Morgunblaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 35
Krossgáta
Lárétt | 1 sparisjóður, 4
segja frá, 7 skýjahulan, 8
aldurhnigin, 9 blett, 11
tók ófrjálsri hendi, 13
hluti, 14 lítinn bát, 15
listi, 17 vinds, 20 bók-
stafur, 22 eyja, 23 við-
urkennir, 24 rugga, 25
víðan.
Lóðrétt | 1 stóls, 2 rák, 3
nálægð, 4 blýkúla, 5 getur
tekið, 6 kærleikshót, 10
trúarbrögð, 12 lána, 13
sonur, 15 spónamatur, 16
klettasnös, 18 mjólkuraf-
urðum, 19 undirnar, 20
gloppa, 21grannur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 réttsælis, 8 stinn, 9 tolla, 10 níu, 11 renni, 13
rengi, 15 hregg, 18 snáði, 21 örn, 22 starf, 23 æruna, 24
ringlaðar.
Lóðrétt: 2 étinn, 3 tonni, 4 æstur, 5 iglan, 6 ósar, 7 gati, 12
nag, 14 ein, 15 hest, 16 efaði, 17 göfug, 18 snæða, 19 ám-
una, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einhver lítur upp til þín vegna alls
þess sem þú hefur afrekað undanfarið.
Hins vegar munu mistök sem þú gerir
tengja þig þessari manneskju.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú kemur til dyranna eins og þú ert
klæddur. Þú vilt ekki þykjast. Samt við-
urkennir þú að allir - líka þú - eigi sér
heim með leyndarmálum af öllum gerðum
og stærðum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stjörnunar einbeita sér að lík-
ama þínum. Að hugsa um hann ætti ekki
að vera skylduverk - það á að vera gaman.
Finndu hreyfingu sem þér líkar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Góðir vinir krydda tilveruna þína
með smá klikkun. Þér líst kannski ekki
vel á það í byrjun, en reyndu að hlæja að
öllu saman og þá verður gaman.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er dyggð að vinna vel. En ekki
ef þú ert sá eini sem rembist eins og rjúpa
við staur því þú þorir ekki að mótmæla
kröfuhörðum yfirmanni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert að þróa með þér sterkari
hóptilfinningu - að tilheyra fjölskyldu,
vinahópi eða samtökum. Þetta sprettur af
því að þú hefur samþykkt sjálfan þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Heppni gæti virkað eins og óheppni
og öfugt, þannig að best er að pæla ekkert
í heppni. Taktu henni eins og hún birtist
og notfærðu þér það sem þú getur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Upphaf að verkefni var fullt
af von og birtu. Nú byrjar verkið fyrir al-
vöru. Erfiðast reynist að halda í vonina.
Vertu duglegur að minna þig á upp-
haflegu sýnina.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú veist aldrei hvernig fólk
bregst við beiðnum þínum nema þú berir
þær fram. Og til að verða góður í að biðja
um hluti, þarf að gera það sem oftast.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú gerir þér grein fyrir að þú
hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli
við fólk. En nú hefur þú breyst, og þú
þarft að breyta „sögunni“ líka.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Regla dagsins hljóðar svo: Þú
mátt bara hafa áhyggjur í fimm mínútur.
Alveg sama hvaða peningakarlar eða leið-
indaskjóður banka upp á hjá þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Tilhneigingu þinni til að haga þér í
vissum ryþma er raskað og einhver hrind-
ir niður taktmælinum. Þú lætur það ekki
slá þig út af laginu, heldur finnur þér nýj-
an ryþma.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5.
Be3 Rge7 6. Bd3 cxd4 7. cxd4 Db6 8. 1.
c4 Rf6 2. Rf3 g6 3. d4 c5 4. d5 e6 5. Rc3
exd5 6. cxd5 d6 7. Bg5 Bg7 8. Rd2 h6 9.
Bh4 O–O 10. e3 a6 11. a4 Rbd7 12. Be2
Dc7 13. O–O Hb8 14. h3 He8 15. Dc2 c4
16. Bxc4 b5 17. axb5 axb5 18. Bd3 Re5
19. Bxf6 Bxf6 20. Rce4 De7
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem fór fram haustið
2007. Stórmeistarinn Aloyzas Kveinys
(2515) frá Litháen hafði hvítt gegn
Pálma Péturssyni (2105). 21. Ha7! Bd7
22. f4 Hec8 23. Db1 og svartur gafst
upp enda fátt um varnir eftir 23 …
Rxd3 24. Hxd7!
Það var fyrir skemmstu sem skákir
úr Íslandsmóti skákfélaga 2007/2008
urðu aðgengilegar á netinu og verða
nokkrar þeirra birtar hér í Skákhorn-
inu á næstu dögum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Kjarkleysi?
Norður
♠K95
♥D109
♦ÁK754
♣103
Vestur Austur
♠8 ♠7
♥854 ♥KG7632
♦DG9 ♦86
♣ÁK8652 ♣DG74
Suður
♠ÁDG106432
♥Á
♦1032
♣9
Suður spilar 6♠.
Eru íslenskir spilarar búnir að missa
kjarkinn? Undanúrslit Íslandsmótsins
fóru fram um helgina og aðeins á sex
borðum af 40 þorðu menn í 6♠. Fyrir
nokkrum árum hefði öll hjörðin verið í
slemmu. Ef til vill er sagntæknin að
batna, en líklegra er þó að tímasetn-
ingin hafi ráðið mestu um hógværðina
– spilið kom upp snemma á sunnudags-
morgni eftir tvo erfiða daga.
Slemman á ekki að vinnast, en Krist-
ján Blöndal fann leið til að plata vörn-
ina. Hann fékk út ♣Á og meira lauf,
sem hann trompaði, fór inn í borð á
spaða og spilaði hjartadrottningu!
Austur lagði á og síðan trompsvínaði
Kristján fyrir hjartagosa. Örn Arn-
þórsson spilaði eins en hann var í 5♠,
ekki slemmu.
Þeir sem fóru niður á slemmunni
reyndu við kastþröng, ýmist einfalda á
vestur eða víxlþröng á austur. Hvorugt
gengur upp, því vestur valdar tígulinn
og austur hjartað.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1Maður fórst í eldsvoða um helgina. Hvar á landinu?
2 Hver er nýbakaður Íslandsmeistari karla í klettaklifriog hver í flokki kvenna fullorðinna?
3 Hver er tekin við formennsku í Framtíðarlandinu?
4Miklar biðraðir mynduðust í einni Bónus-versluninni íborginni vegna tilboða. Hverri?
Svör við spurningum gærdags-
ins:
1. Mynd Sigur Rósar er vinsælust
heimilda- og tónlistarmynda með-
al notenda vefsíðunnar Internet
Movie Data Base. Hvað heitir
hún? Svar: Heima. 2. Verið er að
vinna hljómplötu í tilefni af 100
ára fæðingarafmæli eins ástsæl-
asta ljóðskálds landsins. Hver er
hann? Svar: Steinn Steinarr. 3.
Ólafur Ingi Skúlason lagði upp
mark fyrir Henrik Larsson í
sænsku knattspyrnunni. Með hvaða liði leika þeir? Svar: Hels-
ingborg. 4. Fannar Örn Þorbjörnsson handknattleiksmaður er á
leið heim frá Danmörku. Til hvaða liðs fer hann? Svar: Stjörn-
unnar.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
Í ÍSLENSKRI messu 30. mars síðastliðinn voru tvö ís-
lensk ungmenni fermd í norsku sjómannakirkjunni í
Torrevieja á Spáni. Fermd voru Ellen Sif Skúladóttir
og Kristinn Ómar Brynjólfsson. Séra Ragnheiður
Karítas Pétursdóttir fermdi.
Er þetta í annað sinn sem sr. Ragnheiður fermir ís-
lensk börn í Torrevieja, en fermt var þar í fyrsta sinn
árið 2006. Fjölmenni var í messunni og að vanda var
tekið vel undir í sálmum og söng. Mátti heyra ís-
lenska sálma hljóma út í spænska veðurblíðuna þar
sem íslenski fáninn blakti við hún.
Séra Ragnheiður Karítas hefur messað reglulega í
norsku sjómannakirkjunni í Torrevieja undanfarin
ár. Fjöldi Íslendinga er búsettur bæði í Murcia og
Alicante á Spáni og hafa messurnar verið vel sóttar
og kirkjukaffi vel þegið þar sem karlar, konur og
börn hafa gætt sér á vöfflum og hitt mann og annan.
Í fermingarmessunni voru einnig afhentar gjafir til
Íslendinga á Spáni. Biblía 21. aldarinnar, sálmabók
með nótum og íslenski fáninn. Verða þessir gripir
varðveittir í norsku sjómannakirkjunni í Torrievieja,
þar sem hægt er að fá aðgengi að þeim.
Fermingar-
messa í Torre-
vieja á Spáni
Athöfnin Fermingarbörnin Ellen Sif Skúladóttir og Kristinn Ómar Brynjólfsson ásamt séra
Ragnheiði Karítas Pétursdóttur. Með þeim á myndinni er Jakob Þorsteinsson sem tók við gjöfum
fyrir hönd Íslendinga á Spáni. Gripirnir verða varðveittir í norsku sjómannakirkjunni.