Morgunblaðið - 10.06.2008, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. J Ú N Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
157. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
JAMES BLUNT ELSK-
AÐUR OG HATAÐUR
DAGLEGTLÍF
Aldrei migið í salt-
an sjó en sigla þó
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8-
00
80
NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is
Ambra
>> 37
Leikhúsin í landinu
BRESKUR almenningur er að sigla inn í mikinn efna-
hagslegan ólgusjó og getur vænst þess að lífskjörin stefni
í það horf sem þau voru í þegar olíukreppurnar dundu yf-
ir árin 1973-74 og 1980-81 og leiddu til keðjuhækkana á
öllum helstu nauðsynjavörum.
Það sama er uppi á teningnum nú. Fatnaður, matvæli
og umfram allt eldsneyti, svo eitthvað sé nefnt, hefur
hækkað mikið í verði og vara breskir hagfræðingar nú
við því að ráðstöfunartekjur fjölskyldna muni dragast
saman á hraða sem hefur ekki sést síðan olíukreppurnar
drógu úr kaupgetu alls þorra almennings.
Hafði dagblaðið The Daily Telegraph eftir bresku hag-
stofunni að verðlagshækkanir síðasta mánaðar hefðu
verið þær hröðustu í 22 ár. Á sama tíma breiðast olíu-
verðsmótmælin út. | 16 og 17
Svört spá um lífskjör bresks almennings á næstu misserum
Kaupmátturinn hrynur
Reuters
Launin hækki Opinberir starfsmenn í Bretlandi fara
fram á launahækkanir nú þegar efnahagsútlit er dökkt.
LITRÍKIR hópar ungra listamanna eru orðnir boðberar sumarsins í
Reykjavík, ekki síður en lóan og krían. Sem fyrr er það Hitt húsið sem
leiðir skapandi sumarstarf fyrir ungt fólk í Reykjavík og hafa ófáir lista-
menn stigið sín fyrstu skref í listsköpun undir handleiðslu Hins hússins.
Í ár láta alls 12 hópar ljós sitt skína á ýmsum sviðum, og er boðið upp á
allt frá djasstónlist til myndlistargjörninga. | 41
Borgin lifnar við
Morgunblaðið/Valdís Thor
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ENN ein verðhækkun á eldsneyti
var tilkynnt í gær. Það var Skelj-
ungur sem reið á vaðið og tilkynnti 6
króna hækkun á bensínlítranum og 7
króna hækkun á dísilolíu.
Algengt verð á bensíni í sjálfs-
afgreiðslu er 170,40 krónur lítrinn
og algengt verð á dísilolíu er 186,80
krónur lítrinn. Á sama tíma í fyrra
var algengt verð á bensíni 124 krón-
ur lítrinn. Hækkun milli ára er því
um 37%. Dísilolían hefur hækkað
ennþá meira. Í byrjun júní í fyrra
kostaði dísillítrinn 123 krónur.
Hækkun milli ára er því um 52%.
Vegna tíðra verðhækkana að und-
anförnu eru Íslendingar farnir að
hugsa sig um tvisvar áður en þeir
leggja í langferð á bifreiðum sínum.
Þeir sem best þekkja til eru sam-
mála um þetta.
Nýjustu tölur úr Hvalfjarðar-
göngunum renna stoðum undir
þessa skoðun. Í maí sl. fóru 177.188
bílar um göngin. Í sama mánuði í
fyrra fóru 182.193 bílar um göngin.
Fækkunin nemur 2,7%.
Marktækasti samanburðurinn
fæst þegar bornar eru saman sömu
vikur milli ára. Í 22. viku þessa árs,
þ.e. frá 25. maí til 31. maí, fóru
42.752 bílar um göngin. Sömu viku í
fyrra fóru 48.403 bílar um göngin.
Fækkunin nemur 11,7%. Sigurður
Ingi Jónsson, verkefnastjóri hjá
Speli, sem rekur Hvalfjarðargöng,
segir hækkun eldsneytisverðs að
undanförnu langlíklegustu skýr-
inguna á minnkandi umferð um
göngin. Önnur atriði geti ekki út-
skýrt þessa miklu fækkun. Frá því
að göngin voru opnuð 1998 hefur bíl-
um fjölgað árlega, þar til nú. | 14
Færri bílar um göngin
Enn ein stórhækkunin á eldsneyti
Hækkanir hafa dregið úr umferð
!"
"
"
"
"
!
!
EFTIR verð-
hækkun gær-
dagsins kostar 60
lítra áfylling á
fólksbíl með
bensínvél 10.224
kr. og 90 lítra
dæling á jeppa
með dísilvél
16.812 kr.
Magnús Ás-
geirsson hjá elds-
neytisinnkaupum N1 segir hækk-
unina eina þá mestu sem hann hafi
séð, en tunna af hráolíu úr Norður-
sjó hækkaði um 4 dollara í gærdag.
Hann segir nýja tíma gengna í garð
í olíuverslun. Magnús hafði allt eins
búist við lækkun í gær, þar sem
verð rauk upp sl. föstudag.
Ein fylling á fólksbílinn
kostar tíu þúsund krónur
Sopi af þessum stút
kostar ansi mikið.
SÓMÖLSK
stjórnvöld und-
irrituðu í gær
vopnahléssam-
komulag við
vopnaða upp-
reisnarhópa eftir
áralöng blóðug
átök í landinu.
Sameinuðu þjóð-
irnar fóru fyrir
friðarumleit-
unum og kveða samningar á um að
eþíópískar hersveitir yfirgefi land-
ið innan 120 daga.
Margir harðlínu- og uppreisnar-
menn viðurkenna ekki samkomu-
lagið, en eþíópíska herliðið kom
stjórninni til bjargar eftir blóðuga
uppreisn íslamista. Engu að síður
er samkomulagið talið mikilvægt
skref í átt að varanlegum friði í
landinu. | baldura@mbl.is
Vopnahlé í Sómalíu
Hermaður í
Mogadishu.
HINN illræmdi spánarsnigill, sem
hefur gert sig heimakominn á Ís-
landi undanfarin ár, gerir sig nú
líklegan til að fjölga sér enn frekar
og dreifa sér um landið. Snigillinn
telst meindýr og er talin rík ástæða
til að koma í veg fyrir útbreiðslu
hans.
Erling Ólafsson hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands hyggst kort-
leggja landnám sniglanna og óskar
því eftir hjálp landsmanna við að
handsama þá og senda til skrán-
ingar. Hann hvetur fólk til að vera á
varðbergi gagnvart sniglinum. » 2
Er sniglaplága í uppsigl-
ingu þetta sumarið?