Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 9 Hver var maður dagsins? Jón Sigurðsson lifir í þjóðarsálinni. Kenningarnafn hans, forseti, var spásögn. Hann var raunverulega forseti íslensku þjóðarinnar löngu fyrir daga lýðveldisins. En hvað vitum við um þennan vestfirska útnesjamann, sem skyggði á hvaða konung sem var? Litla sögubókin um Jón Sigurðsson forseta segir frá lífi hans og persónu á skorinorðan og aðgengilegan hátt fyrir alla. Afar og ömmur, pabbar og mömmur, frændur og frænkur: Ungdómurinn þarf að eignast þessa litlu bók, lesa hana og læra utanað helstu æviatriði Jóns forseta. Svo er það ykkar að hlýða þeim yfir. Sumt af því sem menn lærðu í æsku muna margir ævilangt. Þá þarf ekkert að fletta því upp í tölvu! Auk þess hafa allir gott af því að læra eitthvað utanbókar. Ungur nemur, gamall temur! Fæst í bókaverslunum um land allt. Verð 390,- kr. Morgunblaðið/RAX Nálægur Björninn hélt sig í um 230 m fjarlægð frá Hrauni. Dreginn hefur verið svartur hringur utan um björninn. Morgunblaðið/RAX sannarlega í feitt því hann fann mikla matarkistu í æðavarpinu rétt hjá Hrauni. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frá Hrauni I Hvítabjörninn sést greinilega við sjóndeildarhringinn þegar maður stendur við bæinn Hraun I. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is ÖRYGGIÐ var sett á oddinn norður á Skaga, eftir að vart varð við hinn óboðna gest. Lögregla lokaði strax leiðinni, bæði að austan og vestan, að bæjunum þremur sem eru rétt við Skagatána, til þess að koma í veg fyrir að forvitnir vegfarendur kæmust í námunda við dýrið eins og raunin varð þegar hinn fyrri kom í byrjun mán- aðarins. Ábúendur voru látnir halda kyrru fyrir heima á bæjunum, skyttur úr héraðinu komu á staðinn í ör- yggisskyni og lögreglu- og björgunarsveitarmenn vöktuðu dýrið frá veginum. Allt var með kyrrum kjör- um, sárafáir bílstjórar freistuðu þess að koma auga á björninn því tilkynnt var tímanlega að leiðin væri lok- uð. Óhætt er að segja að náttúran hrópi og kalli þarna á Skaganum; ólgandi hafið og logn á hraðferð í gær. Síð- ast þegar ég kom var það til að fylgjast með hring- myrkva á sólu í maí 2003. Þá var þungbúið, fólk beið víða á Norðurlandi upp á von og óvon en svo heppilega vildi til að nákvæmlega á þessum stað rofaði til stutta stund um miðja nótt og myrkvinn sást vel. Hvítabjörn- inn við Hraun sást líka ágætlega, þótt úr fjarska væri. Bangsi virtist hafa það huggulegt í æðarvarpinu, og lét sig það vitaskuld engu varða þótt fáeinir fjölmiðlamenn þokuðust í lögreglufylgd áleiðis að Hrauni II vopnaðir myndavélum. Eina ógnin sem að þeim steðjaði var af kríunni sem gætti eggja sinna af kunnri grimmd. Öryggið sett á oddinn á SkagaS&S Hvaðan kom hvítabjörninn? Heimkynni bjarnarins eru líklega í Grænlandssundi en mismunandi kenningar eru uppi um hvernig hann rataði hingað til lands. Ísbreiða gæti hafa flutt hann suður með Grænlandi og þaðan til Íslands. Hvað gerist í dag? Sérfræðingur frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn kemur til landsins um miðjan dag. Hann verður vopn- aður deyfilyfjun og stóru búri. Land- helgisgæslan flytur búrið. Síðdegis eða undir kvöld ættu aðgerðir að hefjast á Skaga. Gangi allt að óskum verður björninn unninn í kvöld eða nótt. Hver verða örlög bjarnarins? Ef allt gengur að óskum verður dýrið svæft og komið fyrir í traustu búri. Þá er talið líklegt að varðskip ferji björninn aftur til heimkynna sinna í Grænlandssundi. Einnig kemur til greina að flytja hann til Danmerkur sé áhugi þar fyrir því að hýsa hann í dýragarði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.