Morgunblaðið - 10.06.2008, Page 44
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Nær stokkurinn alla leið?
Stjórn Faxaflóahafna vill láta
kanna kosti þess að leggja stokk alla
leið frá Geirsgötu út í Ánanaust í
einum áfanga, þannig að ekki verði
fyrirferðarmikill gangamunni við
miðbakka Reykjavíkurhafnar.
Myndi þetta fela í sér verulega
breytingu frá núverandi hugmynd-
um um framkvæmdir á svæðinu. » 2
Bensínið hækkar enn
Önnur olíufélög fylgdu í kjölfarið
eftir að Skeljungur hækkaði verðið á
bensínlítranum um 6 krónur í gær, í
samtals 170,4 krónur. » Forsíða
Niðursveifla í Bretlandi
Stöðugar verðhækkanir á
hráefnisvörum, orku, matvælum og
eldsneyti munu koma þungt niður á
breskum almenningi og svo kann að
fara að kaupmáttur þorra fólks fær-
ist aftur í það horf sem hann var í
eftir olíukreppurnar á áttunda og ní-
unda áratugnum. Stighækkandi
eldsneytisverði var mótmælt víða
um heim í gær. » Forsíða, 16 og 17
Erfið spurning
Þeirri spurningu er vandsvarað
hversu mikinn kostnað er eðlilegt að
samfélagið greiði til að lengja líf
dauðvona sjúklinga. Stjórnmála-
menn vilja margir hverjir ekki taka
afstöðu til málsins. » Miðopna
SKOÐANIR»
Staksteinar: Birnir og bláskjáir
Forystugreinar: Virkjanir í einka-
eign | Framhaldsskóli í listum
Ljósvaki: Skítastörf með Schmeichel
UMRÆÐAN»
Ræða Sigurðar Ólasonar
Skortur á heilbrigðisstarfsfólki …
Kolkrabbinn spjó eitri í sex ár
Barnaleg Björk
3
3
3 3
3 3
3 3
3
4$5 !.( *(
6() (() ( 3 3
3
3 3 3 3 3
,7&1 ! 3 3 3 3
3 3 89::;<=
!>?<:=@6!AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@!7 7<D@;
@9<!7 7<D@;
!E@!7 7<D@;
!2=!!@ F<;@7=
G;A;@!7> G?@
!8<
?2<;
6?@6=!2*!=>;:;
Heitast 15 °C | Kaldast 6 °C
Norðaustan 3-8 m/s.
Skýjað að mestu sunn-
an- og vestanlands og
sums staðar skúrir,
einkum síðdegis. » 10
Chris Martin,
söngvari hljómsveit-
arinnar Coldplay,
sparar ekki stóru
orðin í garð Sigur
Rósar. » 38
TÓNLIST»
Sigur Rós er
best í heimi
FÓLK»
Pamela ætlar að gefa fína
bílinn sinn. » 42
Ásgeir H. Ingólfsson
fjallar um þær bæk-
ur sem á einn eða
annan hátt fjalla um
knattspyrnu. » 36
BÓKMENNTIR»
Fótboltafár
bókmennta
KVIKMYNDIR»
Sigurjón Sighvatsson
dæmir í Edinborg. » 34
GAGNRÝNI»
Nýjasta mynd Als Pac-
inos er hræðileg. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Bubbi Morthens gekk í það heilaga
2. Öfunduð af tönnunum
3. Handtaka á Patró á You Tube
4. „Ó já, ég er hræddur“
Íslenska krónan styrktist um 0,1%
BRIMBRETTI hafa ekki verið mikið brúkuð við Íslandsstrendur hingað til,
en þó eru þeir nokkrir ofurhugarnir sem iðka þetta jaðarsport af ástríðu í
íslensku ölduróti. Að sögn þessa brimbrettakappa eru hvítu strendurnar
við Arnarstapa á Snæfellsnesi engu síðri en Kalifornía þegar kemur að
brettaiðkun, nema ef vera skyldi fyrir kaldan sjóinn, en það er ekkert sem
má ekki kippa í liðinn með einum blautbúningi eða svo.
Nýir möguleikar í útivist á Snæfellsnesi
Ljósmynd/Hjaltested
Brimbrettaiðkun falinn fjársjóður á Íslandi
TÓNALJÓÐIÐ „Bæn“ eftir Gunnar Þórðarson
verður frumflutt á opnunartónleikum árlegrar
sumarlistahátíðar í Alsace í Frakklandi 3. júlí nk.
Diddú mun flytja verkið ásamt íslenskum söng-
kvartett og kammersveit í friðaðri, rómanskri
kirkju í Rosheim, Eglise Saints-Pierre et Paul.
Tónleikarnir eru sagðir hápunktur hátíðarinnar
Chemin d’art Sacré en Alsace.
Sýning á mósaíkskúlptúrum franska lista-
mannsins Gérards Brands verður um leið opnuð í
kirkjunni en Brand fékk þá hugmynd í kjölfar
þess að hann hlýddi á söng Diddúar að opna sýn-
ingu á verkum sínum undir þemanu „bæn“. Hann
fékk ljóðskáldið Albert Strickler til að semja ljóð
við þemað og Gunnar Þórðarson var svo fenginn
til að semja tónlist við ljóðin. Diddú og Gunnar
segja nánar frá verkinu og tónleikunum í Morg-
unblaðinu í dag. | 18
Morgunblaðið/Kristinn
„Bæn“ Gunn-
ars opnar hátíð
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
HJÁLMTÝR Heiðdal gagnrýnir stjórn Kvik-
myndaframleiðendafélagsins SÍK harðlega og
segir allt í skralli innan félagsins, sem er eina eig-
inlega félag kvikmyndaframleiðenda á Íslandi, en
Hjálmtýr ætlar ásamt fleiri mönnum að stofna Fé-
lag sjálfstæðra kvikmyndaframleiðenda (FSK).
Eru menn sammála um að endurskoða þurfi
punktakerfi félagsins, sem gerir framleiðendum
heimildarmynda mjög erfitt fyrir, en Baltasar
Kormákur, formaður SÍK, segir þó ákveðið vanda-
mál að fyrst þurfi að skilgreina heimildarmynd
betur. Böðvar Bjarki Bergsson, forstöðumaður
Kvikmyndaskólans, segir starf SÍK vera í lama-
sessi og harmar sundrungina. Baltasar Kormákur
segir allt tal um klofning og titring miklar ýkjur
og segir Hjálmtý hafa staðið fyrir stöðugum árás-
um á SÍK undanfarin misseri á meðan tímasetning
gagnrýni Böðvars Bjarka sé undarleg að hans
mati, en nýlega bað Kvikmyndaskólinn SÍK um
stuðningsyfirlýsingu sem SÍK var ekki tilbúið til
þess að veita nema skólinn skilaði greinargerð um
starf sitt. | 37
Davíð gegn Golíat í ís-
lenskum kvikmyndum?
Baltasar
Kormákur
Hjálmtýr
Heiðdal
Böðvar Bjarki
Pétursson
Í HNOTSKURN
»Unnið er að stofnun Félags sjálfstæðrakvikmyndaframleiðenda þótt þegar sé
til staðar Framleiðendafélagið SÍK.
» Inntökuskilyrði í SÍK eru mjög ströng,og er farið eftir sérstöku punktakerfi.
»Til þess að fá inngöngu þarf 700 punkta.Fyrir bíómynd í fullri lengd fást 900
punktar en fyrir heimildarmynd aðeins 120.
Því þarf sex slíkar til að fá inngöngu í SÍK.
»Þetta kerfi er haft til hliðsjónar þegargreitt er úr sjóðum SÍK.
Minni kvikmyndafram-
leiðendur deila við stærri