Morgunblaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mér er í fersku minni þeg-ar ég í fyrsta sinn áttaðimig á því hvað verð-bólga þýddi í raun og veru. Ég var á bakpokaferðlagi með ferðahandbókina Lonely Planet í far- teskinu. Út frá henni hafði ég reikn- að gróflega hvað áætlaður þvælingur næstu vikna myndi kosta mig og þóttist vel sett peningalega. Ég vissi auðvitað að bókin var ársgömul og gerði ráð fyrir aðeins hærra verðlagi en á daginn kom að gisting og matur var umtalsvert dýrari og ég þurfti að reikna allt upp á nýtt. Skýringin? Jú, það var 15% verðbólga í landinu. Ég hefði getað þulið upp skilgrein- ingu á verðbólgu en hafði aldrei upp- lifað hana á þennan hátt. Ég er nefni- lega af kynslóðinni sem ekki þekkir verðbólgu. Þegar þjóðarsáttin var gerð var ég upptekin við brotareikn- ing, fallbeygingar og fótboltaæf- ingar. Líklega leitaði ég langt yfir skammt til að öðlast skilning á verð- bólgunni en á þeim tíma grunaði mig ekki að nokkrum árum síðar yrði verðbólgan komin í tveggja stafa tölu á Íslandi. Og nú kemur ákall um nýja þjóðarsátt. Hvað er verið að gera? Auðvitað þurfa allir að leggjast á eitt við að vinna gegn verðbólgu. Að- stæður hér á landi eru hins vegar allt aðrar en þær voru um 1990. Mark- aðir eru opnir og Ísland aðili að EES- samningnum sem vindur upp á sig dag frá degi. Þannig þurfa allar að- gerðir að taka mið af erlendum mörkuðum, sem var kannski ekki eins stórt atriði fyrir tveimur áratug- um. Reyndar væri vandinn ekki eins mikill hér á landi og raun ber vitni ef ekki væri fyrir óróleika á alþjóð- legum fjármálamörkuðum, eins og stjórnvöld benda ítrekað á. En eigi almenningur að sýna því skilning þurfa líka að koma skýrar yfirlýs- ingar um hvað sé verið að gera til að leita lausnar á vandanum. Ekki bara að verið sé að gera eitthvað. Að míga eða míga ekki í sjó Áhugaverð skoðanaskipti áttu sér stað á þingi í vikunni þegar rætt var um þingsályktunartillögu Jóns Magnússonar og fleiri þingmanna um breytta stjórn fiskveiða í sam- ræmi við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, var ekki sáttur við stuðn- ing Sigurðar Kára Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, við nú- gildandi kvótakerfi og sagði hann lík- lega vera dæmi um mann sem aldrei hefði migið í saltan sjó. Sigurður Kári vissi ekkert um lífið og hefði sennilega verið „meira eða minna á vernduðum vinnustað“ frá því að hann byrjaði að vinna. Grétari þótti reyndar almennt að þingmenn vissu lítið um lífið og hefðu fæstir dýft hendinni í kalt vatn. Nú væri gaman ef Grétar myndi útskýra nánar um hvað lífið snýst. Er það einungis fólk í ákveðnum stöðum sem veit eitthvað um lífið? Og þarf viðkomandi að míga í saltan sjó til að átta sig á því eða er t.d. nóg að hafa þrælað í frystihúsi? Eða getur verið að forsendan fyrir því að vita um hvað lífið sjálft snýst sé hin eina sanna sjó(karl)mennska? Sé litið yfir æviágrip Sigurðar Kára og Grétars Mars á Alþing- isvefnum má sjá að sá fyrrnefndi nam lögfræði, vann á lögmannsstofu, var stundakennari við Iðnskólann og hefur tekið að sér ótal félagsstörf, s.s. í stúdentapólitíkinni, Sambandi ungra Sjálfstæðismanna og í Heim- sýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Sá síðarnefndi er skipstjóri og útgerðarmaður og hef- ur líka tekið þátt í félagsstarfi, s.s. í Sambandi ungra jafnaðarmanna, í sveitarstjórn Sandgerðis og í Vísi, fé- lagi skipstjórnarmanna á Suður- nesjum. Mennta- eða sjómannshroki Ljóst er að þessir tveir þingmenn hafa valið sér ólíka leið í gegnum lífið og það er ljómandi gott að á Alþingi sitji fólk úr sem flestum hópum þjóð- félagsins. Hins vegar er fremur máttlítið vopn í rökræðum að vísa til bakgrunns fólks með þeim hætti sem Grétar Már gerði í ræðustóli Alþing- is. Sigurður Kári sagði reyndar frá því að hann hefði verið á sjó en benti líka á að þó að svo væri ekki mætti hann alveg hafa skoðun á málum. Áhugavert hefði verið að sjá við- brögð við svona skoðanaskiptum ef dæminu væri snúið við, þ.e. ef Sig- urður Kári hefði sagt að Grétar hefði ekki hundsvit á því hvað hann væri að tala um enda ekki með tilhlýðilega lögfræðimenntun til að átta sig á gildi alþjóðasamninga eða löggjafar almennt. Þá hefðu líklega heyrst há- vær mótmæli. Verðbólga og sönn sjó(karl)mennska ÞINGBRÉF Halla Gunnarsdóttir Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ALLT útlit er fyrir áframhaldandi lækkun fasteignaverðs og ljóst að innkoma bankanna á fasteignamark- aðinn olli fordæmislausri þenslu á markaðnum sem nú er að ljúka. Þetta var öðrum þræði meginstefið á fjölsóttum fundi um stöðuna á fast- eignamarkaðnum á Grand hóteli í gær þar sem sex framsögumenn ræddu ólíkar hliðar þróunarinnar. Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, steig fyrst í pontu og vandaði ríkisstjórninni og Seðlabankanum ekki kveðjurnar í yf- irferð sinni yfir ástæður hinnar miklu kólnunar á markaðnum. „Til að berja í brestina hefur nú verið lagt í þá vegferð að ráðast að grundvallarstoðum hagkerfisins og nú skal knýja þar lækkun á húsnæð- isverði. Gamla einræðisaðferðin að handstýra markaðnum er notuð. Seðlabankinn setur fram 30% verð- lækkunarspá en slær jafnframt þá varnagla í spánni að um gríðarlega óvissu sé að ræða,“ sagði Ingibjörg. Að mati Ingibjargar þarf að styrkja Íbúðalánasjóð og gera honum kleift að starfa í eðlilegu umhverfi. Sjóðurinn þurfi að geta staðið undir því hlutverki sem honum sé ætlað, meðal annars með því að hækka há- markslánin og miða útlán við kaup- verð fasteigna. Þorsteinn Arnalds, aðstoðarfram- kvæmdastjóri mats- og hagsviðs Fasteignamats ríkisins, tók næstur til máls, en hann gerði samdrátt á fasteignamarkaðnum einnig að um- talsefni í erindi sínu. Gögn sýndu fram á að kaupsamningar á tólf vikna tímabili hefðu ekki verið færri frá árinu 1997. Að teknu tilliti til þess að nú væru fleiri íbúðir á markaðnum þyrfti að fara aftur til ársins 1994 til að finna jafn fáa kaupsamninga miðað við fjölda fasteigna. Raunverð fasteigna væri mjög hátt og ljóst að 30% lækkun miðað við laun þýddi að fasteignaverð yrði svipað og það var sumarið 2004. Fasteignaverð- ið væri gróflega áætlað um 50% hærra miðað við laun en það var árið 2000. Mesta fasteignabóla sögunnar Arnór Sighvatsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabankans, setti stöðuna á íslenska fasteignamarkaðnum í al- þjóðlegt samhengi. Undangengin 125% raunhækkun á fasteignaverði á Íslandi væri sú mesta í sögunni og ljóst að sú 30% raunlækkun sem spáð væri yrði sambærileg við meðal- hjöðnun verðlags í kjölfar 24 sam- bærilegra húsnæðisverðsbóla í 15 að- ildarríkjum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD). „Allt frá því þessi mesta fasteigna- bóla Íslandssögunnar hófst hefur bankinn varað við því að henni myndi ljúka með verulegu falli í raunlækkun fasteignaverðs. Það er einfaldlega þannig að öllum fasteignaverðbólum veraldarsögunnar hefur lokið þann- ig,“ sagði Arnór, sem taldi óraunsætt að ætla að Ísland yrði þar undantekn- ing í þessum efnum. Yrði samdráttur í íbúðafjárfesting- um gætu stýrivextir bankans lækkað hraðar en ella, að því er gert væri ráð fyrir í spám. Í verðbólguspá bankans 10. apríl væri gert ráð fyrir 16% nafn- lækkun fasteignaverðs á árunum 2008-2010, samanborið við 10% nafn- lækkun í síðustu spá bankans þar áð- ur. Að raungildi jafngilti þetta 25% raunlækkun, en hafi áður jafngilt 16% raunlækkun. Ýmsir þættir að verki á Íslandi Arnór rakti því næst þá þætti sem hann taldi gera Ísland sérstaklega viðkvæmt í þeirri alþjóðlegu niður- sveiflu sem orðið hefði á mörkuðum. Raunhækkunin hér hefði verið með því mesta sem orðið hefði, viðskipta- hallinn hefði verið mikill og leitt til gengislækkunar. Heimilin og fyrir- tækin væru skuldsett og lánatregða í bankakerfinu. Mikið framboð væri af húsnæði og flestir þeir þættir sem stuðlað hefðu að hækkun húsnæðis- verðs síðustu ár hefðu eða væru að ganga til baka. Meðal þeirra þátta væri gríðarleg hækkun ráðstöfunar- tekna, lækkun útlánavaxta, hækkun hámarkslána og veðhlutfalla og leng- ing lánstíma. Um fasteignabólur mætti segja að því meiri sem uppsveiflan og ofþensl- an væri því meiri yrðu eftirköstin. Niðurstaða Arnórs var því sú að vandséð væri að umtalsverð raun- lækkun íbúðaverðs yrði umflúin, flest benti til að lækkunin gæti orðið meiri en áður í sögu Íslands. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, tók næstur til máls og sagði raunverð fasteigna hafa hækkað um 1,7% á ári frá árinu 1960. Á síðustu árum hefði fasteignamarkaðurinn þroskast og að hluta þeirra verðhækkana sem orðið hefðu mætti rekja til breyttrar verð- lagningar hverfa. Að meðaltali væru íslensk heimili ekki sérstaklega skuldsett hvað varð- aði húsnæði. Búa þyrfti til mjög virk- an leigumarkað í borginni til að geta með einhverju leyti mætt þeim sveifl- um sem orðið hefðu á fasteignamark- aðnum. Þá þyrfti að leiðrétta þá þenslu sem orðið hefði á markaðnum eins og á öðrum eignamörkuðum. Miðað við núverandi ástand væri það hins vegar „ábyrgðarleysi“ að ráðleggja tekju- lágu fólki að taka 90% fasteignalán. „Enginn mannlegur máttur“ gæti komið í veg fyrir að almenningur yrði fyrir kaupmáttarrýrnun næstu tvö árin. Ríkið þyrfti að geyma fjármuni núna til að geta mætt niðursveiflunni sem væri framundan á næsta ári. Hvað fasteignaverðið snerti væri aðalmálið að tryggja áframhaldandi veltu á markaðnum sem væri mikil- vægara en lækkun raunverðs. „Það skiptir máli að fólk geti losað eignir og að það sé hægt að eiga við- skipti á þessum markaði. Það er aðal- málið,“ sagði Ásgeir. Ásgeir sagði offramboð á húsnæði ekki mundu verða eins mikið og hann hefði óttast. Yrði verðbólga á bilinu 10-12% myndi það skila sér í fast- eignaverðinu með raunlækkun eigna. Bankinn gerði ráð fyrir 14% raun- lækkun fasteignaverðs fram til lok árs 2009, ef verðbólga gengi „tiltölu- lega hratt yfir“. Ef verðbólga yrði við- varandi væri horft til meiri raunlækk- unar á fasteignamarkaði. „Ég held að hagkerfið sé að fara að kólna tiltölulega hratt núna og ég held að Seðlabankinn lækki sína vexti tiltölulega hratt á árinu 2009.“ Þýskir aðilar skoða markaðinn Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, tók við af Ásgeiri með erindi um hlutverk sjóðsins, með þeim orðum að það væri undir stjórnvöldum komið að ákveða leikreglur sjóðsins. Hallur Magnússon, ráðgjafi hjá Spesíu og fyrrverandi starfsmaður Íbúðalánasjóðs, sagði erlenda aðila sýna áhuga á markaðnum. „Þetta eru þýskir aðilar sem eru búnir að fylgjast með markaðnum í þónokkurn tíma. Þeir horfa til þess að lána fé til íbúðakaupa í evrum á Ís- landi með langtímafjárfestingar í huga,“ segir Hallur. Hann kvaðst ekki geta gefið upp hvaða aðilar væru á ferð en sagði ekki um að ræða fyrirtækið Allianz, sem hefði kannað markaðinn árið 2000 og svo aftur upp á síðkastið með íbúða- lán í evrum í huga. Hallur viðraði á fundinum hug- myndir um að sjóðurinn kaupi hluta íbúðalána bankanna með eðlilegum afföllum og fjármagni þau kaup með sölu ríkistryggðra íbúðabréfa. „Afleiðing þessa gæti orðið sú að ekki þyrfti að hækka vexti þeirra lána sem eru með opinn uppgreiðslu- glugga haustið 2009 eins mikið og annars væri, en miðað við núverandi aðstæður er ljóst að bankarnir geta ekki endurfjármagnað lán sín á þeim vöxtum sem voru 2004.“ Þegar bankarnir hefðu ákveðið 4,15% vaxtastig hefðu þeir verið bjartsýnir um að vextir á alþjóða- mörkuðum yrðu lágir. Þessi staða hefði breyst í kjölfar lánsfjárkrepp- unnar og ljóst að bankarnir hefðu tapað á því að veðja á endurfjármögn- un á lægri vöxtum. „Það sem vantar hjá bönkum eins og Kaupþingi er að þeir hafa fjár- magnað lán til 40 ára með skamm- tímalánum og þeir þurfa sífellt að endurfjármagna langtímalánin. Vandamálið hjá bönkunum núna er að þeir fá enga peninga. Það liggur í augum uppi að þeir verða að hækka vextina, bæði til að taka mið af þeirri fjármögnun sem þeir munu þurfa til endurfjármögnunar á þessum lánum og líka vegna þess að þeir hafa verið að tapa á fasteignabréfum.“ Helfrost á fasteignamarkaði Morgunblaðið/Golli Meðal ræðumanna Hallur Magnússon (frá vinstri), Guðmundur Bjarnason, Ásgeir Jónsson og Arnór Sighvatsson.  Mesta fasteignabóla Íslandssögunnar sprungin  Ekki jafnfáir kaupsamningar á markaðnum síðan 1994  Ráðgjafi segir þýska aðila kanna fýsileika þess að bjóða upp á fasteignalán í evrum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.