Morgunblaðið - 15.04.2008, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Íbúðir til leigu á Spáni
Íbúðir í Barcelona, margar stærðir.
Einnig Costa Brava Playa de Aro,
Menorca Mahon, Valladolid,
www.helenjonsson.ws.
Sími 899 5863.
Heilsa
Frelsi frá sektarkennd og skömm
Hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu
Til leigu er 2ja herbergja íbúð
m/bílskýli á Seltjarnarnesi.
Vinsamlegast hringið í síma
699 2901 eftir kl. 17.00.
Iðnaðarhúsnæði til leigu við
Eldshöfða 9. Til leigu er iðnaðar/
lagerhúsnæði við Eldshöfða 9. Um er
að ræða 600 fm rými með skrifstofu-
aðstöðu og salerni. Tvær innkeyrslu-
hurðir eru á húsnæðinu sem er í góðu
ástandi. Verð 1200 kr/fm á mánuði.
Frekari upplýsingar í síma 567 6700
eða hjá sigridurth@vakabilar.is
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 132 fm og 76 fm verslunar-
og skrifstofuhúsnæði á götuhæð við
umferðargötu á Ártúnshöfða. Stórir
gluggar, flísalagt gólf og góð
aðkoma. Uppl. í síma 892 2030.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús .
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval. Frábært verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Þjónusta
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Innihurðir
Innihurðir í málum frá 60cm - 80cm.
Hvítar m/karm og stálhún kr. 19.900.
Háglans m/ karm og stálhún
kr. 59.000. Eikarhurðir m/karm og
stálhún kr.24.900. Húsgagnasprautun
Gjótuhrauni 6, s. 555-3759.
Ýmislegt
Þægilegir herrainniskór á góðu
verði. Str. 40-46. Verð: 1.995.- 2.950.-
og 3.585.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið
Úlpur, litur bleik og hvít.
St. 38 – 54.
Sími 588 8050.
Lína: Turqoise - glæsilegir "push
up"haldarar í BCD skálum á kr.
6.990,-
Lína Turqoise - mjög flott "push up"
fyrir brjóstgóðar í CDEFG skálum á kr.
6.990,-
Lína: Coral - fleginn "push up" hald-
ari í BCD skálum á kr. 5.990,-
Lína: Coral - sömuleiðis flott "push
up" í CDEFG skálum á kr. 5.990,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
GreenHouse vor-sumarvaran er
komin. Verið velkomin að sækja
frían bækling.
Opið í dag, þriðjudag 13-19.
GreenHouse, Rauðagerði 26.
Arcopédico hinir einu sönnu
komnir aftur í Rauðagerði 26.
Alltaf góðir. Varist eftirlíkingar.
Opið í dag, þriðjudag, 13 - 19.
Veiði
Veiðferðir til S-Grænlands
í sumar. Stangveiði, sauðnaut og
hreindýr. Leitið upplýsinga
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ehf.
S.: 511 1515
www.gjtravel.is
Bátar
NAFNI er til sölu.
Skemmtibáturinn NAFNI er til sölu.
Hann hefur verið notaður til útleigu í
Hafnarfirði og er þekktur fyrir það
(svartfugl, sjóstöng o.fl.).
Viðskiptavild fylgir bátnum.
S. 864 4589.
Bílar
Nissan Terrano II 32.000 km.
Til sölu Nissan Terrano II 2,7 disel
árg. 2004 ekinn aðeins 32.000 km.
Staðgreiðsluverð aðeins kr.
2.500.000. Uppl. í síma 895 5608.
Audi A4 Quattro árg.´07
Audi A4 Turbo Quattro árg.´07,
ek.17 þús. Leður, sóllúga, sjálfskiptur,
fjórhjóladrif, frábær akstursbíll, 250
hestöfl, eyðsla 8-12L á 100km. Verð
4290 þús. Tilboð, staðgreitt 3850þús.
S: 821-4068.
Hjólbarðar
Fjögur 16 tommu sumardekk
til sölu. Dunlop sumardekk til sölu
205/55R 16 9IV. Líta út sem ný enda
eingöngu notuð í tæpa 3 mánuði.
Seljast ódýrt á 25.000 kr.
Upplýsingar í síma 898-0655.
Mótorhjól
Yamaha R6 custom painted til
sölu!!! Yamaha R6, 2004 árgerð til
sölu Custom paintað!!!!! Búið að
skipta út orginal stefnuljósum og
breyta númerabracketti.Verð 800 þús.
Nánari upplýsingar í 822 4146.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar
sími 569 1100
ÁRÚN Kristín
Sigurðardóttir
hjúkrunarfræð-
ingur varði dokt-
orsritgerð sína frá
læknadeild Há-
skóla Íslands 4.
apríl síðastliðinn.
Ritgerðin ber
heitið „Self-care
in Diabetes: Empowering Educatio-
nal Intervention using Instruments
to Enhance Care of People with
Diabetes“ eða „Sjálfsumönnun í syk-
ursýki: Eflandi fræðslumeðferð sem
notar kvarða til að bæta umönnun
fólks með sykursýki“.
Ritgerðin samanstendur af tveim
fræðilegum samantektum, þver-
skurðarkönnun og meðferðarrann-
sókn. Fyrri fræðilega samantektin
fjallar um sjálfsumönnun í sykursýki.
Sett var fram líkan af sjálfsumönnun
sem byggir á ólíkum sviðum og þátt-
um sem sýnir að þekking, líkamlegir
þættir, andleg líðan og upplifað mat á
eigin getu hafa áhrif á langtíma blóð-
sykurstjórnunargildið (HbA1c).
Seinni fræðilega samantektin var út-
tekt á áhrifum fræðslu í slembuðum
meðferðarrannsóknum. Niðurstöð-
urnar sýndu að upphafsgildi HbA1c
réð mestu um hve mikil lækkun á
HbA1c varð við fræðslumeðferðirnar.
Tilgangur þverskurðarkönnunar-
innar var að prófa áreiðanleika og
réttmæti þriggja kvarða sem voru
hannaðir og þróaðir fyrir fólk með
sykursýki og voru þýddir eftir alþjóð-
legum viðmiðum um þýðingar mæli-
tækja. Annar hluti rannsóknarinnar
var meðferðarrannsókn en tilgangur
hennar var að meta áhrif fræðslu-
meðferðar á sjálfsumönnun og lang-
tíma blóðsykurstjórnun. Meðferð-
arrannsóknin tók mið af kenningum
um sjálfseflingu og einstaklingsmið-
aða meðferð en kvarðar voru notaðir
til að greina veikleika hjá þátttak-
endum, til dæmis varðandi þekkingu,
streitu eða sjálfseflingu. Þannig var
meðferðin löguð að einstaklings-
bundnum þörfum þátttakenda. Þátt-
takendum var slembað í meðferðar-
eða samanburðarhóp. Þegar hóp-
arnir voru bornir saman fannst
marktækur munur á svörum um heil-
brigt mataræði og þekkingu, með-
ferðarhópi í hag. Meðferðin hafði
ekki marktæk áhrif til lækkunar
blóðsykurs hjá meðferðarhópi miðað
við samanburðarhópinn. Parað t-próf
sýndi marktæka breytingu hjá með-
ferðarhópi, sem léttist, líkamsþyngd-
arstuðull (BMI) minnkaði sem og
ummál mittis en þessi gildi voru svo
til óbreytt hjá samanburðarhópi.
Ályktanir frá rannsóknum verkefn-
isins eru að sjálfsumönnunarlíkanið
sé notadrjúgt til leiðbeiningar fyrir
heilbrigðisstarfsfólk við umönnun
sykursjúkra þar sem það tekur mið
af ólíkum sviðum og þáttum sem
áhrif hafa á sjálfsumönnun. Rann-
sóknin sýndi einnig að stutt, mark-
viss, einstaklingshæfð fræðslu-
meðferð þar sem kvarðar eru notaðir
til að greina hvar skórinn kreppir hafi
notagildi til hagsbóta fyrir fólk með
sykursýki.
Doktorsnefnd skipuðu dr. Erla
Kolbrún Svavarsdóttir (formaður),
prófessor við Háskóla Íslands, dr.
Amalía Björnsdóttir, dósent við
Kennaraháskóla Íslands og dr. Elín
Díanna Gunnarsdóttir, dósent við
Háskólann á Akureyri.
Árún Kristín Sigurðardóttir er
fædd árið 1957. Hún lauk BS-prófi í
hjúkrunarfræði árið 1982 og vann við
hjúkrun í Danmörku og Noregi
næstu árin. Hún lauk M.Sc.-prófi í
hjukrunarfræði frá Háskólanum í
Wales árið 1997. Árún hefur verið
lektor við Háskólann á Akureyri frá
árinu 1997 og gegnir nú stöðu dós-
ents og brautarstjóra í hjúkrunar-
fræði við þann skóla. Árún er gift
Steingrími Jónssyni, prófessor við
háskólann.
Doktor í heilbrigðisvísindum
FRÉTTIR
SAMSTARFSHÓPURINN Náum
áttum heldur fræðslufund um
ávinning forvarna á Grand Hótel
Reykjavík miðvikudaginn 16.
apríl kl. 8.15 til kl. 10.
Erindi flytja Haukur Freyr
Gylfason heilsuhagfræðingur,
Geir Gunnlaugsson, for-
stöðumaður Miðstöðvar heilsu-
verndar barna, og Geir Bjarna-
son, forvarnarfulltrúi
Hafnarfjarðar.
Að framsöguræðum loknum
verða opnar umræður. Fund-
arstjóri verður Salbjörg Bjarna-
dóttir.
Þátttökugjald er 1.500 kr.
Morgunmatur er innifalinn í
gjaldinu.
Skráning fer fram á vefsíð-
unni www.lydheilsustod.is/
skraning
Fræðslufundur
um ávinning
forvarna