Morgunblaðið - 03.05.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 120. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VISTVÆN
VERSLUN
LÍFRÆNT RÆKTUÐ
BARNAFÖT BÓNDANS
Í SVEITINNI >> 23
EVRÓVISJÓNLAGIÐ
Í GUÐS HÖNDUM
ÞRJÁR MÍNÚTUR >> 46
ALLA LEIÐ
Í KVÖLD
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SAMDRÁTTUR í sölu nýrra bifreiða var
viðbúinn en töluvert hraðari og meiri en for-
svarsmenn bílaumboða reiknuðu með. Dróst
salan saman um 44,1% í síðasta mánuði mið-
að við apríl í fyrra. Forstjóri Brimborgar og
formaður stjórnar Bílgreinasambandsins
segir ekki óvarlegt að áætla að sala nýrra
bíla í ár dragist saman um 30-40% miðað við
síðasta ár.
Árið fór afar vel af stað hjá bílaumboð-
unum og sérstaklega var mikið keypt af bíl-
um í janúar. Í marsmánuði fór hins vegar að
hægjast um. Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, segir að vik-
una fyrir páska hafi svo botninn alveg dottið
úr sölunni. „En sem betur fer voru flestir
undirbúnir að einhverju leyti. Búið var að
huga að pöntunum og því enda menn ekki
með gríðarlegar birgðir sem þeir geta ekki
selt.“
Áhrif takmörkunar á lánsfé
Tvær ástæður eru helstar fyrir hinum
mikla samdrætti; hækkandi verð vegna
gengisbreytinga en ekki síst takmörkun á
lánsfé. Ekkert framboð er lengur á 100%
lánum og eru 70% lán algengust um þessar
mundir. Ekki er útlit fyrir að breyting verði
þar á næstu mánuðum. „Á meðan þessi
óvissa er [í efnahagsmálum] hleypur fólk
ekki til og fjárfestir, hvort sem er í bílum
eða fasteignum,“ segir Úlfar Steindórsson,
forstjóri Toyota á Íslandi. „Og þessi hreyf-
ing ýkist þegar fólk finnur að erfiðara er að
fá lánsfé en áður.“ Einna mestur sam-
dráttur varð á sölu nýrra bíla hjá Toyota, 96
seldust í síðasta mánuði en 303 í apríl á síð-
asta ári. Úlfar bendir þó á að rekstur Toyota
snúist ekki einvörðungu um sölu bíla.
Viðmælendur Morgunblaðsins voru sam-
mála um að samkeppni á markaðnum væri
mikil og það sæist best á að umboðin væru
að reyna lækka verð og veita tilboð. Bjugg-
ust allir við að slíkar aðgerðir myndu halda
áfram á komandi vikum og mánuðum. Úlfar
segist þó ekki sannfærður um að gerlegt sé
að lækka verð á vörum sem fluttar séu inn
og greiða þurfi fyrir í erlendum gjaldeyri.
„Krónan er að veikjast og ég sé ekki for-
sendur fyrir lækkun, öðruvísi en að menn
borgi með vörunni.“ | 8
Samdráttar-
skeið á bíla-
markaði
Ekki óvarlegt að áætla
30-40% samdrátt í ár
Morgunblaðið/RAX
Til sölu Bílasala hefur minnkað mikið að
undanförnu og tilboðum því fjölgað.
HEIMILISFÓLKIÐ á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð hefur í tæp
tvö ár fengið hundana Pollý og
Karólínu í heimsókn einu sinni í
viku. Heimsóknirnar eru hluti af
verkefni Rauða krossins. Eigendur
hundanna eru sammála um að þær
gleðji heimilisfólkið mjög mikið og
kíkja í Sunnuhlíð í fyrsta skipti í
gær. Hún er ekki orðin nógu göm-
ul til að taka þátt í verkefninu en
þykir sannarlega lofa góðu. | 6
tekur það hundunum afar vel.
Það væsti ekki um hvolpinn
Brynfríði í fangi Guðrúnar Ólafar
Jónsdóttur en Brynfríður fékk að
Morgunblaðið/RAX
„Heimsóknin gleður fólk óskaplega mikið“
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG HELD að hagkerfið sé að fara að kólna til-
tölulega hratt núna og ég held að Seðlabankinn
lækki sína vexti tiltölulega hratt á árinu 2009,“
sagði Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greining-
ardeildar Kaupþings, á fjölsóttum fundi um
horfurnar á fasteignamarkaðnum í gær.
Ásgeir sagði offramboðið á fasteignum ekki
hafa orðið jafn mikið og hann hefði óttast.
lágu fólki að taka 90% fasteignalán. „Enginn
mannlegur máttur“ gæti komið í veg fyrir kaup-
máttarrýrnun almennings næstu tvö árin.
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans, var einnig í hópi ræðumanna á fund-
inum í gær, en hann sagði fasteignabóluna hin
síðari ár þá mestu í Íslandssögunni og að bank-
inn hefði spáð því að henni myndi ljúka með
verulegri raunlækkun fasteignaverðs.
Lækkun fasteignaverðs gæti orðið meiri en
áður í sögu Íslands. | 12
Mestu varðaði að tryggja að hjól fasteigna-
markaðarins héldu áfram að snúast.
Ábyrgðarleysi að lána þeim tekjulægstu
„Það skiptir máli að fólk geti losað eignir og
að það sé hægt að eiga viðskipti á þessum mark-
aði,“ sagði Ásgeir, sem taldi raunlækkun fast-
eignaverðs geta orðið meiri en þau 14% sem
bankinn spáði yrði verðbólgan viðvarandi.
Ásgeir sagði að miðað við núverandi ástand
væri það „ábyrgðarleysi“ að ráðleggja tekju-
Óhjákvæmilegt að kaup-
máttur rýrni næstu tvö árin
Sólarferð >> 47
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
KEN Livingstone, borgarstjóri
London og einn forystumanna
Verkamannaflokksins í Bretlandi,
náði ekki endurkjöri í borgar-
stjórakosningum í fyrradag.
Íhaldsmaðurinn Boris Johnson fór
með sigur af hólmi.
Ósigur Livingstones er mikið
áfall fyrir Verkamannaflokkinn
sem galt mesta afhroð sitt í sveit-
arstjórnarkosningum í fjóra ára-
tugi. Auk borgarstjóraembættisins
var kosið um rúm 4.000 sæti í 159
sveitarstjórnum og Verkamanna-
flokkurinn missti 333 sæti en
íhaldsmenn bættu við sig 260 sæt-
um.
Johnson er 43 ára, fyrrverandi
blaðamaður The Daily Telegraph
og ritstjóri hægrisinnaða tímarits-
ins Spectator. Hann þykir mjög lit-
ríkur stjórnmálamaður eins og
Livingstone. | 16
Livingstone náði
ekki endurkjöri
Ken Livingstone Boris Johnson
EFTIR margra ára hlé er aftur
farið að bera á ölvun jeppa-
manna í fjallaferðum, að sögn
Páls Guðmundssonar, formanns
Ferðafélags Íslands, sem hefur
þungar áhyggjur af þróuninni.
Páll segir þennan ósið hafa
lagst af þegar skálum á hálend-
inu var lokað yfir vetrartímann á
sínum tíma. Nú þegar skálarnir
hafi verið opnaðir á ný hafi
drykkjan aukist og nýlegt dæmi
þegar drukknir jeppamenn veltu
jeppa á skála félagsins í Land-
mannalaugum fyrir um hálfum
mánuði.
Hann segir mennina ekki hafa
tilkynnt um tjónið og að þeirra
sé nú leitað. Ljóst sé að tjónið
hlaupi á milljónum króna. | 4
Þungar áhyggjur
af ölvun á fjöllum
Tjón Hluti skálans skemmdist
þegar jeppinn skall á honum.