Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 11
FRÉTTIR
URÐUR Gunnarsdóttir, fjölmiðlafulltrúi í utan-
ríkisráðuneytinu, segir borgaralegu flugi á ís-
lenska flugeftirlitssvæðinu ekki hafa verið sér-
stök hætta búin þegar rússneskar sprengjuflug-
vélar flugu í kringum landið í upphafi síðustu
viku, þótt franskar orrustuþotur hefðu ekki
fylgt þeim eftir allan tímann. Tvær franskar vél-
ar af fjórum sem hér eru fylgdu Rússunum frá
því á Grænlandssundi suður og austur fyrir land-
ið. Að svo búnu þurftu þeir frá að hverfa vegna
flugþols vélanna.
Ratsjá nóg til að vita um ferðir Rússanna
Yfirlýstur tilgangur flugs Frakkanna var, auk
þess að sýna nærveru herliðs, að staðfesta hvers
konar flugvélar væru á ferðinni og gefa frá sér
merki fyrir borgaralega flugumferðarstjórn-
unarkerfið, sem Rússarnir gefa ekki frá sér. Mir-
age-þotur Frakka fylgdu þeim eftir í hálfan ann-
an tíma en sprengjuvélarnar voru lengur en svo í
íslensku loftrými. Urður segir vélarnar hafa ver-
ið sýnilegar á ratsjá allan tímann en þar að auki
hafi AWACS-ratsjáreftirlitsvélar frá NATO ver-
ið fyrir austan land og fylgst með þeim. Upplýs-
ingar frá loftvarnakerfinu séu aðgengilegar
flugumferðarstjórum hér á landi og því hafi
borgaralegu flugi ekki verið hætta búin þegar
Rússarnir voru án fylgdar. Engu að síður sé enn
betra þegar þeim sé fylgt og merki gefið með
þeim hætti. Líklega verði mótfluginu háttað með
svipuðum hætti næst, nema eitthvað í atferli að-
komuvéla gefi tilefni til annars. Ákvarðanir um
slíkt séu í höndum þeirra sem sinna eftirlitinu
hverju sinni. onundur@mbl.is
Borgaralegt flug ekki í hættu
Ógn? Áður voru það bandarískar F 15-vélar, sem
tóku á móti rússneskum sprengjuflugvélum.
ORKUVEITA Reykjavíkur hefur
sótt um virkjunarleyfi til iðnaðar-
ráðuneytisins fyrir stækkun Hellis-
heiðarvirkjunar úr 160 megavöttum í
280 MW.
Samkvæmt upplýsingum Eiríks
Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa
Orkuveitunnar, er áformað að viðbót-
in verði tekin í notkun árið 2010. Raf-
orka er nú framleidd með fjórum afl-
vélum í virkjuninni og tvær aflvélar
munu bætast við þegar ráðist verður í
stækkunina.
Orka úr Skarðsmýrarfjalli
Sú orka, sem fyrirhugað er að afla
til stækkunarinnar, mun koma úr
Skarðsmýrarfjalli. Mat á umhverfis-
áhrifum hefur þegar farið fram og
féllst Skipulagsstofnun á fram-
kvæmdina með skilyrðum með úr-
skurði, dagsettum 28. mars 2006.
Skarðsmýrarfjall er innan þjóðlendu
og óskaði Orkuveita Reykjavíkur
heimildar forsætisráðherra til að nýta
jarðhitaréttindi innan þjóðlendunnar
skv. ákvæðum þjóðlendulaga. For-
sætisráðherra veitti heimildina með
bréfi haustið 2007.
Hluti þess rafmagns, sem framleitt
verður í Hellisheiðarvirkjun, verður
nýttur á almennum markaði Orku-
veitu Reykjavíkur og til að mæta
stækkun markaðarins.
Í samræmi við 34. grein raforku-
laga er þeim aðilum er málið varða,
gefið færi á að koma á framfæri sjón-
armiðum sínum til iðnaðarráðuneyt-
isins innan fjögurra vikna frá birtingu
auglýsingar í Lögbirtingablaðinu.
Upplýsingar og gögn má nálgast á
skrifstofu Orkuveitunnar, Bæjarhálsi
1, Reykjavík. sisi@mbl.is
Virkjun
verður
stækkuð
Umhverfismat
hefur verið
samþykkt
SJÖ fyrrver-
andi blaða-
menn á Krón-
ikunni hafa
höfðað mál
gegn útgáfu-
félagi blaðs-
ins og krefj-
ast alls sjö
milljóna
króna sem
þeir segja að
séu vangoldin laun í uppsagnar-
fresti. Þegar Krónikan lagði upp
laupana keypti útgáfufélag DV út-
gáfuréttinn að blaðinu og af hálfu út-
gefanda var litið svo á að blaðamönn-
um Krónikunnar hefði ekki verið
sagt upp þar sem þeim var boðið að
starfa áfram fyrir DV. Blaðamenn-
irnir mótmæltu því og bentu á að
störfin væru ekki sambærileg.
Lára V. Júlíusdóttir hrl., lögmað-
ur blaðamannanna, gerir ráð fyrir að
málið verði flutt í ágúst.
runarp@mbl.is
Krefjast
fimm milljóna
Sjö tölublöð komu út
af Krónikunni.
UM helgina losnuðu loks síðustu
fíkniefnapakkningarnar úr iðrum
fertugs Hollendings sem var hand-
tekinn á Keflavíkurflugvelli fyrir
rúmlega tveimur vikum, eða 29. maí
sl. Hann reyndist hafa gleypt pakkn-
ingar sem alls innhéldu tæplega 800
grömm af kókaíni.
Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi
og bíður nú dóms fyrir smygltilraun-
ina sem misheppnaðist svona óþægi-
lega. runarp@mbl.is
Kókaínið
laust úr iðrum
Við hjá Hótel Eddu fyllumst ætíð miklu stolti og tilhlökkun á
17. júní. Líkt og aðrir landsmenn höldum við upp á þjóðhátíðar-
daginn. En fyrir okkur markar hann jafnframt sumarkomuna því
þá hafa öll hótelin okkar opnað upp á gátt.
SUMARSÆLA Í 47 ÁR
Fyrsta Edduhótelið var opnað árið 1961 og byggði á þeirri
hugmynd að nýta húsnæði og heimavistir héraðsskólanna til
að bjóða ferðalöngum þar upp á gistingu yfir sumartímann. Nú
mynda 13 Edduhótel víðs vegar um Ísland eina elstu og virtustu
hótelkeðju landsins. Sum þeirra eru sérhönnuð sem hótel, en
öll starfa þau á þeim upprunalega grunni að bjóða hagkvæma
og notalega gistingu og góða þjónustu.
ATVINNUSKAPANDI FERÐAMENNING
Við erum stolt af hlutverki okkar í ferðamenningu Íslendinga
og ekki síður af þætti Edduhótelanna í atvinnusköpun á
landsbyggðinni. Nú sem fyrr eru hundruð sumarstarfa á
Edduhótelum í heimabyggð gríðarlega eftirsótt, jafnt meðal
íslenskra ungmenna og þeirra sem eldri eru. Reynsla
starfsfólksins og þekking á náttúru og nágrenni hótelanna eru
dýrmætur sjóður fyrir okkur og gesti okkar að sækja í.
VIÐ ÓSKUM ÞÉR GLEÐILEGRAR ÞJÓÐHÁTÍÐAR
OG HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI ÞÉR Í SUMAR.
Starfsfólk Edduhótelanna
GLEÐILEGA
ÞJÓÐHÁTÍÐ
1 ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar • 4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjaskóli • 6 Neskaupstaður
7 Egilsstaðir • 8 Eiðar • 9 Stórutjarnir • 10 Akureyri • 11 Laugarbakki • 12 Ísafjörður • 13 Laugar
PANTAÐU ALLAN HRINGINN Á HOTELEDDA.IS EÐA Í SÍMA 444 4000
12
1
2
4
5
8
9
10
11
13
3
67
1
13
2
13 HÓTEL ALLAN HRINGINN