskólasveita
sem haldin var um síðustu helgi.
Þátttaka var dræm en sveitirnar
þrjár sem tóku þátt býsna sterkar.
Tefld var tvöföld umferð á fjórum
borðum. Tvær þær efstu hljóta þátt-
tökurétt á Norðurlandamóti fram-
haldsskólasveita sem fram fer hér á
landi næsta haust.
MH hlaut 12 vinninga af 16
mögulegum en MR 10½ vinning í 2.
sæti og sveit Verslunarskólans 1½
vinning. Sigursveit MH skipuðu
Daði Ómarsson sem hlaut 2 vinninga
af 4 á 1. borði, Atli Freyr Kristjáns-
son sem hlaut 3½ vinning, Matthías
Pétursson sem vann allar fjórar
skákir sínar og Tinna Kristín Finn-
bogadóttir sem hlaut 2½ vinning af
4. Sveit MR tefldi fram með Guð-
mundi Kjartanssyni, Ingvari Ás-
björnssyni, Bjarna Jens Kristins-
syni og Paul Frigge.
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
Spasskí fór á kostum sem skákskýrandi
SKÁK
RÚV Efstaleiti
Úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák
2007
12. apríl 2008
Íslabndsmeistarar grunnskólasveita: F.v.: Helgi Árnason skólastjóri Rima-
skóla, Davíð Kjartansson liðsstjóri, Sigríður Björg Helgadóttir, Sverrir Ás-
björnsson, Dagur Ragnarsson, Hörður Aron Hauksson, Hjörvar Steinn
Grétarsson og Óttar Felix Hauksson formaður TR sem afhenti verðlaunin.
Nú er elsku afi Ást-
valdur farinn. Afi Ástvaldur með
hlýju og sterku hendurnar sínar.
Hann var vanur að taka þéttingsfast
utan um okkur og umhyggjan
streymdi frá honum. Afi var tilfinn-
inganæmur og einstaklega skemmti-
legur. Þegar við vorum litlar stelpur
tók hann okkur á hestbak á hnjánum
á sér. Hesturinn fór á stökk, brokk,
gerði alls kyns kúnstir og loks dutt-
um við af baki þegar minnst varði.
Hann var líka svolítið stríðinn. Þegar
við duttum af baki kom stríðnispúk-
inn í hann og hesturinn tók rassaköst
og fretaði jafnvel í leiðinni. Þetta
þótti okkur systrunum óskaplega
skemmtilegt.
Eitt sumarið í Brekku, sumarbú-
stað afa og ömmu í Dölunum, datt
Stína ofan í skurð. Afi sá spaugilegu
hliðina og sagði að Stína hefði misst
rófuna í skurðinum. Sagan um Stínu
og rófuna lifir enn og Máni Snær og
Alvar Áki dótturdóttursynir hans
biðja um að fá að heyra þessa sögu.
Afi Ástvaldur var líka einstaklega
handlaginn. Allt lék í höndum hans.
Hann smíðaði heilu húsin, gerði upp
✝ ÁstvaldurMagnússon
fæddist á Fremri-
Brekku í Saurbæj-
arhreppi í Dalasýslu
29. júní 1921. Hann
andaðist á Landspít-
alanum í Fossvogi
aðfaranótt fimmtu-
dagsins 27. mars
síðastliðins og var
útför hans gerð frá
Langholtskirkju 7.
apríl.
húsgögn eða smíðaði
ný. Sum okkar barna-
barnanna hafa erft
þennan áhuga á hand-
verki og hönnun.
Hann byggði Brekku
frá grunni, sem var
uppáhaldsstaður hans
og ömmu Nennýjar.
Handbragðið hans afa
var óaðfinnanlegt. Ef
þurfti að lagfæra eða
gera við var best að fá
hann í verkið. Alveg
fram á síðasta dag var
afi við góða heilsu og
handbragðinu týndi hann aldrei.
Okkar fyrstu minningar eru úr
Efstasundinu hjá afa og ömmu, hús-
inu sem afi byggði og teiknaði. Þar
vorum við systurnar tíðir gestir. Við
dúlluðum okkur í eldhúsinu hjá
ömmu Nenný, fórum í heimsókn í
kjallarann til langömmu Ragnheiðar
og spiluðum veiðimann. Jólaboð fjöl-
skyldunnar voru haldin í Efstasund-
inu og svo í Breiðagerðinu eftir að afi
og amma fluttu þangað. Þar var glatt
á hjalla og mikið sungið.
Afi var afbragðs tenórsöngvari og
hafði unun af söng. Hann var í kvart-
ettinum Leikbræðrum og söng líka
mikið með Magga frænda. Þar ber
kannski „Kartöflusönginn“ hæst.
Við heyrum líka röddina hans afa
syngja „Ég sé þig aðeins eina“. Alla
sína tíð söng hann, alveg fram til
hins síðasta. Flestir afkomenda hans
hafa reyndar erft tónlistarhæfileika
hans. Alltaf tók hann lagið þegar
fjölskyldan kom saman. Hann setti
saman fjölskyldukór með afkomend-
um sínum og frændum. Karlarnir
sungu en Dóra dóttir hans spilaði
undir eins og amma Nenný var vön
að gera áður fyrr.
Afi var líka einstaklega hagmælt-
ur. Það var eins og með sönginn;
þegar eitthvað stóð til í fjölskyldunni
orti afi vísur. Þessar vísur eru gull-
molar sem gripu anda augnabliksins.
Afi var góður vinur og félagi sem
hægt var að ræða við um allt. Ald-
ursmunurinn hvarf þegar við sett-
umst niður og spjölluðum. Kaffi-
stundirnar í Breiðagerðinu eru
ómetanlegar en þar sagði hann okk-
ur m.a. sögur frá uppvexti sínum í
Saurbænum. Þannig tengdi hann
okkur við gamla tímann sem nú er
horfinn nema í formi minninga.
Sannarlega hafði hann afi húmor-
inn og hjartað á réttum stað. Við
kveðjum hann með söknuði.
Kolbrún Rut og Kristín Björg
Ragnarsdætur.
Fyrir um ári síðan fluttum við fjöl-
skyldan í húsið hans afa. Ég, eigin-
maður minn, stjúpsonur og nýfædd
dóttir komum okkur fyrir á efri hæð-
inni. Það var upphafið að farsælli
sambúð í Breiðagerði. Við mæðgur
vorum mikið heima við fyrstu mán-
uðina og því notalegt að hafa afa í
húsinu til að spjalla við.
Afi sagði svo skemmtilega frá og
gaman þótti mér að heyra hann
segja sögur frá því hann var ungur;
t.d. þegar hann bakaði pönnukökur í
fyrsta skipti þegar óvæntan gest bar
að garði og hvernig hann og Torfi
bróðir hans bjuggu til skíði úr tunnu-
fjölum og renndu sér niður gras-
brekkur um mitt sumar. Einnig sög-
urnar af því þegar þau amma
kynntust á sundnámskeiði á Laug-
um, þegar þau fluttu til Reykjavíkur
og hvernig hann byggði þrjú hús um
ævina. Og síðast en ekki síst sögur af
söngævintýrum Leikbræðra.
Samband okkar og afa einkennd-
ist af mikilli vináttu og sátt. Afi og
Stjúri eiginmaður minn áttu sameig-
inleg áhugamál: smíðar og sveitalíf-
ið. Ég laumaðist oft út úr stofunni
heima og leyfði þeim að vera í friði
þegar ég heyrði að þeir voru komnir
á flug í samræðum um áhugamálin.
Sara dóttir okkar og afi urðu líka
strax bestu vinir. Henni fannst fátt
meira spennandi en að fá að fara í
heimsókn á neðri hæðina, vera í
fanginu á afa, skoða leikfangahest-
inn og hlusta á gömlu spiladósina
hennar ömmu söngla Heims um ból.
Afi var líka hæstánægður með litla
aðdáandann sem brosti og hló í hvert
skipti sem hann gretti sig og geiflaði.
Afi var mikill nákvæmnismaður;
fór vandlega yfir allt sem hann tók
sér fyrir hendur, hvort sem það var
smíðaverk eða skattskýrsla. Alltaf
með langan lista af verkefnum fyrir
stafni og kímnigáfan í góðu lagi.
Hann lifði lífinu lifandi – enda vakti
það oft mikla athygli þegar ég sagði
frá því að ég byggi með 86 ára göml-
um afa mínum sem væri enn að
smíða og færi allra sinna ferða sjálf-
ur.
Sveitin og söngurinn áttu þó hug
hans og hjarta. Í Brekku á Fells-
strönd leið honum best enda byggði
hann þar bæði bústað og rafstöð með
berum höndum. Einhverjar bestu
minningar sem ég á eru með afa og
ömmu í Brekku.
Ég veit að afi saknaði ömmu mikið
og ég er sannfærð um að einhvers
staðar hafa þau nú sameinast á ný.
Ég og fjölskylda mín kveðjum afa
Ástvald með miklum söknuði sem og
innilegu þakklæti fyrir yndislegar
stundir. Minningin um hann mun
ávallt fylgja okkur.
Eva Rún Þorgeirsdóttir.
Okkur systurnar langar til þess að
minnast í fáum orðum Ástvaldar
Magnússonar eða Valda eins og
hann var ætíð kallaður. En okkur
finnst við varla geta talað um Valda
nema að minnast Nennýjar frænku
líka. Í okkar huga eru þau nánast
eitt. Alltaf var talað um Nenný og
Valda næstum eins og um eina per-
sónu væri að ræða.
Frá því að við fyrst munum eftir
hafa þau verið hluti af lífi okkar. Það
var stutt í glettnina og grínið hjá
Valda, og það fylgdi þeim hlátur og
gleði þegar þau komu við heima,
annaðhvort á leiðinni út á Breiða eða
á suðurleið. Það var gaman þegar
fjölskyldan hittist, ekki síst ef píanó
var tiltækt, því þá leið ekki á löngu
áður en Nenný var sest við píanóið
og síðan var sungið og sungið. Og
þar fór fremstur í flokki Valdi með
sína fallegu og björtu tenórrödd. Þau
gáfu sér tíma til þess að spjalla við
okkur krakkana og fylgdust af ein-
lægum áhuga með, er tíminn leið, því
sem við tókum okkur fyrir hendur í
námi og starfi.
Þegar við hugsum til baka, þá er
efst í huga hlátur og söngur í minn-
ingum tengdum Nenný og Valda. Við
erum þakklátar fyrir að hafa fengið
að vera þeim samferða hluta af lífs-
leiðinni.
Aðstandendum öllum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Sýn mér sólheima,
sveipaðu skýjum frá.
stöðugt lát streyma
styrk til vor jörðu á.
Alla sem þrautir þjá,
guð, virstu geyma.
(Helga S. Þorgilsdóttir)
Hanna Dóra Sturludóttir,
Steinunn Sturludóttir.
Ástvaldur Magnússon
Fleiri minningargreinar um Ást-
vald Magnússon bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.